Morgunblaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 31
sterka kjölfestu í heimildum og
vel úthugsaðri aðferðafræði.
Stuttu síðar, 1996, er grein eftir
hana í tímaritinu Sögu byggð á
BA-ritgerð hennar um hlut
kynjanna í kennslubókum í sögu.
Strax þarna birtist sá grunn-
skilningur hennar að kvenna- og
kynjasaga geti aldrei beitt spurn-
ingum og tólum hefðbundinnar
karlasögu gagnrýnislaust heldur
þurfi kyn sem útgangspunkt til
að skilja áhrif, völd og valdaleysi í
samfélaginu. Eftir grunnnám
hélt Þorgerður til New York í
framhaldsnám í kynjafræði. Með
meistararitgerð sinni um hina
„ómótstæðilegu fegurð íslenskra
kvenna“ og hvernig hún er sam-
ofin hugmyndum um hreinleika
og þjóðerni stimplaði hún sig
rækilega inn í hið ört vaxandi
samfélag kynjafræðinnar á Ís-
landi og hugmyndir hennar urðu
mörgum innblástur og upp-
spretta nýrra rannsókna. Árið
2002 gerði Þorgerður úttekt á
dómnefndarálitum í Háskóla Ís-
lands fyrir tilstilli jafnréttis-
nefndar skólans með dyggum
stuðningi hins framsækna rekt-
ors, Páls Skúlasonar. Þorgerður
sýndi fram á hversu marglaga og
flókin fyrirbæri kyn og kyngervi
eru, og hvernig hægt er að jað-
arsetja fólk með því að kvengera
það eða upphefja með karlgerv-
ingu. Könnunin vakti athygli
langt út fyrir landsteinana og var
Þorgerði boðið að skrifa um hana
í rit Evrópusambandsins um
jafnrétti í rannsóknum og ný-
sköpun. Nátengt þessu eru rann-
sóknir hennar í hinsegin fræðum
en árið 2007 tók hún þátt í nor-
rænu verkefni þar sem hún skrif-
aði um sögulega þróun íslenskrar
löggjafar í málefnum hinsegin
fólks.
Hápunktur á fræðilegum ferli
Þorgerðar er doktorsritgerð
hennar í kynjafræði um útvíkkun
jafnréttishugtaksins sem hún
varði árið 2012. Þar kryfur hún af
yfirgripsmikilli þekkingu fræði-
legar forsendur jafnréttishug-
taksins og hvernig kynjamisrétti
fléttast ávallt saman við annars
konar mismun og margbreyti-
leika svo sem stétt, uppruna, lit-
arhátt, kynhneigð og fötlun. Rit-
gerðin er tímamótaverk. Og enn
eru ótalin mörg síðari ritverk og
rannsóknir sem hún tók þátt í;
um ímyndir Norðursins, um sögu
háriðna á Íslandi, og um konur
sem pólitíska gerendur frá upp-
hafi kosningaréttar.
Þorgerður var einstaklega
hæfileikarík fræðikona. Hún var
með afbrigðum skörp, beitt og
einbeitt. Hún var frumleg, gagn-
rýnin og hreinskilin og hikaði
ekki við að segja það sem henni
bjó í brjósti. Með ótímabæru frá-
falli hennar hefur íslensk kynja-
og sagnfræði misst einn af sínum
öflugustu fulltrúum. Fyrir hönd
námsbrautar í kynjafræði þakka
ég henni samfylgdina og votta að-
standendum hennar innilega
samúð.
Þorgerður J. Einarsdóttir.
Dr. Þorgerður Þorvaldsdóttir,
sjálfstætt starfandi fræðimaður í
ReykjavíkurAkademíunni.
Það er Þorgerður okkar.
