Morgunblaðið - 17.10.2020, Qupperneq 26
SVIÐSLJÓS
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Stór hópur listamanna hefurorðið fyrir miklu tekjufallieða hreinu tekjuhruni átímum kórónuveirunnar að
því er fram kemur í niðurstöðum
könnunar sem BHM hefur kynnt.
Forsætisráðherra og mennta-
og menningarmálaráðherra kynntu
eftir hádegi í gær tíu stuðnings-
aðgerðir sem stjórnvöld hafa ákveð-
ið að ráðist verði í til að bæta stöðu
starfandi listamanna og menningar-
tengdra fyrirtækja. Þar á meðal eru
svonefndir tekjufallsstyrkir fyrir
einyrkja og smærri rekstraraðila.
Verja á rúmum 14 milljörðum til
slíks stuðnings að því er fram kom.
Algjört tekjuhrun hefur orðið
hjá fjölda listamanna
Hundruð listamanna hafa orðið
fyrir algjöru tekjuhruni vegna áhrifa
kórónuveirukreppunnar og hafa
mátt horfa upp á tekjur sínar
minnka um 75-100%. Þetta er tæp-
lega fimmtungur þeirra um 1.700
listamanna sem náðist til í tveimur
rafrænum könnunum sem BHM
gerði í september og október á
tekjufalli listamanna vegna krepp-
unnar.
Alls sögðust um 80% allra svar-
enda í könnuninni hafa orðið fyrir
tekjufalli vegna kreppunnar. Helm-
ingur þeirra sagði heildartekjur sín-
ar hafa minnkað um 50% og um 18%
sögðu tekjurnar hafa minnkað um
75-100% eins og áður segir.
Í tilkynningu BHM um niður-
stöðurnar kemur fram að tekjur
meirihluta svarenda eru nú undir
framfærsluviðmiði og um helmingur
þeirra segist eiga erfitt með að
standa undir fjárhagslegum skuld-
bindingum sínum. Ýmislegt bendi
einnig til þess að núverandi bóta-
úrræði séu óaðgengileg og nýtist illa
þessum hópi.
„Um 82% svarenda sögðu
ástæðu tekjufalls vera afbókanir eða
uppsögn verktakasamnings vegna
samkomutakmarkana og annarra
sóttvarnarráðstafana. Um 7% sögðu
ástæðuna vera uppsögn úr launuðu
starfi,“ segir í umfjöllun BHM um
niðurstöðurnar.
Bent er á að staðan sé sérstak-
lega slæm meðal þeirra tónlistar-
manna sem fyrst og fremst eru sjálf-
stætt starfandi. 75-85% þeirra
sögðust ekki myndu geta staðið und-
ir fjárhagslegum skuldbindingum
sínum á næstunni.
„Um 67% svarenda hafa sótt
um atvinnuleysisbætur eða segjast
munu gera það. Staðan er misslæm
eftir því hvernig staðið er að tekju-
öflun en tveir af hverjum þremur
sjálfstætt starfandi sögðust myndu
þurfa að leita á náðir stjórnvalda.
Ýmislegt bendir þó til þess að núver-
andi bótaúrræði nýtist illa og séu
óaðgengileg þessum hópi. Til dæmis
má nefna að 60% svarenda sem eru
sjálfstætt starfandi að hluta eða öllu
leyti sögðust aðeins hafa fengið
hluta bóta greiddan eða verið synjað
um þau bótaúrræði sem sótt var um.
Samsett form tekjuöflunar, miklar
tekjusveiflur og óhefðbundin rekstr-
arform í greininni virðast illa aðlög-
uð að hefðbundnum vinnumarkaðs-
úrræðum,“ segir í umfjöllun BHM.
Haft er eftir Erling Jóhannes-
syni, forseta Bandalags íslenskra
listamanna, í fréttatilkynningu í gær
um boðaðar aðgerðir stjórnvalda, að
þær séu kærkomnar og bæti tap og
brúi tíma sem allir voni að verði sem
stystur. „Auk þess eru í þessum að-
gerðum verkefni sem munu bæta
framtíð greina og stöðu listamanna –
bæði á vinnumarkaði og í þeirra
mikilvæga hlutverki að lita heiminn
bjartari litum,“ segir Erling.
Kynna aðgerðir sem
bæti stöðu listamanna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Listir Ráðast á í tíu stuðnings-
aðgerðir fyrir listamenn.
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Horfur erudökkar íatvinnu-
málum um þessar
mundir. Á mið-
vikudag var
greint frá því í
forsíðufrétt hér í Morg-
unblaðinu að atvinnuleysi
hefði verið 9,8% í september
samkvæmt mælingu Vinnu-
málastofnunar, væri nú
sennilega komið yfir 10% og
myndi enn aukast næstu
mánuði.
Verst er ástandið á Suður-
nesjum þar sem atvinnuleysi
mældist 19,8% í september
og er því spáð að það verði
1komið í 21,9% í desember.
Dekkst er spáin fyrir
Reykjanesbæ. Þar er því
spáð að atvinnuleysið verði
komið í 24,6% í jólamán-
uðinum.
