Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020 Í Fréttablaðinu hinn 30. september sl. birt- ist grein er nefnist „Öll börn eiga sama rétt“ eftir Evu Bjarnadótt- ur, sérfræðing hjá UNICEF. Í upphafi greinarinnar segir: „Barnasáttmálinn er okkur mikilvægur í því að skapa réttlátt sam- félag sem kemur fram af virðingu við börn.“ Síðar í greininni segir: „Ein af grundvall- arforsendum Barna- sáttmálans er jafnræði og bann við mis- munun.“ Á heimasíðu UNICEF á Íslandi er meðal annars sagt frá því hvernig markvissri réttindagæslu fyrir börn á Íslandi sé sinnt og að stjórnvöldum sé haldið vandlega við efnið og berjist af krafti gegn ofbeldi á börnum. Þá notar UNICEF merkinguna: #fyr- iröllbörn á fésbókarsíðu sinni. Á 148. löggjafarþingi 2017-2018 á Alþingi var lagt fram lagafrumvarp 114. mál, almenn hegningarlög (bann við umskurði drengja). Al- þingi sendi UNICEF á Íslandi um- sagnarbeiðni hinn 7.3. 2018 og barst umsögn frá UNICEF á Íslandi 28.3. 2018. Í þeirri umsögn segir meðal annars: „Samtökin eru sammála því markmiði laganna sem lýtur að því að banna læknisfræðilega óþörf inn- grip í líkama barna. UNICEF á Ís- landi vill þó taka fram að skoða þurfi þessi mál á heildstæðari hátt og taka inn í umræðuna öll óþörf lækn- isfræðileg inngrip í líkama barna. Eru samtökin þá að horfa til rétt- né frá ungmennaráði UNICEF þrátt fyrir beiðni þess efnis frá Al- þingi. Alþingi sendi umsagnarbeiðni til þrjátíu aðila vegna málsins og skiluðu sautján af þeim inn umsögn í kjölfarið. Vakin skal athygli á því að skv. markmiði laganna um kynrænt sjálfræði segir í 1. gr.: Að lögunum sé ætlað að standa vörð um rétt ein- staklinga til líkamlegrar friðhelgi. Nú á yfirstandandi löggjafarþingi Alþingis hefur hæstvirtur forsætis- ráðherra, Katrín Jakobsdóttir, lagt fram stjórnarfrumvarp 22. mál, um breytingu á lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80 frá árinu 2019. Í greinargerð vegna þess frumvarps segir m.a. um 1 gr.: „Af skilgreining- unni og meginreglum frumvarpsins leiðir að svokallaðar forhúð- araðgerðir eða „umskurður drengja“, í tilvikum þar sem kyn- einkenni eru dæmigerð, falla utan gildissviðs laga um kynrænt sjálf- ræði.“ Þá segir einnig: „Forhúð- araðgerðir í tilvikum þar sem forhúð er dæmigerð og þar sem slíkar að- gerðir kunna að vera gerðar eða fyr- irhugaðar af trúarlegum eða menn- ingarlegum ástæðum falla utan gildissviðs frumvarpsins og hafa ákvæði frumvarpsins því engin áhrif á það hvort slíkar aðgerðir eru gerð- ar eða heimilar.“ Með vísan í framangreinda grein- argerð vegna breytingar á lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 og með vísan í áðurnefnda umsögn UNICEF á Íslandi vegna banns við umskurði drengja frá 28.3. 2018 er hér skorað á UNICEF á Íslandi að standa við fyrrgreindan málflutning sinn og ítreka það við hæstvirtan forsætisráðherra, Katrínu Jak- obsdóttur, og Alþingi að banna öll óþörf læknisfræðileg inngrip í lík- ama barna. Nú treysta börnin á UNICEF á Íslandi! #fyriröllbörn UNICEF #fyriröllbörn? Eftir Björgvin Herjólfsson, Írisi Björgu Þorvalds- dóttur Bergmann, Magnús E. Smith Svein Svavarsson »Nú treysta börnin á UNICEF á Íslandi! Magnús E. Smith Björgvin er ráðgjafi, Íris er hjúkrunarfræðingur, Magnús er heilbrigðisstarfsmaður, Sveinn er rafeindavirki. Björgvin Herjólfsson Íris Björg Þorvaldsdóttir Sveinn Svavarsson inda allra barna, meðal annars int- ersex barna og þeirra aðgerða sem framkvæmdar eru á kynfærum þeirra áður en þau ná aldri til að hafa áhrif á þá ákvörðun.