Morgunblaðið - 29.08.2020, Page 14

Morgunblaðið - 29.08.2020, Page 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2020 „Í myndasögu sem ég sá á dögunum var risaeðla að horfa á lofsteininn sem batt enda á tilvist hennar falla til jarðar og í textabólunni stóð: Æ, æ, hvað verður um hagkerfið? Þetta fangaði í raun viðhorfið sem maður verður mikið var við núna,“ segir Karl Örvarsson, hönnuður, tónlistar- maður og eftirherma. „Heilsan vegur þyngst af öllu og þá er rökrétt að sótt- varnir byrji á landamærunum. Aðstæðurnar nú segja að við þurfum að vera sjálfum okkur næg og þau sem ráða för mega ekki láta undan hagsmunafólki og popúlistum sem hafa hátt. Eftir uppbygginguna í ferðaþjónustu síðustu ár er ég sannfærður um að það sé fullt af tækifærum í frekari markaðssetningu. Faraldurinn rénar um síðir og þá eigum við enn okkar frábæra land og ferðamenn fara aftur að flykkjast hingað, ekki síst til að sækja í fámennið.“ Karl hefur víða vakið athygli þegar hann bregður sér í karakter Kára Stefánssonar, forstjóra ÍE. „Eftir að við Kári vorum leiddir saman hefur pöntunum sem til mín berast fjölgað talsvert. Ég er orðinn eftirsóttur sem eins- konar fylgihnöttur Júpíters, þess stórstirnis íslensks þjóð- lífs sem Kári óneitanlega er,“ segir Karl sem á dögunum gekk að eiga Hrefnu Erlingsdóttur, sambýliskonu sína til 36 ára. „Margir jafnaldrar okkar fagna nú kannski 20 eða 25 ára brúðkaupsafmæli, en við Hrefna erum rétt að byrja hjónabandið og vonandi gefur það okkur aukaæskuljóma fram eftir aldri.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skemmtimaður Karl Örvarsson og Hrefna Margrét Er- lingsdóttir brosandi saman á hamingjustundu lífsins. Fylgitunglið er með æskuljóma „Vegna kórónuveirunnar höfum að vissu leyti öll verið neydd til að skrúfa niður hraðann á lífinu, sem ég ætla að reyna að halda í þegar faraldrinum lýkur. Við þurfum ekki alltaf að segja já við öllu,“ segir Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir, læknir á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. „Það er ljóst að COVID-19 hefur áfram áhrif á samfélagið okkar í vetur en ég reyni eftir fremstu getu að sjá björtu hliðina á málunum og mér hefur þótt gott í þessu ástandi að vera heima í ró og næði.“ Guðrún Ingibjörg og unnusti hennar Haukur Smári Hlynsson fóru í sumar í tveggja vikna hringferð um land- ið, ævintýri sem hún segir að seint gleymist. Fyrirhuguð reisa um Ítalíu og Þýskaland bíði betra tíma. „Við unum okkur best í rólegheitum – pizzakvöld, rauðvínsglas og þáttagláp eða bóklestur er okkar fullkomna laugardags- kvöld. Haustið leggst ágætlega í mig. Ég er núna að byrja sérnám í bráðalækningum en ég útskrifaðist úr grunnnámi í læknisfræði fyrir ári,“ segir Guðrún og að síðustu: „Ég er síðan nýbyrjuð að læra pólsku svo ég geti talað við pólska skjólstæðinga á spítalanum sem eru margir. Það gengur upp og ofan en ég er farin að stauta mig fram úr einföldum smábarnabókum. Svo get ég nú varla talað um áhugamál án þess að tala um Instagram en þar held ég úti miðlinum @dr.ladyreykjavik sem ég legg mikinn metnað í og er líklega mitt stærsta áhugamál.