Morgunblaðið - 17.10.2020, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020
✝ Ásdís MagneaGunnlaugs-
dóttir fæddist á
Sólbakka í Önund-
arfirði 18. mars
1939. Hún lést
hjúkrunarheim-
ilinu á Siglufirði 25.
september 2020.
Foreldrar Ásdísar
voru Gunnlaugur
Jónsson, f. 7. maí
1907, d. 25. okt.
1974, og Kristín Magnúsdóttir,
f. 1. nóv. 1913, d. 25. sept. 1949.
Bróðir hennar er Páll Gunn-
laugsson, f. 28. feb. 1936. Frá
Sólbakka flutti fjölskyldan til
Raufarhafnar og þaðan til Siglu-
fjarðar.
Ásdís gekk í húsmæðraskól-
ann í Löngumýri þegar hún var
15 ára. Árið 1955 hóf hún störf á
Hótel Höfn á Siglufirði þar sem
hún kynntist Sigurjóni Jóhanns-
syni skipstjóra, f. 8. sept. 1928,
d. 22. des. 2010, þau giftu sig
þann 13. júlí 1957. Faðir hans
var Jóhann Pétur Jónsson, f. 1.
des. 1882, d. 11. okt. 1971. Móðir
hans var Herdís Þorsteinsdóttir,
f. 30. júní 1893, d. 23. nóv. 1968.
Ásdís og Sigurjón áttu fjögur
börn; 1) Kristín, f. 7. feb. 1958,
gift Gunnari Smára Helgasyni.
Hún á fjögur börn með fyrri
ur, kvæntur Heather Sig-
urjonsson. 3) Herdís, f. 8. des.
1965, gift Erlendi Erni Fjeld-
sted. Börn þeirra: a) Ásdís
Magnea, sambýlismaður Arn-
finnur Rúnar Sigmundsson; b)
Sturla Sær, sambýliskona Gígja
Teitsdóttir; c) Sædís Erla. 4)
Sigurjón Sigurjónsson, f. 23.
jan. 1973, d. 26. jan. 1973.
Ásdís var lengst af húsmóðir
á heimili þeirra Sigurjóns,
Laugarvegi 15 á Siglufirði, og
taldi það forréttindi að sinna
uppeldi barnanna. Hún varði
miklum tíma í handavinnu og
garðyrkju og ræktaði poodle-
hunda um tíma. Hún vann í
rækjuvinnslu um tíma en árið
2002 stofnaði hún, ásamt vin-
konum sínum, Gallerí Sigló sem
var starfrækt í tólf ár. Þar gerði
hún glerlistaverk og málaði
postulín sem hún seldi, auk
korta sem hún gerði utan vinnu.
Ásdís lét einnig til sín taka í fé-
lagsstörfum á Siglufirði og var
alltaf félagi í kvennadeild slysa-
varnafélagsins. Auk þess var
Ásdís ein af stofnendum Siglu-
fjarðardeildar Garðyrkjufélags
Íslands og var um tíð formaður
þess.
Útför Ásdísar fer fram í
Siglufjarðarkirkju 17. október
2020, klukkan 14.
Streymt verður frá athöfn-
inni:
https://www.youtube.com/embed/
aLMMWZZPGRg
Virkan hlekk á slóð má nálg-
ast á:
https://www.mbl.is/andlat
manni sínum Þórði
M. Sigurðssyni (þau
skildu). Börn
þeirra: a) Þórður
Matthías, sambýlis-
kona Sigríður
Oddný Bald-
ursdóttir, synir
þeirra Haraldur Ív-
ar og Matthías
Baldur; b) Sigurjón
Veigar, kvæntur
Höllu G. Þórð-
ardóttur, synir þeirra Kristján
Gabríel, Engill Þór, Þórður
Davíð og Óskar Máni; c) Sig-
urður Freyr, sambýliskona
Sylvía Rós Sigurðardóttir, synir
þeirra Sigurður Karl og Jökull
Logi; d) Ragnar Freyr, sam-
býliskona Sara Valgerður Júl-
íusdóttir, synir þeirra Mikael
Erik og drengur Ragnarsson.
