Morgunblaðið - 17.10.2020, Qupperneq 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020
Frakkland
Lyon – Guingamp .................................... 4:0
Sara Björk Gunnarsdóttir kom inn á sem
varamaður á 63. mínútu og skoraði þriðja
mark Lyon.
Staðan:
Lyon 18, París SG 13, Montpellier 10, Bor-
deaux 8, París FC 7, Reims 7, Fleury 7, Di-
jon 6, Soyaux 6, Le Havre 4, Guingamp 3,
Issy 0.
Ítalía
B-deild:
Brescia – Lecce ........................................ 3:0
Birkir Bjarnason og Hólmbert Aron
Friðjónsson voru ekki í leikmannahópi
Brescia.
Holland
B-deild:
Excelsior – Maastricht............................ 2:0
Elías Már Ómarsson lék allan leikinn og
skoraði annað mark Excelsior.
Volendam – Jong PSV ............................ 5:1
Kristófer Ingi Kristinsson lék fyrstu 62
mínúturnar með PSV.
Danmörk
B-deild:
Hvidovre – Silkeborg.............................. 1:5
Stefán Teitur Þórðarson er í sóttkví og
lék ekki með Silkeborg.
Viborg – Fremad Amager...................... 3:1
Patrik Sigurður Gunnarsson er í sóttkví
og lék ekki með Viborg.
Noregur
Lillestrøm – Avaldsnes ........................... 1:3
Hólmfríður Magnúsdóttir kom inn á sem
varamaður á 62. mínútu hjá Avaldsnes.
Efstu lið: Vålerenga 31, Avaldsnes 31,
Rosenborg 30, Lillestrøm 28, Sandviken 22,
Arna-Björnar 16, Klepp 14.
England
B-deild:
Derby – Watford ...................................... 0:1
Staða efstu liða:
Bristol City 4 4 0 0 8:2 12
Reading 4 4 0 0 7:1 12
Bournemouth 4 3 1 0 8:4 10
Swansea 4 3 1 0 5:1 10
Watford 5 3 1 1 3:1 10
Luton 4 3 0 1 5:2 9
Blackburn 4 2 1 1 11:3 7
Svíþjóð
Kristianstad – Lugi ............................. 38:24
Ólafur Andrés Guðmundsson og Teitur
Örn Einarsson skoruðu báðir 7 mörk fyrir
Kristianstad.
Guif – Malmö........................................ 21:30
Daníel Freyr Ágústsson varði ekki skot í
marki Guif.
Efstu lið: Kristianstad 14, Ystad IF 11,
Malmö 10, Alingsås 9, Lugi 8, Skövde 8,
Sävehof 8, IFK Ystad 7, Guif 6.
Frakkland
Créteil – Aix ......................................... 27:31
Kristján Örn Kristjánsson skoraði 4
mörk fyrir Aix.
Danmörk
GOG – Ribe-Esbjerg............................ 33:25
Viktor Gísli Hallgrímsson varði 2 skot í
marki GOG.
Rúnar Kárason skoraði 5 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg, Gunnar Steinn Jónsson 2 og
Daníel Þór Ingason 1.
Efstu lið: Aalborg 15, GOG 14, Mors 11,
Skjern 11, Tvis Holstebro 10.
Þýskaland
B-deild:
Aue – Hamburg ................................... 32:35
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 3
mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson
varði 6 skot í marki liðsins.
Afturelding hefur dregið lið sitt úr
keppni í Evrópubikar karla í hand-
knattleik en liðið átti að mæta
Granitas-Karys frá Litháen heima
og heiman í 2. umferð keppninnar
dagana 14. og 21. nóvember. Gran-
itas er þar með sjálfkrafa komið í
þriðju umferðina þar sem FH-ingar
eru skráðir til leiks en þeir sitja hjá
í annarri umferðinni.
Í yfirlýsingu sem Afturelding
birti í gær segir að vegna ferðatak-
markana og sóttvarnaákvæða af
völdum kórónuveirufaraldursins
hafi stjórn handknattleiksdeild-
arinnar ekki séð sér annað fært en
að draga liðið úr keppni. Það væri í
raun það eina ábyrga sem hægt
væri að gera í ljósi ástandsins sem
nú ríkti um allan heim.
Afturelding
hættir við
við völlinn. Ótrúlegt en satt. Þar af
leiðandi verður hann laus í sér.
Fróðir menn hafa skoðað völlinn
með mér og skilja þetta ekki. Við
munum fara vel yfir þetta á næstu
dögum til að völlurinn verði sem
bestur næsta vor.“
Lögðu á sig mikla vinnu
Kristinn segir að hann og annað
starfsfólk Laugardalsvallar hafi lagt
á sig mikla vinnu til að gera völlinn
sem best úr garði í aðdraganda
landsleikjanna.
„Okkur þykir leiðinlegt að ekki
skuli hafa tekist nógu vel til og það
er erfitt að skilja ekki hvað gerðist.
Þetta leit að sjálfsögðu illa út í sjón-
varpi þegar stóru sárin mynduðust
og eðlilegt að sé velt fyrir sér. Við
eyddum ótrúlegum tíma í að vinna í
vellinum síðan í september. Við vor-
um í marga klukkutíma á milli
leikja, jafnvel fram yfir miðnætti, til
að láta þetta ganga upp. Ég er stolt-
ur af mínu starfsfólki. Þau hafa
staðið sig vel enda gaf ég þeim langt
helgarfrí þegar þessari törn lauk,“
sagði Kristinn og hann bendir á að
ekki hafi verið um nema 3% af vall-
arfletinum að ræða.
„Við náðum að spila þrjá leiki,
sem var aðalmálið. Við starfsfólkið
vonuðumst eftir því að völlurinn
yrði betri. Bjuggumst við því en
annað kom á daginn. Þetta tókst
ágætlega miðað við aðstæður. 97%
af vellinum eru í frábæru standi og
við erum auðvitað ánægð með þann
hluta vallarins. Sérstaklega miðað
við sextíu ára gamlan völl á Íslandi í
október,“ sagði Kristinn í samtali
við Morgunblaðið. Laugardalsvöll-
urinn er ekki alveg kominn í vetr-
arfrí því fyrirhugaðir eru bikarúr-
slitaleikir karla og kvenna á
vellinum 6. og 8. nóvember, ef
keppni verður ekki aflýst.
Þjóðarleikvangurinn
er ekki fyrirsjáanlegur
Ráðgata hvers vegna framkvæmdir á Laugardalsvelli drógu dilk á eftir sér
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Völlurinn Svona leit Laugardalsvöllurinn út í gær, eftir þrjá landsleiki í október. Dökka rákin hægra megin í dekkri
fletinum sýnir annan staðinn þar sem grafið var í gegnum völlinn til að koma vökvunarkerfinu fyrir.
VÖLLURINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Óvenju mikil landsleikjatörn er
nú yfirstaðin á Laugardalsvelli og
það í október. Ekki er óalgengt að
landsliðin spili tvo heimaleiki í einni
hrinu en nú lék karlalandsliðið í
knattspyrnu þrjá leiki fyrir utan æf-
ingarnar á vellinum. Áhorfendur
veittu því athygli að þökur rifnuðu
upp á vissum stöðum á vellinum þar
sem hann virðist ekki hafa jafnað
sig eftir framkvæmdir í sumar.
Morgunblaðið hafði samband við
Kristin Jóhannsson vallarstjóra og
spurði hann í hvaða framkvæmdir
var ráðist í sumar.
„Við ákváðum að leita til borg-
arinnar til að fá að setja vökvunar-
kerfi í völlinn. Sú framkvæmd hófst
í lok júlí og lauk um 10. ágúst. Við
eigum í erfiðleikum með ákveðin
svæði á vellinum vegna þessara
framkvæmda. Svo óheppilega vildi
til að tæklingar urðu á þessum
svæðum og þá komu stór sár í völl-
inn.
Ég taldi að þessar framkvæmdir
myndu ekki hafa áhrif á landsleik-
ina í september og október. Þeir að-
ilar sem ég talaði við voru á sama
máli, til að mynda Bjarni Hann-
esson, doktor í grasvallafræði, sem
starfað hefur með okkur.
Við höfum klórað okkur í hausn-
um yfir af hverju grasið festi sig
ekki og höfum verið í stöðugu sam-
bandi út af þessu. Hann hefur til að
mynda rætt við kollega sína bæði í
Evrópu og í Bandaríkjunum. Þeir
hrista einnig hausinn yfir þessu.
Þetta er óeðlilegt og við höfum ekki
skýringar enn sem komið er. Vana-
lega tekur þetta um viku að jafna
sig en sú varð ekki raunin í þessu
tilfelli. Ræturnar náðu ekki að gróa
Erkifjendurnir í Everton og Liver-
pool mætast á Goodison Park í
ensku úrvalsdeildinni í fótbolta kl.