Í frétt í Morgunblaðinu á
fimmtudag var fjallað um
langtímaatvinnuleysi. Þar
kom fram að einstaklingum,
sem hafa verið á atvinnuleys-
isskrá og án atvinnu lengur
en í hálft ár, hefði fjölgað
hratt upp á síðkastið og
hefðu í september verið fjór-
falt fleiri en í sumarlok í
fyrra.
Í Reykjavík höfðu 39%
þeirra sem voru atvinnulaus-
ir í ágúst verið án vinnu og á
atvinnuleysisskrá í hálft ár
eða meira og 19% í eitt ár eða
meira.
Hátt atvinnustig og mikil
þátttaka á vinnumarkaði hef-
ur löngum einkennt íslenskt
atvinnulíf. Iðulega hefur
hlutfallstala atvinnuleysis
verið svo lág að segja hefur
mátt að talan mældi aðeins
fólk tímabundið á milli starfa
og atvinnuleysi hér væri ekk-
ert.
Þetta litla atvinnuleysi
ásamt mikilli virkni á vinnu-
markaði hefur verið einn
helsti styrkleiki íslensks at-
vinnulífs. Atvinnuleysi getur
verið mikið þjóðfélagsmein.
Það þarf ekki að fjölyrða um
neikvæð áhrif langvarandi
atvinnuleysis, jafnvel kyn-
slóð fram af kynslóð, á sálar-
líf þjóða.
Í sumum hagkerfum hefur
meiri áhersla verið lögð á að
koma í veg fyrir þenslu en að
halda atvinnuleysi niðri. Í
ríkjum Evrópusambandsins
hefur atvinnuleysi löngum
verið mun hærra en hér á
landi og á evran sinn þátt í
því mikla atvinnuleysi, sem
er í sumum löndum þess.
Meira að segja eftir að
bankarnir féllu fyrir rúmum
áratug og atvinnuleysi jókst
hratt hér á landi
voru fleiri at-
vinnulausir í
löndum ESB.
Í ágúst var at-
vinnuleysi á Ís-
landi meira en í
ESB eða 9,4% hér á landi,
8,1% á evrusvæðinu og 7,4% í
ríkjum ESB.
Það er mikið til vinnandi að
festast ekki í því fari atvinnu-
leysis, sem ráðið hefur ríkj-
um í Evrópusambandinu og í
meira mæli á evrusvæðinu.
Hér áður fyrr var einfalt
að fella gengið þegar ójafn-
vægi skapaðist í efnahagslíf-
inu. Þannig var hægt að
þurrka út launahækkanir á
einu bretti. Það komu
kannski fleiri krónur í um-
slagið, en minna fékkst fyrir
þær. Þessu fylgdu hins vegar
ýmsar óæskilegar aukaverk-
anir og vitaskuld snúast
kjaramál um að bæta kjör,
ekki að skreyta sig með
sýndarávinningum á meðan
laun lækka í raun.
Sveigjanleiki í kjaramálum
hlýtur að ganga í báðar áttir.
Þegar vel gengur er hægt að
bæta kjör og auka kaupmátt.
Á undanförnum árum hefur
kaupmáttur aukist verulega.
Nú þrengir að og fjöldi
manns hefur misst vinnuna.
Þá mætti ætla að áherslan
hjá launþegahreyfingunni
væri að verja störfin. Þess í
stað er hamrað á því að
hvergi megi koma til móts við
atvinnurekendur líkt og for-
svarsmenn stéttarfélaga lifi
og hrærist í öðrum veruleika
en við hin. Hættan við þessa
afstöðu er að hún leiði til enn
meira atvinnuleysis – kosti
beinlínis skjólstæðinga stétt-
arfélaganna vinnuna.
Það er raunhæft að gera
ráð fyrir því að ferðaþjón-
ustan muni taka vel við sér
þegar aftur verður hægt að
slaka á sóttvarnaaðgerðum
hér og annars staðar. Spurn-
ingin er hversu lengi þurfi að
bíða og hvernig bilið verði
brúað.
Meginatriði er að vinna
gegn atvinnuleysi. Það verð-
ur helst gert með því að auð-
velda og létta rekstur fyrir-
tækja þannig að þau þurfi
ekki að rifa seglin og geti
haldið í starfsfólk. Mörg
fyrirtæki hafa átt fullt í fangi
með að ráða við launahækk-
anir undanfarinna missera,
en það tókst án þess að verð-
lag færi úr böndum. Nú þarf
að afstýra bakslagi. Það
verður að forðast að hér
verði viðvarandi atvinnu-
leysi.
Það verður að forð-
ast að atvinnuleysi
verði viðvarandi á
Íslandi}
Dökkar horfur
M
iklar deilur hafa verið milli
stjórnvalda og lífeyrisþega
vegna búsetuskerðinga und-
anfarin ár. Sú aðferð sem
Tryggingastofnun hefur beitt
við ákvörðun búsetuhlutfalls var borin undir
umboðsmann Alþingis og taldi hann að að-
ferðin væri ólögleg. Þar að auki komst Hér-
aðsdómur Reykjavíkur að þeirri niðurstöðu í
sumar að óheimilt hefði verið að skerða sér-
staka framfærsluaðstoð þar sem reglugerð
ráðherra hafi skort lagastoð.
