Morgunblaðið - 10.09.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 10.09.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2020 - síðan 1986 - Skútuvogi 6 104 Reykjavík Sími: 568 67 55 alfaborg.is „Þetta er nú næstum því tilbúið en við vonumst til að verkinu ljúki næstkomandi laugardag,“ segir Karim Askari, stjórnarformaður Stofnunar múslima á Íslandi. Vísar hann í máli sínu til hinnar 13 metra háu mínarettu sem reist var í lok síðasta árs við mosku fé- lagsins í Skógarhlíð í Reykjavík. Mínarettur, eða bænaturnar, eru jafnan við bænahús múslima og þykja mikilvægt tákn fyrir sýni- leika múslimasamfélagsins. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið fram hjá Skógarhlíð voru iðn- aðarmenn önnum kafnir við að leggja lokahönd á mínarettuna og á toppi hennar hvílir nú mánasigð. Þegar bænaturninn er fullgerður mun hálfmáninn lýsa upp nætur- myrkrið. Ekki stendur þó til að stunda bænakall frá mínarettunni. Spurður hvort til standi að halda einhvers konar samfögnuð þegar mínarettan verður fullgerð kveður Karim já við. „Við neyðumst þó til að fresta því um stund sökum út- breiðslu kórónuveiru, en það verð- ur haldin hátíð þegar við opnum moskuna formlega.“ khj@mbl.is Verið er að leggja lokahönd á mínarettu múslima við Skógarhlíð í Reykjavík Mánasigð mun lýsa í myrkrinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Atvinnuleysi í ríkjum innan OECD í júlímánuði síðastliðnum mældist meira en á Íslandi í miklum meiri- hluta þeirra landa sem nýr saman- burður OECD á atvinnuástandinu nær til. Atvinnuleysi hefur víðast hvar aukist verulega á umliðnum mánuðum eftir að faraldur krórónu- veirunnar breiddist út. Atvinnuleysi hér á landi var 5% af vinnuaflinu samkvæmt upplýsingum OECD og er sú tala í samræmi við niðurstöður úr vinnumarkaðskönn- un Hagstofunnar í sumar. Af öllum þeim ríkjum sem samanburður OECD nær til og birt hafa tölur fyrir atvinnuleysi í júlí var atvinnuleysið minna en á Íslandi í átta löndum en meira í 17 löndum. Að meðaltali mældist atvinnuleys- ið í júlí 7,7% í aðildarríkjum OECD og var 7,2% að jafnaði í aðildarlönd- um Evrópusambandsins. Aðrar Norðurlandaþjóðir bjuggu við meira atvinnuleysi en Íslendingar í sumar. Í Danmörku mældist 6% atvinnu- leysi, 7,8% í Finnlandi og 9,2% í Sví- þjóð. Tölur eru ekki birtar yfir at- vinnuleysi í Noregi í júlí en í júní var þar 5,2% atvinnuleysi skv. OECD. Í frétt frá OECD í gær kemur fram að nokkuð dró úr atvinnuleysi í aðildar- löndunum í júlí frá mánuðinum á undan þótt það væri enn 2,5 pró- sentustigum hærra í júlí en í ferbúar sl. áður en kórónuveirufaraldurinn braust út. Á evrusvæðinu fór þó at- vinnuleysið vaxandi fjóra mánuði í röð og var komið í 7,9% í júlí. Mun stærri hluti ungs fólks var án atvinnu í sumar í flestum OECD- löndum en áður en faraldurinn hófst í vetur. Í yngsta aldurshópnum, 15- 24%, var t.d. 17% atvinnuleysi á ESB-svæðinu í júlí. Á Norðurlönd- unum var atvinnuleysi í þessum hópi 12,2% í Danmörku, 20,6% í Finnlandi og 28,9% í Svíþjóð og 9,9% á Íslandi. Atvinnuleysi breiddist víðast hvar út í faraldrinum  Meira atvinnuleysi en á Íslandi í 17 löndum en minna í átta Morgunblaðið/Eggert Störf Unnið