Morgunblaðið - 17.10.2020, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 1 7. O K T Ó B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 245. tölublað 108. árgangur
KANNSKI ER
BÓKIN ÁKVEÐ-
INN GRÁTUR KJARVAL MÁFUR
SÍLAMÁFUR MEÐAL FASTAGESTA 12ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR 45
www.volkswagen.is/id3 · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA#NúGeturÞú
Nýr rafmagnaður ID.3 1st Edition
Stuttur afhendingartími
Einstakt kynningarverð
420 km
drægni
Jóhann Ólafsson
Ágúst Ingi Jónsson
Hafrannsóknastofnun mun að
óbreyttu leggja til að engar loðnuveið-
ar verði á vertíðinni 2020/2021. Ráð-
leggingin er sögð byggja á gildandi
aflareglu, en þetta mun vera þriðja
vertíðin sem loðnuveiðar eru ekki ráð-
lagðar, en stofninn verður metinn að
nýju í leiðangri í janúar og febrúar.
Þeir útgerðarmenn sem Morgun-
blaðið náði tali af í gær voru bjartsýn-
ir á að það endurmat myndi skila ár-
angri. „Fréttir af andláti
loðnustofnsins eru stórlega ýktar,“
segir Gunnþór Ingvason, fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, í
samtali við Morgunblaðið. Benti
Gunnþór á að stofnunin hafi eingöngu
komið úr einum leiðangri og geti ekki
lagt til loðnukvóta út frá honum.
Þá hafi leiðangurinn mælt næst-
hæstu mælingu á ungloðnu frá upp-
hafi mælinga. „Það er því mjög bjart
yfir loðnustofninum,“ segir hann.
„Við höfum enga ástæðu til að ætla
annað en að loðnan sé þarna og það
eigi bara eftir að ná utan um að mæla
hana,“ segir Gunnþór og bætir við að
nú þurfi að bretta upp ermar og
skipuleggja næstu leiðangra.
Hann segir því algjöran óþarfa að
tala um mögulegan tekjumissi vegna
engra loðnuveiða. „Þetta eru auðvitað
ákveðin vonbrigði en hefur gerst oft
áður. Við erum bara jákvæðir.“
Ráðlegging Hafró
ákveðin vonbrigði
Hætta á loðnubresti þriðja árið í röð Endurmat í janúar
MLoðnubrestur þriðja árið … »10
„Það er mjög
mikilvægt að
byrja þessa vinnu
frá grunni og að
geðrækt verði
eins sjálfsögð og
að læra að lesa,
reikna og skrifa,“
segir Hildur
Guðný Ásgeirs-
dóttir, verkefna-
stjóri sjálfsvígs-
varna hjá embætti landlæknis, en
starfshópur skilaði í byrjun árs til-
lögum til heilbrigðisráðherra um
geðrækt barna. Þar er lagt til að hún
hefjist strax í leikskóla og haldi
áfram upp framhaldsskóla, og geri
börnum þannig kleift að styðja við
eigið geðheilbrigði. „Ráðherra er bú-
inn að samþykkja áætlunina þannig
að vonandi verða aðgerðir innleiddar
sem fyrst, jafnvel strax á næsta ári,“
segir Hildur Guðný. Nánar er rætt
við hana í Sunnudagsblaðinu.
Læri ung geðrækt
Hildur Guðný
Ásgeirsdóttir
Sóttvarnaaðgerðir verða hertar bæði á landsbyggðinni og á
höfuðborgarsvæðinu frá og með næsta þriðjudegi, en tveggja
og menningarmálaráðherra, nýjar aðgerðir í tíu liðum til
stuðnings menningu og listum. »4, 26 og 42
metra reglan mun nú ná til landsins alls. Þá kynntu Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir, mennta-
Morgunblaðið/Eggert
14.000
milljónum kr. varið
í tekjufallsstyrki
2.823
einstaklingar
eru í sóttkví
1.206
manns eru með
smit og í einangrun
26
eru á sjúkrahúsi,
þar af 4 á gjörgæslu
1
sjúklingur lést í
gær úr COVID-19
KÓRÓNUVEIRAN
Boða nýjar aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins