Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020 SVALALOKANIR Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar og falla vel að straumum og stefnum nútímahönnunar. Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við. Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er. Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun. Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Bjargfuglinn er fyrir nokkru horf- inn úr fuglabjörgum við landið en það gerist yfirleitt í lok júlí og byrjun ágúst. Þegar í janúar fara sumar tegundirnar að huga að því að koma sér á ný fyrir á syllunni sinni á hefðbundnum stað. Þá skiptir ekki máli þótt snjór sé í bjarginu. Fuglinn dreifist næstu mánuði um Norður-Atlantshaf og fer dreif- ingin eftir tegundum. Stærstur hluti stuttnefjustofnsins dvelur við V-Grænland en sumir fuglar úr byggðum á Norðausturlandi dvelja einnig út af Norðurlandi. Langvíur eru mestmegnis á íslenska land- grunninu, en einnig dreifast fuglar suður með Reykjaneshrygg. Mest- ur fjöldi álka heldur sig alfarið á landgrunninu við Ísland en fáeinar sækja þó til Færeyja og á Norð- ursjó. Alþjóðlegt samstarf Fyrrgreindar upplýsingar um ferðir fuglanna yfir veturinn byggj- ast á rannsóknum með dægurritum sem festir eru á fuglana. Meðal annars hefur Náttúrustofa Norð- austurlands tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi frá 2014, SEATRACK, en þátttökuþjóðir eru Noregur, að meðtöldum Svalbarða og Jan Ma- yen, Rússland, Ísland, Færeyjar og Bretland. SEATRACK-verkefnið hófst 2014 og alls hafa yfir 8.700 dægurritar verið settir á sjófugla af 11 tegundum og nú þegar hafa 3.200 ritar verið endurheimtir. Rannsóknin hefur farið fram í 38 sjófuglabyggðum í löndunum fimm. Á vegum NNA er einnig fylgst með lífinu í Skoruvíkurbjargi, Grímsey, Hælavíkurbjargi, Látra- bjargi og Elliðaey í Vestmanna- eyjum allan ársins hring. Teknar eru ljósmyndir af afmörkuðum hluta bjargs á klukkustundar fresti svo fremi sem nógu bjart er til myndatöku. Gögn úr myndavél- unum frá síðustu 12 mánuðum voru nýlega innheimt. Með þessum hætti hefur verið hægt að meta varpárangur langvíu, stuttnefju, ritu og fýls, en einnig viðveru fugla í bjargi, tímasetningu varps og hvenær ungar yfirgefa bjargið. Skoruvíkurbjargi 16. janúar Auk þess er forvitnilegt að sjá hvenær svartfugl og rita setjast upp í björgin. Á þessu ári sást fyrst til svartfugla í bjargi í Skoruvíkur- bjargi hinn 16. janúar. Þremur dögum síðar voru fuglar sestir upp í Elliðaey, en í Hælavíkurbjargi sást fyrst til þeirra 2. febrúar. Í Köldugjá í Grímsey settust þeir upp 9. febrúar. Komutími í björg virðist sveiflast nokkuð milli ára. Árið 2019 sáust til dæmis svartfuglar fyrst í bjargi í Skoruvíkurbjargi 4. febrúar, eða 19 dögum seinna en 2020. Nær undan- tekningalaust er um langvíur að ræða svo snemma en fyrstu vís- bendingar benda til að stuttnefjur setjist upp síðar í febrúar. Ritur sjást að jafnaði um mánuði seinna í björgunum og er minni breytileiki á komudegi milli ára en hjá svartfuglum. Ljósmynd/Náttúrustofa Norðausturlands Vetur í bjarginu Svartfuglar komnir á sínar syllur á varpstað í Hælavíkurbjargi 4. febrúar í vetur, tveimur dögum eftir að fyrstu fuglarnir settust þar upp. Flestir fuglanna, ef ekki allir, eru langvíur og komnir í sumarbúning þótt aðstæður bendi ekki beinlínis til að sumarið sé alveg á næsta leiti. Myndin er fengin úr vöktunarkerfi NNA. Fyrstu fuglarnir setjast upp í janúar  Vel fylgst með ferðum sjófugla  Yfir 8.700 dægurritar settir á fugla af 11 tegundum á Norður-Atlantshafi Ljósmynd/Yann Kolbeinsson Björg í bú Langvía á Langanesi með dægurrita á fæti færir ungunum fisk. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram fyrirspurn í borgar- ráði um hvenær áætlað sé að ljúka framkvæmdum, sem staðið hafa yfir í Suðurgötu um langa hríð. „Framkvæmdir hafa átt sér stað í a.m.k. tvö ár við Suðurgötu vegna vinnu við lagnir og endurnýjun göt- unnar. Þessar framkvæmdir hafa dregist úr hömlu og enn eiga miklar framkvæmdir sér stað við götuna sem hafa dregið úr umferðaröryggi gangandi, hjólandi og akandi og sem skapar mikið umferðaröngþveiti á álagstímum,“ segir í fyrirspurninni. Henni var vísað til umsagnar um- hverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds. Fram kemur á framkvæmdasjá borgarinnar að um sé að ræða fram- kvæmdir við Suðurgötu og hluta af Sturlugötu og sé samstarfsverkefni Veitna og Reykjavikurborgar. Verkið snýst um að endurnýja frá- veitu, vatnsveitu, hitaveitu og raf- magn, fjarlægja gamlar lagnir og hitaveitustokk, endurnýja gang- stéttar og ganga frá grassvæðum og bundnu slitlagi. Í desember 2019 var tekin sú ákvörðun að fresta fram- kvæmd til vormánaða 2020. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Steinþór Suðurgatan Framkvæmdir hafa staðið yfir um langa hríð á svæðinu. Hvenær lýkur skurðgreftrinum?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.