Morgunblaðið - 17.10.2020, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020
Grensásvegur 13 - 108 Reykjavík - Sími 570 4800 - gimli.is - gimli@gimli.is
Bárður
Sölustjóri
896 5221
Elín Urður
Lögg. fast.
690 2602
Elín Rósa
Lögg. fast.
773 7126
Lilja
Viðskiptafr. /
Lögg. fast.
820 6511
Kristján
Viðskiptafr. /
Lögg. fast.
691 4252
Halla
Viðskiptafr. /
Lögg. fast.
659 4044
Ólafur
Sölu- og
markaðsstjóri
690 0811
Ellert
Lögg. fast.
661 1121
Sigþór
Lögg. fast.
899 9787
Hafrún
Lögg. fast.
848 1489
Telma Sif
Lögfræðingur/
aðstoðarm. fast.
773 7223
Fjöldi manns kom saman framan við skrifstofur hérðaðsþings
Katalóníu í Barcelona á Spáni í gær til að mótmæla nýjum
sóttvarnaaðgerðum sem taka gildi um helgina og ætlað er að
stemma stigu við vaxandi útbreiðslu kórónuveirunnar í hér-
aðinu. Verða barir og veitingahús meðal annars lokuð næstu
15 daga. Gekk starfsfólk veitingastaða um götur Barcelona
og barði potta og pönnur í mótmælaskyni og kastaði eggjum í
stjórnarbygginguna. Kórónuveiran hefur verið að sækja í sig
veðrið á Spáni að undanförnu en frá því faraldurinn hófst í
vetur hafa nærri 940 þúsund manns smitast af veirunni og 34
þúsund látist af völdum hennar. Víðar í Evrópu verða sótt-
varnareglur hertar um helgina, þar á meðal í Bretlandi en
þar er viðbúnaður í Lancasterhéraði settur á hæsta stig frá og
með deginum í dag. Krám verður lokað og strangt samkomu-
bann sett en líkamsræktarstöðvar verða þó áfram opnar.
AFP
Lokunum í Barcelona mótmælt með eggjakasti
Bandaríska lyfjafyrirtækið Pfizer
boðar að það muni síðari hluta nóv-
ember sækja um neyðarleyfi til að
hefja dreifingu á bóluefni gegn kór-
ónuveirunni sem veldur Covid-19.
Albert Bourla, forstjóri og stjórn-
arformaður Pfizer, sagði í tilkynn-
ingu að fyrirtækið myndi sækja um
leyfi til að nota lyfið þegar niður-
stöður lægju fyrir úr lokarann-
sóknum, væntanlega í þriðju viku
nóvember.
Hlutabréf Pfizer hækkuðu um 2%
á bandarískum verðbréfamörkuðum
þegar tilkynningin birtist.
Áður hefur bandaríska líftækni-
fyrirtækið Moderna boðað að það
stefni að því að sækja 25. nóvember
um heimild til að dreifa bóluefni sem
fyrirtækið er að þróa,
Bandaríska matvæla- og lyfjaeft-
irlitið gefur út leyfi til lyfjaframleið-
enda að dreifa lyfjum innan Banda-
ríkjanna. Í síðustu viku hvatti
stofnunin þau lyfjafyrirtæki, sem
eru að þróa bóluefni, til að verja að
minnsta kosti tveimur mánuðum til
að fylgjast grannt með því hvort al-
varlegar aukaverkanir geti fylgt
notkun lyfjanna.
Pfizer boðar veirubóluefni
Ætlar að sækja um dreifingarleyfi síðari hluta nóvember
AFP
Bóluefni á næsta leiti Lyfjaverksmiðja Pfizer í Cork á sunnanverðu Írlandi.
Breska ríkisstjórnin hafnaði óskum
Evrópusambandsins (ESB) um auk-
inn þunga í viðskiptaviðræðum
vegna úrgöngu Breta úr sambandinu
og segir þær tilgangslausar. Frost
lávarður, aðalsamningamaður Breta,
hringdi í Michel Barnier, aðalsamn-
ingamanna ESB, og sagði honum að
sleppa því að koma til viðræðna í
Bretlandi eftir helgi.
Þessi harða afstaða Breta kemur
eftir að 15. október rann upp og leið
án þess að nokkuð þokaðist í viðræð-
unum, en Boris Johnson, forsætis-
ráðherra Breta, hafði áður gert hana
að úrslitadagsetningu ef takast ætti
að koma á einhverskonar fríverslun-
arsamningi Breta við ESB, sem tek-
ið gæti gildi um næstkomandi ára-
mót. Boris sakaði leiðtoga
Evrópusambandsins um það í gær,
að hafa fallið frá hugmyndinni um
fríverslunarsamning við Bretland,
og sagði löndum sínum að búa sig
undir samningslausa úrgöngu úr
ESB.
Ursula von der Leyen, forseti
framkvæmdastjórnar ESB, brást við
þeim orðum eins og ekkert hefði í
skorist, hét því að ESB myndi reyna
samninga til þrautar, og taldi ekkert
því til fyrirstöðu að samningaviðræð-
ur héldu áfram í Lundúnum í kom-
andi viku.
Hyggjast ræða saman í vikunni
Þrátt fyrir kaldar kveðjur sögðust
þeir Frost lávarður og Barnier
myndu ræða saman snemma í vik-
unni, sem viðheldur vonarneista um
að ná megi samningum, þótt Bretar
telji það um seinan.
Talsmaður Johnson sagði frekari
viðræður tilgangslausar, nema ESB-
ríkin myndu breyta afstöðu sinni í
lykilmálum og taka til við eiginlegar
samningaviðræður um viðskipti
Bretlands og ESB. Til þessa hefur
strandað á kröfum ESB um reglu-
gerðarjöfnuð og sameiginlegt sam-
keppnisumhverfi, auk krafna
Frakka um áframhaldandi fiskveiðar
í breskri lögsögu. Hins vegar hefur
lítið gengið að fjalla um hið eiginlega
samningsefni um fríverslun.
„Viðskiptaviðræðurnar eru búnar
að vera,“ sagði talsmaðurinn í Down-
ing-stræti 10. „Evrópusambandið
hefur í raun bundið enda á þær með
því að neita að hnika afstöðu sinni í
nokkru.“ andres@mbl.is
Boris vandar Barnier ekki kveðjurnar
Bretar telja fríverslunarviðræður við
Evrópusambandið orðnar tilgangslausar
AFP
Brexit Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, telur fullreynt á samninga-
viðræður við ESB um fríverslun að lokinni úrgöngu Breta úr sambandinu.