Fyrir átti Ragnar Gabríel Reyni,
f. 4. jan. 2011, d. 21. júní 2012,
með Söndru Grétarsdóttur. 2)
Jóhann, f. 5. des. 1960, kvæntur
Shirley Sigurjónsson. Hann á
þrjú börn með fyrri konu sinni
Theresu Chu Sigurjónsson (þau
skildu). Börn þeirra: a) Sarah
Chu, gift Cory Vandervort, börn
þeirra Emma Kristin, Finley
Elizabeth, Owen Sterling og Ev-
an Sterling; b) Kristín Chu, gift
Nick Kirschner; c) Jóhann Pét-
Elsku mamma. Samvera okk-
ar síðastliðið ár hefur verið
meira á rafrænu formi en við
hefðum kosið. í ár ætluðum við
að fara á Raufarhöfn og klára
þennan stutta spotta sem þú átt-
ir eftir að fara við Höfn. Við lét-
um þó sóttvarnir og heilsuleysi
ekki stöðva okkur um daginn við
að fara í ferðalagið góða með að-
stoð Google. Skemmtilegast var
á Raufarhöfn. Þegar við brun-
uðum um bæinn og út á Rauð-
anúp og þú sagðir mér frá æsku-
heimilinu sem var staðsett við
síldarverksmiðjuna þar sem afi
Gulli vann. Hvernig loginn í ofn-
um verksmiðjunnar blasti við
ykkur og hvað ykkur Palla þótti
spennandi að fá að slökkva á
bænum á kvöldin með rofa sem
staðsettur var í eldhúsinu ykkar.
Það var líka gaman að skoða aft-
ur húsið sem við bjuggum í á
Raufarhöfn veturinn 1969 og
rifja upp eitt og annað frá þeim
tíma.
Mikið óskaplega þakka ég þér
eljusemi við björgun þjóðarverð-
mæta. Þín vegna er til gott safn
af skjölum og myndum sem
tengjast sögu fjölskyldunnar
sem ég mun koma í öruggt skjól.
Það er búið að vera einstaklega
skemmtilegt að fara í gegnum
safnið með þér. Það mun þó trú-
lega taka mig nokkur ár og jafn-
vel áratugi að ljúka verkefninu
okkar.
Allir sem þekktu Ásdísi Gull
vita að hún var með græna fing-
ur og elskaði tilraunir með fræ
og græðlinga. Það var alvanalegt
að mamma væri úti í garði að
rótast í mold á kvöldin og því var
það henni erfitt þegar hún gat
ekki lengur sinnt garðinum við
Laugarveg 15 og þegar gróður-
húsið var farið. Verðskulduð
verðlaun fékk hún fyrir garðinn,
en það hnussaði þó í henni þegar
pabbi, sjómaðurinn sem á þeim
tíma hafði varla komið út í garð,
var heiðraður fyrir garðinn. Það
var alltaf jafn gefandi að fara
með mömmu út í garð og róta í
mold. Í ár var hún þó aðeins í
mynd í símanum, en mikið voru
þær stundir samt frábærar.
Listakonan á Laugarvegi 15
skilur eftir sig mörg listaverkin;
sængurföt, jóladiska, jólaföt og
bolla, svo ekki sé talað um öll fal-
legu kortin sem hún hefur unnið
um dagana. Hún var listakokkur,
kökugerðarmeistari og sannur
brauðtertusnillingur.
Páskarnir voru hátíðin þín og
því verða páskar Rituhöfðafjöl-
skyldunnar á Siglufirði tómlegir
án ömmu á Sigló. Páskakakan,
skreytt páskagrein, páskaegg og
málshættir, páskaföndur, páska-
bollar, páskadúkar og allt hitt.
2020 mæðradagskveðja til
mömmu er hér endurbirt:
„Ég á svo dásamlega mömmu
sem ég elska endalaust.
