Morgunblaðið - 29.08.2020, Page 1
L A U G A R D A G U R 2 9. Á G Ú S T 2 0 2 0
Stofnað 1913 203. tölublað 108. árgangur
GUÐMUNDUR
Í NESI Á
TOPPINN
AUKINN ÆSKULJÓMI
GIFTU SIG EFTIR 36 ÁRA SAMBÚÐ 14200 MÍLUR
www.hekla.is/volkswagensalur · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA
Nýr Volkswagen Golf
Opið í dag milli 12 og 16
Áttunda kynslóð Golf er mætt og nú er komið að þér
Við biðjum gesti að gæta
sóttvarna og virða bilið
Eftir langa veru í höfninni var 30 tonna trébáturinn Jón for-
seti í gær loks leiddur til hinstu hvílu í Sundahöfn í Reykjavík.
Ekki er óalgengt að bátar sem lengi hafa legið í höfninni séu
dregnir og rifnir þegar lítið annað stendur til boða, að sögn
talsmanns hafnsögumannsins í Reykjavík.
Dýrt er að reka trébát og hefur bátum smíðuðum af íslensk-
um skipasmiðum, úr furu og eik, farið fækkandi á und-
anförnum árum.
Í gær var fremur þungt yfir Sundahöfninni og höfuðborg-
arsvæðinu öllu, skýjað og rigning, sem einnig má búast við í
kvöld. Haustið er að ganga í garð og á sunnudag lítur út fyrir
að lægð muni leggjast yfir landið með auknum vindi og rign-
ingu en búist er við rigningu sunnan og vestan til, með hit-
anum 10 til 18 stig. Yfir heildina litið er útlit fyrir rólegheita-
veður næstu daga.
Morgunblaðið/Eggert
Dreginn til hinstu hvílu í Sundahöfn
„Umsóknir eru færri en ég hafði
búist við,“ segir Skarphéðinn Berg
Steinarsson ferðamálastjóri um
ásókn ferðaskrifstofa í Ferða-
ábyrgðarsjóð, en alls hafa 23
fyrirtæki sótt um samtals 1,6 millj-
arða króna að láni úr sjóðnum.
Ferðaábyrgðarsjóður var settur
á fót í sumar og hefur það að
marki að lána ferðaskrifstofum
sem ekki geta staðið undir lög-
boðnum endurgreiðslum á pakka-
ferðum sem hefur verið aflýst eða
þær afbókaðar vegna heimsfarald-
ursins. Skarphéðinn segir að-
spurður að ekki hafi verið vitað
með vissu hve þörfin væri mikil.
Gert hafi verið ráð fyrir því að
vandinn gæti verið um fjórir millj-
arðar króna.
Lánin eru eingöngu til þess að
efna skuldbindingar gagnvart
ferðamönnum og þröngar skorður
gilda um lánshæfi. Miðað er við
ferðir sem átti að fara á tíma-
bilinu 12. mars til 31. júlí. »4
1,6 milljarðar í lán
til ferðaskrifstofa
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Íslenska iðnfyrirtækið Naust Marine hefur gert samn-
ing við útgerðina RK Lenina í Rússlandi um að koma
fyrir töluverðum búnaði á dekki nýs verksmiðjutogara
fyrirtækisins sem mun bera nafnið Lenin. Um er að
ræða meðal annars 50 vindur, stýribúnað, krana og
fleira.
Togarinn er hannaður af finnska fyrirtækinu Wärtsila
og verður smíðaður af rússneskri skipasmíðastöð í Kal-
iningrad, en afhending er áætluð 2023.
Lenin mun vera 121 metri að lengd og 21 metri að
breidd með 5.000 rúmmetra lest. Togarinn er af slíkri
stærðargráðu að hann getur helst flokkast sem fljótandi
fiskiðjuver og mun bæði veiða sjálfur með eigin tvítrolli
og taka um borð afla frá öðrum skipum til vinnslu.
Bjarni Þór Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Naust
Marine, segir samninginn mikla viðurkenningu og tákn
um sterka stöðu fyrirtækisins í Rússlandi.
Nú stefnir jafnframt í að fyrirtækið selji búnað í fjóra
nýja togara fyrir rússnesku útgerðina Norebo, til við-
bótar við þá sex sem þegar eru samningar um.
800 milljóna samningur
við útgerð í Rússlandi
Lenin 50 vindur frá Naust Marine verða um borð.
Naust Marine sér um allan dekkbúnað í stórum togara
MSjá um allan dekkbúnað á Lenin »200 mílur
Stjórnvöld hér á landi hafa seilst of
langt í aðgerðum sínum gegn kór-
ónuveirunni að undanförnu, að
mati Jóns Ívars Einarssonar, pró-
fessors við læknadeild Harvard-
háskóla.
Í grein í Morgunblaðinu í dag
segir Jón að ákvarðanir yfirvalda
hafi verið skynsamlegar framan af
og meðalhófs gætt. Sú kúvending
sem gerð var 14. ágúst með því að
setja fólk í 5-6 daga sóttkví við
komuna til landsins samfara því að
halda áfram með tvær skimanir sé
umhugsunarverð enda sé vand-
meðfarið að þrengja að frelsi borg-
aranna með þessum hætti.
Að mati Jóns hefði verið skyn-
samlegra að setja alla í tvöfalda
skimun en jafnframt halda áfram
með heimkomusmitgát á milli sýna.
Þetta hefði í för með sér mun minni
röskun á komum ferðamanna til
landsins og myndi minnka þann
skaða sem ferðaþjónustan og fleiri
aðilar verða nú fyrir. »32
Telur stjórnvöld hafa
gengið of hart fram