Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is AF MYNDLIST Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Hún er langfrægasti kvenkynslistmálari ítalska barokks-ins á 17. öld. Margir sem þekkja sögu þess tíma hafa heyrt um listakonuna sem ungri var nauðgað af málara sem var að segja henni til og þurfti af miklum viljastyrk að staðfesta ásakanirnar meðan hún var pyntuð. Og margir þekkja sögur af því að síðan hafi hún iðulega mál- að áhrifarík verk þar sem hún fjallar um áreitni og ofbeldi sem konur voru beittar, og verk sem sýndu kon- ur taka af krafti á móti og jafnvel hefna sín á körlum. Færi hafa hins vegar þekkt til eða séð mörg þessara helstu verka listakonunnar, svo fá sem þau eru í raun og hafa dreifst milli safna og eru mörg í einkaeigu. En nú er verið að bæta úr því, sem betur fer, bæði með útgáfu nokkurra bóka sem fjalla um líf hennar og verk og svo var opnuð á dögunum í National Gallery í London sýning sem lengi hefur verið beðið eftir, með nær helmingi þeirra 57 mál- verka sem staðfest er að séu eftir hana, og gagnrýnendur hafa ausið lofi og stjörnum. „Artemisia“ hafa stjórnendur safnsins kosið að kalla sýninguna, og við hæfi að nota bara skírnar- eða gælunafn eins og tíðk- ast þegar margir meistarar listasög- unnar eiga í hlut – Leonardo, Rafael, Michelangelo, Caravaggio … Arte- misia Gentileschi, segja rýnar, getur keik staðið við hlið þeirra, svo áhrifarík séu verk hennar. Nauðgað af kennaranum Artemisia Gentileschi fæddist í Róm 1593 og var tólf ára þegar móð- ir hennar lést. Eftir það var hún alin upp hjá föður sínum, Orazio, sem var þekktur listmálari og enn má sjá fjölmörg verk eftir hann í söfnum. Í frægri samantekt um ítalska lista- menn frá miðri sautjándu öld er Orazio sagður líkari skepnu en manni og tal hans æði kaldhæðnis- legt. Engu að síður er ljóst að hann sagði dóttur sinni vel til í myndlist- inni auk þess sem hún varð fyrir áhrifum af helstu staumum þess tíma, ekki síst nýjungunum sem Caravaggio kom fram með áður en hann lést 1610. Orazio og Cara- vaggio voru miklir mátar og er talið fullvíst að Artemisia hafi hitt hann. Þegar hún var aðeins 17 ára, árið 1610, málaði Artemisia fyrstu útgáfu sína af sögunni um hina ungu Sús- önnu sem öldungarnir njósna um og reyna að fá til lags við sig. Margir karlar höfðu málað þessa frásögn, þar á meðal Tintotetto og Rem- brandt, en aldrei höfðu þeir lýst með viðlíka hætti viðbjóðnum sem gömlu perrarnir vekja hjá ungu stúlkunni. Blóðrauður hefndarþorsti málarans AFP Blóðugt Starfsmaður National Gallery í London stillti sér upp milli beggja útgáfna Gentileschi af „Júdit afhöfðar Hólófernes“. Verkin máluð 1611 og 1620 og eru þau í eigu safnanna Capodimonte í Napólí og Uffizi í Flórens. Þótt ýmsu sé tæknilega ábótavant í verki málarans unga þá er tilfinn- ingaþunginn svo mikill að verkið vekur aðdáun – ævisöguritarar velta fyrir sér hvort persónuleg reynsla búi ekki að baki þeim þunga en stúlkan á myndini ber enn fremur svipmót málarans. Artemisia átti eftir að snúa aftur og aftur að þessu þema í málverkum; til eru sex mál- verk eftir hana sem sýna Súsönnu og öldungana og byggjast öll á því fyrsta sem hér má sjá. Orazio sá vel hvaða hæfileikum dóttir hans bjó yfir og þegar hún var 18 ára stærði hann sig við greifynj- una af Toskana af því að Artemisia væri þegar fær um að skapa verk sem margir nafntoguðustu málarar þess tíma myndu aldrei ráða við. Það sama ár fékk Orazio mál- arann kunningja sinn, Agostino Tassi, til að veita dótturinni tilsögn í fjarvídd en Tassi nauðgaði henni. Þegar Tassi neitaði í framhaldinu að ganga að eiga Artimisiu, eins og fað- ir hennar vildi, þá kærði Orazio hann. Í framhaldinu þurfti Arte- misia að gangast undir pyntingar af hálfu lögreglunnar meðan hún var yfirheyrð, til að sanna að hún segði satt um nauðgunina. Skýrsla um yfirheyrsluna er á sýningunni í Nat- ional Gallery, sýnd opinberlega í fyrsta skipti. Þar er lýst að hún hrópaði meðan fingur hennar voru klemmdir: „Það er satt, það er satt, allt sem ég sagði er satt!