“ Þá segir í niðurlagi umsagnarinnar: „UNI- CEF leggur því til að efni frum- varpsins verði frekar komið fyrir í heilbrigðislögum.“ Þegar lög um kynrænt sjálfræði nr. 80 frá árinu 2019 voru til efnis- legrar meðferðar óskaði Alþingi eft- ir umsögn frá UNICEF á Íslandi og ungmennaráði UNICEF hinn 3.4. 2019 og rann fresturinn út 24.4. 2019. Ekki er að sjá umsögn frá UNICEF á Íslandi varðandi málið Við leigjum út krókgáma FRAMKVÆMDIR? til lengri eða skemmri tíma HAFÐU SAMBAND: sími: 577 5757 www.gamafelagid.is Hugsum áður en við hendum! Út er komin þykk bók í stóru broti eftir Kjartan Ólafsson og ber heitið „Draumar og veruleiki“, und- irtitill „Stjórnmál í endursýn“. Bókin er 508 lesmálssíður, prýdd fjölda mynda og að auki eru í henni ýmsar skrár, þannig að verkið er alls 568 síður. Bókin virkaði þannig á mig að mér fannst eins og hún væri skrifuð af tveimur mönnum. Ann- ars vegar tiltölulega réttsýnum fræðimanni og hins vegar þegar fjallað er um Sovétríkin og Jósep Stalín er eins og „falli mygla á skyn og geð“. Sumir sálfræðingar halda því fram að menn geti haft tvískiptan persónuleika, æði sundurleitan. Einhvern tíma las ég, þá ungur ég var, fræga skáldsögu eftir breska rithöfundinn Robert Louis Steven- son sem skrifaði um þetta fyr- irbæri á öndverðri síðustu öld. Þar er greint frá vísindamanni, dr. Je- kyll, prúðum og dagfarsgóðum sem finnur upp lyf sem dregur fram verri hluta persónuleika hans. Þegar hann tekur inn lyfið breytist hann í hinn versta mann sem drýgir hin margvíslegustu óhæfuverk. Ágætlega lýsir Kjartan stétta- baráttunni á fjórða áratug síðustu aldar í heimskreppunni miklu og lykilhlutverki Kommúnistaflokks- ins í þeirri baráttu allri. Hörðustu stéttaátök á Íslandi á fjórða ártug síðustu aldar, þau voru mörg og víða um land, voru Gúttóslagurinn í Reykjavík 1932 og Novudeilan á Akureyri 1933. Í báðum tilfellum ætluðu verkalýðs- fjandsamlegar bæjarstjórnir að lækka laun verkamanna. Með órofa samstöðu sigruðu verkalýðs- samtökin og komu í veg fyrir til- ræðin. Höfðu þó enga sjóði til þess að styðjast við. Gúttóslagurinn var hörðustu átök, sem urðu á öldinni sem leið ef frá er talinn 30. marz 1949. Það er athyglisvert að í heimskreppunni miklu tókst aldrei að lækka kauptaxtana enda voru þá engar flugstéttir til. Af augljósum ástæðum gengur Kjartan í annarra sjóði og sækir sér hnefa varðandi allt sem hann ritar um atburði fjórða áratug- arins, fyrir þann tíma og vel fram á þann fimmta, enda ekki fæddur fyrr en 2. júní 1933. Hann getur líka samvizkusamlega ýmissa bóka og gagna þar um aftast í bókinni. Fjórir eru þeir menn sem fá hver um sig langa kafla í bókinni. Einar Olgeirsson, Brynjólfur Bjarnason, Kristinn E. Andrésson og Lúðvík Jósefsson. Raktar eru ættir þess- ara manna og uppruni, menntun og pólitísk umsvif á langri ævi. Allir fá þeir skömm í hattinn fyrir að bregðast ekki hugsjónum sín- um. Engan mann útlendan nefnir Kjartan jafn oft og Jósep Stalín, hvorki meira né minna en á 89 blaðsíðum og það oftar en einu sinni á sumum þeirra. Í allri þess- ari Stalínumfjöllun fer „sálarskip hans hallt á hlið og hrekur til skaðsemdanna“. Alla sína Stal- ínsvizku sækir hann í fræga ræðu Nikita Khrusjovs sem hann hélt í febrúar 1956 á 10. flokksþingi Kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Í