Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020
HAUSTIÐ ER OKKAR TÍMI
VIÐ VORUM AÐ FÁ NÝJAR HLÝJAR YFIRHAFNIR
Verslun | Snorrabraut 56, 105 Reykjavík | Feldur. is
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
H
ann Kjarval er alveg
magnaður máfur.
Mér finnst svo krútt-
legt að sjá hann
þarna uppi utan við
gluggann þar sem hann lætur vita af
sér með kröftugu banki sínu,“ segir
Lovísa Bryngeirsdóttir, starfsmaður
veitingastaðarins Klambra bistró á
Kjarvalsstöðum, og á hún þar við
risastóran sílamáf sem gengur undir
nafninu Kjarval máfur meðal starfs-
fólks hússins. Þessi fiðraði Kjarval
hefur gert sig heimakominn á Kjar-
valsstöðum undanfarin ár og minnir
reglulega á sig með því að banka
mjög svo ákveðinn með goggi sínum
á stóra þakglugga sem eru í mið-
álmu hússins, einmitt þar sem veit-
ingastaðurinn er. Þeir sem hafa unn-
ið lengi á Kjarvalsstöðum segja að
Kjarval máfur hafi ætíð látið eins og
hann eigi húsið, en í seinni tíð sé
hann þó minna ágengur, enda farinn
að eldast. Marentza Poulsen tók við
rekstri kaffihússins fyrir fimm árum
og hún segir að sér hafi fyrst fundist
hljóðin í máfinum svolítið draugaleg.
„Mér stóð ekki alveg á sama,
bankið hans bergmálaði hér um allt
hús, en ég er orðin vön þessu núna.“
Lovísa bætir því við að Kjarval máf-
ur og félagar hans viti alveg hvað
klukkan slær.
„Ef gestir veitingahússins sitja
úti í porti mæta þeir máfarnir alltaf
á svæðið þegar klukkuna vantar
fimm mínútur í fimm, rétt áður en
við lokum. Þeir hinkra kurteisir eftir
að fólkið fari og hreinsa svo upp allt
sem fallið hefur ætilegt af borðum
gesta.“
Fjölskylduvænn staður
Marentza segist kunna því afar
vel að reka veitingastað á Kjarvals-
stöðum, sem hún segir vera einn af
uppáhaldsstöðum sínum í borginni.
„Þetta er svo fallegt hús sem
mér er annt um, ég hef komið hingað
reglulega á sýningar alveg frá því
það var opnað árið 1973. Hannes Kr.
Davíðsson teiknaði húsið og þetta er
svakalega flottur arkitektúr sem við
njótum hér, mér finnst forréttindi að
fá að reka veitingastað í þessu fal-
lega húsi,“ segir Marentza og bætir
við að hún hafi horft til gamla bæj-
arins Klambra sem stóð þarna forð-
um, þegar hún gaf veitingastaðnum
nafnið Klambrar bistró.
„Við létum taka kaffihúsið í
gegn fyrir tveimur árum og Hanna
Stína innanhússarkitekt hannaði
þetta með okkur, hún fann þessi fal-
legu ljós sem eru hönnuð á sama
tíma og húsið, þannig að þetta tali
allt saman. Leirtauið og húsgögnin,
þetta er allt norrænt. Staðurinn hef-
ur tekið stakkaskiptum, hér var
venjuleg kaffitería en ég breytti
þessu í veitingastað, eða það sem við
köllum bistró. Stefnan hjá okkur í
matargerðinni er þessi norræna
stefna; heimabakaðar kökur, gott
kaffi og góður matseðill. Ég er svo
heppin að vera með æðislegan yfir-
kokk, hana Helgu Gabríelu,“ segir
Marentza og bætir við að einn af
kostum Kjarvalsstaða sé hversu fjöl-
skylduvænn staðurinn er.
„Hér er barnasmiðja þar sem
börnin geta leikið sér og á sumrin
kann fólk því vel að sitja hér úti þar
sem börn geta hlaupið frjáls um tún-
ið, en við opnum út mót suðri og sól
og stækkum staðinn á sumrin.“
Kjarval máfur er ekki eini
fastagesturinn hjá okkur
Lovísa segir að konur séu mjög
duglegar að koma á Kjarvalsstaði og
það skapi skemmtilega kvenna-
stemningu.
„Við erum með kvennahópa
sem hittast reglulega hér og skoða
sýningar og koma á veitingastaðinn í
leiðinni.“ Marentz bætir við að hún
sé ánægð með að konur kunni að
gera vel við sig hversdags og fá sér
stundum búbblur og léttvín.
