Morgunblaðið - 17.10.2020, Síða 18
ÚR BÆJARLÍFINU
Jón Sigurðsson
Blönduósi
Í gær kviknaði vetrartungl í vestri.
Þetta er skýr vísbending um að
haustið er á síðustu metrunum og
veturinn er rétt handan við hornið.
Þegar litið er yfir farinn veg kemur
ýmislegt í ljós og þegar menn spá í
framtíðina þá er ekkert svar betra en
„það kemur í ljós“. „Það kemur í
ljós,“ er að mínu mati setning ársins
og á alveg eins við hér við botn Húna-
fjarðar sem og annars staðar.
Það kom til dæmis í ljós að veið-
in í Blöndu var með allra daprasta
móti í sumar. Hér á árum áður veidd-
ust að að meðaltali 1.100 laxar og
mest rétt um 2.000 laxar á fjórar
stangir. En í sumar voru taldir 475
laxar upp úr ánni á 14 stangir. Eitt-
hvað hefur gerst en hvað, það kemur
ef til vill í ljós.
Kirkjugarðinum á Blönduósi
hefur verið sýndur margvíslegur
sómi hin síðustu ár. Nú í haust eru
menn að leggja síðustu hönd á bygg-
ingu geymsluskúrs í garðinum. Áður
höfðu stígar og útveggir garðsins
verið endurbættir og sett upp upp-
lýsingaskilti. Gaman er að geta þess
að þessi uppbygging hefur verið unn-
in töluvert í sjálfboðavinnu og til að
mynda var afrakstur á einu af hinum
margrómuðu kótilettukvöldum á
Blönduósi notaður til að kaupa allt
efni í geymsluskúrinn. Og svo því sé
til haga haldið þá er forsvarsmaður
kótelettukvöldanna Valdimar Guð-
mannsson, sami maðurinn og stýrir
kirkjugarðsráðinu.
Gamla brúin á Blöndu sem var
vígð árið 1897 og flutt árið 1962 fram
í Svartárdal til þessa að tengja Stein-
árbæi við þjóðvegakerfið kom árið
2001 aftur á Blönduós. Þessi elsta
brú landsins var hætt að gegna hlut-
verki sínu fyrir Steinárbændur því
samgöngutæki nútímans eru orðin
breiðari en þessi trausta og forn-
fræga brú. Nú hefur verið ákveðið að
setja brúna í það verkefni að tengja
náttúruparadísina Hrútey við fasta-
landið. Framkvæmdir eru hafnar af
fullum þunga og stefnt að því að
gamla Blöndubrúin verði komin á
sinn stað áður en mjög langt um líð-
ur.
Ekki er langt síðan byggingu
fimm leiguíbúða var lokið á Sunnu-
brautinni. Núna er hafin bygging á
fimm til viðbótar. Þetta segir aðeins
eitt að samfélagið hér stendur föstum
fótum og sækir fram ef eitthvað er.
Fyrst hér eru nefndar framkvæmdir
þá er rétt að segja frá því að að bygg-
ing verknámshúss við grunnskólann
er langt kominn og langþráður frá-
gangur skólalóðar í augsýn. Breyt-
ingar á gömlu byggingavöruverslun
kaupfélagsins eru á lokametrunum
og munu Hárgreiðslustofa Bryndísar
og Vínbúðin væntanlega flytja í hið
breytta húsnæði í mánaðarlok.
Húnakaffi, sem reyndar er bakarí,
hefur komið sér fyrir á þessu svæði
og hafið starfsemi. Með þessum
breytingum tengist þessi starfsemi
við Kjörbúðina svo hér má segja að
fyrsta „Mollið“ sé risið á Blönduósi.
Eins og einhverjir vita þá gistir
Blönduósbæ töluverður fjöldi grá-
gæsa frá apríl fram í september.
