Morgunblaðið - 17.10.2020, Síða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is
AF MYNDLIST
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Hún er langfrægasti kvenkynslistmálari ítalska barokks-ins á 17. öld. Margir sem
þekkja sögu þess tíma hafa heyrt um
listakonuna sem ungri var nauðgað
af málara sem var að segja henni til
og þurfti af miklum viljastyrk að
staðfesta ásakanirnar meðan hún
var pyntuð. Og margir þekkja sögur
af því að síðan hafi hún iðulega mál-
að áhrifarík verk þar sem hún fjallar
um áreitni og ofbeldi sem konur
voru beittar, og verk sem sýndu kon-
ur taka af krafti á móti og jafnvel
hefna sín á körlum. Færi hafa hins
vegar þekkt til eða séð mörg þessara
helstu verka listakonunnar, svo fá
sem þau eru í raun og hafa dreifst
milli safna og eru mörg í einkaeigu.
En nú er verið að bæta úr því, sem
betur fer, bæði með útgáfu nokkurra
bóka sem fjalla um líf hennar og
verk og svo var opnuð á dögunum í
National Gallery í London sýning
sem lengi hefur verið beðið eftir,
með nær helmingi þeirra 57 mál-
verka sem staðfest er að séu eftir
hana, og gagnrýnendur hafa ausið
lofi og stjörnum. „Artemisia“ hafa
stjórnendur safnsins kosið að kalla
sýninguna, og við hæfi að nota bara
skírnar- eða gælunafn eins og tíðk-
ast þegar margir meistarar listasög-
unnar eiga í hlut – Leonardo, Rafael,
Michelangelo, Caravaggio … Arte-
misia Gentileschi, segja rýnar, getur
keik staðið við hlið þeirra, svo
áhrifarík séu verk hennar.
Nauðgað af kennaranum
Artemisia Gentileschi fæddist í
Róm 1593 og var tólf ára þegar móð-
ir hennar lést. Eftir það var hún alin
upp hjá föður sínum, Orazio, sem var
þekktur listmálari og enn má sjá
fjölmörg verk eftir hann í söfnum. Í
frægri samantekt um ítalska lista-
menn frá miðri sautjándu öld er
Orazio sagður líkari skepnu en
manni og tal hans æði kaldhæðnis-
legt. Engu að síður er ljóst að hann
sagði dóttur sinni vel til í myndlist-
inni auk þess sem hún varð fyrir
áhrifum af helstu staumum þess
tíma, ekki síst nýjungunum sem
Caravaggio kom fram með áður en
hann lést 1610. Orazio og Cara-
vaggio voru miklir mátar og er talið
fullvíst að Artemisia hafi hitt hann.
Þegar hún var aðeins 17 ára, árið
1610, málaði Artemisia fyrstu útgáfu
sína af sögunni um hina ungu Sús-
önnu sem öldungarnir njósna um og
reyna að fá til lags við sig. Margir
karlar höfðu málað þessa frásögn,
þar á meðal Tintotetto og Rem-
brandt, en aldrei höfðu þeir lýst með
viðlíka hætti viðbjóðnum sem gömlu
perrarnir vekja hjá ungu stúlkunni.
Blóðrauður hefndarþorsti málarans
AFP
Blóðugt Starfsmaður National Gallery í London stillti sér upp milli beggja útgáfna Gentileschi af „Júdit afhöfðar
Hólófernes“. Verkin máluð 1611 og 1620 og eru þau í eigu safnanna Capodimonte í Napólí og Uffizi í Flórens.
Þótt ýmsu sé tæknilega ábótavant í
verki málarans unga þá er tilfinn-
ingaþunginn svo mikill að verkið
vekur aðdáun – ævisöguritarar velta
fyrir sér hvort persónuleg reynsla
búi ekki að baki þeim þunga en
stúlkan á myndini ber enn fremur
svipmót málarans. Artemisia átti
eftir að snúa aftur og aftur að þessu
þema í málverkum; til eru sex mál-
verk eftir hana sem sýna Súsönnu
og öldungana og byggjast öll á því
fyrsta sem hér má sjá.
Orazio sá vel hvaða hæfileikum
dóttir hans bjó yfir og þegar hún var
18 ára stærði hann sig við greifynj-
una af Toskana af því að Artemisia
væri þegar fær um að skapa verk
sem margir nafntoguðustu málarar
þess tíma myndu aldrei ráða við.
Það sama ár fékk Orazio mál-
arann kunningja sinn, Agostino
Tassi, til að veita dótturinni tilsögn í
fjarvídd en Tassi nauðgaði henni.
