Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020 H a m r a b o r g 1 2 • 2 0 0 K ó p a v o g u r • 4 1 6 0 5 0 0 ÁRANGUR Í SÖLU FASTEIGNA Komdu með eignina þína til okkar Óskar Bergsson löggiltur fasteignasali • Sími 893 2499 • oskar@eignaborg.is Kosturinn við aðvera íslensku-fræðingur er aðmaður þarf ekki að hafa skoðun á sótt- vörnum né vera talnaglögg- ur. Þó skiptir tölvísi máli í fornritum eins og þegar tal- að er um stór hundruð og dyrnar á Valhöll sem ein- herjar Óðins ganga um í Grímnismálum, alls 432.000 dyr – sem reynist öllum til furðu vera fjöldi ára í Kali Yuga-öld Hindúa á Ind- landi. Í Gautreks sögu, kátlegri frásögn af gerð fornald- arsagna, er lýst háttum skógarbúa á Vestur- Gautlandi. Til þeirra villist Gauti konungur og fær kuldalegar móttökur hjá húsráðendum, Skafnörtungi og Tötru. Snotra dóttir þeirra kvartar undan foreldrum sínum við Gauta; móðirin „vill aldrei önnur klæði hafa en það sem áður er slitið og að spjörum orðið, og þykir henni það mikil hagspeki“. Aðhaldsemi þeirra hjóna er með slíkum eindæmum að til að spara sér framfærslu gamalmenna hefur fjölskyldan þann hátt á að ganga fyrir Ætternisstapa: „þar með fækk- um vér vort ætterni […] og deyja þar allir vorir foreldrar fyrir utan alla sótt og fara þá til Óðins, og þurfum vér af engu voru foreldri þyngsl að hafa né þrjósku því að þessi sæld- arstaður hefir öllum verið jafnfrjáls vorum ætt- mönnum…“ Gauta konungi bregður ekki við þessa fjöl- skylduhefð og stingur upp á því að Snotra sofi hjá honum um nóttina. „Hún bað konung því ráða.“ Oft er vitnað til frelsis og sparnaðarráðs fjölskyldunnar á Vestra- Gautlandi í sömu andrá og til frásagnar úr viðauka Landnámu í Skarðsárbók: „Óaldarvetur varð mikill á Íslandi í heiðni í þann tíma er Haraldur konungur gráfeldur féll, en Hákon jarl tók ríki í Noregi. Sá hefir mestur verið á Íslandi. Þá átu menn hrafna og melrakka, og mörg óátan ill var etin, en sumir létu drepa gamalmenni og ómaga og hrinda fyrir hamra. Þá sultu margir menn til bana, en sumir lögðust út að stela og urðu fyrir það sekir og drepnir.“ Sómamaðurinn Gunnar á Hlíðarenda sýnir eðliskosti sína í miklu hallæri í Njálu og miðlar „mörgum manni hey og mat og höfðu allir þeir er þangað komu meðan til var“. Þegar birgðir Gunnars þrýtur fer hann til Otkels og vill kaupa af honum vistir en Otkell þvertekur fyrir að láta nokkuð af hendi, dyggilega studdur af Skammkatli sem „var maður illgjarn og lyginn, ódæll og illur viðureignar. Hann var vinur Otkels mikill.“ Er ekki ofsögum sagt að þessir tveir vinir séu ein mestu hrakmenni Íslandssögunnar fyrir að vilja ekki deila vistum í hallæri. Þegar Njáll á Bergþórshvoli heyrir af vandræðum Gunnars ráðleggur Bergþóra húsfreyja bónda sínum að bregðast drengilega við og gefa Gunnari bæði hey og mat. Þakkir Gunnars óma enn í skálaræðum: „Góðar eru gjafir þínar, en meira þykir mér verð vinátta þín og sona þinna“ en aldrei hefur spurst til þess að nokkur hafi hreykt sér af lík- indum við Otkel og Skammkel. Þótt gamlar séu eru fornsögurnar oft góður áttaviti þegar ekki sést út úr hríðarkófi samtímans. Rofar til við bókaskápinn Tungutak Gísli Sigurðsson gislisi@hi.is Sómamaður Góða eðliskosti Gunnars á Hlíðarenda má sjá í Njálu. Hinir stóru drættir í heimsmynd okkar tímaeru þeir, að í austri er Kína að rísa meðþann metnað að verða hið leiðandi stór-veldi á 21. öldinni og ryðja Bandaríkjunum úr þeirri stöðu. Og í ljósi þess að Kína er fjölmennasta ríki heims með margfaldan íbúafjölda Bandaríkjanna og þar af leiðandi burði til að verða það ríki í heim- inum, sem skilar mestri vergri landsframleiðslu, eru miklar líkur á því að Kína takist að ná því markmiði á fyrri