Morgunblaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2020 „(Að) búa nem- endur undir líf og starf í lýðræðisþjóð- félagi, sem er í sí- felldri þróun. Starfshættir skól- ans skulu því mótast af umburðarlyndi og lýðræðislegu samstarfi.“ Í námi mínu við Freie Uni- versität í Vestur-Berlín kynntist ég tveimur mönnum sem lögðu stund á hagfræði menntunar, sem þá naut ekki mikillar athygli innan hagfræðasviðsins. Vinnuafl var aðföng til framleiðslu og skól- unum var ætlað að búa þau til. Þessir menn tengdust nýrri stofnun innan þýska Max- Planck-vísindafélagsins, Institut für Bildungsforschung, sem valin hafði verið staður í Vestur-Berl- ín. Þeir kynntu mig fyrir landa mínum Wolfgang Edelstein, ein- um af fyrstu fræðimönnum þeirr- ar stofnunar og einn af stjórn- endum hennar til starfsloka. Með okkur Wolfgang tókst vinátta sem entist vel og dýpkaði með árunum. Frjó hugsun hans og þau viðhorf til menntunar að hún hafi sjálfstætt gildi fyrir mót- un einstaklings og samfélags, hafði mikil áhrif á sýn mína á hagfræði. Ég vann með honum að söfnun og úrvinnslu upplýsinga um ís- lenska skólakerfið og hóf að námi loknu störf í menntamálaráðu- neytinu. Wolfgang var þá ráðgjafi ráðu- neytisins og frumkvöðull margra umbóta. Hann hafði beitt sér fyr- ir stofnun deildar innan þess sem sinnti skólarannsóknum og námsefnisgerð og hann kom að gerð laga um grunnskóla sem sett voru 1974. Orðin hér í upp- hafi um markmið grunnskóla má tileinka Wolfgang Edelstein. Hann var merkisberi þeirrar stefnu og þeirri hugsunar sem þar kemur fram. Aðrir munu gera fræðastörf- um Wolfgangs skil. Ég minnist hér vináttu hans, hjálpsemi og hlýju. Á Berlínarárunum reynd- ist hann okkur, fjárlitlum stúdent og fjölskyldu, vel með útvegun vinnu í skólafríum, aðstoð í hús- næðismálum o.fl. en mest virði var sú vinátta sem batt okkur ævilangt. Til heiðurs honum völd- um við yngsta barni okkar nafn sem vísar til hans. Vináttu við okkur deildi kona hans og sam- starfsmaður Monika Keller. Þeirrar vináttu naut Júlíana tuttugu árum síðar þegar hún var í Berlín í tónlistarnámi og Rakel í námsleyfi sínu enn síðar. Wolf- gang og Monika voru ætíð til staðar með hjálp og hlýju og góð- an félagsskap. Wolfgang var mikill Íslending- ur og sjö áratuga búsetu erlendis var ekki að merkja á máli hans. Tengsl hans við landið voru mikil. Rætur hans í menningu og mann- lífi landsins voru sterkar og hann fylgdist alla tíð með því sem hér gerðist í stjórnmálum, félagsmál- um og menningarmálum. Monika og börn þeirra, Anna Lilja og Benjamín, deildu þessum rótum með honum og eiga hér vensla- og vinafólk og voru hér tíðir gest- ir. Síðari árin dvöldu Wolfgang og Monika hér á landi nokkrar vikur sumar hvert. Þótt sá tími hafi verið ásettur vegna vin- afjölda reyndum við ætíð að finna tíma til stuttra ferða með þeim um landið því náttúran og fjalla- dýrðin var þeim kær. Ferðir að Wolfgang Edelstein ✝ Dr. WolfgangEdelstein fæddist 15. júní 1929. Hann lést 29. febrúar 2020. Útför hans fór fram hér á landi í kyrrþey. Fjallabaki, um Suð- urland og Snæfells- nes og síðast að Gjánni í Þjórsárdal og nágrenni eru í huganum baðaðar sólskini. Við sendum Mo- niku, Önnu Lilju og Benjamín innilegar samúðarkveðjur. Það er sárt að kveðja góðan vin en gott