Morgunblaðið - 17.10.2020, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020
„Frjálst fólk velur sér störf og reynir að skapa
sér eigin hlutskipti í lífinu,“ segir Ágústa Rut
Haraldsdóttir, formaður nemendafélags
Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri, en
hún er frá Sauðafelli í Dölum.
„Auðvitað getum við sagt að búskapur sé
lífsstíll en slíkt gildir þá líka um margar aðrar
atvinnugreinar. Slíku fylgir auðvitað ekki að
fólk ætli að sætta sig við litlar tekjur eða geta
ekki lifað mannsæmandi lífi. Við viljum því að
landbúnaðarráðherra vinni í þágu bænda. Orð
hans á Alþingi í síðustu viku um að sauðfjár-
búskapur væri að nokkru lífsstíll ollu von-
brigðum.“
Ágústa Rut segir sóknarfæri íslensks land-
búnaðar vera mörg. Draga megi úr innflutn-
ingi afurða og auka innanlandsframleiðslu,
sérstaklega á grænmeti. Færst hafi í vöxt að
neytendur óski þess að þekkja uppruna mat-
væla sem þeir kaupa og vilji vita hver aðbún-
aður dýra hafi verið. Hagsmunir íslensks land-
búnaðar snúist bæði um aðstæður og kjör
bænda en líka fæðu- og matvælaöryggi þjóðar.
„Í matvælaframleiðslu Íslendinga eru
strangar reglur og háir staðlar hvað varðar
velferð dýra og lyfjanotkun. Hér er ágæt
vinnulöggjöf sem á að tryggja réttindi og kjör
starfsmanna í landbúnaðargreinum. Að ætla
sér að flytja inn matvæli, sem oft er erfitt að
upprunarekja og eru sjaldnast framleidd við
jafn háa staðla og á Íslandi, er óviðunandi.
Slíkt getur vakið siðferðisspurningar um
ábyrgð okkar sem þjóðar. Fjöldi ungs fólks
hefur áhuga á landbúnaði og vill mennta sig til
starfa þar. Því er sorglegt að viðbrögð stjórn-
valda séu þau að þessi atvinnugrein skipti ekki
miklu máli og ekki þurfi að tryggja réttmæt
kjör fólksins sem starfar við hana,“ segir
Ágústa Rut.
Ljósmynd/Aðsend
Landbúnaður Tryggja þarf kjör fólksins í
greininni, segir Ágústa Rut Haraldsdóttir.
Frjálst fólk
velur sér störf
„Þótt við fólkið í landinu reynum að vera
saman í stríðinu við Covid-19 erum við alls
ekki öll í því sama. Neikvæð áhrif sjúk-
dómsins eru mismunandi og tillitsleysi er
að segja alla á sama báti,“ segir Kristín
Linda Jónsdóttir sálfræðingur í Reykjavík.
Sjálf rekur hún stofuna Huglind en þangað
leita margir eftir aðstoð.
„Skerðing á daglegu lífi fólks og mögu-
leikum þess er afar mismunandi. Því er al-
veg svart og hvítt hvort áhrif Covid hafi
verið ótti og neyð vegna afkomu og at-
vinnumála eða alls engin. Sumir hafa misst
og syrgja, aðrir búa við skerta heilsu
vegna Covid en fæstir hafa orðið fyrir
heilsutjóni. Staðan er því afar misjöfn. Ég
get þó sagt að flestir finna fyrir auknum
áhyggjum, kvíða og depurð og það reynir
á í nánum samskiptum á heimilum. Hætta
á sárum og ósamkomulagi eykst ef grunn-
urinn er ekki heilbrigður og traustur. Við-
varandi ytri ógn vekur líka pælingar um
endurskoðun á eigin lífi. Þá eru fleiri en
venjulega að íhuga sambandsslit. Þá er
aukin hætta nú en áður á heimilisofbeldi
og ég hvet þá sem upplifa slíkt til að leita
sér hjálpar.“
Gott og heilbrigt dagskipulag er grunn-
ur lífsgæða. Fjölbreytileiki í viðfangs-
efnum og upplifun er áskorun á Covid-
tímum en mikilvægur, segir Kristín Linda.
„Verið skapandi og hangið ekki alltaf yfir
því sama. Það gefur stolt og styrk í sál að
klára stærri sýnileg verkefni sem hafa set-
ið á hakanum. Svo er valdeflandi að finna
eigin getu aukast til dæmis að læra
spænsku, á gítar, teikningu, smíði eða
prjón. Ef þú byrjar núna verður ný hæfni í
gullakistunni þinni á sumardaginn fyrsta.“
Morgunblaðið/Eggert
Sálfræði Ný hæfni í gullakistunni á sumardag-
inn fyrsta, segir Kristín Linda Jónsdóttir.
Gefur stolt
og styrk í sál
„Við köllum eftir því að skoðaðar verði rýmri
ráðstafanir í sóttvörnum hér nyrðra, því kór-
ónuveiran hefur alls ekki verið jafn skæð hér
og fyrir sunnan. Verið er að vinna reglur á
Norðurlöndunum þar sem skilgreind eru
ákveðin svæði til ferðalaga, án þess að svæðið
sé sett í hættu. Til þessa mætti horfa hér á
landi,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, fram-
kvæmdstjóri Markaðsstofu Norðurlands.