Koma upp ungum og sjá um áburð á
ákjósanlega staði sem og óákjós-
anlega. Um nokkurra ára skeið hefur
verið fylgst grannt með þessum gæs-
um, GPS sendi komið fyrir á 1-3 gæs-
um árlega svo hægt sé að fylgjast
með ferðum þeirra. Í sumar voru
sendar settir á tvær gæsir og hafa
þær skráð ferðir sínar samvisku-
samlega í sumar og haust. Upp úr
mánaðarmótum ágúst september
hurfu þessar gæsir úr bænum og
voru fljótlega komnar í kornakra í
Skagafirði. Önnur gæsin tolldi ekki
lengi innan um skotglaða Skagfirð-
inga og kom sér yfir í Eyjafjörðinn
og dvelur nú rétt við flugvöllinn á Ak-
ureyri.
Af framsögðu má sjá að ásætt-
anlegur gangur er á lífinu við botn
Húnafjarðar, atvinnuleysið mælist í
kring um 3% og veðrið hefur leikið
við okkur undanfarna daga. Í stuttu
máli þá bera sig flestir vel.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Blönduós Haustið nagar hægt og bítandi laufin á trjánum og snjórinn búinn að koma sér fyrir efst í Langadalsfjalli.
Veturinn handan við hornið
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.innlifun.is
80% voru í sóttkví
Ranglega var sagt í fyrirsögn í
blaðinu í gær að 80% þeirra sem
greindust smitaðir af COVID-19 sl.
miðvikudag hefðu verið utan
sóttkvíar. Eins og stóð í fréttinni
sjálfri voru 80% smitaðra í sóttkví.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
LEIÐRÉTT
Allt um
sjávarútveg
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Seldar hafa verið 17 af 18 íbúðum í
fjölbýlishúsi fyrir fólk 55 og eldra
sem verið er að byggja á Húsavík.
Komið er kauptilboð í þá átjándu.
Fyrstu tíu íbúðirnar voru afhentar
með viðhöfn í fyrradag.
Naustalækur ehf., dótturfélag
Steinsteypis ehf., byggir húsið.
„Jón Helgi Gestsson hélt fund
með eldri íbúum fyrir fjórum árum
um byggingu íbúða fyrir aldraða.
Menn voru áhugasamir en enginn
tilbúinn að stíga skrefið. Ég kom
inn í þetta á árinu 2017 og við sem
eigum Steinsteypi ákváðum að taka
þá áhættu að byggja átján íbúða
fjölbýlishús fyrir 55 ára og eldri,“
segir Friðrik Sigurðsson, stjórnar-
formaður Steinsteypis. Það voru
einmitt Jón Helgi og kona hans,
Halldóra M. Harðardóttir, sem
fengu fyrstu íbúðina afhenta í
fyrradag.
Trésmiðjan Rein er aðalverktaki
við byggingu hússins. Tíu íbúðir
hafa verið afhentar og þær sem eft-
ir eru verða afhentar í desember.
Friðrik telur að allir sem gengið
hafa frá kaupum á íbúðum í fjöl-
býlishúsinu séu búnir að selja húsin
sín. Flestir hafi verið í stórum ein-
býlishúsum og þess vegna hafi fast-
eignamarkaðurinn á Húsavík verið
líflegur á síðustu mánuðum. Unga
fólkið hafi komist í stærri eignir.
Ekki arðvænlegt
Steinsteypir fór í þetta verkefni
til að afla verkefna þegar stórfram-
kvæmdum á Bakka og Þeistareykj-
um var að ljúka. Friðrik segir að
áhugavert væri að byggja fleiri
íbúðir en tekur fram að enginn
verði ríkur á því að byggja hús á
þessu svæði í hagnaðarskyni.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Fyrst Halldóra M. Harðardóttir og Jón Helgi Gestsson tóku við lyklavöld-
unum úr hendi Hermanns Aðalgeirssonar, faseignasala hjá Lögeign.
Átján íbúðir fyrir
55+ á Húsavík
Allar íbúðirnar nema ein eru seldar
Eign Fjölbýlishúsið er í Útgarði 6 og er það sambyggt eldra fjölbýlishúsi. Í
húsinu eru átján íbúðir og bílageymsla fyrir sextán þeirra.