Morgunblaðið - 29.08.2020, Side 32

Morgunblaðið - 29.08.2020, Side 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2020 Grensásvegur 13 - 108 Reykjavík - Sími 570 4800 - gimli.is - gimli@gimli.is Bárður Sölustjóri 896 5221 Elín Urður Lögg. fast. 690 2602 Elín Rósa Lögg. fast. 773 7126 Lilja Viðskiptafr. / Lögg. fast. 820 6511 Kristján Viðskiptafr. / Lögg. fast. 691 4252 Halla Viðskiptafr. / Lögg. fast. 659 4044 Ólafur Sölu- og markaðsstjóri 690 0811 Ellert Lögg. fast. 661 1121 Sigþór Lögg. fast. 899 9787 Hafrún Lögg. fast. 848 1489 Nú eru um það bil sex mánuðir frá því að heimsfaraldur hófst og flestir orðnir lang- þreyttir á ástandinu. Eins og ég benti á í blaðagrein í apríl sl. var viðbúið að þetta yrði viðvarandi til langs tíma og mik- ilvægt að læra að lifa með veirunni. Það hef- ur okkur tekist vel á Íslandi með hjálp þríeykisins, Kára og DeCode og heilbrigðisstarfsfólks um land allt. Ákvarðanir til þessa hafa að mestu verið skynsamlegar og með- alhófs gætt. Nú bregður hins vegar við annan tón. Opnun landamæra þann 15. júní sl. hafði í för með sér eins og við var að búast nokkur hópsmit og nú hafa rúmlega 200 manns sýkst af veirunni í „annarri bylgju“. Af þeim hefur enginn látist og er nú einn á sjúkrahúsi og enginn á gjörgæslu. Líklegasta skýringin á vægari ein- kennum er að nú eru yngri ein- staklingar að sýkjast, en þeim farn- ast mun betur en þeim sem eru eldri eða með undirliggjandi sjúk- dóma. Dánartíðni vegna Covid á Ís- landi er lág, eða 10/2040 (0,49%). Raunveruleg dán- artíðni er reyndar um helmingi lægri (0,21%) miðað við niðurstöðu úr mótefnamælingum DeCode þar sem 1,3% landsmanna höfðu mótefni gegn veirunni, sem er reyndar van- mat þar sem ekki allir sem smitast mælast með mótefni. Þannig má segja að ef ein- staklingur á Íslandi sýkist af Covid eru lík- urnar á að deyja um 1/500. Til að setja þetta í samhengi eru ævilíkur á að deyja af hjarta- og æða- sjúkdómi u.þ.b. 1/7, í bílslysi 1/114 og sem gangandi vegfarandi 1/647. Dánarlíkur eru einstaklingsbundnar en má t.d. reikna gróflega út á slóð- inni https://www.covid19survivalcal- culator.com/en/calculator. Nú er ég ekki að gera lítið úr þessari farsótt, enda snýst þetta ekki bara um dauðsföll heldur líka aðra afleidda kvilla. Hins vegar er umræða fjölmiðla til þess fallin að ala á ótta og neikvæðar fréttir eru mun algengari en jákvæðar. Til dæmis voru viðbrögð vegna farald- ursins vestra ekki til fyrirmyndar og Covid hefur í raun brunnið þar í gegn eins og sinueldur. En, án þess að það fari hátt í fjölmiðlum, þá hef- ur tilfellum í Bandaríkjunum farið fækkandi og lífið hér úti gengur al- mennt sinn vanagang, veitingahús full af fólki og sjúkrahús að mestu að sinna hefðbundnum sjúklingum þótt vissulega sé ástandið misjafnt á milli ríkja. Hjarðónæmi myndast ekki í einu vetfangi heldur verður smám saman erfiðara fyrir veiruna að breiðast út og það gæti e.t.v. far- ið að raungerast vestra á næstu mánuðum. Þegar Covid fór aftur að greinast á Íslandi seinni hluta sumars fór af stað umræða um að það hafi verið „mistök“ að opna landið í júní. Margir lýstu yfir ótta vegna þessa í fjölmiðlum og hvöttu til hertra að- gerða. Hlutirnir gerðust nokkuð hratt eftir það. Þann 11. ágúst lét sóttvarnalæknir hafa eftir sér að til stæði að endurskoða seinni sýna- töku vegna álags á heilbrigðiskerfið og vegna þess að einungis tveir af 8.000 hefðu greinst með veiruna (0,02%). Hins vegar var svo ákveðið þann 14. ágúst ekki einungis að halda áfram með tvær skimanir heldur líka að setja fólk í sóttkví í 4-5 daga (sem síðar breyttist í 5-6 daga) á milli fyrri og seinni skim- unar. Á þessum tímapunkti var far- aldurinn á rólegri ferð hérlendis og einn einstaklingur inniliggjandi á sjúkrahúsi. Þarna er að mínu mati seilst of langt. Vissulega er réttur fólks til eins eðlilegs lífs innanlands og hægt er mikilvægur en það