Morgunblaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2020
Atvinnuauglýsingar 569 1100
Lögfræðingur
Nánari upplýsingar:
Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is)
Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is)
Umsóknarfrestur er til og með 27.08.2020
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is
Ríkiskaup er ráðgjafar- og þjónustustofnun
sem veitir opinberum aðilum ráðgjöf við
samningsgerð og innkaupaferla á sviði laga
um opinber innkaup.
Ríkiskaup annast framkvæmd útboða,
innkaupa, rammasamninga og eignasölu
fyrir ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki.
Ríkiskaup leggja metnað sinn í að ætíð séu
við störf vel þjálfaðir og hæfir starfsmenn
sem sinna starfi sínu af fagmennsku, alúð
og ánægju.
Ríkiskaup eru eftirsóttur vinnustaður fyrir
metnaðarfulla einstaklinga með menntun,
reynslu og hæfni til að takast á við
áhugaverð og krefjandi verkefni.
Nánari upplýsingar um stofnunina má finna
á www.rikiskaup.is
• Meistara- eða fullnaðarpróf í lögum. Lögmannsréttindi
er kostur
• Að lágmarki þriggja ára starfsreynsla í opinberum
innkaupum á s.l. fimm árum eða opinber innkaup hafa
verið námsefni á meistarastigi
• Reynsla og þekking á sviði samningaréttar og
samningaviðræðna
• Þekking og reynsla í opinberri stjórnsýslu og geta til að
svara erindum á grundvelli upplýsinga-, stjórnsýslu-,
starfsmanna- og persónuverndarlaga
• Afburðahæfni í samskiptum og í lausn ágreinings
• Frumkvæði, sjálfstæði og hæfni til að starfa undir álagi
• Skipulagshæfni, öguð og nákvæm vinnubrögð
• Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig
í ræðu og riti
• Ráðgjöf vegna opinberra innkaupa
• Greining og úrlausn lögfræðilegra álitaefna
• Samningagerð
• Greinargerðir vegna kærumála
• Fræðsla og miðlun upplýsinga
• Stefnumótandi áætlanagerðir
• Önnur tilfallandi verkefni
Ríkiskaup óska eftir að ráða öflugan lögfræðing í fjölbreytt, spennandi og krefjandi starf á lögfræðisviði
Helstu viðfangsefni og ábyrgð: Menntunar- og hæfniskröfur:
Launakjör eru samkvæmt samningum fjármála- og efnahagsráðuneytisins og viðkomandi stéttarfélags. Umsókn þarf að
fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Öllum umsóknum
verður svarað að ráðningu lokinni.
Tæknimaður
landupplýsinga
Sveitarfélagið Árborg leitar að drífandi og metnaðarfullum
einstaklingi í starf tæknimanns, á mannvirkja- og umhverfissvið.
Um nýtt starf er að ræða sem felur í sér spennandi tækifæri til að
móta og þróa landupplýsingakerfi sveitarfélags í örum vexti.
Staðan heyrir undir deildarstjóra framkvæmda- og tæknideildar
á mannvirkja- og umhverfissviði og þjónustar jafnframt aðrar
deildir innan sveitarfélagsins.
Helstu verkefni
• Viðhald og þróun á gagnagrunnum sveitarfélagsins,
kortagerð, söfnun, skráning, úrvinnsla og almenn afgreiðsla
landupplýsinga.
• Greining gagna og framsetning þeirra á kortum vegna ýmissa
verkefna sveitarfélagsins og samstarfsaðila.
• Staðsetningarmælingar húsa og lóða.
• Teiknun nýrra lóða og lóðamarkabreytinga og gerð mæliblaða.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Viðtæk reynsla af sambærilegu starfi mikill kostur.
• Lögð er áhersla á jákvæðni og vilja til að takast á við krefjandi
verkefni
• Skipulögð og fagleg vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæð
vinnubrögð
• Nauðsynlegt að hafa reynslu af notkun hugbúnaðar og
mælitækja í tengslum við mælingu mælipunkta í landinu.
• Framúrskarandi tölvukunnátta og áhugi á framþróun í
landupplýsingatækni.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánari
samkomulagi. Launakjör samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Vakin er
athygli á stefnu Árborgar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá
sveitarfélaginu.
Nánari upplýsingar veitir Atli Marel Vokes sviðsstjóri mannavirkja-
og umhverfissviðs í síma 480 1500 og atli.marel@arborg.is
Umsókn ásamt starfsferliskrá og kynningarbréfi sem greinir frá
ástæðu umsóknar og rökstuðiningi fyri hæfni í starfið skal berast
hér í gegnum ráðningarvef sveitarfélagsins. Umsóknafrestur er til
og með 30. ágúst.
BLÖNDUÓSBÆR
Hnjúkabyggð 33 | 540 Blönduós | Sími 455 4700
Menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi
Blönduósbær auglýsir laust til umsóknar starf Menningar-, íþrótta-
og tómstundafulltrúa. Um nýtt starf er ræða með starfshlutfalli
80 – 100%. Tilgangur starfsins er að hafa faglega umsjón með
öllu menningar-, íþrótta- og tómstundastarfi Blönduósbæjar í góðu
samstarfi við hlutaðeigandi aðila. Hér er fjölbreytt og skemmtilegt
tækifæri fyrir skapandi og skipulagðan einstakling til að móta nýtt
starf í vaxandi samfélagi. Næsti yfirmaður fulltrúans er sveitarstjóri.
Markmið og verkefni:
• Verkefnavinna og stefnumótun fyrir menningar- íþrótta- og
tómstundamál.
• Vinna náið með menningar- íþrótta- og tómstundanefnd
sveitarfélagsins.
• Umsjón og þróunarvinna með starfsemi félagsmiðstöðvarinnar
Skjólsins.
• Er tengiliður sveitarfélagsins við félagasamtök sem eru með
skipulagða íþrótta- og tómstundastarfsemi í sveitarfélaginu, á
grundvelli samninga.
• Vinnur í nánu samstarfi við stjórnendur grunnskóla og
íþróttamiðstöðvar.
• Er tengiliður og umsjónarmaður með verkefninu Heilsueflandi
samfélag.
• Verkefnastjórn við hátíðahöld og aðra viðburði á vegum
sveitarfélagsins.
• Önnur verkefni á þessu sviði sem viðkomandi er falið af
sveitarstjóra.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði tómstunda- og félagsmálafræði, eða önnur
menntun sem nýtist í starfi.
• Góðir forystu-, skipulags- og samskiptahæfileikar.
• Reynsla og þekking af íþrótta- og tómstundastarfi.
• Mikill áhugi á velferð íbúa og hæfni til að eiga samskipti við alla
aldurshópa.
• Frumkvæði, jákvætt hugarfar og hugmyndaauðgi.
Launakjör erum samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra
sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Hreint sakavottorð er
skilyrði fyrir ráðningu. Umsækjendur af öllum kynjum eru hvattir til að
sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóri,
valdimar@blonduos.is Starfið er laust samkvæmt nánara
samkomulagi, Umsóknum skal skilað á netfangið, blonduos@
blonduos.is Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 2020.
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR