Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020 ✝ Einar IngviÞorláksson fæddist í Sandinum (Sandgerði) á Blönduósi 3. janúar 1927. Hann lést á HSN Blönduósi 7. október 2020. Foreldrar hans voru Þuríður Ein- arsdóttir, f. 10. júní 1896, d. 14. janúar 1979, og Þorlákur Jakobsson, f. 10. júní 1888, d. 25. júlí 1975. Einar var fimmti í röð- inni af sex bræðrum, en tveir létust barnungir. Bræðurnir eru Þorvaldur, f. 1919, d. 1992, Sig- urbjörn Gísli, f. 1920, d. 1923, Einar Ingvi, f. 1922, d. 1926, Pétur, f. 1924, d. 2015, og Sig- urbjörn, f. 1932, d. 1984. Einar kvæntist 15. september 1951 Arndísi Þorvaldsdóttur frá Þóroddsstöðum í Hrútafirði. Foreldrar hennar voru Gróa María Oddsdóttir, f. 2. sept. 1898, d. 29. des. 1985, og Þor- valdur Böðvarsson, f. 3. des. 1890, d. 18. ágúst 1971. Einar og Arndís bjuggu nánast allan sinn búskap við Árbrautina á Blönduósi, fyrst nr. 7 og síðan nr. 1. Börn Einars og Arndísar eru: Einar, f. 30. des. 1952. Kona hans var Hrefna Guðmunds- dóttir, f. 16. okt. 1952, d. 5. júlí 2014. Þeirra börn eru a) Lind, búsett í Danmörku og á þrjá störf hjá Blönduóshreppi, fyrst sem verkstjóri en sveitarstjóri frá 1963 til 1978. Hann sat í hreppsnefnd frá 1966-1978, og gegndi mörgum öðrum trún- aðarstörfum fyrir sitt samfélag, m.a. sóknarnefnd og Krabba- meinsfélag A-Hún. Einnig sat hann í stjórn Pólarprjóns. Vél- smiðjan Vísir var stofnuð 1943 af föður og bræðrum Einars. Fyrirtækið skiptist í bíla- og vélaverkstæði ásamt verslun. Einar kom að fullu til starfa hjá Vísi 1978 en árið 1986 var fyrir- tækinu skipt upp og Einar og Arndís keyptu verslunarhlut- ann, og ráku til ársins 2003, er þau seldu fyrirtækið settust í helgan stein. Einar var frjálsíþróttamaður á sínum yngri árum. Hann var áhugamaður um laxveiðar í Blöndu. Hann söng í kirkjukór Blönduóskirkju um langt árabil, einnig söng hann með karlakór- um í héraðinu, og kvartett Jón- asar Tryggvasonar. Hans helsta áhugamál var þó harmonikku- spil. Hann spilaði á dansleikjum mörg ár og þegar stofnaður var harmonikkuklúbbur á Blöndu- ósi þá var hann þar og spilaði meðan hann gat haldið á nikk- unni. Síðast liðið ár hefur Einar dvalist á HSN á Blönduósi þar sem hann lést. Útförin fer fram frá Blöndu- óskirkju 17. október 2020 klukk- an 15. Í ljósi aðstæðna verður að takmarka fjölda viðstaddra. Athöfninni verður streymt á slóðinni: https://youtu.be/HGXsWa80qXw Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat syni, Birki Viðar, Jón Braga og Viggó, b) Guð- mundur Ingvi, kona hans er Guðrún Halldórsdóttir, þau eiga eina dóttur, Hrefnu Rut, c) Arn- dís María, hennar maður er Birgir Örn Strange og eiga þau tvö börn, Ara Hrafn og Unu Lind. Einar kvæntist 7. sept. 2019 Hafdísi Ævarsdóttur. 2) Margrét, f. 31.12. 1953, gift Jóni Sigurðssyni, f. 18. febr. 1952. Þeirra börn eru a) Einar Örn, kona hans er Hulda Birna Baldursdóttir og eiga þau fjög- ur börn: Margréti, Baldur, Mikael og Gabríel. b) Hjalti, kvæntur Láru Sóleyju Jóhanns- dóttur og eiga þau þrjú börn, Jó- hann Ingva, Huldu Margréti og Jón Benedikt. c) Ásta Berglind, gift Jóhanni Inga Hjaltasyni, og eiga þau eina dóttur, Gróu Mar- gréti. 3) Gróa María, f. 6. júní 1962, hennar maður er Guðmundur Ragnar Sigurðsson Kemp, f. 20. mars 1965. Einar ólst upp á Blönduósi, var tvo vetur á Reykjaskóla í Hrútafirði og veturinn 1949- 1950 var hann í íþróttaskóla í Svíþjóð. Eftir heimkomuna vann hann hjá Kaupfélagi Húnvetn- inga til ársins 1960, er hann hóf Einar tengdafaðir minn var heilsteyptur sómamaður og ég sakna hans. Þessi maður sem hef- ur verið mér og mínum samferða í hartnær 46 ár skilur eftir sig afar góðar minningar. Minningar sem eru um fyrirmynd, sanngirni, hjálpsemi og góðvild svo fátt eitt sé nefnt. Tengdafaðir minn var með miklar augabrúnir sem hversdagslega sýndu einbeittan mann sem fastur er fyrir. Ef hon- um leist ekki á blikuna þá gerði hann líkt og flestir gera, setti í brýrnar. Þegar Einar Þorláksson setti í brýrnar þá varð mörgum ekki um sel þó svo honum væri eins innan brjósts og hinum sem voru með íburðarminni augabrýr. Maður lærði til þess að gera nokkuð fljótt að átta sig á því að dökkar augabrúnir tengdapabba í þessu ástandi endurspegluðu ekki taumlaust myrkur heldur bara viðbrögð hins venjulega manns. Frá því ég flutti á Blönduós ásamt dóttur hans og barnabarni var hann strax verndari okkar og gerði götu okkar eins greiða og hugsast gat. Þeir sem þetta lesa skilja að ég er að skrifa minningagrein um tengdaföður minn en á bak við góðan tengdaföður leynist góð tengdamamma og rétt að hafa það í huga þegar þetta er lesið. Þegar hugurinn reikar í minn- ingaheimi þá er svo margt sem maður hnýtur um. Kartöflugarð- urinn í Selvík, magnaðar laxveiðar í Blöndu. Ef staldrað er við í kartöflu- ræktinni þá komst ég fljótt að því að áburðarleiðbeiningar hins bú- fræðimenntaða manns máttu sín lítils gegn áratuga reynslu tengdaföður míns. Svona hefur þetta verið gert og því verður ekki breytt, hugsaði hann og maður játti því hvað sem brennisteins- magni í kalíáburði liði. Þetta reyndist heilladrjúgt því kartöflur voru uppteknar haust hvert í Sel- víkinni, mismikið magn allt eftir hvernig áraði. Laxveiðarnar í Blöndu eru og verða alltaf sér kapítuli í lífi okkar fjölskyldu. Öfl- ug ABU-stöng og ambassador 7000 veiðihjól með 70 punda línu hvar á enda var 30 gramma toby með þríkrækjum undir og yfir. Með þetta vopn gengu veiðar yf- irleitt vel og aldrei fannst sú stund að veiðarfærin væru ekki úti í leit að bráð og það var þessi iðni sem skilaði árangri. Samverustundir með tengdaforeldrum á hátíðar- og tyllidögum voru líka minnis- stæðar. Klingjandi jólaenglar, harmonikkuspil og söngur. Þegar gleðin reis hæst í tónlistarflutn- ingi og afturgreitt hárið datt fram á ennið þá var algleymið dottið á. En verslunin Vísir var kjölfestan í lífi okkar allra í fjölskyldunni. Vís- ir var sameiginlegur vinnustaður fjölskyldunnar og þar ólust börnin mín upp við leik og störf innan um móður sína, ömmu og afa. Ekki er hægt að ganga fram hjá störfum tengdaföður míns í þágu bæjar- ins. Hann sat í hreppsnefnd í 12 ár og gegndi einnig starfi sveitar- stjóra í 15 ár. Á sveitarstjórnarár- um hans voru teknar ákvarðanir sem skiptu miklu fyrir samfélagið og má þar nefna byggingu íþróttahúss og sundlaugar svo og að væða bæinn heitu vatni frá Reykjum. Þessum verkefnum fylgdi hann eftir af einurð og festu. Með tengdaföður mínum er genginn foringi sem skildi mikið eftir sig í leik og starfi og bið ég al- góðan Guð að blessa minningu hans. Jón Sigurðsson. Góðar minningar streyma fram þegar ég hugsa til afa míns. Ég var heppinn að alast upp með stórfjölskylduna í kringum mig. Eins og allir vita sem þekktu afa þá ráku þau amma Verslunina Vísi á Blönduósi til margra ára. Vísir var mitt annað heimili og þangað gat ég farið hvenær sem var og hitt ömmu, afa, mömmu, Gróu, Mumma eða hvern þann fjölskyldumeðlim eða vin sem þar vann. Ég var alltaf velkominn í Vísi og tók reglulega yfir lager- inn og spilaði körfubolta við vini og ættingja, tölvuleiki inni á skrifstofu eða byggði kassaborgir úr tómum pappakössum. Þolin- mæðin var nær endalaus fyrir Hjalta litla og vinum hans. Þegar ég fékk aldur til þess að vinna kenndi afi mér réttu handtökin, lagði áherslu á að standa sig vel en leit svo framhjá því þegar manni varð lítið úr verki eða þeg- ar nammið á lagernum varð of freistandi. Takk fyrir að gefa mér færi á að eyða öllum þessum tíma með þér og fjölskyldunni. Margar af mínum bestu stund- um sem unglingur áttu sér stað í morgunkaffitímum í Vísi. Afi hafði nefnilega alltaf húmor fyrir vitleysunni sem vall upp úr mér á milli þess sem ég raðaði í mig ný- bökuðu Krúttbrauði með smjöri, osti og Boysenberjasultu. Ófá hlátursköstin þurfti að hemja svo viðskiptavinir myndu hreinlega ekki yfirgefa búðina. Í seinni tíð hefur það gefið mér mikið hvað afi veitti því alltaf at- hygli hvað ég og fjölskyldan mín vorum að gera og hvað hann var hreinskilinn þegar hann var ekki sammála okkur. Heilsa okkar og öryggi skipti hann miklu máli og það var auðvelt að finna það. Afi var einnig hvetjandi þegar kom að tónlistarnámi og var gaman að geta fetað svipaðar slóðir og hann þegar kom að söng og sönglaga- menningu. Takk afi fyrir allar góðu stund- irnar, þú ert mér fyrirmynd. Þú varst traustur, hreinskilinn og duglegri mann er ekki hægt að hugsa sér. Hvíldu í friði. Þinn Hjalti. Afi var algjör fyrirmynd í leik og starfi. Duglegur, féll aldrei verk úr hendi, strangur en á sama tíma svo umhyggjusamur og góður. Ég hef ekki tölu yfir það hversu oft hann las fyrir mig bækurnar um Alfinn álfakonung og Dísu ljósálf, eða leyfði mér að dröslast með sér á Trölla, hvort sem það var með matarsendingar í skipin niðri á bryggju eða í Draugagil með rusl. Einu sinni kom ég heim á Blönduós nýbúin að fá mér tattú, fjölskyldumeð- limir voru ekkert hrópandi húrra yfir því, en afi, hann var sá eini sem sagði: „Þetta er nú bara flott!“ Síðustu árin fylgdist hann vel með því sem var að gerast í mínu lífi, alltaf með allt á hreinu. Hann stóð alltaf við bakið á mér og hvatti mig áfram, fyrir það verð ég þakklát alla ævi. Takk fyrir allt sem þú kenndir mér og fyrir allan stuðninginn, þín er sárt saknað. Hvíldu í friði. Kveðja, Ásta Berglind. Afi Einar var einstakur maður. Ég ber ekki einungis nafn hans með stolti heldur hef ég alla tíð, meðvitað eða ómeðvitað, dregið dám af honum. Afi var rólegur, traustur, vinnusamur, nýtinn og nægjusamur (þótt hann ætti nú alltaf nýlegan Volvo). Hann unni sér best heima hjá ömmu – og þangað vandi ég komur mínar frá unga aldri, enda leiðin stutt frá Árbraut 16 suður á Árbraut 1. Hjá afa og ömmu leið mér af- skaplega vel. Þar var allt í röð og reglu, þar var góð lykt, þar var svo mikið öryggi, svo mikill friður og ró. Og þar var líka plötuspil- ari, plötusafn Gróu frænku og pí- anó sem ég fékk að glamra á tím- unum saman. Að gista hjá afa og ömmu á laugardagskvöldi var mikill lúxus; spilað á spil, gam- anmynd á RÚV, rjómatoffí og appelsín. Ristað brauð með marmelaði og heitt kakó í morg- unmat. Afi var Einar í Vísi. Þar dvaldi hann samviskusamlega, ásamt ömmu, 6 daga vikunnar frá rúm- lega 7 á morgnana þangað til verslunin lokaði kl. 19. Og þá átti eftir að gera upp og skúra. Og þarna ól ég líka manninn, fyrst sem ungur dyravörður eftir leik- skóla og síðar á sumrin sem lag- erstarfsmaður og afgreiðslumað- ur. Á skrifstofunni í Vísi kenndi afi mér að telja peninga og fara vel með þá í orðsins fyllstu merk- ingu. Slétta úr seðlunum, snúa þeim öllum rétt, tíu saman í klemmu – hundrað saman í teygju. Við afi vorum aldrei hrifn- ir af því að eyða peningum í vit- leysu. Afi spilaði á harmonikku og þegar ég var orðinn nægilega fær á píanóið var ekki eftir neinu að bíða að kenna mér öll gömlu lög- in. Það var ómetanlegur skóli. Hann spilaði hvert lagið á fætur öðru, ég fylgdi og reyndi að spila rétta hljóma. Á unglingsárum mínum áttum við margar svona stundir. Smám saman varð tón- eyrað betra og betra og að lokum þekkti ég lögin og gat spilað með af krafti. Það þurfti nefnilega að hamra vel á slaghörpuna til að eiga roð í nikkuna hans afa. Síðar urðu þessar stundir fastir liðir á jólum og páskum, afmælis- veislum og ættarmótum. Síðustu ár lét afi duga að hlusta á okkur systkinin spila og það var svo dásamlegt hversu vel hann naut þeirra stunda. Sérstaklega var dýrmætt að fá að halda fjöl- skyldutónleika fyrir hann og ömmu á sjúkrahúsinu á Blöndu- ósi um síðustu jól. Afi hvatti mig til að læra eitt- hvað praktískt, að lifa af tónlist- inni væri borin von. Ég hlýddi því og líklega var þetta rétt mat hjá honum. Afi var af gamla skólanum og kenndi mér margt úr þeirri ágætu menntastofnun. En um- fram allt er ég þakklátur fyrir að hafa átt hlýjan, traustan og góð- an afa. Hvíl í friði elsku afi. Einar Örn Jónsson. Einar Ingvi Þorláksson Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 ✝ Grímur BjarniMarkússon fæddist í Borg- areyrum, V-Eyja- fjöllum hinn 21. maí 1942. Hann lést á Sólvöllum á Eyr- arbakka 26. sept- ember 2020. Foreldrar Gríms voru Sigríður Magnúsdóttir frá Álfhólahjáleigu í Vestur-Landeyjum, f. 30. apríl 1905, d. 11. febrúar 1997, og Markús Jónsson frá Borgar- eyrum, bóndi og söðlasmiður, f. 6. mars 1905, d. 28. júlí 1988. Grímur er sjöundi í röðinni af tíu systkinum en þau eru: Hulda, f. 1930, d. 1987, Hrefna, f. 1931, Magnús Sigurður, f. 1932, d. 1991, Eygló, f. 1933, d. 2009, Erla, f. 1936, d. 2017, Ester, f. 1940, d. 1945, Ester, f. 1944, Þorsteinn Ólafur, f. 1946, og Erna, f. 1947. Grímur giftist 28. júlí 1973 Soffíu Einarsdóttur, f. 8. febr- úar 1945. Þau byggðu sér hús á Lýsubergi 7 í Þorlákshöfn og hófu búskap þar ár- ið 1973. Grímur og Soffía eignuðust eina dóttur, Bettý, f. 20. mars 1973, gift Árna Hrannari Arngrímssyni, f. 18. maí 1974, börn þeirra eru: Arn- grímur, f. 28. júní 1999, og Soffía Sif, f. 20. október 2005. Grímur byrjaði ungur að árum að vinna við bú- störf á Borgareyrum. Þegar hann flutti að heiman fór hann að vinna ýmis störf. Þegar hann flutti til Þorlákshafnar vann hann m.a. í vélsmiðju, sem verk- stjóri á vélaverkstæði og við vél- gæslu í frystihúsi. Grímur sinnti ýmsum félags- störfum og starfaði í mörg ár í Björgunarsveitinni Mannbjörg í Þorlákshöfn. Hann sat í sveit- arstjórn í tvö kjörtímabil fyrir Sjálfstæðisflokkinn og sat í