Morgunblaðið - 17.10.2020, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Útlendingastofnun bárust 80 nýjar
umsóknir um alþjóðlega vernd hér á
landi í september síðastliðnum. Alls
eru þær orðnar 514 fyrstu níu mán-
uði ársins. Það sem af er bárust flest-
ar umsóknir í júlí þegar þær voru
107 talsins.
Af umsóknum í september voru 35
frá umsækjendum frá Palestínu og
voru þær þá orðnar alls 76 á árinu.
Næstflestar voru frá Írökum eða
tólf, en alls hafa borist 79 umsóknir
frá ársbyrjun frá fólki frá Írak.
Fyrstu þrjá mánuði ársins voru
langflestar umsóknir frá Venesúela-
búum en mjög dró úr þeim í sumar.
Þær voru sex í september og voru
orðnar alls 102 alls á þessu ári í lok
mánaðarins.
Útlendingastofnun veitti sex um-
sækjendum vernd í september, 26
fengu viðbótarvernd og fimm mann-
úðarleyfi. Kærunefnd útlendinga-
mála veitti auk þess tveimur vernd í
mánuðinum og sjö mannúðarleyfi.
Tveimur aðstandendum flóttamanna
var veitt vernd sem gerir samtals 48
leyfisveitingar í september sl. Oftast
er um að ræða maka eða börn.
Á heimasíðu Útlendingastofnunar
(utl.is) kemur fram að samkvæmt
lögum um útlendinga eigi sá sem
sætir ofsóknum í heimalandi sínu
vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóð-
ernis, aðildar að tilteknum þjóðfélags-
hópi eða vegna stjórnmálaskoðana
rétt á alþjóðlegri vernd sem flótta-
maður hér landi.
Í viðbótarvernd felst að „sá sem á á
hættu dauðarefsingu, pyndingar eða
ómannúðlega eða vanvirðandi með-
ferð eða refsingu eða að verða fyrir al-
varlegum skaða af völdum árása í
vopnuðum átökum þar sem ekki er
greint milli hernaðarlegra og borg-
aralegra skotmarka verði hann send-
ur aftur til heimalands síns, án þess
þó að sæta eða eiga á hættu ofsóknir
af einhverri af fyrrgreindum ástæð-
um, hefur rétt til alþjóðlegrar vernd-
ar sem flóttamaður“.
80 umsóknir um vernd í september
Flestir umsækjenda í september komu frá Palestínu Það sem af er ári hafa flestar umsóknir komið
frá fólki frá Venesúela Alls var 46 umsækjendum og tveimur aðstandendum veitt leyfi í september
Umsóknir um vernd í september 2020
H
ei
m
ild
: Ú
tle
nd
in
ga
st
of
nu
n
80
nýjar umsóknir
bárust
Jan.-sept.:
514 alls
37
var veitt vernd
í mánuðinum
Jan.-sept.:
405 alls
57
umsóknir voru
afgreiddar
Jan.-sept.:
658 alls
278
umsóknir voru
óafgreiddar í lok
mánaðarins
5
fl utningar voru
í september
Jan.-sept.:
64 alls
UMSÓKN
Borgarráð hefur heimilað umhverf-
is- og skipulagssviði að bjóða út
framkvæmdir við stígagerð við
Rauðavatn. Þetta svæði hefur notið
vaxandi vinsælda útivistarfólks.
Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 140
milljónir króna.
Samkvæmt kynningu skrifstofu
framkvæmda og viðhalds felst verk-
ið í því að gera nýja göngu- og hjóla-
stíga ásamt færslu reiðstíga sunnan
og austan við Rauðavatn. Stígarnir
verða upplýstir með snjalllýsingar-
búnaði með tilliti til orkusparnaðar
og öryggis. Stígagerðin er í sam-
ræmi við samþykkt deiliskipulag af
svæðinu. Verkið er hluti af áætlun
um að flýta fjárfestingarverkefnum
Reykjavíkurborgar með það að
markmiði að veita viðspyrnu við at-
vinnuleysi af völdum Covid-19.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist
í nóvember næstkomandi og ljúki í
desember 2020. sisi@mbl.is
Bjóða út stígagerð
við Rauðavatn
Reykjavíkurborg veitir viðspyrnu
við atvinnuleysi af völdum Covid-19
Nýir stígar
við Rauðavatn
Loftmyndir ehf.
Nýr göngu- og hjólastígur
Færsla reiðstígs
Rauðavatn
Vesturlands-
vegur
Frystitogarinn Hrafn Sveinbjarn-
arson GK klauf ölduna glæsilega á
útleiðinni frá Grindavík í fyrradag.
Í áhöfn skipsins eru 52 menn og
skiptast þeir á um að vera um borð,
26 í hverjum túr sem tekur þrjár til
fjórar vikur.
Eiríkur Dagbjartsson, útgerð-
arstjóri togara hjá Þorbirni hf. í
Grindavík, sem gerir skipið út,
sagði að áhöfnin hefði farið í kór-
ónuveirupróf áður en lagt var úr
höfn og sem betur fer allir reynst
neikvæðir. Það er orðin regla að
senda áhafnirnar í slíkar prufur.
Hrafn var við veiðar á Vest-
fjarðamiðum í gær ásamt fleiri tog-
urum. Togararnir fara oft hringinn
í kringum landið í túrunum, allt eft-
ir veðri og aflabrögðum. Eiríkur
sagði að þorskurinn væri þeirra
mikilvægasta tegund en einnig
veiða þeir annan bolfisk eins og
ufsa, ýsu, karfa og djúpkarfa auk
grálúðu og gulllax. gudni@mbl.is
Allir
neikvæðir
um borð!
Ljósmynd/Eyjólfur Vilbergsson
Pantið tíma í einkaskoðun
í síma 898-9396
eða á hakon@valfell.is
Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími 570 4824
hakon@valfell.is | valfell.is
STILLHOLT 21 - AKRANESI
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar
og seljast fullbúnar án gólfefna nema
forstofa, þvottahús og baðherbergi
flísalagt. Öllum íbúðum fylgir kæliskápur
og uppþvottavél í eldhúsinnréttingu.
Sýningaríbúð á 1. hæð.
Aðeins
örfáar íbúðir
eftir