„Kjarval máfur er ekki eini
fastagesturinn okkar,“ segir Lovísa
og hlær, „við erum með marga aðra
fastagesti, meðal annars fólk sem
býr hér í göngufæri. Þetta er þeirra
hverfiskaffihús og margir borða hér
tvisvar til þrisvar í viku. Sumir koma
með fjölskylduna í bröns til okkar
hverja einustu helgi. Við erum líka
með flotta karlahópa sem hittast hér
reglulega, hópur karla sem starfa
sem ljósmyndarar kemur í morgun-
kaffi flesta daga og sundkarlarnir
okkar koma alltaf á laugardags-
morgnum. Mér finnst gaman að fá
fasta hópa, því þá kynnist maður
fólkinu og getur spjallað,“ segir
Lovísa og Marentza bætir við að
þær séu þakklátar og glaðar yfir því
hversu staðurinn sé vel sóttur.
„Fólk spyr mikið hvort sé opið
hjá okkur núna í Covid, en við erum
bundin af lokun safnsins. Okkur
finnst grátlegt að hafa þurft að loka,
en við ætlum okkur að koma fílefld
til baka og vonandi getum við opnað
sem fyrst. Þegar við þurftum að loka
í apríl, þá var svo gaman að opna aft-
ur, við vorum í stuði og kokkarnir
búnir að undirbúa sig. Við ætlum að
gera það sama núna; við ætlum að
koma inn með matseðil sem tengist
árstíðinni og við erum að undirbúa
jólin. Við ætlum að vera með jóla-
platta og síldina sem ég legg í sjálf,
þetta heimagerða sem tilheyrir að-
ventunni og jólunum. Hér verður
notaleg aðventustemning, ef Guð
lofar,“ segir Marentza og bætir við
að síðasta fimmtudag í hverjum
mánuði sé opið hjá þeim til tíu á
kvöldin.
Kjarval máfur bankar af ákefð
Á Kjarvalsstöðum hefur máfur einn gert sig mjög svo
heimakominn undanfarin ár. Hann gengur undir
nafninu Kjarval máfur og bankar reglulega með
goggi sínum í þakglugga svo bergmálar í öllu húsinu.
Marentzu Poulsen, sem rekur veitingastaðinn í hús-
inu, fannst bankið hans fyrst svolítið drauglegt en
hún hefur vanist heimsóknum þessa fiðraða félaga.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vert Marentza og Lovísa á veitingastaðnum Klömbrum bistró sem er í miðálmu Kjarvalsstaða. Ofan við þær er
glugginn þar sem Kjarval máfur mætir reglulega og bankar svo fast að ekki fer fram hjá neinum.
Ljósmynd/Erik Hirt
Ákveðinn Kjarval máfur bankar hér mjög ákveðinn í þakgluggann.
Nú þegar allir eru innilokaðir vegna
veirunnar vondu er um að gera að
nýta tímann til góðra verka. Margir
eru á fullu í framkvæmdum heima hjá
sér, leggja loksins í eitthvað sem
lengi hefur beðið. Aðrir byrja á ein-
hverju nýju, læra að hekla, mála eða
spila á hljóðfæri, möguleikarnir eru
óþrjótandi og hægt að finna leiðbein-
ingar á hinu stórfenglega neti. Fyrir
bókelska er þetta sannarlega tíminn
til að vinna upp lestur á bókalist-
anum, nú eða hlusta á bækur, því þá
er hægt að gera eitthvað á meðan. Að
hlusta á góðan lesara fara með texta
góðrar bókar er mikil gæðastund og
óhætt að mæla með. Þeir sem eiga
kort hjá Borgarbókasafninu geta sótt
sér bækur á rafbókasafninu þar á
slóðinni rafbokasafnid.is. Þetta safn
geymir mikið magn raf- og hljóðbóka
„þar sem finna má glæpi, ástir, ævin-
týri, ævisögur, uppskriftir og inn-
hverfa íhugun“, eins og segir á vef
safnsins. Hægt er að lesa rafbækur
eða hlusta á hljóðbækur á vefnum
eða í Libby-appinu sem hlaða má nið-
ur í öll helstu snjalltæki. Nú er sann-
arlega lag að gleypa í sig bækur og
njóta menningar!
Nóg er til af rafbókum og hljóðbókum á Borgarbókasafninu
Nú er lag að njóta hljóðbóka
Ljósmynd/Af vef Storytel.com
Notalegt Hljóðbókarhlustun er fín.