Hún Ásdís Magnea Gunn-
laugsdóttir er falleg og hlý, ráða-
góð, mann- og dýravinur með
stórt hjarta, mikil listakona, fag-
urkeri og elskar fallega tónlist.
Mamma er með sérlega græna
fingur og margverðlaunuð fyrir
það. Hún er töffari, kaffifíkill og
sú eina sem ég þekki sem fær
sér kaffi þegar hún getur ekki
sofið.
Mamma hefur líka dásamlega
nærveru og er algjörlega
áreynslulaust að þegja með
henni. Hún er góð vinkona,
Amma með stórum staf,
skemmtileg, sælkeri og besti
kokkur í heimi. Mamma er ein af
þessum sjómannskonum sem
einfaldlega geta allt.
Þú ert ekki bara góð fyrir-
mynd, þú ert einfaldlega best.“
Takk fyrir allt og allt og ég
lofa að gefa smáfuglunum.
Herdís Sigurjónsdóttir.
Móðir mín, þegar ég hugsa
um hana finn ég fyrir ást, hlýju
og þakklæti.
Ásdís Magnea Gunnlaugsdótt-
ir var mikill mann- og dýravinur,
hún umvafði fólkið sitt og vini
með miklum kærleik og góð-
mennsku alla tíð.
Foreldrar mínir voru gift í 53
ár og eftir að faðir minn Sig-
urjón Jóhannsson lést árið 2010
flutti ég til Siglufjarðar. Er ég
þakklát þeim árum sem við
mamma áttum saman alveg fram
í andlát hennar.
Það er af nógu að taka þegar
farið er í gegnum minningarnar,
móðir mín var afar mikil lista-
kona og má sjá verk hennar hjá
öllum hennar afkomendum. Þar
eru postulínsmunir, málaði hún á
sængurföt og jóladúka barna
sinna og barnabarna, prjónaði,
vann með leður, útsaum og listi-
lega gerð tækisfæriskort.
Eitt af því sem er mér virki-
lega minnisstætt er matargerð
mömmu, henni tókst að gera
listaverk úr öllum mat. Þar sem
faðir minn fór oft í siglingar var
frystikistan full af framandi mat-
vörum sem hún framreiddi
hversdags eins og á fínasta veit-
ingahúsi, jólaboð þar sem borðið
svignaði undan fallega skreytt-
um kræsingum í alls konar lit-
um, tertur þar sem hún bjó til
fallegar blómaskreytingar og
alls konar marsípanfínerí. Ekki
síst var öll sú aðstoð sem ég fékk
á stóru stundunum í lífi mínu og
minna, giftingu, skírnum, afmæl-
um og fermingum barnanna
minna. Hún var alltaf boðin og
búin. Eitt sinn sendi hún ævin-
týraeyju með manni og mús, sem
hún bakaði og skreytti, í flugi frá
Siglufirði til Reykjavíkur til að
gleðja barnabörnin á afmælis-
daginn.
Móðir mín ræktaði ekki að-
eins ættgarðinn sinn, heldur er
garð- og blómarækt hennar eitt
af því sem fylgdi henni alla ævi.
Hún var alltaf umvafin blómum,
bæði úti og inni. Þar á meðal er
kaktus sem er yfir 50 ára og fal-
legur garður fullur af trjám og
alls konar blómum sem hafa
fylgt henni alla tíð.
Þegar ég hugsa til baka finnst
mér móðir mín hafa getað allt,
hún hugsaði alltaf í lausnum og
var ekkert ómögulegt. Ég sé enn
fyrir mér svipinn á rútubílstjór-
anum þegar mamma var með
okkur systkinin þrjú við vegar-
kantinn í Haganesvík eftir sum-
ardvöl í sumarbústaðnum okkar
í Fljótum, með allt okkar haf-
urtask eftir sumarið og „alla
kartöfluuppskeruna“.