að vegaframkvæmdum. Höskuldur Daði Magnússon Veronika Steinunn Magnúsdóttir „Með Loftbrú viljum við brúa bilið milli landsbyggðar og höfuðborgar og bæta aðgengi íbúa að fjölbreyttri en mikilvægri miðlægri þjónustu í höfuðborginni,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitar- stjórnarráðherra, þegar hann kynnti í gær Loftbrú, afsláttarkjör sem gefa fólki á landsbyggðinni kost á lægri flugfargjöldum til Reykjavík- ur. Íslensk útfærsla skosku leiðarinn- ar svonefndu, greiðsluþátttöku rík- isins í fargjöldum í innanlandsflugi, kallast Loftbrú og var kynnt á Egils- staðaflugvelli í gær. Sagði ráðherra á fundinum að hann teldi Loftbrú vera eina af mikilvægari byggðaaðgerð- um sem ráðist hefði verið í og inn- leiðing hennar hefði verið á stefnu- skránni frá því hann kom í ráðuneytið. Kostnaður við greiðsluþátttöku ríkisins við lækkun flugfargjalda í verkefninu er metinn allt að 600 milljónum króna á ársvísu og 200 milljónum króna á þessu ári. Gert er ráð fyrir þeim fjárframlögum í sam- gönguáætlun. Loftbrú veitir afsláttarkjör til allra þeirra sem eiga lögheimili á landsbyggðinni fjarri höfuðborgar- svæðinu og í Eyjum. Flugfélagið Ernir flaug á föstudaginn í liðinni viku síðustu áætlunarferð sína til Vestmannaeyja. Fyrirtækið ber því við að flugið hafi ekki borið sig og því hafi verið sjálfhætt. Hörður Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Ern- is, segir aðspurður að tilkoma Loftbrúarinnar breyti litlu um for- sendur þess flugs. Telur þörf á niðurgreiðslu „Eyjaflugið stendur ekki undir sér, ekki frekar en strætisvagna- akstur eða ferjusiglingar. Það er erf- itt að ætla sér að halda úti almenn- ingssamgöngum án þess að til komi niðurgreiðslur eða lækkun gjalda hins opinbera af einhverju tagi,“ seg- ir Hörður sem vonar að Loftbrúin nýtist fólki á landsbyggðinni enda sé úrræðið hugsað fyrir farþega. Hann kveðst telja að útspil þurfi frá stjórnvöldum til að flug til Vest- mannaeyja gangi upp. „Flugið til Eyja er ekki nálægt því að standa undir sér en við hverja ferð nær hið opinbera tekjum sínum inn þótt það séu bara tveir eða þrír farþegar um borð.“ Spurð hvort Loftbrúin komi sér vel fyrir Air Iceland Connect segir Þóra Eggertsdóttir, forstöðumaður innanlandsflugs hjá flugfélaginu, að ekki sé sérstaklega gert ráð fyrir hugsanlegum ávinningi hennar í áætlanagerð – þó sé hún bjartsýn á framhaldið. „Það er svolítið erfitt að segja til um það hver áhrifin verða nákvæm- lega en við erum bjartsýn á að þetta muni styrkja reksturinn okkar og hafa jákvæð áhrif á flugið. Tækni- lega útfærslan er góð, svo við erum bjartsýn á að úrræðið verði vel nýtt og hvetji fólk á landsbyggðinni til að nýta sér innanlandsflugið. En við getum ekki gefið okkur forsendur við áætlanagerð miðað við þetta,“ segir Þóra. Allt að 600 milljónir í niðurgreiðslur  Íslensk útgáfa skosku leiðarinnar kallast Loftbrú  Um 60 þúsund íbúar landsbyggðarinnar eiga rétt á þremur niðurgreiddum flugferðum til Reykjavíkur ár hvert  Breytir engu um áætlunarflug til Eyja Ljósmynd/Samgönguráðuneytið Loftbrú Sigurður Ingi Jóhannsson á kynningarfundi á Egilsstaðaflugvelli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.