Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020 Komdu í BÍLÓ! PLUG INHYBRID Nýskráður 01/ 2020, ekinn 11 Þ.km, bensín og rafmagn (plug in hybrid, drægni 50 km), sjálfskiptur. Fjórhjóla- drifinn (4matic). Hlaðinn aukabúnaði s.s. AMG-line, Night pack, stafræntmælaborð, leiðsögukerfi, bakkmyndavél, blindsvæðisvörn o.fl. Skipti á ódýrari skoðuð! Raðnúmer 251752 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is – ALLTAF VIÐ SÍMANN 771 8900 – M.BENZ C 300e 4matic AMG VERÐ 8.490.000 kr. Sighvatur Bjarnason sighvaturb@mbl.is Fjölmiðlafélagið Torg ehf., sem með- al annars gefur út Fréttablaðið, bók- færði 50 milljónir í tekjur fyrir árið 2019 í ársreikningi þess árs vegna væntinga um ríkisstuðning við einkarekna fjölmiðla. Sérfræðingur í endurskoðun sem Morgunblaðið ræddi við segir hæpið að færa tekjur með þessum hætti í ljósi þess hversu mikil óvissa hafi verið og sé enn um formfastan ríkisstuðning við rekstur einkarekinna fjölmiðla. Gjaldfærðar væntingar Í rekstrarreikningi félagins fyrir árið 2019 eru bókfærðar 50 milljónir í rekstrartekur undir liðnum „aðrar tekjur“. Í skýringum með ársreikn- ingi segir: „Ríkiss[t]jórn Íslansds [sic] fyrirhugar að greiða styrki til einkarekinna fjölmiðla vegna rekstr- arársins 2019. Menntamálaráðherra hefur lagt fram frumvarp þess efnis sem liggur fyrir Alþingi til af- greiðslu. Áætlaðar tekjur félagsins vegna þess eru 50 milljónir króna.“ Lagabreyting ekki átt sér stað Forsaga málsisn er sú að í upphafi árs 2019 boðaði menntamálaráð- herra drög að frumvarpi um breyt- ingar á lögum um fjölmiðla, sem m.a. fólu í sér að komið yrði á fót nýju stuðningskerfi fyrir einkarekna fjöl- miðla hér á landi sem yrði í formi endurgreiðslu á allt að 25% ritsjórn- arkostnaðar. Nú, tæpum tveimur ár- um síðar, hafa lagabreytingarnar ekki náð fram að ganga og óvíst um framtíð frumvarpsins sem þykir býsna umdeilt og ekki fyrirséð um framtíð þess á þingi. Bráðabirgðarstyrkir fyrir 2020 Umræddur ársreikningur Torgs fyrir árið 2019 var samþykktur 7. maí 2020 en á þeim tíma bólaði ekk- ert á lögum sem tryggja styrki til einkarekinna fjölmiðla. Þau tíðindi urðu þó að heimsfaraldur skall á og Alþingi samþykkti víðtækar laga- breytingar til að mæta efnahagsleg- um áhrifum af hans völdum. Meðal annars voru þar gerðar breytingar á fjölmiðlalögum sem heimila ráðherra að veita sérstakan rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla, en ein- göngu vegna ársins 2020 og kemur því ekki í stað fyrir þágrundvallar- breytingu sem menntamálaráðherra hafði boðað að yrði gerð á rekstrar- umhverfi einkarekinna fjölmiðla. Vafasöm tekjufærsla Líkt og áður segir telur sérfræð- ingur í endurskoðun, sem blaðið ræddi en vill ekki láta nafns síns get- ið að það sé miklum vafa undirorpið að bókfæra tekjur sem byggja á jafn veikum grunni, eru byggðar á vænt- ingum og hafa í raun ekki orðið til á reiknisárinu sem um ræðir. Að vísu komi huglægt mat oft við sögu, t.d. þegar kemur að endurheimt krafna, en það sé grunvallarreglan að ekki megi „líta of djúpt í kristalskúluna“ þegar kemur að mati á heimtum „óvissra“ tekna. Aðspurður sagðist Björn Víglundsson, forstjóri Torgs, ekki geta tjáð sig um málið þar sem hann hafi tekið við félaginu í september á þessu ári. Ekki náðist í Helga Magn- ússon. Hann er eigandi að 82% hlut í Fréttablaðinu. Tekjufærsla sögð hæpin Morgunblaðið/Ómar Torg Útgáfufélag Fréttablaðsins er gagnrýnt fyrir gjaldfæringu tekna 2019.  Útgáfufélag Fréttablaðsins bókfærði 50 milljónir í tekjur vegna væntinga um styrk til einkarekinna fjölmiðla  Ári síðar bólar ekkert á lagabreytingu ráðherra Tap af rekstrinum » Þrátt fyrir tekjufærsluna nam tap af starfsemi Torgs 212 milljónum í fyrra. » Var það viðsnúningur frá fyrra ári þegar hagnaðurinn nam 39 milljónum. » Heildartekjur félagsins 2019 námu 2,3 milljörðum króna. landi. Þessi fyrir- tæki hafa hingað til staðið undir u.þ.b. 60 milljarða launagreiðslum á ári.