Morgunblaðið - 17.10.2020, Qupperneq 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
★★★★★
★★★★★
★★★★★
The Guardian
The Times
The Telegraph
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
MÖGNUÐ MYND SEM
GAGNRÝNENDUR HLAÐA LOFI :
★★★★★
★★★★★
★★★★★
Roger Ebert.com
San Fransisco Cronicle
The Playlist
88%
SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
MYNDIN SEM HEFUR SLEGIÐ Í GEGN
Í EVRÓPU UNDANFARNAR VIKUR.
FORSÝNINGAR UM HELGINA.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Það er ágætis merki um að þúsért kominn eitthvað á veg ítónlistarferlinum þegar gest-
ir á plötunni þinni eru annars vegar
hin sænska Robyn – ekki bara ein
merkasta poppstjarna Svíþjóðar
heldur heimsins – og Elizabeth
Frazer, fyrrverandi söngkona hinn-
ar stórkostlegu Cocteau Twins. Hún
söng inn á hið magnaða „Teardrop“
eftir Massive Att-
ack og rödd henn-
ar er ekkert
minna en guð-
dómleg. Þetta
tvíeyki setur
mark sitt á Shiv-
er, nýútkomna
plötu Jónsa, sem við ætlum að rýna
aðeins í hér.
Jónsi hefur alla tíð verið með virk-
ari mönnum en meðfram starfi sínu í
Sigur Rós hefur hann stundað alls
kyns listastarfsemi og auk tónlistar
hefur hann til dæmis látið sig hönn-
un og myndlist varða. Hann hefur þá
lagst í ilmkönnun sem má nálgast í
Fischer, Fischersundi, verslun/sýn-
ingarrými sem hann á þátt í ásamt
m.a. systrum sínum þremur; Lilju,
Ingibjörgu og Sigurrós (nánar á fisc-
hersund.com). Eigi er hann maður
einhamur en fyrir stuttu hélt hann
sína fyrstu einkasýningu í hinu virta
… en ég stend alltaf upp
myndlistargalleríi Tanya Bonakdar
Gallery í Los Angeles þar sem verk
hans könnuðu áhrif hljóðs á fleiri
skynfæri en bara eyrun. Síðustu ár
hefur Jónsi þróað listsköpun sína í
gegnum samstarfsverkefni með
listamönnum á borð við Doug Ait-
ken, Ólaf Elíasson og Merce Cunn-
ingham og nú síðast listamanninum
og tónskáldinu Carl Michael von
Hausswolf, en með honum stofnaði
Jónsi tónlistarverkefnið Dark
Morph (Carl er faðir Önnu von
Hausswolf).
En að plötunni. Hana vann Jónsi
með A.G. Cook og í fréttatilkynn-
ingu segir Jónsi að eftir 30 ár í
bransanum langi hann til að gera
eitthvað nýtt, eitthvað ferskt, eitt-
hvað öðruvísi. Jónsi var búinn að
gera plötu nánast upp á eigin spýtur
en á endanum sótti hann í fleiri eyru.
Í tilkynningunni kemur og fram að
Cook hafi tekið til við að strípa niður
margt af því sem Jónsi var með klárt
og gengið grimmilega fram í því
verki, nokkuð sem Jónsi var ánægð-
ur með. Svona fréttatilkynningar
eru iðulega 20% staðreyndir og 80%
ljóðrænt blaður (já, ég hef skrifað
svona texta) en það er eitt í honum
sem er alveg kórrétt, nokkuð sem
maður heyrir glöggt þegar á er
hlýtt. Og þetta er í raun réttri lykill-
inn að plötunni: Hvernig melódískt
nef Jónsa, færni hans við að mynda
epíska hljóma og falleg ris sem fá
hörðustu skógarhöggsmenn til að
vikna, mætir tilraunakenndri,
hvassri og á stundum bylmingslegri
nálgun Cooks við upptökustjórn.
Þessir tveir heimar togast á í plöt-
unni – út í gegn – og gera hana. Um-
slagið er í raun lýsandi fyrir inni-
haldið, það er allt svart og hvítt
hérna. Kalt og krómkennt. Engu að
síður er giska mikið um fjölbreytni
innan gefins ramma. Tökum dæmi.
Fyrsta lagið, „Exhale“, er fallegt,
liggur í zen-legri íhugun en er á líður
verður taktframvinda æði hörð.
Titillagið rennur í svipuðu fari og
það er eitthvað miskunnarlaust við
áferðina. Hún er nakin, jafnvel stuð-
andi. Vélræn. „Sumarið sem aldrei
kom“ myndar ákveðið tematískt
hryggjarstykki plötunnar. Sungið á
íslensku (Jónsi syngur á ensku og
íslensku til skiptis) og fremur ólund-
arleg kveðja til Fróns. Níðstöng í
lagslíki. Rætt er um skammdegið,
sólarleysið og þann dauða og djöful
sem þrífst á þessu „skítaskeri“. Ég
lái honum þetta ekki. En Jónsi kann
líka þá list að bregða á leik. „Swill“
er grínaktugt, líkt og Einstürzende
Neubauten hefðu loks ákveðið að
reyna að komast inn á vinsældalista
Bylgjunnar. Púkalegt, stríðið, rödd-
in unnin, beygð og sveigð. En engar
áhyggjur samt, það er nóg af mikil-
úðlegum myrkraballöðum líka (en
ætíð með þessum magnaða kulda-
trekki Cooks). Annað dæmi um
sprell er lagið sem Jónsi syngur með
Robyn. „Salt Licorice“ nefnir
„Scandinavian Pain“ og Robyn æpir
„ónei!“ í þessu klúbbalagi frá helvíti.
Snilldarlag. Eins skemmtilegt og
það er tilraunakennt.
Jónsi býr í Los Angeles í dag.
Nýtur þar sólar, kannski enn frekar,
komandi frá skítaskeri. Ég gæti
leyft mér að fara út í ljóðrænt blaður
um að ljósið og skuggarnir sem tak-
ast óneitanlega á í lögunum séu birt-
ingarmynd þessa tveggja íveru-
staða. En ég held ég sleppi því.
»Hvernig melódísktnef Jónsa, færni hans
við að mynda epíska
hljóma og falleg ris sem
fá hörðustu skógar-
höggsmenn til að vikna,
mætir tilraunakenndri,
hvassri og á stundum
bylmingslegri nálgun
Cooks við upptöku-
stjórn.
Shiver er sólóplata
Jónsa sem einnig er
þekktur sem söngvari
og gítarleikari Sigur
Rósar. Heil tíu ár eru
liðin frá því hann gaf út
fyrstu sólóplötu sína,
Go, en fyrir hana hlaut
hann Norrænu tón-
listarverðlaunin.
Einn Jónsi kann að
hafa gefið út sóló-
plötu en ýmsir koma
þó við sögu á henni.