Morgunblaðið - 17.10.2020, Side 48

Morgunblaðið - 17.10.2020, Side 48
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Snyrtivörumerkin okkar eru: M a d e i n I c e l a n d VELÚRGALLAR Ný sending Vinsælu velúrgallarnir fyrir konur á öllum aldri til í nokkrum litum og stærðir S-4XL. Einnig eigum við stakar svartar velúrbuxur. PóstsendumAnnar hluti sýningarverkefnisins „Latent Shadow“ verður opinn frá kl. 12 til 16 í dag, laugardag, í sýningarsalnum Harbinger á Freyjugötu 1. Á sýningunni eru verk eftir Elínu Hansdóttur, Anne Rombach, Berg- lindi Hreiðarsdóttur og Chelsey Honders. Listamenn- irnir vinna allir með ljósmyndaverk þar sem tekist er á við form og yfirborð, bjögun, umbreytingu og bók- staflega merkingu mynda. Sýningarstjórar eru Claudia Hausfeld og Daría Sól Andrews. Vegna Covid-19 verður engin formleg opnun og vel hugað að sóttvörnum. Tekist á við form og yfirborð á sýningu fjögurra í Harbinger LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 291. DAGUR ÁRSINS 2020 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.196 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Marco Rossi, þjálfari ungverska karlalandsliðsins í knattspyrnu, segir að Ísland sé sigurstranglegri aðilinn í úrslitaleik þjóðanna um sæti á EM sem fer fram í Búdapest 12. nóvember. Hann hafi hins vegar grand- skoðað íslenska liðið ásamt aðstoðarmönnum sínum undanfarna átta til níu mánuði og það spili mjög árang- ursríkan fótbolta og útfæri leikaðferð sína afar vel. »41 Hafa grandskoðað íslenska liðið en segja það sigurstranglegra ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Lið Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Hlíðar á Akureyri varð í þriðja sæti á eftir liðum frá Noregi og Kanada í alþjóðlegri hjólakeppni aldraðra, sem fram fór á dögunum með þátt- töku um 120 liða. Liðsmenn Hlíðar hjóluðu samtals 9.063 km og þar af hjólaði Aðalheiður Einarsdóttir 832 km, lengst Íslendinga í keppninni. „Ég varð í 6. sæti kvenna á heims- vísu og þetta var ekki sérstaklega erfitt, ég hjólaði um tvo tíma á dag í 20 daga,“ segir hjólreiðakappinn, sem er 96 ára. „Ég er sæmilega hress miðað við aldur,“ heldur Aðalheiður áfram og segist ekki hafa stundað hefðbundna líkamsrækt, heldur „verið þrælandi kerling“. Hún fæddist og ólst upp á Djúpalæk í Bakkafirði, bjó lengi á Þórshöfn og hefur í 42 ár átt heima á Akureyri, þar sem hún vann lengi hjá KEA. Eiginmaður hennar, Tryggvi Sigurðsson frá Skálum á Langanesi, dó 1992. Þau eignuðust þrjú börn. Rifjar upp ferðalög Ásta Þorsteinsdóttir sjúkraþjálf- ari hefur skipulagt þátttöku Hlíðar í keppninni, sem fór nú fram í fjórða sinn, en Hlíð var ekki með fyrsta ár- ið. Keppendur hjóla á sérstökum kyrrstæðum hjólum og á sama tíma má fylgjast með myndum á sjón- varpsskjám og ímynda sér að verið sé að hjóla í landslaginu sem líður hjá á skjánum. „Ég hef lengi verið í sjúkraþjálfun hjá Ástu og meðal annars í þessum hjólreiðum,“ segir Aðalheiður, sem er sjóndöpur og segist því ekki hafa horft mikið á skjáinn. „Ég hef ferðast mikið um Evópu og þegar ég leit upp kann- aðist ég oft við staðina. Þetta rifjaði því upp gamlar ferðir, mikil ósköp, og það er gaman að hjóla um kunnug svæði í þykjustunni.“ Áður en sjónin gaf sig var Aðal- heiður mjög virk og saknar þess. „Mig vantar svo eitthvað til að gera,“ segir hún. „Það er svo hræði- legt að missa sjónina, ég sé bara allt í móðu. Ég var mikið í handavinnu, las mikið, var sjúklega óð í kross- gátur, málaði og spilaði mikið og hafði alltaf nóg að gera eftir að ég hætti að vinna. Ég er ákveðin í því að vera aftur með í keppninni næsta haust og stefni þá á 1.000 kílómetra, ef ég verð ekki búin að leggja upp laupana.“ Segist samt ekkert vera á förum og þess sé vandlega gætt að íbúar á Hlíð fái ekki kórónuveiruna. „Þetta er eins og að vera í fangelsi, við megum ekki einu sinni fara á milli hæða. Svo vel er passað upp á okkur gamlingjana, en þetta er ósköp einmanalegt og ekki spenn- andi.“ Aðalheiður heldur samt geðheils- unni og þakkar það Ástu Sóllilju. „Ég hef átt hana í mörg ár og hún er afskaplega yndislegur köttur. Það er feikilegur munur að hafa hana hjá sér. Hún er mjög hænd að mér en gengur inn og út um gluggann ef henni sýnist svo. Við dólum hérna í herberginu allan daginn og svo för- um við út að ganga á hverjum degi. Það er mikils virði að geta verið úti og gengið.“ Árangur Aðalheiðar á hjólinu hef- ur vakið athygli, m.a. hefur verið sagt frá honum á N4 og í Frétta- blaðinu, og hún segir að börnin sín og barnabörn séu alveg bit. „Þau líta á mig sem undraskepnu og einn langömmustrákurinn segir að ég hljóti að vera gerð úr öðru efni en aðrir!“ Dólar með kettinum Sigurvegari Aðalheiður Einarsdóttir er ánægð með árangurinn.  Aðalheiður Einarsdóttir, 96 ára, hjólaði 832 km og sigraði Í Evrópu Íbúar á Hlíð á Akureyri skoða umhverfið á ferðalaginu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.