Morgunblaðið - 17.10.2020, Page 39

Morgunblaðið - 17.10.2020, Page 39
vík og það hefur gengið vel að aðlag- ast borgarlífinu. Í stað þess að fylgj- ast með flugvélunum taka á loft og koma inn til lendingar sjáum við borgina vakna þegar umferðin eykst í Ártúnsbrekkunni og sömuleiðis hvernig borgin sofnar þegar tekur að kvölda. Börnin eru bæði farin að æfa fótbolta með Fylki og búin að eignast góða vini í hverfinu og þegar þeim líður vel þá gengur allt vel.“ Nýjasta áhugamálið er utanvega- hlaup. „Ég er félagi í hlaupa- samfélaginu hjá Náttúruhlaupum. Þar sem núna er síðasta vikan í mínu lífi sem ég er þrjátíu og eitthvað ára ákvað ég að setja mér það markmið að hlaupa 40 kílómetra samanlagt í vikunni og kláraði síðustu 10 kíló- metrana í gær með frábærum hlaupavinkonum.“ Fjölskylda Eiginmaður Guðnýjar er Gunnar Egill Sigurðsson, f. 18.6. 1980, fram- kvæmdastjóri verslunarsviðs Sam- kaupa. Foreldrar hans eru hjónin Sigurður Aðalgeirsson, f. 19.12. 1945, fv. skólastjóri, og Sigurhanna Jóna Salómonsdóttir, 16.3. 1946, fv. forstöðukona. Þau eru búsett á Akureyri en bjuggu lengst af á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit. Börn Guðnýjar Maríu og Gunnars Egils eru Arngrímur Egill, f. 19.4. 2006, og Agla María, f. 25.8. 2010. Bræður Guðnýjar Maríu eru Jón Kristbjörn, f. 5.7. 1984, eigandi Fath- omfish í Halifax í Kanada þar sem hann býr ásamt konu sinni Thanh Pung og dætrum sínum tveimur Míu Kim, f. 15.10. 2015, og Aríu Rose, f. 9.8. 2018; og 2) Arnþór, f. 27.2. 1988, sölu- og markaðsstjóri hjá Artasan, í sambúð með Thelmu Dögg Ped- ersen, f. 26.4. 1991, starfsmanni Ís- landsbanka, og þau búa í Reykjavík. Foreldrar Guðnýjar Maríu eru hjónin Jóhann Arngrímur Jónsson, f. 27.11. 1955, framkvæmdastjóri og Rósa Daníelsdóttir, f. 9.8. 1960, hús- móðir. Þau búa á Álftanesi. Guðný María Jóhannsdóttir Steinunn Sesselja Steinþórsdóttir húsfreyja, Þórshöfn Leó Jósefsson verkamaður, Þórshöfn Dóra Björk Leósdóttir verslunarkona, Þórshöfn Daníel Jónsson vélstjóri, Þórshöfn Rósa Daníelsdóttir húsmóðir, Álftanesi Rósa Gunnlaugsdóttir húsfreyja, Hrollaugsstöðum, Langanesi Jón Ólason bóndi, Hrollaugsstöðum, Langanesi Egill Jóhannsson forstj. Brimborgar Hreggviður Jónsson formaður Viðskiptaráðs og aðaleig. Veritas Capital Steingrímur J. Sigfússon alþm. og fv. ráðherra Sigfús A. Jóhannsson bóndi á Gunnarsstöðum Jóhann Jóhannsson stjórnarform. Brimborgar Stefanía Margrét Árnadóttir húsfreyja, Þórshöfn Sigurður Jóhann Jónsson verkamaður, Þórshöfn Guðný María Jóhannsdóttir fiskvinnslukona, Þórshöfn Jón Kristbjörn Jóhannsson verslunarstjóri, Þórshöfn Kristín Sigfúsdóttir húsfreyja, Hvammi, Þistilfirði Jóhann Ólafur Jónsson bóndi, Hvammi, Þistilfirði Úr frændgarði Guðnýjar Maríu Jóhannsdóttur Jóhann Arngrímur Jónsson framkv.stjóri, Álftanesi DÆGRADVÖL 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020 BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6 TIMEOUT Stóll + skemill 412.400 kr. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÁTTU ÍSSKÁP MEÐ HRINGHURÐ?” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... herra áreiðanlegur. TIL HVERS ERTU AFTUR FARINN Í BÓLIÐ? TIL AÐ REYNA AÐ SOFA AFTUR! HVERNIG Á ÉG AÐ GETA SOFIÐ? EN KÆRI HERRA, ÉG LAGÐI HLJÓÐFÆRIÐ FRÁ MÉR FYRIR TÍU MÍNÚTUM! EINMITT! „PILLURNAR HJÁLPA – EN ÉG ER SAMT HRIFNARI AF STUNGULYFJUM.” Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Blasir nú við sjónum svað. Sýslar með hann barnunginn. Margur þetta klaufi kvað. Kaffibolli og diskurinn. Þetta er lausn Hörpu á Hjarð- arfelli þessa vikuna: Eftir regn er allt í leir. Ungu börnin hnoða leir. Illa kveðið kallast leir. Kaffistellið –tau er leir. Sigmar Ingason svarar: Hollt er í volgum leir að liggja. Leirinn er hægt að hnoða og móta. Leirtauið er leiðinlegt að brjóta. Leirskáld mættu betur að orðum sínum hyggja. Helgi Þorláksson leysir gátuna svona: Hestur lit af leirnum ber, við leirinn barnið unir sér, leirinn skálda leiður er, leirtau brotnar, því er ver. Guðrún B. á þessa lausn Leirdrullu bölva, bílinn hem, en börnin leira af krafti. Á laugardögum leirburð sem og leirtau mætir kjafti. Hér kemur lausn Helga R. Ein- arssonar úr Mosfellsbænum: Í Leirvoginum leirinn er. Með leirinn barnið dundar sér. Leir er vísan líkast hér. Leirtauið í skápinn fer. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Leirinn þarna líta má. Leirinn hnoða börnin smá. Leirburðinn er ljótt að sjá. Leirtau borið gestum sá. Þá er limra: Með ásjónur mildar og meyrar í makindum föndrar og leirar og silfur í sátt nú síst eldar grátt bæjarstjórn Akureyrar. Síðan er ný gáta eftir Guðmund nr. 50: Létt er mér um strengjastrok, stöku kveð í vikulok, lengur ekki gefast grið, gáta ný hér blasir við: Í hringi gjarnan gengur sú. Goðvera í ásatrú. Sæll í henni situr þú. Söngkona, og gettu nú. Og að lokum eftir Skarða-Gísla: Kaffibolla beindu mér blíð og holl gulls-eikin því að hrollur í mér er eftir skollaleikinn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ljótur er hann Leira-Mangi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.