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Læknir Byrja sérnám í bráðalækningum en ég útskrif- aðist úr grunnnámi fyrir ári, segir Guðrún Ingibjörg. Þurfum ekki að segja já við öllu „Sóttvarnir og samstaða ættu að vera lykilorð samtím- ans í baráttunni við kórónuveiruna. Þetta er stríð sem ætlar að vara lengur en búist var við í fyrstu. Langhlaup og við vitum ekki veglengdina að markinu,“ segir Auð- björg Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur á Kirkjubæj- arklaustri. Eystra stendur hún vaktina í fámennu héraði og þar hefur þurft að bregðast við veirunni með ýmsu móti, svo sem þegar tekið er á móti skjólstæðingum á heilsugæslustöðinni. Skipulag miðast við að halda smit- hættu í lágmarki. „Það er áhyggjuefni að samstaðan virðist ekki vera eins sterk og í fyrri bylgju. Samfélagið þarf nú að takast á við ýmsar áskoranir og snúið er að sætta ólík sjón- armið,“ segir Auðbjörg og enn fremur: „Veirufaraldur sem þessi gerir alla hluti í heilbrigð- isþjónusti flóknari í útfærslu og aukið álag fylgir því. En svo kemur á móti að hér eru færri ferðamenn en áður og því höfum við ekki fengið í fangið þessi hræðilegu um- ferðarslys, sem við fengum nokkur á tímabili.“ Eftir annasama tíma fannst Auðbjörgu nauðsynlegt að fara í gott sumarfrí og fór fjölskyldan víða um landið „Við fórum meðal annars á ýmsa staði hér utar á Suður- landinu sem við áttum eftir að skoða betur, svo sem upp- sveitir Árnessýslu. Vonandi gefst fjölskyldunni tækifæri á að ferðast innanlands í vetur, eins og er gott líka að vera heima með fjöskyldunni og hlaða battteríin.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hjúkrun Áhyggjuefni að samstaðan sé ekki eins sterk og var í fyrri bylgju, segir Auðbjörg Bjarnadóttir. Við vitum ekki vegalengdina „Í sumar hefur landinn nýtt tímann vel til framkvæmda. Fólk tók virkilega við sér þegar virkum covid-19-smitum innanlands fækkaði. Margir stóðu í framkvæmdum á heimilum sínum eins og við í mínu fyrirtæki urðum vör við,“ segir Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar. Enn gilda hömlur á mörgum sviðum samfélagsins og daglegt líf er með talsvert öðrum brag en var. „Áhrifin verða sjálfsagt mun meiri en maður taldi framan af,“ segir Árni og bætir við: „Samfélagskostnaðurinn er þegar mikill með tilliti til heilsufars og samskipta en einnig með tilliti til tapaðrar framleiðni í þjóðfélaginu. En vissulega eru í þessu jákvæðir punktar. Þekking á möguleikum fjarvinnu hefur snaraukist sem skapar sveigjanleika á vinnumark- aði til framtíðar.“ Sumarið notuðu Árni og fjölskylda hans til ferðalaga; leigðu sér húsbíl í júlí og fóru hringveginn. Stoppuðu með- al annars á Kirkjubæjarklaustri, Skaftafelli, Ásbyrgi og Hallormsstað og nutu sólarblíðu. „Við verjum einnig tölu- verðum frítíma í garðinum og nýtum heita pottinn, pallinn og grillið heima vel yfir sumartímann. Svo er ég mikið í hjólreiðum, tek sprett nær daglega og er þegar búinn að hjóla um 6.000 kílómetra það sem af er ári. Heiman frá mér í efri byggðum Kópavogs eru frábærar hjólaleiðir; svo sem Heiðmörkin, Flóttamannaleiðin í Hafnarfjörð, Reykjavíkurhringurinn vestur á Seltjarnarnes, og þá fer ég stundum suður í Krýsuvík og Nesjavallaveginn.“ Morgunblaðið/Eggert Forstjóri Er þegar búinn að hjóla um 6.000 kílómetra það sem af er ári, segir Árni Stefánsson í Húsasmiðjunni. Tíminn nýttur í framkvæmdir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hólmsheiði Þar sem liggur beinn og breiður vegur til bjartra tíma. Hver er stefnan? Hvernig er lífið í landinu nú í ágústlok? Höfuðdagur er í dag, 29 ágúst, og sú trú var á Íslandi að þá verði kaflaskil í veðráttu. En hvað sem því líður er lífið aft- ur að detta í rútínu, sem þó væntanlega verður skrykkjótt vegna veirunnar. Morgunblaðið tók fólk tali um veginn framundan og daglegt líf. sbs@mbl.is Bíldshöfða 16 - 110 Reykjavík - 414-8400 - www.batik.is - www.martex.is VINNUFATNAÐUR MERKINGAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.