að eiga um hann bjartar minningar. Indriði, Rakel, Júlíana Rún, Indriði Haukur og Úlfhildur Ösp. Á jiddísku er orðið „Mensch“ iðulega notað um góðan mann. Wolfgang Edelstein var sannar- lega mikill „Mensch“. Hann flutt- ist til Íslands drengur að aldri eft- ir að fjölskyldu hans, sem átti eftir að auðga íslenskt samfélag, var bjargað frá Þýskalandi nasismans árið 1938. Faðir hans, Heinz Edel- stein sellóleikari, var einn þeirra sem lagði grunn að tónlistarlífi í landinu, og Wolfgang sjálfur helg- aði drjúgan hluta starfsævi sinnar rannsóknum og fræðslu um mál- efni skóla, náms, þroska og sam- félags hér á landi þótt hann hafi aðeins haft hér fasta búsetu í um áratug. Wolfgang þekkti af eigin reynslu hvernig það er að vera hjálparlaus, rótlaus og mállaus í nýju landi. En það var tekið vel á móti honum í hinu nýja og fram- andi landi og hann eignaðist fljótt trausta vini sem áttu eftir að vera honum trúir til æviloka. Þegar við vorum við nám í Berlín var Wolfgang einn for- stöðumanna Max-Planck-stofnun- arinnar í menntarannsóknum sem þá var talin flaggskip menntavís- inda í Þýskalandi. Sjálfur hafði Wolfgang átt þátt í að þróa hug- myndina að stofnuninni, ásamt fleirum og m.a. vini sínum heim- spekingnum Jürgen Habermas. Báðir voru þeir af þeirri kynslóð þýskra fræðimanna sem beið það risavaxna hlutverk að endurhugsa nám og menntun eftir hörmungar nasismans og heimsstyrjaldarinn- ar. Hvað hafði gert að verkum að þjóð hugsuðanna og skáldanna veitti þeim atburðum sem leiddu til helfararinnar ekki meira við- nám en raun bar vitni? Hvernig þurfum við að mennta og valdefla ungt fólk til að það geti orðið virk- ir og myndugir borgarar í frið- samlegu lýðræðissamfélagi? Þessi spurning átti eftir að verða leið- arstef í lífi og starfi Wolfgangs. Hann hugsaði sögulega en gerði sér jafnframt skýra grein fyrir þeim gríðalegu áskorunum sem hefðarrof og ör nútímavæðing allra sviða samfélagsins hafa fyrir uppalendur, kennara og skóla. Wolfgang var einlægur upplýs- ingamaður í besta skilningi þess orðs, gagnmenntaður, fróðleiks- fús, bjartsýnn og alltaf opinn fyrir nýjum hugmyndum. Það var leit- un að skemmtilegri samræðu- félaga því hann gaf alltaf svo mik- ið af sér og hafði svo lifandi áhuga á því sem aðrir höfðu til málanna að leggja. Það var dæmigert að Wolfgang, sem var frábær skíða- maður, byrjaði hverja einustu ferð í Alpafjöllin á að fara til kenn- ara. Því með opnum hug er alltaf hægt að læra meira, gera betur, ná lengra. Það var mikið lán að hafa feng- ið að vera samferða Wolfgang, bæði í störfum við Max-Planck- stofnunina um árabil og sem per- sónulegir vinir í fjóra áratugi. Wolfgang var okkur alla tíð ein- stakur velgjörðarmaður og men- tor sem aldrei brást. Þegar fyr- irhuguð svarakona forfallaðist og komst ekki í giftingarathöfn okk- ar stökk Wolfgang til eins og ekk- ert væri sjálfsagðara. Og bauð svo á fínasta ítalska veitingahúsið í Berlín á eftir. Hann var alltaf boð- inn og búinn að hjálpa, stráksleg- ur, hlýr, glaður og léttur í lund. Við kveðjum Wolfgang Edel- stein með þakklæti og virðingu og vottum Moniku, Önnu Lilju og Benjamín ásamt fjölskyldum okk- ar innilegustu samúð. Magnús D. Baldursson og Sigríður Þorgeirsdóttir. Wolfgang Edelstein var ein- stakur maður. Hann