Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020 Sláum nýjan tón í Hörpu Við óskum bæði eftir áhugasömum rekstraraðilum og hugmyndum einstaklinga að skemmtilegum nýjungum á neðri hæðum í Hörpu Nánar á harpa.is/nyr-tonn . 87,4 m2 sumarhús sem staðsett er í frístundabyggð úr landi Urriðaár við Brókarvatn, rétt vestan við Borgarnes. Sumarhúsið stendur á 2.508 m2 leigulóð. Um er að ræða vandað timburhús á 2.508 fm leigulóð. Húsið er fullklárað að utan og tilbúið til innréttinga. Húsið er klætt með bandsöguðum við og stendur á steyptum súlum. Þak er klætt með sama hætti og gefur það húsinu sérstakan svip. Sólpallur er við húsið sem er vel staðsett á gróðursælli lóð við klapparholt. Á efri hæð hússins er gott rými sem nýta má hvort sem er undir stofu, herbergi eða svefnloft. Hér er um fallega eign að ræða sem býður upp á mikla möguleika. Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali. Sími 497-0040 eða 865-0350 thorarinn@fastnes.is Nes fasteignasala, Borgarbraut 57, 310 Borgarnes KLETTASTÍGUR 9 311 BORGARNES Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Þriðja árið í röð er útlit fyrir loðnu- brest á næsta ári. Að óbreyttu leggur Hafrannsóknastofnun til að loðnuveiðar verði ekki leyfðar í vet- ur, en stofninn verður metinn að nýju í leiðangri í janúar og febrúar. Útlitið er hins vegar betra hvað varðar loðnuveiðar veturinn 2022, en vísitala ungloðnu í leiðangri í síðasta mánuði var sú hæsta síðan 1995. Samkvæmt bergmálsmælingunni á loðnustofninum nú í haust er hrygningarstofn loðnu metinn 344 þúsund tonn. Ráðgjöf um aflamark byggist á því að 95% líkur séu á að hrygningarstofninn í mars verði yf- ir 150 þúsund tonnum að teknu til- liti til afráns. Samkvæmt fram- reikningum munu markmið aflareglu ekki nást, jafnvel þótt engar veiðar verði stundaðar á ver- tíðinni 2020/2021, segir í ráðgjaf- arskýrslu Hafrannsóknastofnunar. Óvissa í eldri mælingu Í fyrrahaust var gefin út ráðgjöf um upphafsaflamark upp á 170 þús- und tonn í vetur, sem nú hefur ver- ið fallið frá. Í frétt frá Hafrann- sóknastofnun segir að sú ráðgjöf hafi byggt á ungloðnumælingum haustið 2019. „Þótt sú mæling hafi verið nægjanlega há til að gefa afla- mark var óvissan á þeirri mælingu mikil,“ segir í fréttinni. Spurður um nánari skýringar og hvað hafi gerst með þennan árgang loðnunnar á einu ári ítrekar Guð- mundur J. Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarlífríkis Hafrannsókna- stofnunar, að mikil óvissa hafi verið í mælingunum. Hæstu gildi í þeim mælingum hafi sýnt mikinn þétt- leika loðnu á tiltölulega litlu svæði, sem hafi vegið mikið í vísitölunni. Það skapi hins vegar mikla óvissu sem ekki sé tekið tillit þegar upp- hafsaflamark sé ákveðið miðað við magn ungloðnu. Þegar óvissan sé mikil geti brugðið til beggja vona. Minni yfirferð á jaðarsvæðum Guðmundur segir jafnframt að mögulega sé eitthvert vanmat í mælingunum nú þar sem meiri ís hafi verið á útbreiðslusvæðinu held- ur en undanfarin ár. Þannig hafi eitthvað verið af loðnu í ísröndinni norður með Grænlandi. Um þetta segir í frétt Hafrann- sóknastofnunar: „Niðurstöður leið- angursins byggja á umfangsmikilli yfirferð en tafir vegna veðurs ollu minni yfirferð á jaðarsvæðum. Haf- ís á norðanverðu rannsóknarsvæð- inu hindraði að hluta áætlaða yf- irferð þar, en í sumum tilfellum var loðnu að finna í námunda við haf- ísinn. Því gæti verið um að ræða vanmat á magni kynþroska stofn- hlutans, en ekki er unnt að meta umfang þess.