Maður segir stundum að eitt-
hvað hafi alltaf verið til. Þannig
er það með Þorgerði, hún hefur
alltaf verið Akademón, því hún
kom til liðs við RA á fyrstu árum
hennar. Á þeim tveimur áratug-
um sem liðnir eru hafa Akade-
mónar stundað umfangsmiklar
rannsóknir, gefið út fjölda fræði-
rita og unnið til ýmissa verðlauna
og styrkja fyrir rannsóknir sínar.
Þar var Þorgerður enginn eft-
irbátur og það hefur verið styrk-
ur RA að hafa fólk eins og hana
innan sinna vébanda.
Hvernig lýsir maður persónu?
Þorgerður var hugsjónakona,
vinnusöm og samviskusöm. Hún
lét aldrei neitt frá sér fara öðru-
vísi en lúslesið og margyfirfarið;
hún var forkur dugleg enda skil-
ur hún eftir sig ævistarf sem
margur, áratugum eldri en henni
auðnaðist að verða, mætti vera
stoltur af. Á tímabilum fannst
manni hún búa við skrifborðið
sitt því hún var þar öllum stund-
um, hæglát, róleg og sívinnandi.
En auðvitað fór hún líka heim til
sinna uppáhaldsmanna, þeirra
Ágústar og Ingimundar, og
lengst af alltaf á reiðhjóli. Eitt
sinn kom hún skælbrosandi út í
vinnu og hafði þá unnið væna
upphæð í happdrætti og ætlaði
nú að fá sér vetrardekk undir
hjólið. Eftir það hjólaði hún í
hvernig veðrum og færð sem var,
rjóð í kinnum og dálítið Húna-
vatnssýsluleg því innan fræði-
konunnar bjó líka ástríðufull
sveitakona; Þorgerður elskaði
sveitina sína, þjóðlegan íslenskan
mat og sauðfé. Hún birti varla
svo mynd á facebook að þar væri
ekki að minnsta kosti ein kind. Á
hverju vori fór hún norður í sauð-
burð og gúmmístígvél og oftar ef
hún gat.
Í Þorgerði var engin tilgerð en
hún puntaði sig þegar tilefni
gafst. Þegar RA ákvað í fyrsta
sinn að halda árshátíð settu sum-
ir í brýnnar yfir hugmyndinni um
spariföt; vildu bara mæta á
molskinnsbuxunum. En Þorgerð-
ur tók hugmyndinni fagnandi og
mætti sparibúin með sínum
sparibúna manni og tjúttaði fram
á nótt. Þetta uppátæki skemmti-
nefndarinnar birtist svo í mynda-
seríu af prúðbúnum Akademón-
um í Séð og heyrt. Að þessu
hlógum við síðar bæði oft og vel.
Og Þorgerður leyndi á sér, því
þegar haldin var spurninga-
keppni um fótbolta- og hollívúdd-
stjörnur sigraði hún með yfir-
burðum. Við enn annað tilefni
vann hún til verðlauna fyrir að
vera í flottustu skónum og tók
pósur í stóra salnum í JL-húsinu.
Það var gott að líta inn á skrif-
stofu til Þorgerðar, skiptast á
nokkrum orðum og finna þetta
öryggi og rósemd sem fylgdi per-
sónu hennar. Þorgerður tranaði
sér ekki fram og það leið nokkur
tími þar til ég áttaði mig á því
hver vigt og þungi fylgdi veru
hennar í fræðimannahóp RA.
Hún hafði ígrundaðar skoðanir á
fjölmörgum málefnum en var
ekki feimin við að viðurkenna að
hún vissi ekki eitthvað.
Jafnrétti í víðum skilningi var
fræðasvið Þorgerðar. Fyrir jafn-
rétti brann með henni heitur hug-
sjónaeldur; þar sameinaði hún
áhugasvið og fræði og lagði með
rannsóknum sínum og verkum
afgerandi lóð á vogarskálar
þeirrar endalausu baráttu.