var orku- meiri, ákveðnari, gáfaðri og ástríðufyllri en flestir sem ég hef kynnst á langri ævi. Það var mikið lán að fá að vera samferða honum í um 45 ár, fyrst sem samstarfs- maður og síðan vinur. Á þá vináttu bar engan skugga. Samveru- stundir voru ekki margar í seinni tíð en þær voru alltaf gefandi og góðar. Upphaf kynna okkar má rekja til þess að ég fékk boð um að taka þátt í rannsóknarvinnu með Wolf- gang og Sigurjóni Björnssyni, þegar ég var í sálfræðinámi í HÍ 1973-77. Ég þáði boðið og við tóku ár þar sem farið var milli skóla og ferðast um landið til að taka viðtöl við börn í langtímarannsókninni Þroskarannsókn, sem var á veg- um Háskóla Íslands og Max- Planc-Institut für Bildungsfor- schung í Berlín. Auk þess var ég ritari rannsóknarinnar um tíma og vann því náið með Wolfgang, einkum þegar hann var hér á landi en einnig með bréfaskriftum og símtölum eins og tíðkaðist. Wolfgang hafði ótrúlegt vinnu- þrek, hann var svo kappsamur til vinnu að maður mátti hafa sig all- an við. Ég sagði stundum að mið- að við fyrri störf þyrfti ég að vinna á 150% afköstum þegar hann væri á staðnum. Hann handritaði öll bréf og önnur skjöl, en gerði það jafnhratt og ég vélritaði. Það var mikill lærdómur að vélrita fyrir hann meðmæli og umsagnir um ýmsa, sem leituðu til hans eftir slíku. Hann vann umsagnir af slíkri alúð og ígrundun að unun var að og kunni þá list að lesa manneskjur og lýsa persónuleika og hæfileikum hverrar manneskju þannig að kostir hennar voru óvé- fengjanlegir. Það var því eðlilegt að þegar hann gaf fimm starfs- mönnum Þroskarannsóknar með- mæli vegna umsókna í Harvard- háskóla í Bandaríkjunum, að þeir kæmust allir inn og lykju námi eins og til var ætlast. Ég minnist ekki umræðna við Wolfgang um jafnréttismál á þessum árum, þrátt fyrir að þau væru í brennidepli þjóðfélagsum- ræðunnar og hljóta því að hafa verið rædd eins og öll önnur þjóð- félagsmál og stjórnmál. En Wolf- gang var jafnréttissinni í verki. Hann var mjög hvetjandi fyrir þær konur sem unnu hjá honum og hann efaðist ekki um að þær ættu erindi í erlenda háskóla af bestu gerð. Ég hafði ekki séð fyrir mér að fara utan í nám en eftir nokkurra ára samstarf við Wolf- gang var það ekki lengur spurn- ing um hvort heldur hvenær ráð- ist skyldi í slíkt verkefni. Síðast hitti ég hann á kaffihúsi í Reykjavík, eftir löng og erfið veik- indi. Hann var svo glaður yfir að enn hittist fólk á Íslandi nánast fyrirvaralaust. Við áttum nota- lega stund saman fjórir vinir yfir kaffibolla og þegar ég kvaddi lagði hann af stað í margra kíló- metra langa göngu meðfram strandlengjunni, tæplega níræð- ur maðurinn. Það er margs að minnast og margt að þakka. Hann var áhrifa- valdur í lífi mínu, góður vinur og fyrirmynd. Ég er honum innilega þakklát fyrir vináttuna, áhugann og hlýjuna alla tíð. Ég sendi mínar dýpstu sam- úðarkveðjur til Moniku, Benja- míns, Önnu Lilju, fjölskyldna þeirra og allra hans góðu vina og samstarfsmanna. Minningin um Wolfgang Edelstein mun lifa með okkur öllum. Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir. Vinur minn Wolfgang Edel- stein bast Íslandi sterkum bönd- um eftir að fjölskylda hans flúði Þýskaland og settist hér að þegar hann var níu ára gamall 1938. Hann unni Íslandi alla tíð, fannst hann vera í þakkarskuld við land- ið sem tók svo vel á móti honum og hér sagði hann nánustu vini sína búa. „Íslenska er tilfinninga- mál mitt“ var svar hans þegar ég spurði hann af hverju hann hefði talað íslensku í stað þýsku, móð- urmáls síns, þegar hann vaknaði eftir aðgerð í Berlín. Hann var hrifnæmur; naut orðlistar, tón- listar og náttúru. Wolfgang var mikill hugsjóna- maður og frumkvöðull á sviði menntunar. Af ástríðu deildi hann menntasýn sinni með ís- lensku þjóðinni og á alþjóðavett- vangi. Þar vakti hann samferðafólk sitt til umhugsunar um samspil margvíslegra þátta sem leiða til framfara í menntamálum. Ekki er ofmælt að nafni hans tengjast einar athyglisverðustu umbætur á íslensku skólastarfi á ofan- verðri 20. öld. Brennandi áhugi hans og innsæi blés mörgum hug í brjóst og var ég svo lánsöm að vera meðal þeirra. Hann opnaði mér sem ungum kennara á 8. áratugn- um nýjan heim hugsjóna um efl- ingu uppeldis og menntunar í landinu. Mikill skóli og ómetanleg reynsla var að taka þátt í náms- efnisgerð í samfélagsfræði á veg- um menntamálaráðuneytisins undir hans stjórn. Hópurinn deildi sterkri hugsjón um hvernig vænlegt væri að búa æskuna undir framtíðina. Wolfgang stóð einnig fyrir viðamiklum rann- sóknum m.a. á þroska og aðstæð- um barna hérlendis. Gott vega- nesti var að hafa tekið þátt í rannsóknarteymi þeirra Moniku við gagnasöfnun þegar ég hóf sjálf rannsóknarstörf sem hann vildi fylgjast með alla tíð. Margt ber honum að þakka og ótal fallegar minningar í leik og starfi ylja. Við höfðum þá sameig- inlegu æskureynslu að hafa sinnt sveitastörfum í Húnaþingi. Þegar fjölskylda hans heimsótti okkur í Miðfjörðinn var skemmtilegt að skreppa út á tún og taka rökin með honum. Þar var hann kappsamur eins og í öllu öðru. Hann var ætíð þakklátur bræðrunum Sigurði og Jóhannesi á Stóru-Giljá sem hann var hjá í sveit á unglingsárum. Það kom m.a. fram á hátíðar- stundu okkar þegar hann veitti viðtöku viðurkenningu virtra samtaka á ráðstefnu vestanhafs fyrir störf sín. Í þakkarræðu sinni leitaði hugur hans til þess sem bræðurnir höfðu kennt honum um uppeldi, m.a. mikilvægi þess fyrir ungmenni að taka virkan þátt, finna til sín og tilheyra. Sem dæmi höfðu þeir hann með í ráðum í heyskapnum, gáðu til veðurs og leituðu álits hans á því hvort ráðlegt væri að þurrka þann daginn. Þessi reynsla gaf tóninn í lífsverki hans, lýðræðismenntun. Wolfgang dvaldi oft hér á landi með fjölskyldu sinni. Ætíð voru þá miklir fagnaðarfundir í vinahópn- um. Við tvö tókum okkur einnig daga saman þar sem við ræddum hugðarefni okkar. Þetta eru dýr- mætar stundir sem lifa með mér. Hann gaf mikið af sér, var skarpur og stórhuga, hvetjandi og umhyggjusamur, traustur og hjartahlýr. Monika, Anna, Benni og fjöl- skyldan veittu honum mikla gleði og styrk. Missir þeirra er mikill. Við Þórólfur vottum þeim okkar dýpstu samúð. Sigrún Aðalbjarnardóttir. Hann kallaði mig stundum nafna sinn og talaði við mig eins jafningja. Ég held að honum hafi farist svo við alla, lítillátur, hóglát- ur, uppörvandi. Við höfðum félagar og land- fræðingar farið til þeirra í Skóla- rannsóknadeild til þess að kvarta og klaga niðurlagningu náms- greinaheitisins „landafræði“ úr námskrá grunnskóla. Því var svarað með boði um þátttöku í