Morgunblaðið - 10.09.2020, Page 52

Morgunblaðið - 10.09.2020, Page 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2020 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Í raun mætti nefna komandi leikár 2020-2021+ því það er allt á hreyf- ingu vegna kófsins og við hreyfumst með. Það gefur augað leið að við höldum ekki sömu framleiðni og áætlað var. Við höfum hvorki fjár- hagslegt bolmagn í það né tíma á sviði eða sýningarkvöld,“ segir Brynhildur Guðjónsdóttir borgar- leikhússtjóri um nýhafið starfsár. „Eftir stendur að hér ríkir kraftur og gleði og við erum heldur betur tilbúin til að taka á móti gestum. Okkar aðalhlutverk er að halda utan um hug og hjörtu landsmanna og það ætlum við svo sannarlega að gera,“ segir Brynhildur og bendir á að gildandi samkomutakmarkanir liti framboð leikhússins. Segir hún ekkert launungarmál að nándar- takmarkanir í sal feli í sér að aðeins sé hægt að vera með um 35% sæta- nýtingu og höggvi því skarð í fjárhag leikhússins. „Það er ekki nema fyrir ábyrgan rekstur síðustu ára sem við höldum sjó í núverandi ástandi. Við færum tvær sýningar frá þessu leik- ári til þess næsta,“ segir Brynhildur og vísar þar til Caligula eftir Camus í leikstjórn Javors Gardev og Þétt- ingar hryggðar eftir Dóra DNA og Unu Þorleifsdóttur í leikstjórn Unu. Það verður að vera gaman „Að auki endurhugsum við sýn- inguna Room 4.1 – Live eftir Krist- ján Ingimarsson og lögum okkur að aðstæðum. Úrvalið er þó aldeilis fullnægjandi,“ segir Brynhildur og tekur fram að hún bindi miklar vonir við að sýningar á Bubba-söng- leiknum Níu lífum eftir Ólaf Egil Egilsson í leikstjórn höfundar geti hafist á ný á Stóra sviðinu 1. októ- ber. „Sem stendur erum við með 32 uppseldar sýningar,“ segir Bryn- hildur og bendir á að stór hluti þeirra sem náði að sjá þær þrjár sýningar sem sýndar voru á Níu líf- um í mars áður en samkomubannið skall á hafi þegar keypt sér miða til að sjá sýninguna aftur. „Gleðin, ork- an og krafturinn í kringum þessa sýningu er mögnuð og við bíðum vægast sagt með óþreyju eftir að hefja sýningar á ný,“ segir Bryn- hildur og tekur fram að leikhúsið sé kortagestum sínum þakklátt fyrir sýndan skilning og tryggð á erfiðum tímum. Í raun má segja að yfirstandandi leikár hafi hafist um liðna helgi þeg- ar uppfærsla sviðslistahópsins CGFC á Kartöflum var tekin aftur til sýningar. „Þetta er dásamleg sýn- ing,“ segir Brynhildur og rifjar upp að Kartöflur hafi verið hluti af röð- inni Umbúðalaust sem hóf göngu sína á síðasta ári og er vettvangur tilrauna ungs sviðslistafólks. „Líkt og yfirskriftin gefur til kynna þá setjum við þar áhersluna á innihald- ið þar sem umbúðirnar eru auka- atriði,“ segir Brynhildur og bendir á Umbúðalaust-sýningin Ertu hér? eftir Ásrúnu Magnúsdóttur og Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur sem vera átti í vor verði sýnd í október. „Í vet- ur bjóðum við síðan leikskáldum hússins, Matthíasi Tryggva Har- aldssyni og Evu Rún Snorradóttur, að setja upp sitt verkið hvort í vinnslu undir merkjum Umbúða- lauss, sem spennandi verður