Morgunblaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2020
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
NÝJAR
HAUSTVÖRUR
SKOÐIÐ
hjahrafnhildi.i
s
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgið okkur á facebook
SUMAR
ÚTSALA
LOKAHNYKKUR
SUMAR
ÚTSÖLUNNAR
60-
70%
AFSLÁTTUR
ÝMSIR GJAFABÓNUSAR
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
„Hafnað er kröfu kæranda um stöðv-
un framkvæmda samkvæmt hinu
kærða byggingarleyfi.“ Þannig
hljóðar nýlegur bráðabirgðaúr-
skurður úrskurðarnefndar umhverf-
is- og auðlindamála vegna fyrirhug-
aðrar byggingar á lóðinni Grensás-
vegi 1 í Reykjavík.
Vesturgarður ehf., lóðarhafi Skeif-
unnar 15 og Faxafens 8, Reykjavík,
kærði þá ákvörðun byggingarfulltrú-
ans í Reykjavík frá 16. júní 2020 að
samþykkja leyfi til að byggja fimm
hæða fjölbýlishús með 50 íbúðum,
tveimur stigahúsum og geymslu- og
bílakjallara á lóð nr. 1 við Grensás-
veg. Gerði kærandi þá kröfu að þessi
ákvörðun verði felld úr gildi og fram-
kvæmdir samkvæmt hinu kærða
leyfi verði stöðvaðar á meðan málið
er til meðferðar fyrir úrskurðar-
nefndinni.
Rekur fasteignir í Skeifunni
Kærandi benti á að hann eigi og
reki fasteignir í Skeifunni og eigi
hann ríka hagsmuni tengda þeim
breytingum sem gerðar séu á heim-
ildum til uppbyggingar á lóðinni
Grensásvegi 1 með hinum kærðu
ákvörðunum. Sé með þeim horfið frá
áformum um byggingu hótels á lóð-
inni og þess í stað heimilað að reisa
þar 204 íbúðir. Slík breyting muni
hafa veruleg áhrif á næsta nágrenni,
m.a. vegna aukinnar bílaumferðar og
bílastæðanotkunar á svæðinu.
Leyfishafi Grensásvegar mót-
mælti kröfunni. Kærandi hafi í engu
leitast við að sýna fram á að ekki hafi
verið gætt lögmætra og málefna-
legra sjónarmiða við ákvörðun
Reykjavíkurborgar.
Í úrskurðinum segir að lóðir kær-
anda séu í talsverðri fjarlægð frá lóð-
inni Grensásvegi 1. Verði því ekki
séð að mögulegir grenndarhagsmun-
ir kæranda knýi á um stöðvun um-
deildra framkvæmda.
„Hvað sem líður gildi umdeildrar
deiliskipulagsbreytingar ætti heim-
ilað byggingarmagn samkvæmt hinu
kærða byggingarleyfi stoð í eldra
deiliskipulagi,“ segir meðal annars í
úrskurðinum.
Kröfu um stöðvun fram-
kvæmda var hafnað
Nágranni kærði byggingarleyfi vegna Grensásvegar 1
Tölvuteikning/Rýma arkitektar
Grensásvegur 1 Svona sjá arkitektarnir fyrir sér útlit nýbygginga.
Sighvatur Bjarnason
sighvaturb@mbl.is
Áhrif ferðamanna á umhverfið geta
verið mikil en erfitt getur reynst að
hafa yfirsýn yfir ástand einstakra
svæða. Stóru verkefni hefur verið
hleypt af stokkunum sem hefur það
að markmiði að koma á fót skipu-
lagðri náttúruvöktun hér á landi.
Náttúrufræðistofnun Íslands hef-
ur yfirumsjón með verkefninu og
segir Rannveig Anna Guicharnaud
verkefnastjóri að það sé hið stærsta
sinnar tegundar hingað til. Mark-
mið verkefnisins eru að vakta nátt-
úruverndarsvæði með tilliti til álags
ferðamanna á náttúruna. Þar sé
horft til fjölmargra þátta, s.s. áhrifa
á jarðmyndanir, skemmda á gróðri,
ástands göngustíga o.s.frv. Einnig
sé horft til áhrifa á einstaka dýra-
stofna, s.s. seli, refi og fugla.
Víðtækt samstarf
Rannveig segir að frumkvæðið
komi frá umhverfis- og auðlinda-
ráðherra, en verkefnið sé sam-
starfsvettvangur allra náttúrustofa
á landinu, auk þess sem þjóðgarðar
og Umhverfisstofnun taki virkan
þátt. Með víðtæku samstarfi megi
þróa sameiginlega aðferðafræði
sem auðveldar úrvinnslu og sam-
anburð á gögnum, sem til standi að
gera almenningi aðgengileg.