Eftir að hún veiktist höfum við
því miður séð æ minna af Þor-
gerði við skrifborðið sitt en alltaf
var hún komin ef hún mögulega
hafði heilsu til. Brosmild, jákvæð
og bjartsýn; hafnaði allri vor-
kunn en kunni að taka samúð og
stuðningi. Þegar svo var komið
að hún hafði ekki lengur fótaferð
sat hún uppi í rúminu og vann að
lokafrágangi greina og verkefna.
Þannig var dr. Þorgerður,
brennandi í andanum þótt mátt-
urinn færi þverrandi.
Fræðasamfélag RA vottar öll-
um aðstandendum innilega sam-
úð við ótímabært fráfall merkrar
fræðikonu og trausts vinar.
Ingunn Ásdísardóttir,
formaður Reykjavíkur-
Akademíunnar.
Fráfall Þorgerðar Þorvalds-
dóttur á svo ungum aldri er
hörmulegur missir fyrir íslenskt
samfélag. Hún var rannsakandi
sagnfræðingur af bestu gerð,
huguð og vandvirk með heimildir.
Samferð okkar hófst fyrir 30 ár-
um í Háskóla Íslands, síðar í
ReykjavíkurAkademíunni og inni
á milli hér og þar í margvíslegu
pólitísku. En víst er að afdrifarík-
ast fyrir okkur báðar var þegar
bandarískur Fulbright-styrkþegi
kom hingað til lands 1996-7 til að
kenna við HÍ feminískar laga-
kenningar á vegum Rannsókna-
stofu í kvennafræðum, sem þá
var ung stofnun. Þá var hóað í
laganemann mig og ég auglýsti
námskeiðið í lagadeild, hnippti í
ýmsar í öðrum deildum og auðvit-
að í Þorgerði. Kennarinn hét
Claire Smearman og hún lét okk-
ur lesa bók Díönu Russell, Aga-
inst Pornography – the Evidence
of Harm og Next Time Shéll be
Dead, bók um heimilisofbeldi á
konum eftir Ann Jones, auk risa-
kennslubókar um kenningar og
dóma í bandarískum rétti. Þetta
námskeið gjörbreytti vitund og
viðhorfum okkar allra. Ég vona
að ég halli ekki á neina þegar ég
fullyrði að engin hafi nýtt þetta til
meira gagns fyrir íslenskt þjóð-
félag en Þorgerður. Ég hef dáðst
að dugnaði Þorgerðar, afköstum
og afurðum alla tíð síðan. Hún
helgaði rannsóknastörf sín sviði
þar sem mikið var eftir að vinna
og braut nýrri hugsun leiðir sem
ég efast um að aðrir hefðu náð.
Dæmigert er að þegar Þorgerður
kynjagreindi orðfæri í dómum og
álitum um framgang fræðafólks í
Háskóla Íslands var útkoman svo
sláandi að ekki var hægt að horfa
fram hjá þeirri staðreynd að kerf-
ið var skakkt. Þannig hugsaði
Þorgerður og þannig starfaði
hún. Þetta var gríðarlega sterkt
og varð góðum málstað að gagni.
Árið 2000 kom Díana Russell til
Íslands og Þorgerður skrifaði frá-
bært viðtal við hana sem birtist í
Veru. Ég mun sakna Þorgerðar
mjög þegar hennar mikilvægu
rödd vantar sem verður oft og
hugsa til hennar hvenær sem ég
veit að góðrar rannsóknar er
þörf. Og ég mun sakna yndislegr-
ar manneskju sem sópaði að og
mér þótti mjög vænt um. Þor-
gerður átti svo djúpar rætur og
sterkan stofn heiman frá. Heil og
traust, alltaf samkvæm sjálfri
sér, traustasti félaginn í öllu sem
máli skipti. Ég votta öllum ástvin-
um hennar mína dýpstu samúð og
bið þau að hugga sig við að ljóma
stafar af skrifum hennar og verk-
um sem lifa mun.