að sjá,“ segir Brynhildur og undirstrikar mikilvægi þess að Borgarleikhúsið sé í virku samtali við grasrótina. Fyrsta frumsýning leikársins er Oleanna eftir David Mamet í þýð- ingu Kristínar Eiríksdóttur á Nýja sviðinu 18. september í leikstjórn Hilmis Snæs Guðnasonar og Gunn- ars Gunnsteinssonar, sem frestað var í vor vegna kófsins. „Hér er á ferðinni kraftmikið og beitt verk sem talar enn beint inn í samtímann. Lykilspurningar verksins snúast um vald og valdaleysi.“ Fyrsta frumsýningin á Stóra svið- inu verður Veisla eftir Sögu Garð- arsdóttur og leikhópinn í leikstjórn Bergs Þór Ingólfssonar þar sem veislumenning landans er til skoð- unar. „Þessa sýningu átti að frum- sýna í vor. Þegar ég sá hvaða efnivið þau voru með í höndunum fannst mér einboðið að stækka sýninguna og færa frá Litla yfir á Stóra sviðið,“ segir Brynhildur og bendir á að Veisla verði kærkomin öllum þeim sem misst hafi af veislum í kófinu. „Þetta er myljandi fyndin nútíma- revía þar sem mottóið er: Það verður að vera gaman.“ Morðgáta og ástarbréf Útlendingurinn – morðgáta nefn- ist nýtt verk úr smiðju Friðgeirs Einarssonar og í leikstjórn Péturs Ármannssonar sem frumsýnt verður á Litla sviðinu 2. október. „Þetta er annað verkið í ráðgátuþríleik Frið- geirs hér í Borgarleikhúsinu sem hófst með Club Romantica í fyrra. Í þessu verki reynir Friðgeir að leysa 50 ára gamalt morðmál og komast að því hvað kom fyrir Ísdalskonuna svonefndu sem fannst látin skammt frá Bergen 1970,“ segir Brynhildur og tekur fram að dásamlegt sé að fylgjast með Friðgeiri að störfum. „Friðgeir er meistari í einlægu, fal- legu og óþægilega fyndnu leikhúsi.“ Síðasta frumsýning almanaksárs- ins er Orlandó eftir Virginiu Woolf í þýðingu Kristínar Eiríksdóttur á Nýja sviðinu 30. desember. „Skáld- saga Woolf hefur verið nefnd lengsta og fallegasta ástarbréf sögunnar. Í verkinu er ferðast gegnum 400 ára sögu Englands með unglingspilt- inum Orlandó sem nótt eina í Konst- antínópel sofnar og vaknar viku síð- ar sem kona,“ segir Brynhildur og bendir á að verkið fjalli ekki síst um mikilvægi þess að raddir listakvenna fái að heyrast. „Það er okkur sér- stakt ánægjuefni að geta kynnt glæ- nýtt listrænt teymi til leiks. Arn- björg María Danielsen leikstýrir og gerir leikgerðina í samvinnu við þýð- andann, Ingibjörg Jara Sigurðar- dóttir hannar leikmynd og búninga og Herdís Stefánsdóttir semur tón- listina,“ segir Brynhildur sem er full tilhlökkunar að sjá útkomuna. „Arn- björg er með brakandi ferskan leik- hóp, þau Völu Kristínu Eiríksdóttur, Láru Jóhönnu Jónsdóttur og Jörund Ragnarsson auk þess sem við bjóð- um til okkar tveimur nýútskrifuðum leikurum, þeim Árna Þór Lárussyni og Daníel Takefusa, sem báðir lærðu leiklist í London. Fagna 40 ára leikafmæli sínu Fyrsta frumsýning á nýju ári verður Sölumaður deyr eftir Arthur Miller í þýðingu Kristjáns Þórðar Hrafnssonar og leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur á Stóra sviðinu 15. janúar. „Þarna er um að ræða stór- virki Millers sem Kristín ætlar að skoða út frá heimspeki Jean-Pauls