11:30 í dag. Er áratugur síðan
Everton fagnaði síðast sigri á Liv-
erpool í deildinni, en liðið er með
fullt hús stiga eftir fjóra leiki og
Liverpool með níu stig. Gylfi Þór
Sigurðsson er klár í slaginn með
Everton, en hann hefur nýtt tæki-
færin sín afar vel það sem af er leik-
tíðar. Klukkan 16:30 mætast Man-
chester City og Arsenal í
Manchester. Er Arsenal með níu
stig en City aðeins fjögur.
Byrjar Gylfi í
grannaslagnum?
AFP
Liverpool Gylfi Þór Sigurðsson er
klár í slaginn um Bítlaborgina.
Freyr Alexandersson, aðstoð-
arþjálfari íslenska karlalandsliðs-
ins í fótbolta, er við það að sam-
þykkja starfstilboð Al-Arabi í
Katar, en hann verður aðstoð-
arþjálfari Heimis Hallgrímssonar.
Vefmiðilinn 433.is greindi frá í
gærkvöld. Mun Freyr halda starfi
sínu hjá landsliðinu áfram samhliða
því að aðstoða Heimi. Unnu Heimir
og Freyr saman hjá landsliðinu á
sínum tíma og sá Freyr m.a. við
leikgreiningu á meðan Heimir var
landsliðsþjálfari. Aron Einar Gunn-
arsson leikur með liðinu.
Freyr aðstoðar
Heimi í Katar
Morgunblaðið/Eggert
Katar Freyr Alexandersson mun að-
stoða Heimi Hallgrímsson.
Aleksander Ceferin, forseti Knattspyrnusambands Evr-
ópu, UEFA, hefur opnað fyrir þann möguleika að úr-
slitakeppni EM karla sumarið 2021 verði ekki leikin í öll-
um þeim tólf borgum þar sem fyrirhugað er að hún fari
fram. Ceferin sagði við fréttastofu Reuters að UEFA
hefði áhyggjur af stöðu mála víða í Evrópu vegna út-
breiðslu kórónuveirunnar. „En við erum algjörlega
sannfærðir um að EM muni fara fram. Stefnt er að því að
keppnin verði með því fyrirkomulagi sem sett hafði ver-
ið upp. En það er mögulegt að í stað tólf staða gætum við
haldið keppnina í ellefu, átta, fimm eða jafnvel einu
landi,“ sagði Ceferin.
Hann sagði jafnframt að það væri alltof snemmt að fullyrða eitthvað um
hvort leikið yrði með eða án áhorfenda. Keppnin á að fara fram dagana 11.
júní til 11. júlí en henni var frestað um eitt ár vegna faraldursins. Keppn-
isstaðir eru London, Glasgow, Dublin, Bilbao, Amsterdam, München, Róm,
Kaupmannahöfn, Búdapest, Búkarest, Pétursborg og Bakú. Íslenska
landsliðið leikur í Búdapest og München ef það kemst á EM.
Leikið í færri borgum á EM?
Aleksander
Ceferin
Danska knattspyrnufélagið Fredericia skýrði frá því í
gær að aðalmarkvörður liðsins, Elías Rafn Ólafsson, hefði
greinst með kórónuveiruna þegar hann sneri aftur til
Danmerkur eftir að hafa spilað með 21-árs landsliði Ís-
lands í Lúxemborg á þriðjudaginn. Fram kom að Elías
væri frískur og einkennalaus en væri kominn í einangrun.
Hann er hjá félaginu í láni frá dönsku meisturunum Midt-
jylland og hefur spilað alla leiki þess í B-deildinni á yf-
irstandandi tímabili.
Ljóst er að Elías mun missa af a.m.k. þremur næstu
leikjum því leikið er þétt á næstunni. Norska félagið
Strömsgodset skýrði frá því að Ari Leifsson og Valdimar
Þór Ingimundarson, sem léku með Elíasi gegn Lúxemborg, væru komnir í
sóttkví en þeir missa þar með af tveimur leikjum liðsins í norsku úrvalsdeild-
inni. Patrik Sigurður Gunnarsson gat ekki varið mark Viborg gegn Fremad
Amager í gær af sömu sökum og Stefán Teitur Þórðarson lék ekki með Silke-
borg gegn Hvidovre. Lið Íslands í umræddum leik var eingöngu skipað leik-
mönnum erlendra liða. Átta þeirra komu frá dönskum liðum. vs@mbl.is
Markvörðurinn með smit
Elías Rafn
Ólafsson