Kristrún Heimisdóttir
Þorgerði Hrönn hef ég þekkt
frá því hún var lítil stúlka að
vappa á lóðinni við Hólabrautina í
Hafnarfirði rétt rúmlega árs
gömul þar sem fjölskyldur okkar
bjuggu í sama húsi og hófust þar
samskipti sem hafa staðið yfir í
um 50 ár.
Fljótlega fór ég að taka að mér
að gæta hennar eða meira að
leika við hana en á milli okkar eru
átta ár. Svæðið sem við höfðum til
að leika saman á var mjög
skemmtilegt, miklir móar og góð-
ir drullupollar sem voru mikið
notaðir.
Fljótlega stækkaði fjölskyldan
og Rúna og Valdi eignuðust Ás-
gerði Unni sem er rúmu ári yngri
en Þorgerður og að sjálfsögðu
fékk hún að leika með okkur þeg-
ar hún hafði burði til.
Ég hélt svo áfram að passa
systurnar þegar að þær fluttu sig
um set í Hafnarfirði og hundurinn
Snati kom til sögunnar og að auki
var heimalningur í bílskúrnum.
Móðurafi Þorgerðar, Bjarni,
var með kindur í Hafnarfirði
þannig að þá má segja að hún hafi
alist upp við kindur frá blautu
barnsbeini og kemur því ekki á
óvart sú mikla ástúð sem hún
hafði fyrir dýrum og náttúrunni.
Rúna og Valdi taka svo þá
ákvörðun að kaupa Guðrúnar-
staði í Vatnsdal og að sjálfsögðu
fylgdi ég barnapían með þeim í
sveitina til að gæta systra og
fljótlega bætist ein stúlka við
hópinn, Valgerður Erna og syst-
ur orðnar þrjár.
Eins og tíðkast í sveitum var
margt aðhafst og við Þorgerður
ásamt Ásgerði áttum stórt bú þar
sem horn og kjálkar voru dýr og
við bökuðum margar drullukökur
sem voru fagurlega skreyttar
með blómum og fleiru, fyrir utan
það að sinna öllum dýrunum.
Minningin af dvölinni á Guð-
rúnarstöðum er ljúf og góð en þar
dvaldi ég í sex sumur, myndirnar
sem ég á af þeim systrum með
dýrin rifja upp skemmtilegar
stundir. Þorgerður var mikill bú-
kona og elskaði að vera nálægt
dýrunum sínum sem eltu hana
um allt.
Svo líða árin og ég fylgdist
með Þorgerði þegar hún fór til
náms bæði í Menntaskólann á
Akureyri og Háskóla Íslands og
verður doktor í kynjafræði. Hún
hefur skrifað margar fræðigrein-
ar og skrifaði bókina „Krullað og
klippt“ ásamt Báru Baldursdótt-
ur. Þorgerður barðist fyrir jafn-
rétti til handa ýmsum minni-
hlutahópum í samfélaginu.
Þegar ég heimsótti hana á
Landspítalann í lok júní var hún
að leggja lokahöndina á bók sem
hún er að gefa út ásamt fleirum
um 100 ára sögu kosningaréttar
kvenna á Íslandi, en fyrirhugað
er að sú bók komi út á kvennafrí-
daginn 24. október í ár. Þessi
heimsókn mín til hennar var
virkilega ánægjuleg og við rædd-
um lífið í Hafnarfirði, á Guðrún-
arstöðum, forsetakosningar og
ég rifjaði upp með henni að þegar
ég kom í sveitina á vorin með rút-
unni, keypti ég alltaf kosninga-
handbókina fyrir pabba hennar.
Þorgerður var mjög náin
pabba sínum og þau áttu góðar
stundir saman við að sinna bú-
störfum og ræða stjórnmál. Valdi
lést fyrir 10 árum og var það Þor-
gerði og fjölskyldunni mikill
missir.