Þegar Tassi neitaði í framhaldinu að
ganga að eiga Artimisiu, eins og fað-
ir hennar vildi, þá kærði Orazio
hann. Í framhaldinu þurfti Arte-
misia að gangast undir pyntingar af
hálfu lögreglunnar meðan hún var
yfirheyrð, til að sanna að hún segði
satt um nauðgunina. Skýrsla um
yfirheyrsluna er á sýningunni í Nat-
ional Gallery, sýnd opinberlega í
fyrsta skipti. Þar er lýst að hún
hrópaði meðan fingur hennar voru
klemmdir: „Það er satt, það er satt,
allt sem ég sagði er satt!“
Refsing Tassis var ekki hörð –
honum var bannað að halda til í Róm
en dómnum var aldrei framfylgt. Að
þeirra tíma sið var Artemisia hins
vegar ekki spennandi kostur á
hjónabandsmarkaði, ekki lengur
hrein mey, en Orazio fann henni
samt eiginmann og þau settust að í
Flórens þar sem hún tók að koma
undir sig fótunum sem listmálari.
Sem var erfitt, auk þess sem hún
eignaðist á skömmum tíma fimm
börn. Aðeins eitt þeirra komst á
legg. En hún átti fjögurra áratuga
feril þar sem hún varð sífellt þekkt-
ari og virtari; hún átti eftir að starfa
líka í Napolí, Feneyjum og Róm, og
um tíma sem hirðmálari í London.
Atremisia lést árið 1656, 63 ára.
Listamaður #MeToo-tíma
Eitt af því sem gagrýnendurnir
sem hlaða sýninguna í National Gall-
ery lofi eru sammála um er að Art-
emisia sé fullkominn listamaður nú á
tímum#MeToo-vakningarinnar.
Raunsæismálari sem hafði hálf-
gleymst, en firnafínn listamaður
sem auðnaðist að gæða verk sín
furðusterkum tilfinningum, verk
sem næstum öll fjalla um reynslu-
heim kvenna. Lesendur geta séð á
netinu skrá yfir öll málverk hennar
sem staðfest eru og þau sem ekki
fjalla um eða sýna fyrst og fremst
konur og líf þeirra má telja á fingr-
um annarrar handar.
Vissulega var í tísku á sautjándu
öld að mála táknræn og söguleg
verk, oft byggð á sögum úr Biblí-
unni, en Artemisia hefur ítrekað val-
ið sér viðfangsefni þar sem reiði
hennar út í karlmenn og karlveldið
fær útrás með táknrænum hætti. Og
í mörgum tilvikum er um sjálfs-
myndir að ræða.
Sörguðu af honum hausinn
Auk þess að mála endurtekið Sús-
önnu og öldungana tvo sem læðast
að henni með ósæmilegt tilboð, þá
eru rómuð málverkin tvö sem sýna
gyðingakonuna ungu Júdit sarga
höfuðið af assýríska hershöfðingj-
anum Hólófernesi, með dyggri að-
stoð þjónustustúlkunnar sem hjálp-
ar til við að halda tröllvöxnum
hermanninum niðri meðan blóðið
gusast og höfuðið er skorið frá búkn-
um. Bæði þessi frægu málverk hafa
verið lánuð á sýninguna. Þau eru
formrænt byggð á öðru enn þekkt-
ara, eftir Caravaggio, en hér er til-
finningaþunginn meiri. Fræðimenn
sem fjalla um verkin tala allir um
styrkinn og kraumandi reiðina sem
er að baki verknaðinum. Að auki eru
til fjögur málverk eftir Artimisiu
sem sýna Júdit og þjónustustúlkuna
með blóðugt höfuðið af Hólófernesi.
eins og staðfestingu hefndarinnar.
En á sýningunni í London birtast
fleiri hliðar á þessum flinka málara
og beinast sjónir nú á tímum sjálf-
unnar til að mynda að endurteknum
sjálfsmyndum – myndefni sem var
þá óþekkt að konur tækju sér fyrir
hendur. Ein þeirra sýnir Artemisiu
mála á beran striga og er kölluð
táknmynd fyrir málverkið; verk mál-
að af geislandi sjálfsöryggi og er í
eigu Bretadrottningar.
Það er synd og skömm að svo
merkileg sýning sé sett upp nú á
tímum veirunnar sem kemur í veg
fyrir ferðalög. Opnunin átti fyrst að
vera í vor en var frestað – ekki var
hægt að fresta sýningunni lengur
vegna lána á verkum. Fyrir vikið
missum við mörg af henni því fólk
hefði eflaust þyrpst víða að til að sjá
og upplifa þau nær þrjátíu málverk
eftir þessa mögnuðu listakonu sem
er loksins verið að enduruppgötva
og tala með svo sterkum rómi inn í
þá tíma sem við lifum.
Royal Collection, Bretlandi
Söguleg Sjálfsmynd Artemisiu Gentileschi frá 1638, „Sjálfsmynd sem alle-
góría málverksins“. Ein merkasta sjálfsmynd myndlistarkonu.
Schloss Weißenstein, Þýskalandi
Á gægjum „Súsanna og öldungarnir“. Verkið málaði Gentileschi einungis
17 ára gömul og má telja líklegt að það lýsi persónulegri reynslu af áreitni.
» Fræðimenn semfjalla um verkin tala
allir um styrkinn og
kraumandi reiðina …