Morgunblaðið - 17.10.2020, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020
HVER restaurant á Hótel Örk
er fyrsta flokks veitingastaður,
fullkominn fyrir notalegar
gæðastundir með vinum,
fjölskyldu eða vinnufélögum.
GIRNILEGUR
OG SPENNANDI
MATSEÐILL
Pantaðu borð í síma 483 4700 | www.hverrestaurant.is
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég er með fuglana í geymlu.
Ætli ég verði ekki að taka þá aft-
ur heim,“ segir Birgir Pétursson,
bílstjóri og fyrrverandi sjómaður í
Grindavík.
Grindavíkurbær
hefur hafnað
boði hans um að
kaupa safn af
uppstoppuðum
fuglum.
Birgir hefur
safnað fuglum í
40 ár og segir
að það hafi orð-
ið að áráttu hjá
sér. „Ég kom
mér í samband við menn til að fá
fugla og skaut eitthvað sjálfur.
Svo komst ég um árið í kynni við
Sigurgeir Stefánsson fuglasafnara
í Mývatnssveit, heimsótti hann og
skoðaði safnið. Það var áður en
byggt var yfir fuglasafn hans.
Hann lét mig fá svolítið af fuglum
sem höfðu komið í net í Mývatni.
Svo frétti ég líka stundum af fugl-
um í frystikistunni hjá mönnum.
Þetta er heilmikið vesen, maður
grípur ekki svona lagað upp af
götunni,“ segir Birgir.
Hann hefur lagt í kostnað við
að kaupa fugla og láta stoppa þá
upp. Hann reiknar með að þeir
séu hátt í 90 í heildina.
Fugl úr Indlandshafi
„Það eru aldrei of margir fugl-
ar. Ég var með þá inni í stofu hjá
mér. Svo fór ég í minni íbúð og
hafði ekkert með þetta að gera,“
segir Birgir.
Hann telur að merkilegasti
fuglinn í safninu sé brúnþerna,
fugl sem lifir í Suður-Indlands-
hafi. „Þeir trúa því ekki allir að
hann hafi verið veiddur á Íslandi
en ég þekki bara engan á Ind-
landi. Fuglinn var veiddur í Suð-
urey í Vestmannaeyjum og veiði-
mennirnir héldu að þetta væri
skrofa. Það var ekki fyrr en upp-
stopparinn minn fann út að þetta
væri þessi fágæti fugl, brúnþerna,
að þeir föttuðu það úti í Eyjum að
þeir höfðu gert mistök með því að
láta mig fá fuglinn.“
Birgir bauð Grindavíkurbæ að
kaupa fuglasafnið. Frístunda- og
menningarnefnd bæjarins taldi
ekki réttlætanlegt að fjárfesta í
safninu í ljósi stöðunnar í sam-
félaginu og bæjarráð staðfesti þá
ákvörðun.
Gæti nýst í Kvikunni
Eggert Sólberg Jónsson, sviðs-
stjóri frístunda- og menningar-
sviðs, segir að safnið sé áhugavert,
bærinn sé ekkert að draga úr því.
Þar séu fuglar af svæðinu en
einnig einhverjir flækingar. Hins
vegar hafi ráðið ekki séð sér
fært að fjárfesta í safninu vegna
þess hvernig árar í rekstri sveit-
arfélaga nú um stundir. Ekki
hafi verið komið fast verð á safn-
ið en hugmyndir um að það
myndi kosta um átta milljónir
króna.
Eggert segir að hluti af safn-
inu hefði passað inn í Kvikuna,
menningarhús Grindavíkur, og
nýst í sýningu um lífið í sjáv-
arþorpinu og saltfiskvinnslu á 20.
öldinni. Aðrir hlutar hefðu getað
farið í skólann eða á bókasafnið
og haft ákveðið fræðslugildi.
Ekki gripið upp af götunni
Birgir Pétursson í Grindavík hefur safnað fuglum í fjörutíu ár og vildi selja
Bærinn treystir sér ekki til að kaupa safnið vegna stöðunnar í samfélaginu
Ljósmynd/aðsend
Fuglar Fuglar sem sjást mikið í Grindavík og einstaka flækingar eru í stof-
unni hjá Birgi og geymslum. Hann þarf nú að taka safnið aftur heim.
Birgir
Pétursson
Vel hefur gengið að reka
menningarhúsið Kvikuna í
Grindavík þrátt fyrir kór-
ónuveirufaraldur og jarð-
skjálfta. Fáir ferðamenn komu
í safnið í sumar af þessum
ástæðum. Eggert Sólberg
Jónsson, sviðsstjóri frístunda-
og menningarsviðs bæjarins,
segir að á móti hafi Grindvík-
ingar enduruppgötvað menn-
ingarhúsið sitt.
Allt síðasta ár komu 3.000
gestir í Kvikuna en frá 1. febr-
úar til 1. ágúst í ár komu
3.200 gestir. Spurður um
skýringar segir Eggert að unn-
ið hafi verið markvisst að við-
burðum sem sniðnir eru að
samfélaginu í Grindavík, með-
al annars um jarðhræringar,
og einnig haldin námskeið og
smiðjur. Íbúar séu duglegir að
koma með hugmyndir og miðli
þar þekkingu sinni.
Endurupp-
götva Kvikuna
MENNINGARHÚS
GRINDVÍKINGA
Allar deildir Oddfellow-reglunnar í
Hafnarfirði gáfu nýverið mynd-
arlega styrki til líknarmála. Sorg-
armiðstöð, Píeta-samtökin og Ein-
stök börn fengu 900 þúsund krónur
hvert félag. Því nema styrkirnir
alls 2,7 milljónum króna.
„Á þessum fordæmalausu tímum
eru erfiðleikar hjá mörgu fólki.
Fjárhagsleg og andleg áföll dynja
yfir sem aldrei fyrr. Þá er gott að
geta leitað til fagaðila sem t.d. er að
finna hjá félögum þeim sem þessa
styrki hljóta,“ segir m.a. í tilkynn-
ingu frá Oddfellow í Hafnarfirði.
Sorgarmiðstöð er samstarfsverk-
efni fjögurra grasrótarfélaga á
sviði sorgarúrvinnslu, sem eru Ný
dögun, stuðningur í sorg, Birta
landssamtök, Ljónshjarta og Gleym
mér ei styrktarfélag. Píeta-
samtökin sinna forvarnarstarfi
gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða.
Einstök börn er stuðningsfélag
barna og ungmenna með sjaldgæfa
sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni.
Oddfellowar í Hafnarfirði
gáfu 2,7 milljónir króna
Styrkir Fulltrúar líknarfélaganna og Oddfellow-reglunnar í Hafnarfirði.
Allt um
sjávarútveg
Safn Það kennir margra grasa í
fuglasafni Birgis Péturssonar.