Sartres, sem er gríðarlega spenn- andi. Gyða Valtýsdóttir semur tón- listina, Brynja Björnsdóttir hannar leikmyndina og Þórunn María Jóns- dóttir búningana. Það er því mikið kvennafans sem stendur að uppsetn- ingu þessa mjög svo karllæga verks,“ segir Brynhildur og bendir á að meðal nýrra leikara séu Þor- steinn Bachmann, Stefán Jónsson og Rakel Ýr Stefánsdóttir, sem er nýút- skrifuð úr LHÍ. „Í aðalverkum eru Jóhann Sigurðarson og Sigrún Edda Björnsdóttir, sem með þessari upp- færslu fagna 40 ára leikafmæli sínu.“ Tónleikhús fyrir börn Leikritið Taktu lagið Lóa eftir Jim Cartwright í þýðingu Braga Valdimars Skúlasonar verður frum- sýnt á Nýja sviðinu í mars. „Þar heldur Þóra Karítas Árnadóttir um taumana en hún leikstýrir þessum gullmola Cartwrights. Rakel Björk Björnsdóttir fer með titilhlutverkið sem er margslungið og fallegt,“ seg- ir Brynhildur og bendir á að Katla Margrét Þorgeirsdóttir fari með veigamikið hlutverk móður Lóu. „Þetta er í senn harmræn og fyndin saga, en í aðstæðum verksins er ekki pláss fyrir þá næmni, fegurð og kær- leika sem Lóa býr yfir. Þriggja manna hljómsveit verður á sviðinu og því spilað á allan tilfinningaskal- ann.“ Ég hleyp eftir Line Mørkeby í þýðingu Auðar Övu Ólafsdóttur og leikstjórn Baldvins Z birtist á Nýja sviðinu í vor. „Þarna ætlar okkar allra besti Gísli Örn Garðarsson að hlaupa til góðs,“ segir Brynhildur, en tekjur Gísla Arnar af sýningunni renna til samtakanna Nýrrar dög- unar, Bergsins, Ljónshjarta og Dropans. „Þetta er frábært leikrit sem fjallar um mann sem byrjar að hlaupa eftir barnsmissi,“ segir Brynhildur, en ráðgert er að Gísli Örn þurfi að hlaupa 10-12 km á hverri sýningu. „Síðasta frumsýning leikársins er svo upplifunarleikhús Kristjáns Ingimarssonar sem snýr okkur öllum á hvolf í Room 4.1 – Live. Þátttakendur eru leikarar Borgarleikhússins og dansarar Íslenska dansflokksins,“ segir Bryn- hildur, en frumsýnt verður á Stóra sviðinu í mars. Að vanda býður Borgarleikhúsið upp á tvær samstarfssýningar á leik- árinu, en í ár er um tvær barnasýn- ingar að ræða. Annars vegar Stúlk- an sem stöðvaði heiminn í leikstjórn Helgu Arnalds, sett upp í samstarfi við sviðslistahópinn 10 fingur, sem frumsýnd verður á Litla sviðinu 30. október og hins vegar Fuglabjargið eftir Birni Jón Sigurðsson í leik- stjórn Hallveigar Kristínar Eiríks- dóttur, sett upp í samstarfi við sviðs- listahópinn Hin fræga önd, sem frumsýnd er á Litla sviðinu í janúar. „Í Stúlkunni sem stöðvaði heim- inn er á myndrænan, fræðandi og fallegan hátt verið að fjalla um sóun, rusl og hvernig við ætlum að hugsa um heiminn okkar. Þau notast við vídeóvörpun til að segja söguna þar sem hið smæsta verður hið stærsta,“ segir Brynhildur og bendir á að áhorfendum verði boðið að taka þátt í listasmiðju að sýningu lokinni. „Fuglabjargið er áferðarfagurt tónleikhús fyrir börn þar sem hljóð- færaleikarar og söngvarar verksins bregða sér í allra fugla líki,“ segir Brynhildur, en tónlist verksins er í höndum Ingibjargar Ýrar Skarp- héðinsdóttur. „Áhorfendur fá að fylgjast með einu ári á eyjunni Skrúði fyrir mynni Fáskrúðsfjarðar og kynnast fuglalífinu þar.