Eitt af því sem veitti henni
mikla gleði var Gallerí Sigló sem
hún stofnaði ásamt „stelpunum“
og starfaði þar um árabil. Þang-
að var alltaf gott að koma, ein-
stakt andrúmsloft vináttu og
frjórrar listsköpunar.
Þegar heilsu móður minnar
hrakaði fór hún mikinn á al-
heimsnetinu, átti auðvelt með að
nýta sér tæknina og átti sam-
skipti við fólkið sitt úti um allan
heim. Hún notaði facetime,
messenger á facebook, deildi fal-
legum myndum og góðmennsku
á facebooksíðu sinni, skoðaði alls
konar hugmyndir á pinterest,
var að sækja sér þekkingu og
læra allt til dauðadags. Í vor
þegar mamma var á sjúkrahús-
inu á Siglufirði spjallaði hún við
okkur öll í einu í mynd; við
Gunnar Smári á Kanarí, Jóhann
og Shirley í Seattle og Herdís og
Elli í Mosfellsbæ.
Elsku hjartans móðir, minn-
ingin um þig lifir um ókomna tíð
í hjarta allra þinna afkomenda
sem og annarra sem urðu á þín-
um lífsins vegi.
Kristín Sigurjónsdóttir.
Árið 2016 kynntist ég Ásdísi
Magneu tengdamóður minni,
þegar við Kristín Sigurjóns fór-
um að stinga saman nefjum.
Ég hefði gjarnan viljað kynn-
ast Ásdísi fyrr, því hún var ynd-
islega hlý og góð kona. Við náð-
um vel saman í sambandi við alls
konar föndur sem hún lifði fyrir,
og ég naut þess að spjalla við
hana um ýmislegt varðandi
föndrið, sérstaklega man ég vel
eftir því þegar til stóð að raf-
væða kortin sem hún gerði og
hafa á þeim ljósaskreytingar, því
hún var algjör snillingur í að búa
til kort, hvort sem það voru jóla-
kort eða önnur tækifæriskort,
sem hvert og eitt var einstakt
listaverk.
Þegar ég heimsótti hana vakti
það snemma athygli mína að
sjónvarpið hennar talaði yfirleitt
dönsku. Hún fylgdist vel með
dönskum sjónvarpsþáttum sem
hún hélt mikið upp á og var einn-
ig áskrifandi að dönskum fönd-
urblöðum. Stundum kom það í
minn hlut að hjálpa henni við að
hafa samband við útgefandann í
Danmörku til að reka á eftir
blöðunum ef þau bárust seint.
Hún vafraði um netið eins og
vindurinn á stóra iPad-inum sín-
um og fann þar ótrúlegustu hluti
þegar handverk og föndur var
annars vegar. Margoft var hún á
undan okkur Kristínu að frétta
af áhugaverðum málum bæði í
nærsamfélaginu og úti í hinum
stóra heimi, hvort sem það var af
netinu eða með öðrum hætti.
Hún fylgdist með öllu sem var að
gerast, allt fram á síðasta dag,
og var mjög klár í kollinum, þótt
líkaminn væri henni til trafala
síðustu árin.
Margoft á þessum örfáu árum
sem við þekktumst glímdi hún
við erfið líkamleg veikindi svo ég
hélt oft að hún væri komin að
leiðarenda en alltaf reis hún upp
aftur með einhverjum krafti sem
erfitt var að útskýra, og aldrei
heyrðist hún kvarta yfir nokkr-
um hlut. Ég skildi stundum alls
ekki úr hverju þessi kona var
gerð, svo mikil var þrautseigja
hennar og dugnaður.
Ég minnist Ásdísar
tengdamóður minnar með mikl-
um söknuði og bið Guð að geyma
minningu hennar í hjarta þeirra
sem fengu tækifæri til að kynn-
ast þessari frábæru konu.
Gunnar Smári Helgason.
Takk fyrir allt, amma Ásdís.
Það er komið að því að kveðja
eftir ástríka, ánægjulega veg-
ferð.
