Morgunblaðið - 17.10.2020, Síða 38
G
uðný María Jóhanns-
dóttir fæddist 17. októ-
ber 1970 á Þórshöfn á
Langanesi en þangað á
hún ættir að rekja bæði
í föður- og móðurlegg. „Það voru for-
réttindi að alast upp í litlu þorpi úti á
landi og njóta alls þess frelsis sem
það bauð upp á.“ Guðný María fór í
sveit á Syðra-Álandi þar sem hún
fékk að kynnast sveitastörfunum og
á Þórshöfn fór hún ung að vinna,
m.a. við afgreiðslustörf og í fiski.
Þegar kom að því að sækja fram-
haldsskóla fluttist hún til Akureyrar
þar sem hún hóf nám við Verk-
menntaskólann og útskrifaðist það-
an af hagfræðibraut. Einnig var hún
einn vetur í söngnámi við Tónlistar-
skólann á Akureyri auk þess að vera
í kvöld- og helgarvinnu á Bautanum
og svo síðar í sumarvinnu á Hótel
Kea.
Á Akureyri náði Guðný María sér
ekki eingöngu í stúdentspróf, heldur
kynntist hún eiginmanni sínum,
Gunnari Agli Sigurðssyni, og þau
fóru saman í Viðskiptaháskólann á
Bifröst í viðskiptafræði. „Árin tvö á
Bifröst voru ævintýri líkust en jafn-
framt mjög krefjandi námslega.“
Síðasta árið til BS-gráðu tóku þau
við viðskiptaháskóla í Otaru í Japan,
fyrstu nemendurnir frá Bifröst sem
fóru þangað. „Árið okkar í Japan var
eitt af því besta sem við höfum gert í
lífinu, samfélagið var gott og við
ferðuðumst líka um Japan auk þess
sem við fórum í tvær vikur til Taí-
lands.“
Eftir útskrift lá leiðin til Dalvíkur,
en fljótlega þaðan til Reykjanes-
bæjar þau sem þau bjuggu næstu 16
árin. Guðný María hóf störf á Kefla-
víkurflugvelli í apríl 2004 og starfaði
fyrst hjá Flugstöð Leifs Eiríkssonar
sem verkefnastjóri á fjármálasviði.
Árið 2008 tók hún við starfi mark-
aðsstjóra flugstöðvarinnar og ári
seinna var hún ráðin framkvæmda-
stjóri viðskiptasviðs Keflavíkur-
flugvallar, en þá var starfsemi flug-
stöðvarinnar og flugvallarins
sameinuð undir hatti Keflavíkur-
flugvallar ohf. Síðustu árin gegndi
hún starfi forstöðumanns viðskipta-
þróunar.
„Það er eitthvað töfrandi við að
vinna á flugvelli og í raun á það við
um allt í kringum flugið. Tíminn í
kringum hrunið var krefjandi en á
sama tíma ákaflega lærdómsríkur.
Ég var svo heppin að fá það hlutverk
að markaðssetja landið okkar og
flugvöllinn fyrir erlendum flug-
félögum strax í kjölfar hrunsins og í
október 2008 flaug ég til Malasíu þar
sem ég settist fyrir framan forsvars-
menn stærstu flugfélaga í heiminum
og sýndi þeim á korti hvar Ísland
væri staðsett. Þekkingin á Íslandi
var bara ekki meiri á þessum tíma en
strax í kjölfar eldgossins í Eyja-
fjallajökli árið 2010 komst landið á
kortið og hægt var að fá erlendu
flugfélögin til að opna nýjar flug-
leiðir til og frá landinu. Flugfélögin
Delta, British Airways, Norwegian
og easyJet hófu að fljúga til Íslands
allt árið og framboð á heilsársflugi
var meira en nokkru sinni áður.“
Tíminn á Reykjanesinu var góður
og fjölskyldan óx. Börnin urðu eitt
og síðan tvö og mikið var að gera.
„Síðustu tvö ár hef ég ekki verið í
fastri vinnu heldur ákvað að taka
mér smá tíma til að sinna fjölskyld-
unni og heimilinu og sinna stjórnar-
störfum,“ en hún hefur setið í ýms-
um stjórnum frá árinu 2013 og má
þar nefna stjórn Fríhafnarinnar,
Arcanum-fjallaleiðsögumanna,
Logakórs, Samtaka atvinnurekenda
á Suðurnesjum og Íslenska ferða-
klasans. „Það eru forréttindi að geta
tekið á móti börnunum sínum þegar
þau koma heim úr skólanum og verið
til staðar þegar þarf að skutlast og
græja hitt og þetta sem snýr að
þeim, fjölskyldunni og heimilinu.“
Þegar vinnunni sleppir hefur fjöl-
skyldan mjög gaman af því að
ferðast og segja að eftir námsdvölina
í Japan hafi heimurinn stækkað til
muna og þau hafa farið bæði til Kína,
Singapúr, Malasíu og Dúbaí auk Taí-
lands. Síðan er fjölskyldan hrifin af
því að veiða. „Ég var svo heppin að
giftast manni sem er forfallinn veiði-
maður og á hverju sumri förum við
saman að veiða auk þess sem við er-
um með fjölskylduholl þar sem við
veiðum öll saman, foreldrar mínir og
bræður og fjölskyldur þeirra sem og
föðurbróðir minn og hans fjölskylda.
