Morgunblaðið - 17.10.2020, Page 11
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sú lausn á tengingu Arnarnesveg-
ar við Breiðholtsbraut sem Vega-
gerðin telur að sátt sé um að
vinna áfram kemur fulltrúa í
skipulagsráði Kópavogs á óvart.
Virðist vera ágreiningur um málið,
bæði í Kópavogi og Reykjavík. Til-
lagan felur í sér að fallið verði frá
fullbúnum mislægum gatnamótum
og í staðinn verði ljósastýrð vega-
mót.
Tveir áfangar Arnarnesvegar,
sem tengja á Kópavog og byggð-
irnar þar fyrir sunnan við Breið-
holtsbraut til móts við Fellahverfi
í Breiðholti, hafa verið lagðir og
nær vegurinn nú frá Reykjanes-
braut að Rjúpnavegi.
Tenging talin öryggisatriði
Þrýst hefur verið á um að verk-
inu verði lokið með lagningu vegar
frá Rjúpnavegi að Breiðholts-
braut, 1,3 km leið, meðal annars af
öryggisástæðum. Slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins hefur lagt
áherslu á mikilvægi vegarins fyrir
neyðarakstur og lengi hefur verið
áhugi í Kópavogi á þessari teng-
ingu.
Lúkning Arnarnesvegar rataði
inn í samkomulag ríkisins og
sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu um skipulag og fjármögn-
un uppbyggingar í samgöngu-
málum og er eitt af forgangs-
málunum á verkefnalista.
Upphaflega var miðað við full
mislæg gatnamót við Breiðholts-
braut og féllst Skipulagsstofnun á
niðurstöður umhverfismats með
því fyrirkomulagi. Reykjavíkur-
borg tók hins vegar mislæg gatna-
mót út af aðalskipulagi sínu.
Unnið með báðum aðilum
Í tilkynningu Vegagerðarinnar
um breytta útfærslu á gatnamót-
unum kemur fram að unnið hafi
verið náið með sveitarfélögunum
Kópavogi og Reykjavík við undir-
búning vegarins. Hæðarmunur á
milli Breiðholtsbrautar og aðliggj-
andi umhverfis takmarki hvaða
lausnir komi til greina. Eitt af því
sem leggja ber áherslu á við út-
færslu framkvæmdarinnar er að
hún samræmist eins og kostur er
áætlunum beggja sveitarfélaga.
Umrædd tillaga felst í hring-
torgi við Vatnsendahvarf, einni
brú yfir Breiðholtsbraut fyrir ak-
reinar og stíga og umferðarljósum
á tengingu við Breiðholtsbraut.
Undirbúningur málsins og til-
lagan var kynnt á fundi skipulags-
og samgönguráðs Reykjavíkur.
Þar létu fulltrúar þriggja af fjór-
um flokkum meirihlutans, Sam-
fylkingar, Viðreisnar og Pírata,
bóka að tryggja þyrfti góðar teng-
ingar fyrir gangandi og hjólandi
milli sveitarfélaga, yfir áætlaðan
Arnarnesveg. Samfelldur stígur
þyrfti að liggja norðan og sunnan
við veginn alla leið. Eins þyrfti
viðbótarþverun á miðri leið, t.d.
undirgöng sem fólk og dýr gætu
nýtt.
Verri kostur
Júlíus Hafstein, fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í skipulagsráði
Kópavogs, segir að þessi nýja til-
laga komi á óvart. Fyrir hafi legið
þrjár tillögur. Hann segist ekki
skilja af hverju Reykjavíkurborg
vilji ekki breyta aðalskipulagi sínu
svo hægt sé að koma þarna upp
mislægum gatnamótum, eins og
gert hafi verið ráð fyrir. Telur
hann að sú tillaga sem nú liggur
fyrir sé verri kostur og hægi veru-
lega á umferðinni.
Tekur Júlíus fram að eftir sé að
leggja þessa nýju tillögu fram í
skipulagsráði Kópavogs og vænt-
anlega einnig umhverfis- og sam-
göngunefnd. Þá segir hann nauð-
synlegt að fá upplýsingar frá
fagfólki um getu þessa mannvirkis
til að taka við umferð.
Stefnt að útboði á næsta ári
Vegagerðin hyggst senda Skipu-
lagsstofnun fyrirspurn um mats-
skyldu þrátt fyrir að framkvæmd-
in sé augljóslega umfangsminni en
fyrri áform sem fengu blessun
stofnunarinnar. Þá er stefnt að út-
boði á for- og verkhönnun á næst-
unni og útboði framkvæmdarinnar
sjálfrar á næsta ári.
Ágreiningur um breyt-
ingu á gatnamótum
Vegagerðin vinnur að útfærslu gatnamóta Arnarnesvegar
Morgunblaðið/Eggert
Arnarnesvegur Tveir fyrri áfangar vegarins sem lagðir hafa verið á síðustu
árum nýtast ekki til fulls fyrr en lokaáfanginn verður tekinn í notkun.
Breiðholtsbraut
Ar
na
rn
es
ve
gu
r
Loftmyndir ehf.
Tillaga að útfærslu
vegamóta Arnarnesvegar
og Breiðholtsbrautar
Hvörf
Kórar
Salir
Seljahverfi
Vatnsenda-
hæð
KÓPAVOGUR
KÓPAVOGUR
REYKJAVÍK
Fell
V
atn
sen
d
aveg
u
r
Breiðholtsbraut
Ar
na
rne
sve
gu
r
Mislæg gatnamót
Vegagerðin lagði upp-
hafl ega til að full mislæg
gatnamót yrðu gerð
Fyrri tillaga
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgdu okkur á facebook
SKOÐIÐ
NETVERS
LUN
LAXDAL.
IS
NÝTT
VANDAÐUR
VETRAR-
FATNAÐUR
FRÁ
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Skoðið // www.hjahrafnhildi.is
SKOÐIÐ
hjahrafnhildi.is
Haustsprengja
30% afsláttur
af völdum vörum
Ten Points
27.990 kr.
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
HrafnhildurBjörkBaldursdóttir
Löggiltur fasteignasali
Sími 862 1110
hrafnhildur@eignamidlun.is
BRÁVALLAGATA12
121,1m2
101 REYKJAVÍK
59.000.000 kr.
LAUS TIL AFHENDINGAR! Sígild 5 herbergja íbúð á fyrstu hæð í góðu húsi við Brávallagötu
12. Tvær stofur og tvö svefnherbergi innan íbúðar og stórt herbergi í kjallara, sem gæti nýst
sem skrifstofa/vinnuaðstaða. Svalir út frá annarri stofunni. Sérgeymsla í kjallara og önnur
minni utan við húsið. Sameiginlegt þvottahús.
OPIÐ HÚS sunnudaginn18.októberkl.16:00-16:30
SALA FASTEIGNASÍÐAN 1957 GRENSÁSVEGUR 11 SÍMI 588 9090 WWW.EIGNAMIDLUN.IS