hluta þessarar aldar. Það er gömul saga og ný, að efnahagslegu bolmagni fylgja pólitísk áhrif, hvort sem það er á litla Íslandi eða á heimsvísu. Þetta er skýringin á þeim ýfingum, sem verið hafa um skeið á milli Kína og Bandaríkjanna, og þetta er skýringin á því að Kína er byrjað að láta finna fyrir sér í okkar nærumhverfi, það er á norðurslóðum. Trump vildi að vísu kaupa Grænland af Dönum en Kínverjar eru kurteisari og kunna sig betur og vildu fyrir nokkrum árum ná til sín aðstöðu á Grænlandi, sem gat verið á lausu, þótt ekki yrði af því þá. En þetta snýst ekki bara um Kína, heldur Asíu alla. Í lok september birtist með brezka blaðinu Financial Times (sem hefur verið í japanskri eigu síðustu fimm ár) eins konar „kálfur“, hvort sem það var auglýsing eða kynningarblað, frá japanska útgáfufyrirtækinu Nikkei, sem er eigandi Financial Times, þar sem boð- skapurinn var að 21. öldin yrði öld Asíu. Þar má segja að sjónarmið Asíubúa hafi birtzt og samkvæmt því sjónarhorni verður 21. öldin asíska öld- in. Og frá sjónarmiði Asíubúa snýst það ekki um „bylt- ingu“ heldur endurreisn Asíu til fyrri áhrifa. Ástæðan er sú, að af þeim 20 öldum, sem mannfólkið telur til sögu sinnar, hafi 18 verið aldir Asíu, sem hafi á því tímaskeiði staðið undir helmingi af vergri landsfram- leiðslu heimsbyggðarinnar. Hvernig tókst Evrópu að komast í lykilstöðu á heimsvísu á 19. öld? Frá sjónarhorni starfsmanna Nikkei voru tvær ástæður fyrir því. Önnur var iðn- byltingin, sem væntanlega flestir geta verið sammála um, en hin nýlendustefnan (sem gömlu nýlenduveldin taka áreiðanlega ekki undir) sem í raun fólst í því að fara ránshendi um auðlindir annarra þjóða víða um heim og m.a. á fiskimiðunum við Íslands strendur. Nikkei telur að Asía sé nú í sömu sporum og Banda- ríkin hafi verið í upphafi 20. aldar; efnahagslegur risi en pólitískur dvergur. Það hafi tekið tvær heimsstyrj- aldir fyrir Bandaríkin að verða hið leiðandi stórveldi í heiminum og ýta Evrópu til hliðar. Nú séu Bandaríkin byrjuð að gefa eftir í því hlut- verki og skapi með því tómarúm og Nikkei spyr, hvort Asíuríkin muni fylla það tómarúm og hvort menning- arleg áhrif þeirra á heimsbyggðina verði jafn mikil og Evrópu og Bandaríkjanna síðustu 200 ár. En – svo er því bætt við að fá Asíuríki vilji að Kína ráði öllu í þeirra heimshluta. Og það er rétt. Mörg þeirra halla sér að Bandaríkjunum í von um að þau muni koma í veg fyrir að Kínverjar nái markmiðum sínum. Þessi nýju viðhorf í alþjóðamálum eru lítið rædd hér á Íslandi. Þingmenn og stjórnmálaflokkar sýna þeim lítinn áhuga. Frá stofnun lýðveldis á Íslandi höfum við Íslend- ingar notið eins konar verndar Bandaríkjamanna. Við höfum notið þess með ýmsum hætti og kannski mest í þorskastríðunum við Breta, þegar að lokum var hringt frá Washington til London og sagt að nú væri nóg komið. En hver verður okkar bakhjarl, ef og þegar að því kemur að við finnum fyrir þrýstingi frá Kína? Er kannski komið að því? Hér hefur áður verið vakin at- hygli á ítrekuðum athugasemdum frá sendiráði Kína á Íslandi, sem birtzt hafa hér í Morgunblaðinu og eru óvenjulegar svo að vægt sé til orða tekið. Getum við reitt okkur á stuðning Bandaríkjanna við slíkar aðstæður? Svarið við þeirri spurningu er óljóst, þar til úrslit forsetakosninganna í Bandaríkj- unum í byrjun nóvember liggja fyrir. Vafalaust eru ESB-sinnar hér þeirrar skoðunar, að við eigum að halla okkur að ESB. En það ríkjabanda- lag gat ekki einu sinni stöðvað hernaðarátök í bak- garði sínum á Balkanskaga. Þá þurftu Bandaríkin að koma til sögunnar. Það er tímabært að hér verði farið að ræða þessi viðhorf, bæði innan og utan Alþingis. Kínverjar fara hljótt um heimsbyggðina