vinnuviku deildarinnar í sam- félagsfræði sem stóð fyrir dyrum á Kleppjárnsreykjum með Wolf- gang Edelstein. Ég þekki varla önnur dæmi um jafn snör viðhorfaskipti málflytj- enda og a.m.k. annars klögu- mannsins eftir inngangsfyrirlest- ur Wolfgangs. Nú löngu seinna sést að starfs- ævi þessa skrifara var rétt að segja hálfnuð og það var þarna sem hann áttaði sig fyrst á að inn- tak eða árangur starfsins var ekki hið fornkveðna „að vita meira og meira, meira í dag en í gær“ held- ur að hugsa, hugsa betur í dag en í gær. Að unnt væri að kenna nem- endum að hugsa á grundvelli greinarmunar á skoðunum, til- finningum og staðreyndum. Vafalaust upplifðu samstarfs- menn Wolfgangs Edelstein hug- arheim hans og boðskap hver með sínum hætti. Mér var þetta augnablik sannleikans, „the mo- ment of truth“, sem ekki vitjaði mín fyrr enkennslan var að þoka fyrir öðrum starfsþáttum. Í þess- ari uppgötvun fólst sú þversögn að þá sættist ég loks við ævistarfið sem ég hafði misskilið og með vissum hætti vanrækt. Meðferð álitamála og siðgæði úrlausna var hið rétta lærdómsefni fremur en ártölin eða nöfnin, þverárnar eða firðirnir. Mikilvægara var að kunna blaðalestur en styrjaldarártöl eða kóngaraðir. Kennarastéttin varð aldrei al- veg sammála þessu og stjórn- málamenn héldu að þetta opnaði á pólitíska innrætingu. Alþjóðleg viðhorf Wolfgangs og áhersla á hjálpina við lítilmagnann voru engu að síður hent á lofti og lifðu og lifa í verkum samstarfsmanna hans, sem voru forréttindi mín að kynnast og mega telja til vina minna. Aðalsteinn Eiríksson. Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma KRISTÍN L. VALDEMARSDÓTTIR, Sléttuvegi 11, áður Hrauntungu 22, Kópavogi, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 6. ágúst. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk móður okkar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Frosti Bergsson Halldóra M. Mathiesen Valdimar Bergsson Helga M. Geirsdóttir Anna Rós Bergsdóttir Haraldur Guðfinnsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur, sonarsonur og frændi, ÞORLÁKUR ANTON HOLM, Heiðarholti 12, Keflavík, lést af veikindum sínum fimmtudaginn 30. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Unnur Þorláksdóttir Jón Anton Holm Hanna Vilhjálmsdóttir Kristín Marín Holm Enok Holm Sindri Freyr Holm Ljupka Tepeva Flóra Róslaug Antonsdóttir Kristinn Thomsen Holm Unnar Ernir, Jóhanna Bára Sóldís Harpa og Kristín Júlía Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KOLFINNA GERÐUR PÁLSDÓTTIR, síðast til heimilis í Vallartröð 2, Eyjafjarðarsveit, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri fimmtudaginn 6. ágúst. Starfsfólki eru færðar bestu þakkir fyrir góða umönnun. Ingibjörg Friðriksdóttir Helgi Bjarnason Fanney Friðriksdóttir Snæbjörn Friðriksson Anna Friðriksdóttir Guðmundur Guðmundsson Baldur H. Friðriksson Kristín Hrönn Reynisdóttir Theodór Friðriksson ömmu- og langömmubörn Ástkær sonur okkar og barnabarn, RÚNAR ÁRNI ÓLAFSSON, Stórateigi 14, Mosfellsbæ, lést 31. júlí á sjúkrahúsi í Gautaborg. Í ljósi aðstæðna fer útförin fram með nánustu fjölskyldu. Vigdís Björk Ásgeirsdóttir Ólafur Ólafsson Sigrún Olgeirsdóttir Ásgeir Árnason Jónína Sigurðardóttir Ólafur Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.