Morgunblaðið - 29.08.2020, Side 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2020
Spurður hvaða áhrif kórónuveiru-
faraldurinn hefur haft í þessu efni
segir Þórólfur að skjölum hafi fjölg-
að milli ára.
„Fyrir utan áhrif faraldursins á
fjölda starfsmanna sem voru við
þinglýsingar þegar faraldurinn stóð
sem hæst, og að einhverju leyti aftur
vegna fjarveru frá vinnustað eða
fjarvinnu við önnur verkefni, virðist
kórónuveiran hafa haft áhrif á
skjalafjöldann sem kemur til þing-
lýsingar. Skjölum sem koma til þing-
lýsingar hefur í öllu falli fjölgað um-
talsvert en líkt og fyrr segir virðist
fjölgunin mestmegnis vera í endur-
fjármögnun og skilmálabreytingum.
Skjölum hefur fjölgað um alls 23%
milli ára og er fjölgunin í maí, júní og
júlí 38% miðað við sama tíma 2019,“
segir Þórólfur um aukninguna milli
ára.
Erfiðara yfir sumarleyfistíma
Hafið þið kallað út aukamannskap
í afleysingar vegna þessa?
„Yfir sumarleyfistímann er hæg-
ara sagt en gert að finna fólk til
starfa sem hefur kunnáttu á þinglýs-
ingum og hefur raunar reynst erfitt.
Það er einnig þyngra og kostnaðar-
samara að fá starfsmenn til að vinna
mikla yfirvinnu á þessum tíma árs,
og starfsmenn óneitanlega hvíldar
þurfi þegar álagið er jafn mikið og
raun ber vitni. Þá höfðu meðal ann-
ars forsetakosningarnar áhrif á
mönnun. Lengri biðtími orsakast því
annars vegar af fjölgun skjala sem
eru móttekin til þinglýsingar og hins
vegar af manneklu, sem aftur er
meðal annars sökum veikinda og or-
lofa starfsmanna,“ segir Þórólfur um
álagið í sumar.
Máli sínu til stuðnings bendir
hann á tölfræði um heimsóknir á
jarðhæð embættisins í Hlíðasmára 1.
Að meðaltali hafi komið 709 gestir á
dag, frá 8.30 til 15.00, 4.-26. ágúst,
sem voru 16 fyrstu afgreiðsludagar
mánaðarins. Til samanburðar komu
779 gestir að jafnaði á dag fyrstu 16
afgreiðsludagana í ágúst í fyrra.
Það er fækkun heimsókna en á
móti kann eðli fyrirspurna að hafa
breyst. Hér er ótalið fólk sem á bók-
aða tíma í fyrirtökum af ýmsu tagi og
fram fara á efri hæðum embættisins.
Ásókn í lægri vexti
Fram kom í Morgunblaðinu í byrj-
un ágúst að mikið annríki hefði verið
hjá bönkunum í sumar vegna lána-
samninga. Endurfjármögnun lána
ætti þar hlut að máli en margir hefðu
notað tækifærið eftir að Seðlabank-
inn lækkaði vexti. Það hefði aftur
örvað fasteignamarkaðinn í sumar
en almennt auka lægri vextir kaup-
getu í fasteignum.
Afgreiðslutíminn var mislangur
hjá stóru bönkunum þremur.
Hjá Landsbankanum var umsókn-
um um ný íbúðalán og endurfjár-
mögnun almennt svarað innan fárra
daga ef málin eru hefðbundin og
borðleggjandi. Afgreiðslutími gæti
þó tekið lengri tíma, allt að tvær vik-
ur og jafnvel lengur, ef um flóknari
mál væri að ræða.
Tók að jafnaði átta vikur
Hjá Íslandsbanka tók að jafnaði
þrjá til níu daga að afgreiða íbúða-
lán, að viðbættri bið eftir þinglýs-
ingu, og að jafnaði átta vikur að end-
urfjármagna lán, að meðtaldri
þriggja vikna bið eftir þinglýsingu
hjá sýslumanni.
Hjá Arion banka tók almennt fjóra
virka daga að afgreiða íbúðalán, frá
umsókn til samþykktar, og þinglýs-
ing þrjár vikur. Þá tók þrettán virka
daga að afgreiða umsóknir um
endurfjármögnun lána, frá umsókn
til samþykktar, og þinglýsing þrjár
vikur.
Fram kom í ViðskiptaMogganum
12. ágúst að stefnt sé að því að fyrir
árslok 2020 verði hægt að þinglýsa
íbúðalánum rafrænt. Faraldurinn
var sagður hafa flýtt þeirri þróun.
38% fjölgun skjala í þinglýsingu
Mikið annríki var hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í maí, júní og júlí 5.500 skjöl biðu
þinglýsingar Að jafnaði komu 709 gestir í móttökuna á dag fyrstu 16 starfsdagana í ágústmánuði
Annríki hjá sýslumanni á höfuðborgarsvæðinu
Fyrstu 16 virku dagana í ágústmánuði 2019 og 2020
Fjöldi heimsókna á dag í afgreiðsluna á 1. hæð
900
800
700
600
500
Ágúst 2019 Ágúst 2020
*Fyrir utan skjöl í ólagi og eignaskipta-
yfi rlýsingar. **Til og með 24. ágúst.
***Miðað við sama tímabil 2019.
Heimild: Sýslumaðurinn
á höfuðborgarsvæðinu.
5.500 skjöl bíða þinglýsingar*23% fjölgun skjala í
þinglýsingu milli ára**
38% fjölgun skjala í þinglýsingu
í maí, júní og júlí***
Meðalfjöldi 2019: 779 á dag
Meðalfjöldi 2020: 709 á dag
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Um 5.500 skjöl biðu þinglýsingar hjá
embætti sýslumanns á höfuðborgar-
svæðinu síðastliðinn mánudag. Það
er fyrir utan skjöl sem eru í ólagi og
eignaskiptayfirlýsingar.
