Morgunblaðið - 17.10.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Páll Óskar hélt uppi stuðinu eins og honum er
einum lagið á Pallaballi sem sent var út í beinni
útsendingu á K100 í gær.
Stöðin notaðist reyndar við nafnið Bleikt100 í
tilefni Bleika dagsins til þess að sýna samstöðu
með konum sem greinst hafa með krabbamein.
Kveðjurnar streymdu inn frá áhorfendum sem
hlustuðu í útvarpinu og fylgdust með á k100.is,
en Palli flutti öll sín þekktustu og bestu lög.
Morgunblaðið/Sigurður Þorri Gunnarsson
Palli hélt uppi stuðinu í beinni á Bleikt100
Útvarpsstöðin Jóla-Retró er komin
í loftið á netinu og mun senda út
bestu jólalögin alla daga fram að
jólum.
„Þessir skrýtnu tímar kalla á
öðruvísi hugmyndir. Mér datt í hug
að það gæti glatt einhverja að byrja
að hlusta á jólalögin snemma þetta
árið og því ákváðum við að setja
jólastöðina okkar, Jóla-Retró, í loft-
ið núna í október,“ segir Sigurður
Þorri Gunnarsson, dagskrár- og
tónlistarstjóri útvarpsstöðva Ár-
vakurs.
Jóla-Retró hefur yfirleitt farið í
loftið um miðjan nóvember og leyst
útvarpsstöðina Retró af hólmi í
nóvember og desember. Fyrst um
sinn verður stöðin einungis send út
á netinu en fer svo í loftið í stað
Retró á FM 89,5 upp úr miðjum
nóvember, svo aðdáendur Retró
þurfa ekki að óttast að heyra jóla-
lög þar í október.
Jóla-Retró fer af
stað á netinu í dag
Jól Sigurður Gunnarsson dagskrárstjóri er
klár í jólalögin, með grímu og jólahúfu.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, býður sig fram í embætti vara-
forseta ASÍ á þingi sambandsins í
næstu viku. Hann staðfesti þetta í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Miðstjórn ASÍ hefur lagt fram til-
lögu sem taka á til afgreiðslu á
þinginu um að varaforsetum ASÍ
verði fjölgað úr tveimur í þrjá. Auk
forseta ASÍ verði framvegis fyrsti,
annar og þriðji varaforseti í yfir-
stjórn sambandins. Jafnframt er lagt
til að meðstjórnendum í miðstjórn
ASÍ fækki úr tólf í ellefu.
„Ég gef kost á mér í varaforseta.
Ég vona að þetta
sé hluti af þeirri
vegferð að þétta
raðirnar,“ segir
Ragnar Þór.
Hann segir að
aldrei hafi verið
jafn mikilvægt og
nú fyrir verka-
lýðshreyfinguna
að menn snúi
bökum saman og
fari að vinna í eina átt. Viðfangsefnin
séu gríðarlega stór um þessar mund-
ir fyrir hag einstaklinga og heimila
og samfélagið þurfi að vera samstiga
vegna kórónuveirukreppunnar.
Varaforsetum ASÍ var fjölgað úr
einum í tvo á þingi sambandsins árið
2014. Í dag er Kristján Þórður Snæ-
bjarnarson, formaður Rafiðnaðar-
sambandsins, 1. varaforseti ASÍ og
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður
Eflingar, 2. varaforseti en hún tók
við þegar Vilhjálmur Birgisson, for-
maður Verkalýðsfélags Akraness,
sagði af sér sem varaforseti sl. vor.
Framboðsfrestur er ekki liðinn en
flestir virðast skv. heimildum blaðs-
ins vera þeirrar skoðunar að Sólveig
og Kristján muni gefa kost á sér
áfram sem varaforsetar auk Ragn-
ars Þórs. Markmiðið með fjölgun
varaforseta er að stærstu sambönd
og fylkingar eigi fulltrúa í æðstu for-
ystu sambandsins.
Ragnar Þór býður sig
fram til varaforseta ASÍ
Miðstjórn leggur til að varaforsetum verði fjölgað í þrjá
Ragnar Þór
Ingólfsson
D-vítamínbætt mjólk
– eins og hollur sólargeisli
Í nýjum þætti frá útgerðarfyrirtæk-
inu Samherja er fjallað sérstaklega
um hegðun Jóhannesar Stefánsson-
ar á síðustu mánuðum hans í starfi
fyrir fyrirtækið. Morgunblaðið hef-
ur þáttinn undir höndum og í honum
er fullyrt að Jóhannes, sem síðar
ljóstraði upp um meintar mútu-
greiðslur Samherja til namibískra
stjórnmálamanna, hafi árið 2016
verið farinn að leggja á ráðin um að
fara á bak við Samherja og hefja
rekstur í Namibíu með öðru útgerð-
arfyrirtæki og „nýta sér þau við-
skiptasambönd sem félög tengd
Samherja höfðu byggt upp í land-
inu“.
Samherji hefur afhent embætti
héraðssaksóknara allar dagbækur
Jóhannesar sem hann hélt á meðan
hann stýrði félögum Samherja í
Namibíu. Að sögn fyrirtækisins gef-
ur ekkert í þess-
um dagbókar-
skrifum til kynna
að Jóhannes hafi
fengið fyrirmæli
um mútu-
greiðslur eða
aðra óeðlilega
viðskiptahætti
frá Íslandi. Þess-
ar dagbækur
fundust á drifi
sem fannst við starfslok Jóhannesar
árið 2016.
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, segir í þættinum að
Jóhannes haldi því fram að hann
hafi fengið fyrirmæli um ólöglegar
greiðslur í gegnum aðrar leiðir en
tölvupóst þar sem hann hafi ekki
tölvupósta máli sínu til stuðnings.
Þorsteinn segir það þó rangt að
hann hafi nokkru sinni gefið slík fyr-
irmæli. Mistök Samherja felist hins
vegar í að að hafa ekki haft betra
eftirlit með rekstrinum í Namibíu.
„Við ákváðum það um mitt ár
2016 að segja Jóhannesi Stefánssyni
upp störfum vegna þess að við töld-
um ljóst að hann hefði farið á bak
við okkur. Þegar við fórum að skoða
reksturinn kom í ljós að það var
regla í kringum rekstur skipanna,
þ.e. úti á sjó, en því miður var mikil
óregla á starfseminni í landi og því
utanumhaldi sem Jóhannes Stefáns-
son bar ábyrgð á,“ segir Þorsteinn
jafnframt í þættinum.
Ásakanir Jóhannesar á hendur
fyrirtækjum, sem komu fram í þætti
Kveiks í október 2019, eru til rann-
sóknar hjá yfirvöldum í Namibíu og
á Íslandi, en ekki hefur verið höfðað
mál á hendur félaginu.
Mistök að hafa ekki haft betra eftirlit
Samherji birtir tölvupósta þar sem fram koma áform Jóhannesar Stefánssonar uppljóstrara um að
hefja eigin starfsemi í Namibíu Þorsteinn Már neitar að hafa gefið fyrirmæli um ólöglegar greiðslur
Ljósmynd/Skjáskot
Samherji Þorsteinn segir ekkert liggja fyrir sem sýni að hann hafi gefið
fyrirmæli um ólöglegar fyrirgreiðslur, eins og Jóhannes heldur fram.
Jóhannes
Stefánsson