“ Auk þess verða barnasýningarnar Gosi, sem hlaut Grímuna 2020 sem barna- sýning ársins og Jólaflækja einnig sýndar á leikárinu. Ragnar með Skyndileikhús Þrjár gestasýningar verða sýndar í Borgarleikhúsinu í vetur. Fyrst ber þar að nefna Rocky eftir Tue Bier- ing í leikstjórn Vignis Rafns Val- þórssonar sem sýnd verður á Nýja sviðinu í febrúar. „Það er ótrúlega gaman að geta tekið á móti Rocky í uppfærslu Óskabarna ógæfunnar, enda féllum við algjörlega fyrir þessari sýningu sem er bæði ætandi og tætandi ,“ segir Brynhildur og rifjar upp að Sveinn Ólafur Gunn- arsson hafi fengið Grímuna 2020 sem leikari ársins fyrir hlutverk sitt. „Hinar tvær gestasýningarnar eru óperur sem sýndar verða undir hatti Óperudaga í Reykjavík í októ- ber. Þetta eru óperurnar Kok eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttir í leik- stjórn Kolfinnu Nikulásdóttur og Corpo Surreal sem unnin er í sam- starfi við Alþýðuóperuna. „Það er gríðarlega spennandi að geta boðið upp á óperusýningar í Borgarleik- húsinu,“ segir Brynhildur. „Í fyrra hóf göngu sína verkefnið Kvöldstund með listamanni, sem tókst afar vel og verður framhaldið í vetur. Fyrsta kvöldstundin nefnist Fílalag og verður í október þar sem Bergur Ebbi og Snorri Helgason fíla lag í anda samnefnds hlaðvarps þeirra,“ segir Brynhildur og bendir á að seinni hluti sýningarinnar verði nokkurs konar barsvar. „Milda hjarta hefur síðan göngu sína í nóv- ember, en þar mun tónlistarmað- urinn Jónas Sig taka áhorfandann með sér í óvenjulegt ferðalag tals og tóna frá krumpaðri karlmennsku til mennsku hins milda hjarta,“ segir Brynhildur, en leikstjóri verksins er Þorsteinn Bachmann. „ Vera Illuga- dóttir og Hallur Ingólfsson stíga svo á svið með Í ljósi sögunnar í janúar, en um er að ræða fjórar kvöld- stundir í samstarfi við RÚV. Hér í Borgarleikhúsinu verður því í vetur hægt að upplifa alla liti lífsins – en eins og við vitum eru þeir bæði bjartir og dimmir,“ segir Brynhildur og bendir á að sem viðbragð við kóf- inu ætli Borgarleikhúsið að auki að bjóða upp á Skyndileikhús. „Það eru viðburðir sem auglýstir verða með stuttum fyrirvara og aðeins haldnir einu sinni. Þeir eru hugsaðir sem nokkurs konar stækkuð mynd af streyminu okkar, sem mæltist afar vel fyrir í vor. Fyrsti viðburðurinn er 24. september en þá sameina Saga Garðarsdóttir, Ugla Egils- dóttir og Ragnar Kjartansson krafta sína á Stóra sviðinu í óvæntum leik. Loks má nefna að við höldum áfram að bjóða upp á textun sýninga á Stóra sviðinu þar sem áhorfendur geta í gegnum smáforrit fengið text- un á íslensku, ensku og pólsku.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg „Hægt að upplifa alla liti lífsins“  Veisla, Sölumaður deyr, Orlandó og Níu líf meðal sýninga í Borgarleikhúsinu á komandi leikári  „Okkar aðalhlutverk er að halda utan um hug og hjarta landsmanna,“ segir borgarleikhússtjóri Kraftur Brynhildur Guðjónsdóttir borg- arleikhússtjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.