“ Meðalþyngd ungloðnu minni Af ungloðnu mældust um 146 milljarðar eða 734 þúsund tonn af ókynþroska loðnu en samkvæmt aflareglu þarf yfir 50 milljarða til að mælt verði með upphafs- aflamarki fiskveiðiársins 2021/2022. Gögn um niðurstöður ung- loðnumælinganna verða lögð fyrir Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) sem mun veita ráð um upphafs- aflamark vertíðarinnar 2021/2022 þann 30. nóvember. Í fyrra mældust tæplega 83 millj- arðar eða 608 þúsund tonn af ókyn- þroska loðnu. Á þeirri mælingu var upphafsaflamark um 170 þúsund tonn byggt, en nú hefur verið fallið frá því. Meðalþyngd ungloðnu var töluvert minni í mælingunum núna heldur en í fyrrahaust og nær því sem var í rannsóknum á stóru ár- göngunum, sem gáfu mikla veiði á síðasta áratug síðustu aldar. Loðna fannst víða Bergmálsmælingar á stærð loðnustofnsins fóru fram á rannsóknaskipinu Árna Friðriks- syni og norska uppsjávarskipinu Erosi dagana 7. september til 5. október. Rannsóknarsvæðið náði frá landgrunninu við Austur- Grænland frá um 73°20’N og suð- vestur með landgrunnskanti Græn- lands suður fyrir 64°N, um Græn- landssund, Íslandshaf, hafsvæðis vestan Jan Mayen og norðurmið. Loðna fannst víða á rannsókn- arsvæðinu. Ungloðna, sem myndar hrygningar- og veiðistofninn á ver- tíðinni 2021/2022, var vestast og sunnan til á svæðinu en eldri loðna var mest áberandi norðar, á land- grunni Grænlands, austan við Sco- resby-sund. Almennt var kyn- þroska loðnu að finna á svipuðum svæðum og undanfarin ár, en út- breiðsla hennar náði þó hvorki norður fyrir Kong Oscar fjörð né austur fyrir Kolbeinseyjarhrygg, segir í frétt Hafrannsóknastofn- unar. Loðnubrestur þriðja árið í röð?  Að óbreyttu verða ekki loðnuveiðar í vetur  Stofninn verður metinn að nýju eftir áramót  Hugsanlegt vanmat í mælingum  Sterkur árgangur ungloðnu gefur fyrirheit um vertíð 2022 Þéttleiki: (t/sjm2): Leiðangurslínur: Árni Friðriksson Eros H e im ild : H a fr a n n só kn a st o fn u n Loðnuleiðangur í sept.-okt. 2020 Dreifing og þéttleiki loðnu Ljósmynd/Daði Ólafsson Vertíð Bjarni Ólafsson AK að veiðum undan suðurströndinni veturinn 2017, síðast þegar loðnuveiðar voru leyfðar. „Það verður loðna, þeir hafa bara ekki fundið hana. Við getum alveg verið ró- legir, það finnst loðna,“ segir Sig- urgeir Brynjar Kristgeirsson (Binni), fram- kvæmdastjóri Vinnslu- stöðvarinnar í Vestmannaeyjum, í samtali við 200 mílur á mbl.is í gær, inntur álits á ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar. „Ungloðnumælingar í fyrra voru góðar og gáfu okkur ástæðu til að vera bjartsýnir,“ segir Binni sem kveðst sannfærður um að verði af loðnuvertíðinni. „Það var tals- verður ís yfir svæðinu þannig að mælingin er ekki marktæk. Þannig að við erum bara bjartsýnir.“ Er hann með orðum sínum að vísa til þess að Hafrannsókna- stofnun hafi sjálf greint frá því í til- kynningu sinni að hafís á norðan- verðu rannsóknarsvæðinu hindraði að hluta áætlaða yfirferð. „Þeir hafa bara ekki fundið loðnuna“ Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.