Þessar samverustundir eru svo dýr-
mætar.“
Í júlí síðastliðnum flutti fjöl-
skyldan frá Reykjanesbæ í Ártúns-
holtið í Reykjavík. „Þetta er í fyrsta
skipti sem við hjónin búum í Reykja-
Guðný María Jóhannsdóttir viðskiptafræðingur – 40 ára
Fjölskyldan Gunnar, Arngrímur Egill, Agla María og Guðný María.
Kílómetri fyrir hvert ár
Syðra-Áland Guðný María að gefa
heimalningnum Túttu að drekka,
sem nafna hennar, (María Jóhanns-
dóttir), og Viggi bóndi, (Vigfús Jós-
ep Guðbjörnsson), gáfu henni.
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020
Litirnir eru
á netinu
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
Skoðaðu vinsælu
litina okkar á
slippfelagid.is
30 ára Saga fæddist í
Reykjavík og ólst upp
þar og í Svíþjóð. Hún er
menntuð leikkona og
er núna að læra við-
skiptafræði í HÍ. Saga
hefur mikinn áhuga á
útivist, ferðalögum,
matreiðslu, dansi og leiklist.
Maki: Guðjón Hrafn Guðmundsson, f.
1985, kvikmyndagerðarmaður.
Börn: Alexandra Ólöf, f. 2014, og Björn
Andrés, f. 2018.
Foreldrar: Guðjón Trausti Árnason, f.
1958, garðyrkjufræðingur, og Kerstin
Andersson, leiðsögumaður, f. 1961. Þau,
ásamt öðrum, stofnuðu Waldorf-skólann
í Lækjarbotnum árið sem Saga fæddist,
1990, þar sem þau búa.
Steinunn Saga
Guðjónsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Lausnirnar sem leiða til betra lífs
eru augljósar, svo augljósar að þú gætir
hafa misst af þeim. Þú ert í einhverju basli
með tilfinningar þínar.
20. apríl - 20. maí
Naut Sum reynsla er mjög dýrkeypt og
vafasamt hvort það er þess virði að sækj-
ast eftir henni. Gefðu þig alla/n í verkefnin
þín hvort sem þú ert undirbúin/n eða ekki.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þeir eru margir sem vilja veðja á
sköpunarkraft þinn og líða þér eitt og ann-
að þess vegna.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ekki láta telja þig á að gera eitt-
hvað gegn vilja þínum. Gefið ykkur svolít-
inn tíma til að sinna sjálfum ykkur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Einhver kemur þér skemmtilega á
óvart í dag. Ef plönin eru of smá í sniðum
heilla þau ekki fólkið þitt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Reyndu að vera jákvæð/ur í dag,
jafnvel þótt þú hittir fólk sem krefst
greiðslu fyrir eitthvað. Líkur eru á að at-
hyglin beinist að þér og því gott að vera
undir það búin/n.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert svolítill einfari og getur
skemmt þér vel ein/n. Ekki halda aftur af
þér því aðrir eru tilbúnir að hlusta á fram-
lag þitt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þótt þér finnist allt vera að
fara úr böndunum skaltu ekki örvænta því
útlitið er ekki eins slæmt og sýnist.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú munt áreiðanlega aldrei sjá
sjálfa/n þig eins og annað fólk gerir. Leit-
aðu lausnar í því sem þú þegar hefur undir
höndum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Einhver vill umfram allt hafa
undirtökin í sambandinu við þig. Þú verður
að viðurkenna að aðrir hafa jafn ákveðnar
skoðanir og þú.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það reynir á þig þegar þú tekur
að þér viðamikið verkefni sem margir
samstarfsmenn þínir hafa ekki treyst sér í.
Láttu þér hvergi bregða þegar þú færð
umbun fyir vel unnin störf.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú gætir fengið tækifæri til að láta
gott af þér leiða í dag. Hins vegar verð-
urðu að leggja talsvert á þig til þess að ná
markmiði þínu.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Ármann Viðar Jökulsson
fæddist í Reykjavík hinn 31. október
2019. Hann vó 3.150 grömm og var 51
cm. Foreldrar hans eru Kristín Eva
Rögnvaldsdóttir og Jökull Viðar
Gunnarsson. Eldri bróðir Ármanns er
Þórarinn Viðar Jökulsson fæddur 5.
janúar 2018.
Nýr borgari
50 ára Steinunn er
Hafnfirðingur en býr
núna í Reykjavík. Hún
er sérfræðingur í út-
gáfudeild á skrifstofu
Alþingis. Steinunn
hefur mikinn áhuga á
tónlist og les mikið.
Síðan eru hjólreiðar einnig í uppáhaldi.
Maki: Grétar Mar Hreggviðsson, f. 1974,
verkfræðingur hjá Verkís.
Dætur: Hildigunnur, f. 2005, og Matt-
hildur, f. 2008. Grétar átti áður Daníel
Frey, f. 1994.
Foreldrar: Guðný G. Gunnarsdóttir, f.
1933, d. 2017, vanná bókasafni og Har-
aldur J. Sigfússon, f. 1930, fv. verkstjóri
hjá Aðalverktökum, búsett í Hafnarfirði.
Steinunn
Haraldsdóttir