“ Refsing Tassis var ekki hörð – honum var bannað að halda til í Róm en dómnum var aldrei framfylgt. Að þeirra tíma sið var Artemisia hins vegar ekki spennandi kostur á hjónabandsmarkaði, ekki lengur hrein mey, en Orazio fann henni samt eiginmann og þau settust að í Flórens þar sem hún tók að koma undir sig fótunum sem listmálari. Sem var erfitt, auk þess sem hún eignaðist á skömmum tíma fimm börn. Aðeins eitt þeirra komst á legg. En hún átti fjögurra áratuga feril þar sem hún varð sífellt þekkt- ari og virtari; hún átti eftir að starfa líka í Napolí, Feneyjum og Róm, og um tíma sem hirðmálari í London. Atremisia lést árið 1656, 63 ára. Listamaður #MeToo-tíma Eitt af því sem gagrýnendurnir sem hlaða sýninguna í National Gall- ery lofi eru sammála um er að Art- emisia sé fullkominn listamaður nú á tímum#MeToo-vakningarinnar. Raunsæismálari sem hafði hálf- gleymst, en firnafínn listamaður sem auðnaðist að gæða verk sín furðusterkum tilfinningum, verk sem næstum öll fjalla um reynslu- heim kvenna. Lesendur geta séð á netinu skrá yfir öll málverk hennar sem staðfest eru og þau sem ekki fjalla um eða sýna fyrst og fremst konur og líf þeirra má telja á fingr- um annarrar handar. Vissulega var í tísku á sautjándu öld að mála táknræn og söguleg verk, oft byggð á sögum úr Biblí- unni, en Artemisia hefur ítrekað val- ið sér viðfangsefni þar sem reiði hennar út í karlmenn og karlveldið fær útrás með táknrænum hætti. Og í mörgum tilvikum er um sjálfs- myndir að ræða. Sörguðu af honum hausinn Auk þess að mála endurtekið Sús- önnu og öldungana tvo sem læðast að henni með ósæmilegt tilboð, þá eru rómuð málverkin tvö sem sýna gyðingakonuna ungu Júdit sarga höfuðið af assýríska hershöfðingj- anum Hólófernesi, með dyggri að- stoð þjónustustúlkunnar sem hjálp- ar til við að halda tröllvöxnum hermanninum niðri meðan blóðið gusast og höfuðið er skorið frá búkn- um. Bæði þessi frægu málverk hafa verið lánuð á sýninguna. Þau eru formrænt byggð á öðru enn þekkt- ara, eftir Caravaggio, en hér er til- finningaþunginn meiri. Fræðimenn sem fjalla um verkin tala allir um styrkinn og kraumandi reiðina sem er að baki verknaðinum. Að auki eru til fjögur málverk eftir Artimisiu sem sýna Júdit og þjónustustúlkuna með blóðugt höfuðið af Hólófernesi. eins og staðfestingu hefndarinnar. En á sýningunni í London birtast fleiri hliðar á þessum flinka málara og beinast sjónir nú á tímum sjálf- unnar til að mynda að endurteknum sjálfsmyndum – myndefni sem var þá óþekkt að konur tækju sér fyrir hendur. Ein þeirra sýnir Artemisiu mála á beran striga og er kölluð táknmynd fyrir málverkið; verk mál- að af geislandi sjálfsöryggi og er í eigu Bretadrottningar. Það er synd og skömm að svo merkileg sýning sé sett upp nú á tímum veirunnar sem kemur í veg fyrir ferðalög. Opnunin átti fyrst að vera í vor en var frestað – ekki var hægt að fresta sýningunni lengur vegna lána á verkum. Fyrir vikið missum við mörg af henni því fólk hefði eflaust þyrpst víða að til að sjá og upplifa þau nær þrjátíu málverk eftir þessa mögnuðu listakonu sem er loksins verið að enduruppgötva og tala með svo sterkum rómi inn í þá tíma sem við lifum. Royal Collection, Bretlandi Söguleg Sjálfsmynd Artemisiu Gentileschi frá 1638, „Sjálfsmynd sem alle- góría málverksins“. Ein merkasta sjálfsmynd myndlistarkonu. Schloss Weißenstein, Þýskalandi Á gægjum „Súsanna og öldungarnir“. Verkið málaði Gentileschi einungis 17 ára gömul og má telja líklegt að það lýsi persónulegri reynslu af áreitni. » Fræðimenn semfjalla um verkin tala allir um styrkinn og kraumandi reiðina …

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.