Samband mitt við heimilisfólk-
ið á Guðrúnarstöðum hefur alltaf
verið mjög náið og gott og Rúna
og Valdi eru amma og afi í sveit-
inni hjá börnum okkar Ingólfs og
einnig barnabörnum.
Þorgerður glímdi í tæp þrjú ár
af miklu æðruleysi við krabba-
mein sem að lokum hafði sigur.
Hún var öflug og sterk kona sem
ég hef alltaf litið upp til, það er
með mikilli virðingu, söknuði og
þakklæti sem ég og fjölskylda
mín kveðjum Þorgerði Hrönn um
leið og við vottum aðstandendum
okkar dýpstu samúð.
Guðrún Kristinsdóttir.
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2020
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
ómetanlegan stuðning, samúð og vináttu
vegna fráfalls og útfarar elskulegs sonar
okkar, bróður, mágs og barnabarns,
BALDURS BJARNARSONAR,
Löngumýri 3,
Selfossi.
Sæunn I. Sigurðardóttir Björn Baldursson
Ármann Örn Bjarnarson Katrín Sveinsdóttir Bates
Steinar Bjarnarson
Sigurður Ingi Bjarnarson
Bjarnfríður Ólöf Bjarnardóttir
Gunndís Sigurðardóttir
ÁSLAUG BRYLD STEINGRÍMSDÓTTIR
lést laugardaginn 28. júní í Danmörku.
Minningarathöfn verður í Fossvogskirkju
miðvikudaginn 19. ágúst klukkan 15.
Lisa Þuríður Poulsen Jacob Poulsen
Jonathan Poulsen
Lars Erik Bryld Stella Bryld
Emilie Bryld
Marcus Bryld
Ástkær eiginkona, dóttir, móðir okkar,
stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÞÓRDÍS ÓSK SIGURÐARDÓTTIR
frá Gíslholti, Holtum,
Móholti 8, Bolungarvík,
sem lést miðvikudaginn 5. ágúst, verður jarðsungin í Oddakirkju
þriðjudaginn 18. ágúst klukkan 14.
Vegna samkomutakmarkana verður athöfnin einungis fyrir
nánustu ættingja og vini. Útförinni verður streymt á
www.ebkerfi.is/streymi.
Pétur Runólfsson
Þóra Bryndís Dyrving
Björk Rúnarsdóttir Guðmundur Gíslason
Brynja Ósk Rúnarsdóttir Birkir Ármannsson
Gunnar Rúnarsson Hjördís Rut Albertsdóttir
Grettir Rúnarsson Ólöf Ása Guðmundsdóttir
Bára Rúnarsdóttir Þorvaldur Jónsson
Runólfur Kristinn Pétursson Eygló Harðardóttir
Jón Pálmi Pétursson Annika Olsen
Margrét Lilja Pétursdóttir Agnar Ebenesarson
Sigurlín G. Pétursdóttir Pétur Oddsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og systir,
ERNA EINARSDÓTTIR VARTIA,
Helsinki,
verður jarðsungin frá Garðakirkju
miðvikudaginn 19. ágúst klukkan 13.
Vegna samkomutakmarkana er athöfnin einungis fyrir
börn og systkini hinnar látnu.
Útförinni verður streymt á Facebook-síðu Vídalínskirkju.
Antero Vartia
Lisa-Lotta Vartia
Elinora Vartia Cheyne Fowler
Aron Arvo Fowler
Elísabet, Róbert, Edda og Pétur
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
RAGNHILDUR STEINUNN
JÓNSDÓTTIR,
Kirkjuvegi 11, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
föstudaginn 7. ágúst.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 19. ágúst.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera
viðstaddir útförina en athöfninni verður streymt frá
https://www.facebook.com/groups/utforragnhildarsteinunnar/.
Drífa Maríusdóttir
Guðni Jóhann Maríusson Guðrún Guðmundsdóttir
Jón Þór Maríusson Marta Sigurðardóttir
Alba Lucia Alvarez
barnabörn og barnabarnabörn