Þegar ég var að alast upp sem
barn þá voru alltaf hornsteinar
sem aldrei högguðust og voru
þeir hjá ömmu og afa í Valhöll í
Grindavík og ömmu og afa á
Laugarvegi 15 á Sigló.
Þegar ég kom til ömmu og afa
á Sigló þá steig maður inn í æv-
intýraland þar sem ótrúlega
skemmtilegir og spennandi hlut-
ir gerðust. Endalausar sögur frá
afa gamla og allur heimsins fróð-
leikur um allar tegundir af blóm-
um, trjám, kryddjurtum og allt í
sambandi við mat og matargerð
frá henni ömmu. Ef ég hafði
spurningu hafði amma í flestum
tilfellum svarið.
Ásdís Magnea
Gunnlaugsdóttir
Sálm. 16.1-2
biblian.is
Varðveit mig, Guð,
því að hjá þér leita
ég hælis. Ég segi
við Drottin: „Þú ert
Drottinn minn, ég
á engin gæði nema
þig.”
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HJALTI GEIR KRISTJÁNSSON
húsgagnaarkitekt,
lést að morgni þriðjudagsins 13. október.
Sigríður Th. Erlendsdóttir
Ragnhildur Hjaltadóttir
Kristján Hjaltason Rannveig Einarsdóttir
Erlendur Hjaltason Aðalheiður Valgeirsdóttir
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir Guðmundur Magnússon
og fjölskyldur
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÁRNI H. BJARNASON,
fv. bankaútibússtjóri,
lést á Hrafnistu, Skógarbæ
fimmtudaginn 15. október.
Birna G. Bjarnleifsdóttir
Erla S. Árnadóttir Jón Finnbjörnsson
Anna S. Árnadóttir Þorkell Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR KARL KARLSSON
frá Flatey, Skjálfanda,
lést á heimili sínu mánudaginn 5. október.
Í ljósi aðstæðna verður útförin ekki auglýst.
Helga, Laufey, Svala, Hanna Björg, Guðbjartur
og fjölskyldur
Bróðir okkar og mágur,
REYNIR BJARNASON,
Nýbýlavegi 70,
lést á líknardeild Landspítalans
fimmtudaginn 8. október. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Erla Bjarnadóttir Ásgeir Sigurðsson
Guðbjartur Bjarnason Sharon Fudge
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
ÁRNI HELGI HÓLM RAGNARSSON,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands,
Sauðárkróki 12. október. Útför hans fer
fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn
23. október klukkan 13.30 en vegna aðstæðna í þjóðfélaginu
verða aðeins nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir
athöfnina. Streymt verður á facebooksíðunni Jarðarfarir í
Akureyrarkirkju; beinar útsendingar. Blóm og kransar eru
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent
á minningarsjóð Sigurlaugar Gunnarsdóttur við Heilbrigðis-
stofnun Norðurlands kt. 470395-2069, reikningsnúmer
0310-13-110325.
Margrét Hulda Rögnvaldsdóttir
Árni Bent Árnason Heiða Kristinsdóttir
Katrín María Árnadóttir
Fjóla Sigrún Árnadóttir
Halla Bryndís Árnadóttir
Inga Berglind Birgisdóttir Ívar Örn Björnsson
og afabörnin fjögur
Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og bróðir
okkar,
ÞÓRIR BARÐDAL,
stofnandi Lótushúss
og listamaður,
lést á líknardeild Kópavogs miðvikudaginn
14. október. Í ljósi aðstæðna verður útförin ekki auglýst og mun
hún fara fram með nánustu aðstandendum og vinum. Þeim sem
vilja minnast hans er bent á Hugleiðsluskólann Lótushús, kt.
460804-2720, rkn: 0130-26-8882.
Sara Barðdal Þórisdóttir Hákon Víðir Haraldsson
Alexander Úlfur Hákonarson Baltasar Máni Hákonarson
og aðrir aðstandendur