Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020 Karitas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is Forsætisnefnd Alþingis hefur lagt fram frumvarp til breytingar á þing- sköpum. Með frumvarpinu er lagt til að kynjahlutföll í forsætisnefnd verði fest í lög. eða eins og segir í frum- varpinu: „Þess skal gætt að hlutfall kvenna og karla í forsætisnefnd sé eins jafnt og niðurstöður alþingis- kosninga og kynjahlutföll innan þing- flokka bjóða.“ Skemmst er frá því að segja að af sjö forsetum Alþingis er Bryndís Haraldsdóttir eina konan. „Við erum í þessum verulega vanda að kynjahlutföllin gengu til baka al- mennt um tíu prósentustig síðast. Það sem bætist svo við er að kynja- hlutföllin eru mjög skökk í tveimur þingflokkum […] Það endurspeglast í þessu frumvarpi og greinargerðinni að menn horfast náttúrlega í augu við þær takmarkanir sem útkoman í al- þingiskosningum er og hvernig kynjahlutföll innan einstakra þing- flokka geta verið, það setur þessu miklar skorður,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, í samtali við Morgunblaðið. Hann segist ekki vita hvort til standi að gera frekari breytingar á forsætisnefnd á næst- unni en nokkrar breytingar hafa ver- ið gerðar á yfirstandandi kjörtíma- bili. „Forsætisnefnd, það er ekkert sér- staklega gaman að sýna hana svona,“ segir Steingrímur. Í greinargerð frumvarpsins segir: „Ljóst er að Alþingi er bundið af niðurstöðum þingkosninga og hlut- föllum kvenna og karla innan þing- flokka við skiptingu nefndasæta en það ætti þó ekki að koma í veg fyrir að festa í þingsköp tilmæli um að hugað verði að jafnrétti kvenna og karla við nefndaskipanir eins og unnt er.“ Frumvarpið er eins og áður segir lagt fram af forsætisnefnd og áheyrn- arfulltrúar í nefndinni styðja flutning málsins. Aðdragandi þess er heildar- endurskoðun laga nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, sem hófst árið 2019. Í tengslum við endurskoðunina óskaði forsætis- ráðherra eftir að vilji þingsins til breytinga á þingsköpum til samræm- is jafnréttislögum yrði kannaður. Hingað til hefur verið litið svo á að jafnréttislög eigi ekki við þegar fulltrúar í nefndir, ráð og stjórnir eru kosnir á Alþingi. Kynjahlutfall lögfest  Forsætisnefnd leggur til breytingar á þingsköpum  Myndu ekki uppfylla skilyrði eins og nefndin er skipuð nú Morgunblaðið/Eggert Alþingi Steingrímur segir ekki gaman að sjá forsætisnefnd skipaða skökkum kynjahlutföllum. Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is Honeywell gæða lofthreinsitæki Hreint loft - betri heilsa Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum. Honeywell loft- hreinsitæki eru góð viðmyglu- gróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum. Verð kr. 59.100 Verð kr. 37.560 Verð kr. 16.890 fasteignaverdmat.is Heilbrigðisráðherra samþykkti í gær í meginatriðum þær breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem sótt- varnalæknir lagði til í minnisblaði í sínu, en þær fela í sér að frá og með næsta þriðjudegi verður tveggja metra reglan í gildi um allt land, og um leið skylt að nota andlitsgrímur þar sem ekki er unnt að tryggja tveggja metra nándarmörk. Áfram verða hertari aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu en á lands- byggðinni, en m.a. verður allt íþrótta- og tómstundastarf barna á leik- og grunnskólaaldri, sem krefst snertingar, óheimilt. Greint var frá því í gær að kona á níræðisaldri hefði látist á Landspít- ala vegna kórónuveirunnar á und- anförnum sólarhring. Þetta er ell- efta andlátið hér á landi í farald- rinum, og hið fyrsta frá í vor. Tveggja metra reglan um allt  Sjúklingur á níræðisaldri látinn Kórónu- veirusmit H ei m ild : co vi d. is Nýgengi innanlands 15. október: 289,1 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa 26 eru á sjúkrahúsi, þar af 4 á gjörgæslu 