er vand- meðfarið að þrengja að frelsi borg- aranna með þessum hætti og sér- staklega ef það á að vara til langs tíma. Það er jafnframt töluverð hætta á að ef of langt er gengið, þá hætti sumir að fara eftir reglum. Þetta hefur sýnt sig bæði hérlendis og erlendis þar sem brot á sóttkví hafa leitt til hópsmita. Sóttkví virk- ar nefnilega ekki nema fólk fari eft- ir reglunum, því það er í raun ómögulegt að hafa viðunandi eftirlit með fólki sem kemur til landsins. Skynsamlegra hefði verið að lág- marka skaðann á báða bóga með því að setja alla í tvöfalda skimun en jafnframt að halda áfram með heimkomusmitgát á milli sýna, sem var að mínu mati vel ígrunduð leið til að lágmarka hættu á smiti eftir að lá fyrir að fyrra sýni var nei- kvætt. Þetta hefði í för með sér mun minni röskun á komum ferða- manna til landsins og myndi minnka þann gífurlega skaða sem ferðaþjónustan og aðrir aðilar eru nú að verða fyrir. Jafnframt ættu ferðamenn að greiða að fullu skim- unarkostnað enda er ríkið nú að safna skuldum upp á einn milljarð á dag og er það sennilega meira en nóg. Það myndi minnka örlítið ferðavilja og þar með minnka líkur á að skimunargeta mettist. Auðvit- að má svo slaka á eftirliti eins og við á. Við eigum eftir að lifa með Covid í marga mánuði (og e.t.v. ár) í við- bót. Bóluefni kemur sennilega um síðir, en erfitt að segja hvenær og hversu áhrifaríkt og öruggt það verður. Það er óraunhæf útópía að búa í veirufríu landi því það er ekki hægt að loka veiruna úti til lengdar eins og nýleg dæmi frá Færeyjum og Nýja-Sjálandi sanna. Það er skynsamlegra að gæta meðalhófs og vernda lýðheilsu, og þá sér- staklega vernda viðkvæma hópa, en jafnframt að hlúa að frelsi ein- staklinga og finna leiðir til að lág- marka skaðann fyrir alla. Hinn vandrataði meðalvegur veirunnar Eftir Jón Ívar Einarsson »Mikilvægt er að gæta meðalhófs í ákvarðanatöku vegna Covid og lágmarka skaðann fyrir sem flesta. Of langt er seilst í nýlegum aðgerðum á landamærum. Jón Ívar Einarsson Höfundur er prófessor við læknadeild Harvard-háskóla. jeinarsson@bwh.harvard.edu Covid-veiran liggur sem í leyni, ógnandi í hverjum krók og kima um heim allan. Þessi áður óþekkta drepsótt, sem engin lyf vinna ennþá á, virðist reiðubúin til aukinnar atlögu eða vonandi líka hins gagnstæða, að fjara út. En óvissa sviptir okkur getu til spádóma um fram- tíðarþróun íslensks efnahagslífs að öðru leyti en því að ferðaþjón- ustan verður fyrir þungum búsifj- um. Á hinn bóginn er hallinn á ríkissjóði, sem miklar og marg- þættar aðgerðir ríkisstjórnarinnar orsaka – „veiruhallinn“– síður en svo glatað fé, eins og Bjarni Bene- diktsson fjármálaráðherra bendir á. Um er að ræða mikla uppbygg- ingu í innviðum, fjárfestingar sem eiga eftir að skila hagvexti. En hvað annað er ógert? Það er skylduverk okkar Íslend- inga að varðveita tunguna og þá menningarlegu fjársjóði sem hún geymir. Sú vakning sem varð hjá þjóðinni á nítjándu og tuttugustu öld í ræðu og riti um endurheimt sjálfstæðis, vísaði mjög til forn- aldar þá er landið var numið og stofnað til alþingis á Þingvöllum. Nú er svo komið að kunnáttu á ís- lenskri tungu af yngri kynslóð landsmanna hefur farið ört hrak- andi. Þetta er staðreynd sem óþarfi er að eyða að orðum hér. Eitthvert afbrigði málsins byggt á enskum slanguryrðum er daglegt talmál og hið skrifaða í tölvu- póstum. Háskólaprófessorar sitja uppi með BA- og MA-ritgerðir ís- lenskum háskóla til skammar. Ljóst má vera að ekkert nema þjóð- arvakning getur orðið til viðnáms þessum ósóma. Er þá ekki ráðið með öðrum að íslenska verði eitt af opinberu tungu- málum ESB? Engar svokallaðar sérstöður okkar eru efnislega meiri en gengur og gerist í samstarfi vinaríkja og banda- manna. Er nú ekki kominn tími til að við hristum af okkur þá skipan annara þjóða að við séum sumpart utan borðs? Ís- landi ber ekki annað sæti en full- gilds