Morgunblaðið - 19.11.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
arráðshús) var reist á árunum 1761-
1771. Árið 1813 var rekstri tugthúss-
ins hætt og þeim föngum sem enn
sátu inni sleppt. Hafist var handa við
framkvæmdir og húsinu gjörbreytt
veturinn 1819-1820. Það varð síðan
aðsetur stiftamtmanns og enn síðar
landshöfðingja og húsið kennt við
hann. Við stofnun heimastjórnar 1.
febrúar 1904 var ákveðið að Lands-
höfðingjahúsið yrði aðalaðsetur
landsstjórnarinnar, síðar ríkis-
stjórnar Íslands, og hefur það síðan
verið kallað Stjórnarráðshús.
Ráðuneytin fluttu eitt af öðru í
önnur hús. Skrifstofa forseta Íslands
var í húsinu til ársins 1996 og síðan þá
hefur forsætisráðuneytið haft allt
Stjórnarráðshúsið til afnota.
ræða tveggja hæða viðbyggingu með
niðurgröfnum kjallara, sem tengist
Stjórnarráðshúsi með tengigangi.
Við endurmat á verkefninu er
áformað byggingarmagn á lóð og
fjöldi hæða húshluta:
Núverandi friðað Stjórnarráðs-
hús, tvær hæðir og ris, 512 m² brúttó.
Viðbygging og tengigangur,
tvær hæðir og kjallari, um 1.500 m²
brúttó.
Byggingarheimildir og aðrir skipu-
lagsþættir verða nánar útfærðir við
gerð deiliskipulagsins, segir Fram-
kvæmdasýslan. Áætlað hefur verið
að þessi viðbygging gæti kostað allt
að 1.000 milljónir króna.
Fram kemur á vef Stjórnarráðsins
að Tugthúsið í Reykjavík (nú Stjórn-
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Eitt þekktasta hús Reykjavíkur er
Stjórnarráðshúsið við Lækjartorg,
aðsetur forsætisráðherra. Það er
sjaldan nefnt til sögunnar að húsið er
með götunúmer, Lækjargata 1.
Þótt Stjórnarráðshúsið hafi staðið
á þessum stað í næstum 260 ár er
ekkert deiliskipulag til fyrir lóðina.
Nú á að bæta úr því, enda stendur til
að reisa viðbyggingu við húsið.
Á embættisafgreiðslufundi skipu-
lagsfulltrúa 16. október síðastliðinn
var lögð fram umsókn Framkvæmda-
sýslu ríkisins um nýtt deiliskipulag
fyrir lóðina nr. 1 við Lækjargötu, lóð
forsætisráðuneytisins og Stjórn-
arráðshússins, vegna áforma um við-
byggingu við húsið fyrir starfsemi
forsætisráðuneytisins. Einnig er lögð
fram vinningstillaga Kurt og Pí arki-
tekta frá árinu 2018 um viðbygg-
inguna.
Viðbyggingin 1.500 fermetrar
Fram kemur í bréfi Fram-
kvæmdasýslunnar að vegna áforma
um viðbyggingu var gerð krafa um
fornleifauppgröft á lóðinni. Forn-
leifauppgreftri í samvinnu við Minja-
stofnun Íslands er að ljúka á lóðinni.
Sem hluta af því verkefni var aflað
byggingarleyfis fyrir rifi stakstæðs
bakhúss á lóðinni. Heimild Minja-
stofnunar Íslands lá fyrir við þá um-
sókn. Rifi bakhússins er lokið.
Í samræmi við vinningstillögu
Kurt & Pí arkitekta (KP) er um að
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stjórnarráðsreitur Fornleifarannsókn hefur staðið yfir en henni er að ljúka. Næsta skref er deiliskipulagsvinna.