2.823 einstaklingar eru í sóttkví 1.206 eru með virkt smit og í einangrun Nýgengi, landamæri: 15,5 Einn lést í gær 67 ný inn an lands smit greindust 15. október 11 einstaklingar eru látnir Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráð- herra, kynntu í Hörpu ásamt fulltrú- um Bandalags háskólamanna og Bandalags íslenskra listamanna í gær tíu stuðningsaðgerðir stjórn- valda fyrir listir og menningu á tím- um kórónuveirunnar. Aðgerðirnar eru fjölþættar og eiga að miða að því að bæta stöðu starfandi listamanna og menningar- tengdra fyrirtækja, en þær fela m.a. í sér að sjálfstætt starfandi lista- menn og menningartengd fyrirtæki geti sótt um rekstrarstyrki til að mæta tekjusamdrætti vegna kórón- uveirufaraldursins. Ráðgert er að fjármunir sem varið verður til al- menns tekjufallsstuðnings nemi rúmum 14 milljörðum kr. Þá verður tímabundin hækkun starfslauna og styrkja fyrir árið 2021 og tímamörk verkefnastyrkja til menningarmála framlengd, og gert er ráð fyrir stofnun Sviðslistamið- stöðvar og Tónlistarmiðstöðvar, og 25 milljóna króna fjárveiting lögð í Iceland Airwaves. Lilja sagði í tilkynningunni að ís- lensk menning væri sterk og hefði staðið af sér marga storma. „En menningarlífið hefur orðið fyrir miklu höggi vegna heimsfaraldurs- ins og við teljum brýnt að bregðast við því með þessum aðgerðum sem eru framsýnar og metnaðarfullar, en jafnframt raunsæjar. Ég ber vænt- ingar til þess að þær muni liðsinna sem flestum og trúi því að framtíðin sé björt í íslenskri menningu og list- um,“ sagði Lilja meðal annars, en hún þakkaði einnig BHM, BÍL, ÚT- ÓN og fleirum fyrir frábæra sam- vinnu við undirbúning tillagnanna. Morgunblaðið/Eggert Stuðningur Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti tillögurnar í Hörpu í gær ásamt Lilju Alfreðsdóttur. Rúmum 14 milljörðum varið í stuðninginn  Kynntu nýjar aðgerðir til stuðnings listum og menningu Ísland náði í gær fjórða sætinu í Bo- cuse d́Or-matreiðslukeppninni sem fram fór í Tallinn í Eistlandi. Jafn- framt hlaut Ísland verðlaun fyrir besta fiskréttinn. Sigurður Laufdal keppti fyrir Ís- lands hönd en árangurinn tryggir þáttökurétt í lokakeppni Bocuse d́Or sem fram fer í Lyon í Frakk- landi á næsta ári. Sigurður hafði 5 ½ klukkustund til þess að matreiða forrétt og kjötrétt fyrir 16 dómara. Þjálfari Sigurðar er Þráinn Freyr Vigfússon, Bocuse d́Or-keppandi 2011, og aðstoðarmaður er Gabríel Kristinn Bjarnason. thora@mbl.is Bocuse Þráinn Freyr þjálfari, Gabríel Kristinn aðstoðarmaður, Sigurður Laufdal, keppandi Íslands, og Sturla Birgisson dómari kampakátir í gær. Ísland í fjórða sæti í Bocuse d’Or-keppninniTryggingastofnun segir það afarvillandi að halda því á lofti að mán- aðarlegar greiðslur TR séu rangar eða að útreikningar séu rangir. Í fréttatilkynningu sem Sigrún Jóns- dóttir, framkvæmdastýra Trygg- ingastofnunar, sendi frá sér í gær kom fram að viðskiptavinir TR fái rétt greitt í mánaðarlegum greiðslum sínum á grundvelli fyr- irliggjandi tekjuáætlunar hvers og eins lífeyrisþega. Tilefni tilkynning- arinnar er fjölmiðlaumfjöllun um nýbirta skýrslu Ríkisendurskoð- unar um Tryggingastofnun og stöðu almannatrygginga, en þar segir meðal annars að við árlegt uppgjör fyrir liðið almanaksár komi í ljós mismunur til hækkunar eða lækkunar vegna breyttra tekna á liðnu ári, en sá mismunur sé yf- irleitt gerður upp í maí-júní, og þá þurfi viðskiptavinir annaðhvort að greiða til baka eða fá greidda inn- eign. Þá þyki stofnuninni það mið- ur að umræða um greiðslur stofn- unarinnar hafi þróast með þessum hætti. „Markmið okkar sem störf- um hjá TR er nú sem fyrr að þjón- usta viðskiptavini okkar eftir bestu getu með hag þeirra og velferð að leiðarljósi,“ segir m.a. í tilkynning- unni. sgs@mbl.is Viðskiptavinir TR fá rétt greitt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.