Morgunblaðið - 19.11.2020, Side 32
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís-
lands hefur ákveðið að lækka vexti
bankans um 0,25 prósentur. Megin-
vextir bankans, vextir á sjö daga
bundnum innlánum, verða því 0,75%.
Eins og Samtök iðnaðarins benda
á í pistli á heimasíðu sinni kemur
lækkunin ekki til af góðu, því bank-
inn spáir nú meiri samdrætti í ár en í
ágústspá sinni og sömuleiðis minni
hagvexti á næsta ári.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
sagði á kynningarfundi í gærmorgun
að peningastefnunefnd myndi áfram
nota þau tæki sem nefndin hefði yfir
að ráða, m.a. kaup Seðlabankans á
ríkisskuldabréfum, til að styðja við
þjóðarbúskapinn og „tryggja að
lausara taumhald peningastefnunn-
ar miðlist með eðlilegum hætti til
heimila og fyrirtækja“.
Fagna vaxtalækkuninni
Samtök iðnaðarins fagna vaxta-
lækkun bankans í pistli sínum og
segjast ánægð með að nefndin muni
nota þau tæki sem hún hafi yfir að
ráða. Samtökin vilji hins vegar
minna á að orðum þurfi að fylgja að-
gerðir í þessum efnum. Eins og SI
bendir á hafa langtímavextir verið að
hækka undanfarið, sem að mati sam-
takanna er mjög úr takti við það sem
hagkerfið þarf á að halda á þessum
erfiðu tímum. Snúa þurfi þeirri
hækkun í lækkun.
Rætt er um orsakir hækkunar
langtímavaxta í Peningamálum
Seðlabankans, sem birt voru sam-
hliða vaxtaákvörðuninni, en þar seg-
ir að væntingar um aukna skuldsetn-
ingu ríkissjóðs á næstu árum vegi
eflaust þungt í hækkun langtíma-
vaxta að undanförnu.
Á kynningarfundinum sagði Ás-
geir, spurður út í helstu markmið
lækkunarinnar núna, að bankinn
teldi fasteignamarkaðinn með nægj-
anlega örvun eins og er. Hins vegar
þyrfti að örva aðra atvinnustarfsemi.
„Við viljum fókusa á að bankarnir
nýti efnahagsreikning sinn fyrir
fyrirtækjalán,“ sagði Ásgeir á fund-
inum, en samkvæmt upplýsingum í
Peningamálum telja 50% af stærstu
fyrirtækjum landsins að þau muni
fjárfesta minna á næsta ári, en að-
eins 13% telja að þau fjárfesti meira.
Kom öllum á óvart
Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræð-
ingur Íslandsbanka segir í samtali
við Morgunblaðið að vaxtalækkun
bankans hafi komið nær öllum grein-
ingaraðilum á markaði á óvart. Segir
Jón Bjarki að þegar svo sé í pottinn
búið sé það skýrt merki um að bank-
inn hafi ekki verið nógu skýr í að-
draganda ákvörðunar sinnar um
hvers mætti vænta. „Vaxtalækkunin
sjálf er kærkomin, en það er óheppi-
legt að hún hafi þurft að koma á
óvart.“
Aðspurður segir Jón Bjarki afleið-
ingu þess að bankinn sé óskýr í að-
draganda ákvörðunar sinnar birtast
í aukinni óvissu hjá fólki og fyrir-
tækjum sem og fjármálakerfinu.
„Það er ekki á bætandi á þessum
tímum. Þetta verður líka til þess að
fjármálastofnanir halda frekar að
sér höndum í lánveitingum ef þær
vita ekki hvað er fram undan.“
Þá segir Jón Bjarki að skilaboð
bankans um hvernig hann ætli að
beita sér í kaupum á ríkisskuldabréf-
um séu misvísandi, sem geti haft
áhrif á að langtímavextir haldist
hærri en ella.