Fyrsta deiliskipulagið
á lóð Stjórnarráðsins
Byggt við Lækjargötu 1 Fornleifauppgreftri að ljúka
Mynd/Kurt&Pí
Viðbyggingin Tölvugerð mynd sem sýnir hvernig byggingin gæti litið út
séð frá Bankastræti. Tengigangur verður þaðan yfir í Stjórnarráðshúsið.
Höfðabakka 9, 110 Rvk | www.runehf.is
• Verslun Guðsteins Eyjólfssonar
– Laugavegi 34 og Ármúli 11
• Hagkaup – Reykjavík, Garðabær,
Selfoss og Akureyri
• Fjarðarkaup – Hafnarfirði
• Herrahúsið – Ármúli 27
• Karlmenn – Laugavegi 87
• Vinnufatabúðin – Laugavegi 76
• JMJ – Akureyri
• Bjarg – Akranesi
• Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstangi
• Skóbúð Húsavíkur
• Efnalaug Suðurlands – Selfossi
• Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki
• Verslun Haraldar Júlíussonar – Sauðárkróki
• Efnalaug Vopnafjarðar
• Sigló Sport – Siglufirði
• Blossi – Grundarfirði
• Verslun Bjarna Eiríkssonar – Bolungarvík
• Verslun Grétars Þórarinssonar – Vestmannaeyjum
• Sentrum - Egilsstöðum
Útsölustaðir:
Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is – Erum við símann kl. 12-17 virka daga
Silfurmunir og skartgripir síðan 1924
ERNA
GULL- OG SILFURSMIÐJAHönnuður
Ragnhildur Sif Reynisdóttir
Verð kr. 21.500
Hönnuður
Ösp Ásgeirsdóttir
Verð kr. 8.500
Jólaskeiðin &
jólabjallan
2020
Frí heim-
sending
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Við-
reisnar og forseti borgarstjórnar
Reykjavíkur, segir borgina opna
fyrir viðræðum við fjárfesta sem
áforma lúxushótel á Miðbakkanum
við Reykjavíkurhöfn.
Hins vegar sé málið ekki komið
svo langt að hægt sé að ræða um til-
teknar staðsetningar í þessu efni.
„Það eina sem ég get sagt er að
við erum almennt jákvæð í garð upp-
byggingar og atvinnu í borginni.
Hugmyndir um hótel eru ágætar.
Eins og þekkt er er þetta viðkvæmt
svæði en það gæti valdið deilum ef
taka ætti stóran hluta af strand-
lengjunni undir þetta [hótel],“ segir
Pawel um stöðu málsins.
Tilefnið er samtal við Dag B.
Eggertsson borgarstjóra í Við-
skiptaMogganum í gær en Dagur
sagði koma til greina að hótelkeðjan
fengi aðra lóð undir starfsemina.
Pawel er nú staðgengill Sigur-
borgar Óskar Haraldsdóttur, for-
manns skipulags- og samgönguráðs,
en hún er í tímabundu leyfi.
Fram kom í Morgunblaðinu að
malasíski kaupsýslumaðurinn Vin-
cent Tan hefði tryggt 40 milljarða
króna fjármögnun vegna hótelsins.
Þar er áformað að hafa 150 herbergi,
auk þjónustuíbúða.
Vísa á Vesturhöfnina
Magnús Þór Ásmundsson hafn-
arstjóri segir Faxaflóahafnir ekki
hafa átt formlegar viðræður við um-
rædda fjárfesta.
„Þeir hafa óskað eftir þessu
svæði á Miðbakkanum. Við bentum
á það í svari okkar til skipulags-
fulltrúans í Reykjavík að það væru
óbyggðar lóðir í vesturhluta Vestur-
hafnar, sem sagt úti í Örfirisey. Að
öðru leyti hefur sú umræða ekki
farið fram við þessa lóðarhafa,“
segir Magnús Þór.
Hafa bent á Örfirisey
Teikning/Yrki arkitektar
Miðbakkinn Drög að hótelinu.
Faxaflóahafnir
benda á lóðir fyrir
lúxushótelið
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VANTAR ÞIG
PÍPARA?