Haustið er tími markaðsstarfs í ferðaþjón-
ustu, sbr. kaupstefnur sem þá er efnt til. Nú
eru þessi mannamót haldin í hinni stafrænu
veröld og á þeim vettvangi er reynt að búa í
haginn og selja ferðir næsta sumars. „Núna
eru ferðaheildsalar og þau sem skipuleggja
ferðir að horfa til þess að bóluefni verði kom-
ið næsta vor og þá fari fólk aftur að ferðast.
Allt skipulag og starf varðandi erlenda mark-
aði miðast við þetta,“ segir Arnheiður.
Starfsemi ferðaþjónustufyrirtækja á Norð-
urlandi í sumar gekk þokkalega, enda voru
Íslendingar mikið á ferðinni. „Í raun var
þokkalegur gangur í þessu alveg þar til nú í
byrjun október að samkomutakmarkanir
voru settar að nýju. Þessar takmarkanir
munu væntanlega hafa áhrif í vetrarfríum
grunnskóla í Reykjavík, sem hefjast í næstu
viku. Því má gera ráð fyrir að töluvert færri
verði á ferðinni nú en áætlað var. Akureyri
heillar alltaf og er skemmilegur staður að
heimsækja. Það heyrum við oft og víða meðal
Íslendinga, ekki síst frá krökkunum, en það
er sérstaklega ánægjulegt í ár að sjá hvað Ís-
lendingarnir eru duglegir að ferðast um allt
og prófa nýjar slóðir. Við hlökkum til að taka
á móti ferðamönnum aftur við fyrsta tæki-
færi. Verðum tilbúin strax og ferðatakmörk-
unum verður aflétt að bjóða ferðamenn vel-
komna norður,“ segir Arnheiður.
Morgunblaðið/Eggert
Ferðaþjónusta Akureyri er skemmtilegt að
heimsækja, segir Arnheiður Jóhannsdóttir.
Skoða mætti
rýmri reglur
Allt helst í hendur og úr verður samfélag
Sjómenn draga björg í bú og ungt fólk fer í skóla til að afla sér menntunar, sem gefur góð laun. Sálarlífið þarf að
vera í lagi svo megi bregða sér í ferðalög sem skapa hagvöxt. Allt helst í hendur og úr verður samfélag. sbs@mbl.is
„Nánast allur línubátaflotinn er þessar vik-
urnar fyrir norðan landið og við á Sighvati GK
höfum alveg síðan í ágúst verið mikið talsvert
norður af Kolbeiney. Helst erum við að slægj-
ast eftir þorski og karfa og ufsinn er meðaafli.
Veiðin hefur verið alveg ágæt, þótt aðstæður
þarna í norðurhöfum séu um margt erfiðar.
Hafsbotninn er grýttur, þarna koma oft bræl-
ur og sjávarstraumar eru þungir,“ segir Óli
Björn Björgvinsson skipstjóri.
„Kolbeinseyjarmiðin sem við erum á eru um
80 mílur fyrir norðan landið og nú þegar komið
er langt fram í október er þar myrkur nánast
allan sólarhringinn. Þetta er því talsvert harð-
sótt. En mikil vinna skilar sér, því eftir hvern
vikutúr erum við stundum að koma í land með
110-120 tonn af fiski sem eru þá 350-360 kör.
Sú dagskrá er alveg föst að við á Sighvati lönd-
um á fimmtudögum og í allt haust hefur Siglu-
fjörður verið okkar heimahöfn ef svo mætti
segja. Aflanum er svo ekið beint suður í
vinnsluhús Vísis í Grindavík. Aðrir bátar fyrir-
tækisins hafa að undanförnu lagt aflann upp
meðal annars á Sauðárkróki og Djúpavogi.“
Sighvatur GK 57 er rúmlega fjörutíu ára
gamall bátur, sem var endursmíðaður og gerð-
ur sem nýr. Kom úr endurbótunum fyrir um
tveimur árum og síðan þá hefur verið sótt stíft
og vel veiðist.
„Reynslan er góð og báturinn fer vel með
mannskap, segir Óli Björn. „Kúnstin í sjósókn-
inni nú felst meðal annars í sterkum smitvörn-
um. Áður en farið var í þennan túr fórum við
sjö sem komum nýir um borð í áhafnaskiptum
allir í skimun á heilsugæslunni og reyndumst
góðu heilli vera neikvæðir fyrir Covid. Í land-
legum er svo brýnt fyrir mönnum að hitta fáa
sem enga, fara ekki í verslanir og láta göngu-
túra um götur Siglufjarðarbæjar duga.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sjósókn Þarna koma oft brælur og straumar
eru þungir, segir Óli Björn Björgvinsson.
Í myrkri við
Kolbeinsey
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
TAKE AWAY
25% afsláttur
af sérstökum Take Away matseðli ef sótt
Frí heimsending á pöntunum yfir 7.500 kr.
gildir ekki með öðrum tilboðum
www.matarkjallarinn.is