barnaverndarnefnd í 16 ár. Útför Gríms fór fram frá Þor- lákskirkju í gær, 16. október 2020. Fallinn er frá mágur minn og kær vinur, Grímur Mark- ússon. Kynni okkar hófust þeg- ar hann og systir mín Soffía hófu samband. Grímur varð strax hvers manns hugljúfi í fjölskyldu okkar og féll aldrei skuggi þar á. Grímur var í eðli sínu sveita- maður og sem ungur maður stefndi hann á að verða bóndi. Hann var alinn upp við bústörf og kynntist hann hinum gömlu búskaparháttum og tók þátt í þeim nýjungum sem hófust í landbúnaði upp úr 1950. Grím- ur var viðloðandi búskap fram undir 1970, en þá snéri hann sér að því sem síðar varð ævi- starf hans, að starfa sem vél- virki. Grímur var sjálfmenntaður snillingur í öllum viðgerðum á hvers kyns vélbúnaði. Í sveit- inni þurftu menn að bjarga sér og þar lærði hann handtökin. Það var sama hvort hann setti niður nýjar vélar í trollbáta, gerði við flóknustu fiskvinnslu- vélar, stórar eða smáar, allt lék í höndunum á honum. Fór hann meðal annars til Færeyja að gera við slíkar vélar. Eitt sinn fór hann á suðunámskeið og fór út með það að hann hefði þar ekkert að gera því hann kynni meira en leiðbeinandinn. Um langt árabil sá Grímur um verkstæði Glettings og síðar Árness í Þorkákshöfn. Á vertíð- um var þá unnið á öllum tímum sólarhringsins því ekki máttu bátar eða vélar stoppa ef bilun kom upp. Þá byggði hann mestu leyti með eigin höndum hús þeirra hjóna við Lýsuberg. Margs er að minnast þegar maður lítur yfir farinn veg með Grími. Ég var sem ungur mað- ur mjög handgenginn honum og var ýmislegt brallað, farið á skytterí, ádrátt og laxveiði og þá var mikið líf og fjör í ferð- um. Þá eru ógleymanlegar fjöl- skylduferðir sem við fórum ár- um saman í veiði í Vatnsá og víðar en þar var Grímur hrókur alls fagnaðar. Grímur hafði sterkar skoð- anir á stjórnmálum og þjóð- málum. Hann tók um árabil virkan þátt í sveitarstjórnar- málum Ölfushrepps og voru þeir fóstbræður í þeim efnum Bjarni heitinn Magnússon og Grímur. Í sveitarstjórnarmál- um lagði Grímur sérstaka rækt við þá sem minna máttu sín eins og börn sem bjuggu við bágar aðstæður og fylgdi hann þeim málum vel eftir. Dagfarspúður var Grímur og var það með ólíkindum hvað hann gat haldið ró sinni í því mikla vinnuálagi sem hann bjó við nær alla tíð. Hann tranaði sér ekki fram var hlédrægur að eðlisfari en maður glaður í góðra vina hópi og gat verð smá hrekkjóttur á góðlegan hátt. Þó Grímur væri ekki lang- skólagenginn var hann mjög vel greindur, margfróður og víðlesinn í íslenskum bók- menntum. Hann kunni ógrynni af kveðskap og lausavísum sem gengu manna á meðal hér áður fyrr. Síðustu ár voru Grími erfið. Hann missti heilsuna og þurfti að liggja síðustu ár á sjúkra- stofnun en hann tók veikindum sínum af æðruleysi. Samskipti okkar Gríms síð- ustu mánuði voru þau að hann hringdi iðulega í mig milli klukkan 10 og 11 á kvöldin og við ræddum saman um menn, málefni og liðna tíð. Síðast ræddum við saman kvöldið áð- ur en hann dó. Með Grími er genginn heið- arlegur góður drengur sem öll- um vildi gott gera og sennilega fórnaði hann heilsu sinni með allt of mikilli vinnu og ósér- hlífni. Við María og fjölskylda vott- um Soffíu og Bettý og fjöl- skylduokkar dýpstu samúð. Ingileifur, María og fjölskylda. Grímur Bjarni Markússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.