ræðunni fordæmdi hann per- sónudýrkunina á Stalín, fjölmargt í stjórnarháttum fyrri ára, þar á meðal dómskerfið, dauðadóma fyr- ir upplogar sakir og þrælkun millj- óna manna í fangabúðakerfi Gú- lagsins. Þetta er það sem Kjartan hefur að segja af ræðu Khrusjovs (bls. 153.) Mér þykir ólíklegt að Khrusjov hafi talað um þrælkun margra milljóna. Hann vissi dável að Gúlag voru vinnu- búðir til refsivistar. Þær voru einfaldlega fangelsi þeirra Sov- étmanna. Ef ég man rétt var oft, hér áður og fyrr meir talað um vinnuhælið á Litla- Hrauni, þar var föng- um haldið að vinnu og er kannski enn. Vinn- an göfgar manninn. Úr því verið er að tala um gamla ræðu er rétt að brot úr annarri fylgi. Hún var haldin á fjöldafundi í Moskvu 1937, ræðumaður Khrusjov. Þar sagði hann: „Með því að beita sér á móti félaga Stalín ráðast þeir gegn okkur öllum, gegn verka- lýðsstéttinni og vinnandi alþýðu. Með því að ráðast gegn félaga Stalin, ráðast þeir gegn kenn- ingum Marx, Engels og Leníns.“ Þessari ræðu sinni hefur hann vís- ast gleymt 1956. En það er meira blóð í kúnni. Kjartan fullyrðir að hætti trotskista að Trotski, þessi náni samstarfsmaður Lenins (bls. 98) hafi verið drepinn í virki sínu í Coyoacan í Mexico 1940 af flugu- manni Stalíns (bls. 49). Þennan nána samstarfsmann nefndi Lenin Júdas rússnesku byltingarinnar og margt fleira sagði Lenin um Trotski, til dæmis 1912: „Þessi samsteypa samanstendur af stefnuleysi, hræsni og innantómu orðagjálfri. […] Trotski hylur það með byltingarsinnuðu orðavali sem kostar hann ekkert og skuld- bindur hann til einskis.“ Auðvitað sniðgengur Kjartan allt sem morðingi Trotskis hafði að segja mexíkósku lögreglunni um ástæð- ur morðsins. En meðal annarra orða ef Stalín sem öllu réð ber ábyrgð á öllu sem aflaga fór á tímabilinu 1924-1953, ber hann þá ekki líka ábyrgð á uppbyggingunni og framförunum sem urðu á sama tíma. Rétt- arhöldin sem fóru fram í Moskvu á árunum 1936 til 1938 kallar Kjartan aldrei annað en sýnd- arréttahöld. Þetta voru þau líka kölluð af svartasta afturhaldinu um allan heim. Kominn í bland við tröllin garmurinn. Réttarhöldin í Moskvu voru engin sýndarrétt- arhöld. 1932-1933 mynduðu sak- borningarnir í þeim samsærisfélag er nefndist „blökk hægrimanna og trotskista“. Samkvæmt fyr- irmælum hernjósna erlendra ríka óvinveittum Sovétríkjunum, í því skyni að reka njósnir fyrir þau, vinna spellvirki og hermdarverk. Þau myrtu þjóðfulltrúana S. Ki- roff, V. Menshinsky, V. Kubiseff og rithöfundinn Maxim Gorki. „Málaferlin gegn blökk hægri- manna og trotskista“ opinberaði í fyrsta sinn í sögunni starfs- aðferðir „fimmtu herdeidar“ fas- ista. Henni beittu þeir fyrir sig í Noregi, Tékkóslóvakíu, Spáni, Austurríki, Frakklandi og víðar. Í Sovétríkjunum skutu þeir land- ráðamennina en í Frakklandi voru þeir gerðir að ráðherrum. „Gjafar eru yður gefnar“, bæði látnum og lifendum sem ekki hafa verið reiðubúnir að taka undir Stalíns- og Sovétníðið. Á bls. 99 í Kjartansbók stendur: „Hans draumur [Stalíns] var að geta steypt alla í sama mót. Trygg og hlýðin dusilmenni vildi hann hafa í kringum sig, fólk sem var aðeins einnar víddar og allar gerðir þess fyrirsjáanlegar.“ Dr. Jekyll og Mr. Hyde Eftir Ólaf Þ. Jónsson Ólafur Þ. Jónsson » Bókin virkaði þannig á mig að mér fannst eins og hún væri skrifuð af tveimur mönnum. Höfundur er skipasmiður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.