Verkefnið hófst í sumar og stend-
ur yfir í þrjú ár, en Rannveig segir
of snemmt að segja til um niður-
stöður. Breiður hópur sérfræðinga
mun hittast í haust og stilla saman
strengi sína og móta ferlið frekar.
Hún segir að vonir standi til að
verkefnið muni mynda grunn að
langtímavöktun sem nýst getur til
langframastefnumótunar í um-
gengni við náttúruna.
Víða mikið álag
Rannveig nefnir að mörg við-
kvæm svæði geti orði fyrir miklu
áreiti ferðamanna á stuttum tíma.
Mörg dæmi séu um að samfélags-
miðlar og erlendar ferðabækur hafi
komið ákveðnum stöðum svo ræki-
lega á kortið að ásókn fer nánast
úr böndunum. Með skipulagðri
vöktun sé hægt að meta ástand
hratt og bregðast við fyrr á viðeig-
andi hátt.
Víðtækt samstarf
um náttúruvöktun
Morgunblaðið/Einar Falur
Náttúra Víða er mikið álag á náttúru vegna ágangs ferðamanna. Víðtæk náttúruvöktun auðveldar yfirsýn.
Vatn í uppistöðulóni Blöndu hefur
flætt yfir stífluna og rennur í ána.
Það staðfestir Sigurður Ingi Guð-
mundsson, formaður veiðifélags
Blöndu og Svartár. Hann segir að við
þessu hafi verið búist, enda vatnið í
lóninu hækkað óvenjuhratt í júní og
því vitað hvað í stefndi. Yfirfallið
veldur því að vatnsborð árinnar
hækkar og hún litast af jökulleir.
Sigurður segir að við þessar aðstæð-
ur „þýði ekkert að veiða í henni“ og
því sé sjálfhætt.
Yfirfallið er reglubundinn við-
burður í lok sumars en þó getur
brugðið til beggja vona að sögn Sig-
urðar og sum ár hafi menn sloppið
með skrekkinn. Einnig geti fallið
gengið til baka og áin orðið veiðanleg
á ný, en það sé mjög háð tíðarfari og
hitastigi í lofti. Hann segir að þar á
bæ hafi menn leitað til Landsvirkj-
unar um að hleypt yrði úr botnlokum
til að koma í veg fyrir eða seinka
yfirfalli, en þrátt fyrir góðan skilning
hafi þetta farið svona að lokum.
Vill frekar éta en sleppa
Aðspurður segir Sigurður að tíma-
bilið hafi verið „hálfslappt og ekkert
sérstakt“. Hann bendir á að hluta
skýringa megi mögulega finna í því
að nú sé eingöngu veitt á flugu, sem
„kannski taki síður í jökulvatni“.
Flugan sé þó tímanna tákn þar sem
menn stundi að sleppa, þótt Sigurður
segist heldur vilja „éta fiskinn“ eftir
baráttuna.
Í Blöndu hafa 475 fiskar komið á
land, þar af 65 undanfarna viku og
því enn nokkuð í lokatölur síðasta
árs. Það kemur saman við flesta
staði, sem heldur virðast undir
meðallagi þetta árið. Eystri-Rangá
sker sig úr og leiðir með góðu for-
skoti. Þar hefur þegar verið landað
rúmlega 4.500 sporðum, þar af 606 í
síðustu viku. sighvaturb@mbl.is
Afl ahæstu árnar
Heimild: www.angling.is
0 1.000 2.000 3.000 4.000 5.500
Staðan 12. ágúst 2020
Veiðistaður
Stanga-
fjöldi Veiði
14. ágúst
2019
15. ágúst
2018
Eystri-Rangá 18 4.587 2.316 2.651
Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki 18 1.549 994 2.288
Miðfjarðará 10 1.121 984 1.863
Urriðafoss í Þjórsá 4 901 715 1.139
Affall í Landeyjum 4 876 138 391
Haffjarðará 6 753 435 1.287
Selá í Vopnafi rði 6 749 1.002 1.029
Norðurá 15 730 264 1.455
Þverá og Kjarrá 14 716 532 2.202
Hofsá og Sunnudalsá 6 638 460 505
Langá 12 601 248 1.209
Jökla 8 559 330 360
Laxá í Kjós 8 543 121 735
Blanda 14 475 561 848
Laxá á Ásum 4 453 502 552
Blanda komin í yfir-
fall og veiði hætt