Jón Bjarki segir ljóst að bankinn
hafi minni áhyggjur af heimilunum
en fyrirtækjunum, enda hefur
sparnaður heimilanna aukist gríðar-
lega í kreppunni, eiginfjárstaða
þeirra sé sterk og þau séu ekki að
lenda í skammtímaskuldavandræð-
um. „Ef vaxtalækkunin skilar sér
yfir í skammtímavexti fyrir-
tækjalána þá eru þetta góðar fréttir
fyrir fyrirtækin í landinu.“
8,5% samdráttur
Í máli Ásgeirs á fundinum kom
fram að horfur hefðu versnað frá því
síðasta spá bankans var gefin út í
ágúst, enda ástandið vegna kórónu-
faraldursins farið versnandi frá því í
sumar. Nóvemberspá Peningamála
gerir nú ráð fyrir 8,5% samdrætti
landsframleiðslu á þessu ári, sem er
einni prósentu meiri samdráttur en
spáð var í ágúst. Einnig er spáð
minni hagvexti á næsta ári, en eins
og bankinn bendir á í spám sínum er
óvissa um efnahagshorfur mikil og
þróun efnahagsmála mun að tölu-
verðu leyti ráðast af framvindu far-
sóttarinnar.
Hvað ferðamenn varðar spáir
bankinn því nú að 750 þúsund ferða-
menn komi til landsins á næsta ári,
en hann spáði 1,1 milljón ferða-
manna í ágústspá sinni. Það þýðir
m.a. að bankinn spáir því að útflutn-
ingur aukist aðeins um 11-12% á
næsta ári, í stað 20% eins og í ágústs-
pánni.
Jón Bjarki bendir á að í spám
Seðlabankans sé mögulega ekki tek-
ið að fullu tillit til þeirra jákvæðu
frétta sem borist hafa af bóluefni
gegn kórónuveirunni. Ef bóluefni
komi og vel gangi að bólusetja gæti
þessi tala yfir hingaðkomur ferða-
manna hæglega orðið hærri.
Vaxtalækkun beint að fyrirtækjum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Spár Seðlabankinn spáir því að útflutningur aukist aðeins um 11-12% á næsta ári, í stað 20% eins og í ágústspá sinni.
Peningamál
» Seðlabankinn spáir 8,5%
samdrætti landsframleiðslu í ár
í stað 7,1% í ágústspá sinni.
» Spá 3,7% verðbólgu að með-
altali fram á fyrsta fjórðung
næsta árs. Slaki í þjóðarbúinu
togar hana niður í verðbólgu-
markmið á 3. fjórðungi.
Seðlabankinn lækkaði vexti um 0,25 prósentur Sparnaður heimilanna aukist gríðarlega Mikil
óvissa vegna kórónuveirunnar Hagfræðingur Íslandsbanka gagnrýnir óskýrleika í aðdragandanum
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2020
Lifandi
lausnir
Nýir tímar í
viðburðahaldi
harpa.is/lifandilausnir
HEIÐI Hlý parka úlpa
fyrir börn Kr.18.990.-
Stærðir 98-164
● Velta með bréf Icelandair Group nam 518 milljónum króna í Kauphöll Íslands í
gær. Hækkuðu bréf félagsins um 2,9% í viðskiptunum. Hafa bréf félagsins nú
hækkað um 40% frá því að hlutabréfaútboði þess lauk í síðari hluta sept-
embermánaðar.
Nokkur hækkun varð á flestum félögum sem skráð eru á aðallista Kauphall-
arinnar í gær. Marel lækkaði þó um 0,5%, Arion banki um 0,5% og Hagar um
0,2%. Næstmest varð hækkun á bréfum TM eða 2,1% í 91 milljónar króna við-
skiptum. Talsverð velta var með bréf VÍS eða 330 milljónir og hækkuðu bréfin um
1%. Þá hækkuðu bréf Sjóvár um 1,7% í 217 milljóna króna viðskiptum.
Talsverð viðskipti með Icelandair
STUTT