Þórólfur Hall-
dórsson, sýslu-
maður á höfuð-
borgarsvæðinu,
segir embættið
gefa sér um það
bil þrjár vikur og
tvo daga til að
þinglýsa kaup-
samningum fast-
eigna.
Það þýðir að
samningar sem komu til þinglýsing-
ar í gær, 28. ágúst, verða að óbreyttu
tilbúnir 22. september. Sami biðtími
er á veðskuldabréfum og afsölum
vegna fasteigna.
Lengri biðtími en í fyrra
Jafnframt er sami biðtími eftir
þinglýsingu vegna bílakaupa.
En hvernig skyldi þessi biðtími
vera í samanburði við fyrri ár?
„Biðtíminn er aðeins lengri en á
sama tíma fyrir ári þegar biðtíminn
var um tvær vikur. Árið 2018 var bið-
tíminn hins vegar svipaður og nú.
Heldur færri skjöl komu til þinglýs-
ingar á sama tíma fyrir ári, en skjöl-
um hefur fjölgað um 23% milli ára,“
segir Þórólfur.
Þórólfur
Halldórsson
Vinnur gegn
Laktósaóþoli
Fæst í næsta apóteki
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
29. ágúst 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 138.45
Sterlingspund 182.67
Kanadadalur 105.24
Dönsk króna 21.963
Norsk króna 15.517
Sænsk króna 15.853
Svissn. franki 152.3
Japanskt jen 1.3059
SDR 195.56
Evra 163.47
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 192.458
Hrávöruverð
Gull 1938.8 ($/únsa)
Ál 1737.0 ($/tonn) LME
Hráolía 45.7 ($/fatið) Brent
● Hagnaður HS veitna minnkaði um
25% á fyrri árshelmingi miðað við sama
tíma í fyrra. Þannig nam hann 374
milljónum króna en á fyrri hluta árs
2019 var hann 499 milljónir króna. Seg-
ir í árshlutareikningi fyrirtækisins að
lækkunin skýrist m.a. af minni tekjum
af raforkudreifingu, ferskvatnssölu og
tengigjöldum. Auk þess skekki sölu-
hagnaður fasteignar í fyrra að fjárhæð
50 milljónir króna samanburðinn milli
ára. Á sama tíma og tekjur skruppu
saman hækkaði kostnaður á ýmsum
sviðum, m.a. dreifitöpum, rekstri hita-
veitukerfa í Vestmannaeyjum og rekstri
ferksvatnsdeildar á Suðurnesjum og
vegna hækkunar á fjármagnsliðum.
Hagnaður HS veitna
minnkar um fjórðung
„Þessi mikla hækkun kom nokkuð á
óvart en spár höfðu gert ráð fyrir
að vísitalan myndi ekki hækka
svona mikið.“ Með þessum orðum
lýsir Erna Björg Sverrisdóttir,
aðalhagfræðingur Arion banka, við-
brögðum sínum við nýjustu mæl-
ingum Hagstofunnar á vísitölu
neysluverðs.
Sýna þær að verðbólgan mæld í
ágúst á ársgrunni er 3,2% og hækk-
ar úr 3,0% í júlímánuði. „Það sem
keyrir verðbólguna áfram núna er
fyrst og fremst mun meira líf á
fasteignamarkaði en flestir bjugg-
ust við og þá fjara sumarútsölurnar
fyrr út en gert var ráð fyrir. Áhrif
útsalanna hafa ekki verið jafn lítil á
þessum tíma árs í mörg ár, ef nokk-
urn tíma. Miðað við júlítölurnar
bjuggust margir við því að útsöl-
urnar myndu teygja sig vel inn í
ágúst en það virðist ekki raunin,“
segir Erna Björg.
Í tilkynningu frá Hagstofunni
kemur fram að verð á fötum og
skóm hafi hækkað um 3,4% og það
hefur áhrif til hækkunar vísitölunn-
ar um 0,11 prósentur. Þá sýna
sömu tölur að kostnaður vegna bú-
setu í eigin húsnæði hefur hækkað
um 0,5% sem hefur 0,90 prósenta
áhrif til hækkunar.
Spurð út í hvað valdi því að útsöl-
ur haldi ekki meira aftur af verð-
lagsbreytingum nú en oftast áður,
segir Erna Björg erfitt að fullyrða
hvað valdi. „Það er ljóst að versl-
unin hefur ekki verið að skila geng-
isveikingu krónunnar út í verðlagið
í miklum mæli á sama tíma og eft-
irspurnin í hagkerfinu hefur verið
meiri en búist var við og það veldur
því mögulega að verslanir keyri
ekki eins mikið á útsölum nú og
verið hefur. En ef gengisveiking
krónunnar gengur ekki til baka á
næstu mánuðum má gera ráð fyrir
að það muni fyrr en síðar hafa áhrif
á þennan undirlið (fatnað og skó)
og þar með vísitöluna.“Á miðviku-
dag var birt ákvörðun peninga-
stefnunefndar Seðlabankans um að
halda meginvöxtum bankans
óbreyttum í 1%. Fyrir ákvörðunina
höfðu aðilar á borð við Samtök iðn-
aðarins kallað eftir frekari stýri-
vaxtalækkunum. Erna Björg segir
verðbólgumælinguna nú draga úr
líkum á frekari lækkunum.
ses@mbl.is
Greining Erna Björg Sverrisdóttir
er aðalhagfræðingur Arion banka.
Dregur úr líkum
á vaxtalækkun
Ný verðbólgu-
mæling vitnar um
þrótt í hagkerfinu