aðilia að Evrópusamstarfinu og að gegna leiðandi hlutverki í sjávarútvegsmálum en þar hefur ESB ratað í sína verstu stefnu- mörkun. En naumast förum við fram á þeim vettvangi takist ekki málhreinsun samfara þjóðarstolti. Í barnaskóla var mér kennd Ís- landssaga skrifuð af Jónasi Jóns- syni frá Hriflu og í gagnfræða- skóla Jóni Aðils en í MR var sú kennsla um of í heljargreipum há- skólamanna sem sátu fastir í hljóðfræðigreiningum fornmálsins. En seinni tíma endurhæfing, eink- um af skrifum Sigurðar Nordal, sérstaklega Íslenskri menningu, var mér mjög til góðs. Löngum vísaði maður til Snorra Sturluson- ar og þeirrar miklu menningar- varðveislu sem er fólgin í Eddu- kvæðunum, sögu Noregskonunga eða fornsögum okkar til að sýna heiminum stöðu Íslendinga sem Evrópuþjóðar. Og háskólar á Norðurlöndum, Þýskalandi, Frakklandi en ekki síst Bretlandi, svo helstu dæmi séu nefnd, hafa um síðustu aldir lagt áherslu á kennslu og rannsóknir í íslenskum fræðum. Það var mér til ómet- anlegs ávinnings að eignast góð tengsl við þá norrænufræða- prófessorana Régis Boyer við Sor- bonne, Peter Foote við Lundúna- háskóla, Hermann Pálsson í Edinborg og Véstein Ólason í Osló. Í nýútkominni bók, Ísland í Eyjahafinu, eftir Svein Ingva Eg- ilsson prófessor, segir að í sjálf- stæðisbaráttunni hafi hin forna sögufrægð ekki dugað okkur sem verandi fullgilt evrópskt menning- arríki. Að evrópskri fyrirmynd hafi skáldin litið til fornsögu Grikkja en skírskotun til nátt- úrufyrirbæra í ættjarðarljóðum, sem hefst með Matthíasi Joch- umssyni, einnig að erlendri fyr- irmynd, verður ráðandi í kvæðum Einars Benediktssonar. Hafið er honum mjög hugleikið sem og sæ- farinn og skáldið Egill Skalla- grímsson. Hafið er mikið þema 19. aldar skálda Breta og Walt Whit- mans, sem hann þýddi. Mörg kvæði Einars eru mjög myndrík og að dómi Sveins Ingva líka inn- blásin af málverkum Williams Turner, leiðandi málara síns tíma. Þannig sér Einar hið þjóðlega eft- ir evrópskri fyrirmynd síns tíma. Magnús Magnússon, rithöf- undur og sjónvarpsmaður, var óviðjafnanlegur liðsauki við land- kynningar í Bretlandi, sem við efndum til árlega í minni sendi- herratíð í London. Magnús var landsfrægur fyrir Mastermind- þætti sína. Við náðum athygli fjöl- miðla, þ.m.t. sjónvarps, og voru Íslandssögukynningar Magnúsar vinsælar. Það sama átti við um kynningu á ferðamálum, útflutn- ingi á vörum og þjónustu og ís- lenskum ullarfatnaði þá í tísku í Bretlandi. Á þetta er minnst vegna þess að ekkert fer betur saman en kynning á þjóðlegri menningu með útflutningi sem efla skal í markaðslöndum. Það þótti gjaldgengt spaug í eina tíð, að á þessum tíma ársins væri þess ekki að vænta að neinn myndi hefja stríð í Evrópu. Þá væri óvinurinn í sumarfríi. Eigum við ekki að óska þess að friður sé í bili fyrir hefðbundnu þrasi stjórnmálaflokka og samkomulag um verðug baráttumál. Segjum ennfremur að þjóðleg covid- samstaða muni haldast með því að Íslendingar strengi þess heit að svo verði og eitthvað nýtt taki við í þjóðfélagslegum samskiptum! Ágúst 2020 Eftir Einar Benediktsson » Það er skylduverk okkar Íslendinga að varðveita tunguna og þá menningarlegu fjársjóði sem hún geymir. Einar Benediktsson Höfundur er fv. sendiherra. Atvinna Þau tvö árin sem núverandi borgarstjórnarmeirihluti hefur setið hefur allt verið á fallanda fæti og á niðurleið í borginni. Álögur á borgarbúa hafa aukist og þjónustu er víða ábótavant. Von- andi bera Reykvíkingar gæfu til að kjósa einstaklinga til valda næst sem ráða við að stjórna borginni svo vel sé. Kórónuveiran er heilsufarsleg heimsógn. 650 þúsund hafa þegar látist. Veiran hefur færst í aukana hérlendis og vonandi tekst að þróa bóluefni gegn henni. Sigurður Guðjón Haraldsson. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Borgarmál og kórónuveira Morgunblaðið/Valli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.