“ Bendir Davíð á að margir at- vinnurekendur hafi neyðst til að loka fyrirtækjum sínum að hluta eða í heild á síðustu mánuðum og að nú séu þeir víða komnir að þolmörkum. „Það er ekki eins og sumir halda að þegar kreppan er gengin yfir þá taki fyrirtækin bara til starfa eins og ekkert hafi í skorist. Nú þegar eru eigendur fyrirtækja sem hafa reynt að standa þetta af sér farnir að segja upp fólki, selja atvinnutæki, losa sig undan samningum ýmiskonar. Það verður ekki endurheimt á einni nóttu og mun valda því að það mun taka okkur lengri tíma en ella að koma okkur út úr kreppunni þegar viðspyrnan næst.“ Segir Davíð að þetta sé mjög al- varlegt. Þannig verði t.d. að tryggja að ferðaþjónustan verði í stakk búin til að taka á móti fólki þegar lok- unum verður aflétt. „Íslandsstofa er með markaðsátak í pípunum sem mun skipta miklu en við verðum líka að hafa fyrirtæki til reiðu til að taka á móti ferðamönn- um þegar hlutirnir fara að rúlla á nýjan leik. Fyrirtækin verða að taka undir og sinna mjög mikilvægu markaðsstarfi. Við verðum í mjög harðri samkeppni við öll löndin í kringum okkur og megum ekki við því að fyrirtækin verði mörg hver einfaldlega horfin af sviðinu,“ segir Davíð. „Nú þegar kreppan dregst svona á langinn aukast áhyggjur okkar af því að fyrirtæki muni í mörgum til- vikum ekki opna að nýju þegar við- snúningurinn verður,“ segir Davíð Þorláksson, forstöðumaður sam- keppnishæfnissviðs SA. Í gær sendu samtökin frá sér tilkynningu þar sem bent var á að í nýrri greiningu sem New York Times birti komi fram að eitt af hverjum sjö litlum fyrirtækjum í Bandaríkjunum hafi verið lokað varanlega í ágústmán- uði. „Við vitum auðvitað ekki hvort staðan sé sú sama hér en til sam- anburðar ef við við myndum heim- færa þetta á Ísland þá myndi það þýða að 3.000 fyrirtæki með um 11 þúsund launþega myndu loka hér á Óttast varanlega lokun fyrirtækja  Gæti þýtt 11.000 glötuð störf og 60 milljarða tapaðar launatekjur á ári Davíð Þorláksson Íslensku fyrirtækin » Lítil og örfyrirtæki eru þau fyrirtæki sem eru með 49 starfsmenn eða færri. » Þau sjá 52% launafólks í landinu fyrir vinnu. » Þessi fyrirtæki eru 21.000 og 80 þúsund launþega og greiða 414 milljarða í laun á ári. ● Úrvalsvísitala aðallista Kauphallar Ís- lands hækkaði um 0,14% í gær. Mest- viðskipti voru með bréf í trygginga- félaginu VÍS, upp á 828 milljónir króna, en minnstu viðskiptin voru með bréf í Iceland Seafood upp á tíu milljónir króna. Mesta verðhækkun gærdagsins varð á bréfum flutningafélagsins Eimskipa, en þau fóru upp um 7,05% í 43 milljóna króna viðskiptum. Í lok dags var gengi félagsins 159,5 krónur á hvern hlut. Næstmesta hækkun gærdagsins varð á bréfum flugfélagsins Icelandair Group, en þau hækkuðu um 2,13% í 443 millj- óna króna viðskiptum. Gengi félagsins er nú 0,96. Þriðja mesta hækkun gær- dagsins varð á bréfum fasteignafélags- ins Reita, en þau hækkuðu um 1,42% í 377 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfanna í lok dags var 46,5 krónur á hvern hlut. Mest viðskipti í kaup- höllinni með bréf VÍS 17. október 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 139.53 Sterlingspund 180.24 Kanadadalur 105.56 Dönsk króna 21.927 Norsk króna 14.873 Sænsk króna 15.724 Svissn. franki 152.57 Japanskt jen 1.3254 SDR 196.74 Evra 163.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 193.5942 Hrávöruverð Gull 1891.7 ($/únsa) Ál 1836.0 ($/tonn) LME Hráolía 43.45 ($/fatið) Brent ● Greiningardeild Landsbanka Ís- lands spáir 3,5% verðbólgu í októ- ber. Gangi spáin eftir verður verðbólgan óbreytt á milli mánaða, en hún hækkaði um 0,39% milli mán- aða í september. Eins og segir í Hagsjá bankans þá mun Hagstofa Íslands birta október- mælingu á vísitölu neysluverðs fimmtu- daginn 29. október. Í Hagsjánni segir m.a. um undirliði vísitölunnar í september sl., að matur og drykkjarvörur hafi hækkað að með- altali um 0,8% milli mánaða síðustu sex mánuði. Telur bankinn að það dragi úr þessum hækkunartakti, og liðurinn hækki að jafnaði um 0,4% milli mánaða næstu mánuði. Þá gerir bankinn ráð fyrir að föt og skór verði 6% dýrari í október en sl. vor. Landsbankinn spáir óbreyttri verðbólgu Hækkun Spá 6% dýrari skóm. STUTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.