Eftir mikla baráttu eldri borgara sam-
þykkti Alþingi í vor lög um félagslegan viðbót-
arstuðning við aldraða. Þau lög veita öldr-
uðum rétt á framfærslustuðningi sem nemur
allt að 90% af fjárhæð fulls ellilífeyris. Þessi
viðbótarstuðningur er ætlaður þeim sem
vegna búsetu sinnar erlendis eiga ekki rétt á
fullum ellilífeyri. Þrátt fyrir að veita kærkomna aðstoð
þá eru skilyrðin fyrir aðstoðinni ströng. Þar er til að
mynda aftur komið á „krónu á móti krónu“-skerðingu.
Ekki var ríkisstjórnin með þessum búsetskerðing-
arlögum bara að taka aftur upp ömurlega „krónu á móti
krónu“ skerðingu heldur einnig krónufall. Það er þegar
viðkomandi fer yfir 3.999.999 krónur í 4.000.000 króna í
eign, er refsingin algjör og þá einnig með refsingu við
dvöl erlendis lengur en 90 daga með endurgreiðslukröfu.
Vegna baráttu lífeyrisþega gegn stjórnvöldum er nú
búið að leiðrétta hlut nokkurra öryrkja sem liðu ólögleg-
ar skerðingar árum saman. Eftir stendur þó að í fjöl-
mörgum tilvikum viðgangast umfangsmiklar
skerðingar á lífeyri almannatrygginga vegna
búsetu lífeyrisþega erlendis. Auk þess eru
þeir ellilífeyrisþegar sem fá greiddan viðbót-
arstuðning aðeins að fá 90% af réttindum sín-
um. Til þess að réttlætið nái fram að ganga
þarf að breyta lögunum.
Þessar búsetuskerðingar eru fram-
kvæmdar óháð því hvort búseta viðkomandi
erlendis veiti honum sams konar fjárhagsleg
réttindi. Á milli Íslands og EES-ríkjanna
gildir sérstakur samningur sem kveður á um
að réttindi glatist ekki vegna flutnings til
annars EES-ríkis. Það er eitt að lífeyrir
skerðist vegna lífeyrisgreiðslna erlendis frá,
en þegar lífeyrir er skertur vegna þess eins
að einstaklingur hefur um tíma verið búsett-
ur í öðru landi þá er það ekkert nema mis-
munun.
Frumvarp Flokk fólksins um breytingu á lögum al-
mannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum
(skerðing á lífeyri vegna búsetu) kemur í veg fyrir slíka
mismunun og þar er lagt til að einungis verði heimilt að
skerða réttindi almannatrygginga vegna búsetu þegar
ljóst liggur fyrir að viðkomandi eigi rétt á og njóti sam-
bærilegra réttinda erlendis frá vegna búsetu þar. Þannig
yrði komið í veg fyrir grimmilegar búsetuskerðingar
gagnvart öryrkjum og ellilífeyrisþegar áður búsettir er-
lendis fengju 100% réttinda sinna en ekki 90%.
Guðmundur
Ingi Krist-
insson
Pistill
Króna á móti krónu skerðing
Þingflokksformaður Flokk fólksins. gudmundurk@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Meðal aðgerða til stuðnings listamönnum og menningarlífi sem kynntar
voru í gær er stofnun Sviðslistamiðstöðvar og tónlistarmiðstöðvar.
Hækka á tímabundið starfslaun og styrki fyrir árið 2021 og framlengja
tímamörk verkefnastyrkja til menningarmála.
„Sjálfstætt starfandi listamenn og menningartengd fyrirtæki geti sótt
um rekstrarstyrki til að mæta tekjusamdrætti vegna Covid-19. Ráðgert er
að fjármunir sem varið verður til almenns tekjufallsstuðnings nemi rúm-
um 14 milljörðum króna,“ segir um helstu aðgerðir.
Þá á að stuðla að vitundarvakningu um mikilvægi lista og menningar.
Menntamálaráðuneytið ætlar að halda áfram að kanna og kortleggja, í
samvinnu við BÍL og BHM, aðstæður þeirra listamanna sem til þessa hafa
ekki getað nýtt sér stuðningsúrræði stjórnvalda.
Hærri starfslaun og styrkir
HELSTU AÐGERÐIR STJÓRNVALDA
62%
81%82% 79%
39%
49%51% 50%
Tekjufall hjá listamönnum vegna kórónuveiru
Segja tekjur hafa minnkað
milli 2019 og 2020
Segja tekjur hafa minnkað
um meira en 50%
75-100% samdráttur tekna
50-75% samdráttur H
ei
m
ild
: K
ön
nu
n
B
an
da
la
gs
h
ás
kó
la
m
an
na
m
eð
al
li
st
am
an
na
Tónlist Sviðslistir Aðrar listir Alls Tónlist Sviðslistir Aðrar listir Alls