Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020 HVER restaurant á Hótel Örk er fyrsta flokks veitingastaður, fullkominn fyrir notalegar gæðastundir með vinum, fjölskyldu eða vinnufélögum. GIRNILEGUR OG SPENNANDI MATSEÐILL Pantaðu borð í síma 483 4700 | www.hverrestaurant.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég er með fuglana í geymlu. Ætli ég verði ekki að taka þá aft- ur heim,“ segir Birgir Pétursson, bílstjóri og fyrrverandi sjómaður í Grindavík. Grindavíkurbær hefur hafnað boði hans um að kaupa safn af uppstoppuðum fuglum. Birgir hefur safnað fuglum í 40 ár og segir að það hafi orð- ið að áráttu hjá sér. „Ég kom mér í samband við menn til að fá fugla og skaut eitthvað sjálfur. Svo komst ég um árið í kynni við Sigurgeir Stefánsson fuglasafnara í Mývatnssveit, heimsótti hann og skoðaði safnið. Það var áður en byggt var yfir fuglasafn hans. Hann lét mig fá svolítið af fuglum sem höfðu komið í net í Mývatni. Svo frétti ég líka stundum af fugl- um í frystikistunni hjá mönnum. Þetta er heilmikið vesen, maður grípur ekki svona lagað upp af götunni,“ segir Birgir. Hann hefur lagt í kostnað við að kaupa fugla og láta stoppa þá upp. Hann reiknar með að þeir séu hátt í 90 í heildina. Fugl úr Indlandshafi „Það eru aldrei of margir fugl- ar. Ég var með þá inni í stofu hjá mér. Svo fór ég í minni íbúð og hafði ekkert með þetta að gera,“ segir Birgir. Hann telur að merkilegasti fuglinn í safninu sé brúnþerna, fugl sem lifir í Suður-Indlands- hafi. „Þeir trúa því ekki allir að hann hafi verið veiddur á Íslandi en ég þekki bara engan á Ind- landi. Fuglinn var veiddur í Suð- urey í Vestmannaeyjum og veiði- mennirnir héldu að þetta væri skrofa. Það var ekki fyrr en upp- stopparinn minn fann út að þetta væri þessi fágæti fugl, brúnþerna, að þeir föttuðu það úti í Eyjum að þeir höfðu gert mistök með því að láta mig fá fuglinn.“ Birgir bauð Grindavíkurbæ að kaupa fuglasafnið. Frístunda- og menningarnefnd bæjarins taldi ekki réttlætanlegt að fjárfesta í safninu í ljósi stöðunnar í sam- félaginu og bæjarráð staðfesti þá ákvörðun. Gæti nýst í Kvikunni Eggert Sólberg Jónsson, sviðs- stjóri frístunda- og menningar- sviðs, segir að safnið sé áhugavert, bærinn sé ekkert að draga úr því. Þar séu fuglar af svæðinu en einnig einhverjir flækingar. Hins vegar hafi ráðið ekki séð sér fært að fjárfesta í safninu vegna þess hvernig árar í rekstri sveit- arfélaga nú um stundir. Ekki hafi verið komið fast verð á safn- ið en hugmyndir um að það myndi kosta um átta milljónir króna. Eggert segir að hluti af safn- inu hefði passað inn í Kvikuna, menningarhús Grindavíkur, og nýst í sýningu um lífið í sjáv- arþorpinu og saltfiskvinnslu á 20. öldinni. Aðrir hlutar hefðu getað farið í skólann eða á bókasafnið og haft ákveðið fræðslugildi. Ekki gripið upp af götunni  Birgir Pétursson í Grindavík hefur safnað fuglum í fjörutíu ár og vildi selja  Bærinn treystir sér ekki til að kaupa safnið vegna stöðunnar í samfélaginu Ljósmynd/aðsend Fuglar Fuglar sem sjást mikið í Grindavík og einstaka flækingar eru í stof- unni hjá Birgi og geymslum. Hann þarf nú að taka safnið aftur heim. Birgir Pétursson Vel hefur gengið að reka menningarhúsið Kvikuna í Grindavík þrátt fyrir kór- ónuveirufaraldur og jarð- skjálfta. Fáir ferðamenn komu í safnið í sumar af þessum ástæðum. Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs bæjarins, segir að á móti hafi Grindvík- ingar enduruppgötvað menn- ingarhúsið sitt. Allt síðasta ár komu 3.000 gestir í Kvikuna en frá 1. febr- úar til 1. ágúst í ár komu 3.200 gestir. Spurður um skýringar segir Eggert að unn- ið hafi verið markvisst að við- burðum sem sniðnir eru að samfélaginu í Grindavík, með- al annars um jarðhræringar, og einnig haldin námskeið og smiðjur. Íbúar séu duglegir að koma með hugmyndir og miðli þar þekkingu sinni. Endurupp- götva Kvikuna MENNINGARHÚS GRINDVÍKINGA Allar deildir Oddfellow-reglunnar í Hafnarfirði gáfu nýverið mynd- arlega styrki til líknarmála. Sorg- armiðstöð, Píeta-samtökin og Ein- stök börn fengu 900 þúsund krónur hvert félag. Því nema styrkirnir alls 2,7 milljónum króna. „Á þessum fordæmalausu tímum eru erfiðleikar hjá mörgu fólki. Fjárhagsleg og andleg áföll dynja yfir sem aldrei fyrr. Þá er gott að geta leitað til fagaðila sem t.d. er að finna hjá félögum þeim sem þessa styrki hljóta,“ segir m.a. í tilkynn- ingu frá Oddfellow í Hafnarfirði. Sorgarmiðstöð er samstarfsverk- efni fjögurra grasrótarfélaga á sviði sorgarúrvinnslu, sem eru Ný dögun, stuðningur í sorg, Birta landssamtök, Ljónshjarta og Gleym mér ei styrktarfélag. Píeta- samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða. Einstök börn er stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni. Oddfellowar í Hafnarfirði gáfu 2,7 milljónir króna Styrkir Fulltrúar líknarfélaganna og Oddfellow-reglunnar í Hafnarfirði. Allt um sjávarútveg Safn Það kennir margra grasa í fuglasafni Birgis Péturssonar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.