en áhrif þeirra aukast jafnt og þétt, eins og sjá má í Afríku. Fram undan er landsfundur Sjálfstæðisflokks og sambærilegur fundur Samfylkingar, hvenær svo sem af þeim getur orðið vegna faraldursins. Verða þessi nýju viðhorf rædd þar? Má búast við að þessir tveir flokkar móti afstöðu sína til þessara breyttu viðhorfa á landsfundum sínum? En auðvitað er það svo, að þessi nýja heimsmynd snýst ekki bara um pólitík. Hún snýst líka um við- skipti. Það er augljóst að búast má við vaxandi vel- megun í Asíu á næstu áratugum, sem ætti að leiða til þess að Asíuríkin öll verði eftirsóknarverður mark- aður fyrir fiskafurðir frá Íslandi og kannski landbún- aðarafurðir að einhverju leyti líka. Íslenzkt skyr er komið á markað í Japan og markaðsátak að hefjast í Kína. Það er hins vegar ljóst að við ráðum ekki ein við risaveldið í austri. Til þess þurfum við bakhjarla - ekki bara bakhjarl. Þess vegna skal enn ítrekuð sú skoðun, sem hér hef- ur verið sett fram áður, að við eigum að leggja meiri rækt við pólitísk samskipti okkar við Þýzkaland. Þjóðverjar eru öðrum þjóðum líklegri til að hafa skilning á þessum vanda okkar. Nonna-sögurnar svífa þar enn yfir vötnum. Er öld Asíu að ganga í garð? Hver verða áhrif þess á Norðurslóðum? Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Þegar á níunda áratug síðustu ald-ar var einu sinni sem oftar rætt af miklum móði á Alþingi um, hvað gera mætti fyrir þjóðina, hallaði Geir Gunnarsson, þingmaður Alþýðu- bandalagsins, sér að sessunaut sínum og sagði í lágum hljóðum: „Er ekki líka rétt að biðja um sérstaka veður- stofu, sem spáir aðeins góðu veðri?“ Þetta atvik rifjaðist upp fyrir mér, þegar ég sá í miðborginni sóðalegt veggjakrot eftir ákafafólk, sem hafna vill lýðveldisstjórnarskránni frá 1944. Lýðveldisstjórnarskráin var eins og lög gera ráð fyrir samin af Alþingi, en borin undir þjóðina í atkvæða- greiðslu hinn 23. maí 1944. Kjörsókn var 98%, og greiddu 98,3% atkvæði með stjórnarskránni, en hún átti upp- runa sinn í stjórnarskrá þeirri, sem Kristján IX. færði Íslendingum á þús- und ára afmæli Íslandsbyggðar 1874. Sú stjórnarskrá var ein hin frjálsleg- asta í Norðurálfunni, enda Norð- urlönd þá sem nú að mörgu leyti til fyrirmyndar um stjórnarfar. Stendur réttarríkið óvíða traustari fótum. Til samanburðar má nefna, að kjörsókn var svo dræm 2012 um uppkast veggjakrotaranna að stjórnarskrá, að aðeins mælti um þriðjungur atkvæð- isbærra kjósenda með því, að Alþingi hefði það til hliðsjónar, ef og þegar það endurskoðaði stjórnarskrána. En til hvers eru stjórnarskrár? Þeir fræðimenn, sem dýpst hafa hugsað um það mál, svara: Það er til að skilgreina, hvaða mál þykja svo mikilvæg, að reglum um þau verði ekki breytt í venjulegum atkvæða- greiðslum. Dæmi er málfrelsið. Meiri hlutinn gæti komist í tíma- bundna geðshræringu og viljað svipta óvinsælan minnihlutahóp mál- frelsi, en stjórnarskráin bannar það. Annað dæmi er friðhelgi eignarrétt- arins. Stjórnarskrár eru fáorðar, gagn- orðar og skýrar yfirlýsingar um, hvernig fara skuli með valdið, svo að hugsanleg misnotkun þess bitni sem minnst á einstaklingum. Eins og skip eru smíðuð til að standast vond veð- ur, eru stjórnarskrár samdar til að standast misjafna valdhafa. Við höf- um ekkert að gera við veðurstofu, sem spáir aðeins góðu veðri, og því síður höfum við not fyrir stjórnar- skrá, sem er ekkert annað en óska- listi um, hvað ríkið eigi að gera fyrir borgarana, eins og veggjakrot- ararnir í miðborginni krefjast. Nær væri að hafa áhyggjur af því, hvað ríkið getur gert borgurunum. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Veggjakrot eða valdhömlur?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.