Morgunblaðið - 17.10.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020
Opinberir arðsemisútreikn-ingar eru gjarnan meðal
mestu meistaraverka skáldskap-
argyðjunnar. Ósjaldan hafa rán-
dýr og vitlaus verkefni verið rétt-
lætt með slíkum útreikningum og
ættu skattgreið-
endur jafnan að
hafa varann á þeg-
ar þeir eru á borð
bornir. Tilgangur
slíkra útreikninga
virðist iðulega vera
sá að réttlæta
óréttlætanleg
verkefni og setja
þau í „faglegan“ búning með því
að fá sérfræðinga til að reikna
sig niður á mikla arðsemi út frá
fjarstæðukenndum forsendum. Út
af fyrir sig standast útreikning-
arnir yfirleitt, en þegar forsend-
urnar ganga ekki upp hefur það
enga þýðingu.
Þórarinn Hjaltason umferð-arverkfræðingur fjallar um
nýbirta skýrslu um arðsemisút-
reikninga fyrsta áfanga borg-
arlínu og bendir á ýmislegt hæp-
ið. Hann nefnir meðal annars að
markmið um að auka hlutdeild
ferða með strætó úr 4% í 12%
hafi áður átt að gerast „á 25 ár-
um, þ.e. 2015-2040. Núna á þetta
að gerast á næstu 10 árum! Þetta
hlýtur að vera prentvilla.“
Samkvæmt skýrslunni á arð-semi fyrsta áfanga borgarlín-
unnar að vera 7%, eða 26 millj-
arða ábati, sem gæfi óvænt
tækifæri til að vinna efnahag
landsins upp úr kórónukreppunni
ef satt væri.
Eins og Þórarinn bendir á skil-ar borgarlínan nær engu í
minni bílaumferð, jafnvel þótt
miðað sé við forsendur verkefn-
isins sjálfs. Borgarlínan er dæmd
til að mistakast og ævintýralegir
arðsemisútreikningar breyta
engu þar um.
Þórarinn
Hjaltason
Talnaleikir
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þing-
flokksformaður Vinstri-grænna, hef-
ur lagt fram þingsályktunartillögu
um afnám 70 ára aldurstakmörkunar
til opinberra starfa.
Meðflutningsmenn eru úr sex
flokkum, öllum nema Miðflokki og
Viðreisn. Tillagan gengur út á að fela
fjármála- og efnahagsráðherra í sam-
ráði við félags- og barnamálaráðherra
að hefja viðræður við samtök op-
inberra starfsmanna um afnám þeirra
ákvæða úr lögum sem takmarka starf
opinberra starfsmanna við 70 ára ald-
ur.
Í lögum um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 er
kveðið á um að opinberir starfsmenn
skuli láta af störfum við 70 ára aldur
þ.e. að embættismanni skuli veita
lausn frá og með næstu mánaða-
mótum eftir að hann nær 70 ára aldri.
Tillagan var lögð fram í fyrsta
skipti á síðasta þingi en hlaut ekki
brautargengi og er því nú endurflutt.
Þá bárust umsagnir frá BSRB og
Landssambandi eldri borgara. BSBR
fögnuðu tillögunni auk þess sem sam-
tökin lýstu sig reiðubúin til þess að
taka þátt í vinnu sem í henni fælist.
Landssamband eldri borgara tók
undir tillöguna og ítrekaði nauðsyn
endurskoðunar starfsloka vegna ald-
urs m.a. í ljósi þess að lífaldur hefði
hækkað til muna síðastliðna áratugi.
Þá telja eldri borgarar 70 ára regluna
bæði úrelta og í ósamræmi við mann-
réttindi. Bjarkey segist vongóð um að
tillagan nái fram að ganga í þetta
skiptið, enda sé tillagan mikið jafn-
réttismál. karitas@mbl.is
Leggja til afnám
70 ára reglunnar
BSRB og eldri
borgarar fagna
tillögunni
Morgunblaðið/Eggert
Ríkisstarfsmenn Frá baráttufundi
BSRB og BHM í Háskólabíói.
„Það eru allir búnir að fá endurgreitt
og að ég held alsælir,“ segir Elísabet
Agnarsdóttir, einn eigenda ferða-
skrifstofunnar Tripical.
Morgunblaðið greindi frá því í gær
að kærunefnd vöru- og þjónustu-
kaupa hefði úrskurðað að ferðaskrif-
stofan þyrfti að endurgreiða að fullu
útskriftarferð nemanda við Borgar-
holtsskóla til Krítar en nemandinn
sendi kæru vegna málsins til nefnd-
arinnar. Elísabet
segir að fréttin
hafi komið sér
spánskt fyrir
sjónir enda sé
málið fyrir
nokkru afgreitt.
„Þegar ég fæ bréf
frá þessari nefnd
er hann löngu bú-
inn að fá endur-
greitt,“ segir hún. Jafnframt segir
Elísabet að allir útskriftarnemar og
aðrir sem áttu bókað hjá ferðaskrif-
stofunni, fyrir utan örfáa sem hafi
gefið upp rangar bankaupplýsingar,
hafi fengið endurgreitt, alls 8-900
manns.
Kórónuveiran og ferðatakmark-
anir af hennar völdum hafa leikið
ferðaskrifstofur grátt. Elísabet segir
að Tripical hafi verið vel tryggt og
getað sótt lán í ferðaábyrgðarsjóð
stjórnvalda. Þótt hart sé í ári ætli
fyrirtækið sér að verða til taks þegar
rofar til í samfélaginu.
„Þegar blessuð kórónan fer, já.
Við erum þegar farin að finna fyrir
eftirspurn vegna útskriftarferða á
næsta ári, jafnvel frá hópunum sem
ætluðu að fara í ár. Það verður
kannski bara tvöfalt stuð á næsta
ári.“ hdm@mbl.is
Hafa endurgreitt hátt í 900 manns
Ferðaskrifstofan Tripical kveðst hafa endurgreitt allar útskriftarferðir í ár
Elísabet
Agnarsdóttir