Morgunblaðið - 24.12.2020, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 24.12.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2020 Við erum í næsta nágrenni! www.apotekarinn.is OPIÐ ALLA DAGA YFIR HÁTÍÐARNAR Í AUSTURVERI Starfsfólk Apótekarans óskar viðskiptavinum sínum gleðilegrar hátíðar 8–18 24. des Opið 9–24 25. des Opið 9–24 26. des Opið 9–24 27. des Opið 8–24 28. des Opið 8–18 31. des Opið 9–24 1. jan Opið 9–24 2. jan Opið 9–24 3. jan Opið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fyrirtækið Suðurdalur ehf. áformar að koma upp lítilli gufuaflsvirkjun á Folaldahálsi við Hengilssvæðið, í landi Króks í Grafningi. Grímsnes- og Grafningshreppur hefur auglýst skipulags- og matslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag fyrir jörðina. Eigendur jarðarinnar Króks, und- ir nafni Suðurdals ehf., létu bora rannsóknarholu á Folaldahálsi, syðst í landi sínu, á árinu 2018, í þeim til- gangi að kanna hvort þar væri nýti- legur jarðhiti til upphitunar fyrir sumarhúsabyggð á jörðinni. Fram kemur í skipulagslýsingunni að próf- anir hafi leitt í ljós að jarðhitavökv- inn er þurr gufa og hentar ekki vel til öflunar á heitu vatni. Hins vegar henti jarðhiti í þessu formi mjög vel til framleiðslu raforku, meðal annars fyrir sumarhúsabyggð og aðra mögulega starfsemi í landi Króks. Einnig er sá möguleiki talinn fyrir hendi að selja rafmagn inn á dreifi- kerfi Rarik. Rýri ekki verndargildi Miðað er við 3,9 MW gufuafls- virkjun. Gert er ráð fyrir að bora þurfi tvær aðrar borholur og koma upp gufuskilju, gufuháf áamt gufu- lögnum og öðrum búnaði virkjunar auk stöðvarhúss og kæliturna. Ef til kemur verður lagður jarðstrengur niður í byggðina. Aðkomuvegur er hins vegar frá Hellisheiði. Folaldaháls gengur út úr Kyllis- felli og er syðst í landi Króks, alveg við sveitarfélagamörk Ölfuss. Sunn- an við mörkin eru virkjanir Orku náttúrunnar. Í skipulagslýsingu kemur fram að iðnaðarsvæðið sem verið er að skilgreina undir virkjun nær ekki inn á svæði á náttúruminja- skrá. Umhverfisstofnun bendir á í umsögn að þrátt fyrir það kunni framkvæmdin að hafa áhrif á vernd- argildi svæðanna og bendir á mik- ilvægi þess að skipulagsbreytingin rýri ekki verndargildi þeirra. Vekur Umhverfisstofnun athygli á því að unnið er að friðlýsingu Reykjatorf- unnar í Ölfusi, þar með töldum Grændal og Reykjadal. Síðarnefndi dalurinn er vinsælt göngusvæði og Grændalur liggur samsíða honum og er að mestu ósnotið land. Hann end- ar skammt sunnan við fyrirhugað virkjanasvæði. Grændalur í verndarflokki Fyrirtækið Sunnlensk orka, dótt- urfélag Rarik, hóf rannsóknir á jarð- hita í Grændal fyrir um áratug. Dalnum var raðað í verndarflokk í rammaáætlun. Lítil virkjun á Folaldahálsi  Vilja virkja fyrir sumarhúsahverfi Kortagrunnur: OpenStreetMap Folaldaháls Hveragerði Krókur Folaldaháls 1 H E N G I L L G RA F N I N GU R Reykjadalur G ræ ndalur Fyrirhug uð gufuafl svirkjun Andrés Magnússon andres@mbl.is Heilbrigðisráðuneytið féllst í gær á gagnrýni, sem fram kom í umsögn- um um drög að nýrri reglugerð um lyfjaverð, og dró í land um þau ákvæði sem mest var að fundið og varða mestu hagsmunina. Þau verða því látin vera óbreytt frá núgildandi reglugerð, en fyrirhugað er að leggjast í frekari endurskoðun hennar með hagsmunaaðilum á næsta ársfjórðungi. Niðurstaðan varð í meginatriðum sú, að ákvæði um viðmiðunarlönd verði óbreytt frá fyrri reglugerð og að þar verð áfram miðað við Norð- urlönd. Sömuleiðis að hámarksverð á Íslandi miðist við meðalverð en ekki lægsta verð í EES-löndum eins og ráðgert var. Þar ræðir um veigamestu breyt- ingarnar, sem mestu hefðu skipt, en lyfjafyrirtæki – innlend sem erlend – vöruðu eindregið við því að nær ómögulegt væri að starfa í því um- hverfi og að lyfjaöryggi í landinu yrði stefnt í voða með henni. Þar var bent á að Ísland væri ör- markaður, sem ekki næði hagstæð- ustu innkaupasamningum, þannig að erfitt eða vonlaust væri að lyfja- heildsölur eða framleiðendur hér gætu jafnað lægsta verð á gervöllu Evrópska efnahagssvæðinu. Það hefði óhjákvæmilega í för með sér að lyfjum á lyfjaskrá fækkaði enn frekar og samkeppni minnkaði. Það stefndi lyfjaöryggi og lyfjaframboði í hættu og myndi gera það að verk- um að ný lyf bærust síður til Ís- lands eða alls ekki. Þá komu m.a. fram umsagnir erlendra lyfjafram- leiðenda, sem kváðust þurfa að taka markaðsstarf sitt og lyfsölu til Ís- lands til endurskoðunar ef af reglu- gerðarbreytingunni yrði. Það voru þó ekki aðeins þeir, sem eiga beinna fjárhagslegra hags- muna að gæta, sem gerðu eindregn- ar athugasemdir við þessi atriði. Sama afstaða kom meðal annars fram frá Lyfjafræðingafélagi Ís- lands og sjúklingasamtökum. Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, benti á það að þeir, sem gert hefðu þessar at- hugasemdir við reglugerðardrögin, væru einmitt þeir, sem best þekktu til á þessum markaði, án þess þó að hún tæki opinbera efnislega afstöðu til athugasemda þeirra. Nýja reglugerðin tekur gildi um áramót, um leið og ný lyfjalög, en þau voru lengi í smíðum. Fyrrnefnd reglugerðar- drög voru hins vegar ekki lögð fram fyrr en að kvöldi 8. desember, án undangengins samráðs, og umsagnarfrestur aðeins til 20. desember. Það þótti ekki til fyrirmyndar um góða stjórnsýslu, auk þess sem vafamál væri að reglugerðin væri í samræmi við lögin eða markmið þeirra. Ráðuneytið dró í land um lyfjaverð  Heilbrigðisráðuneytið féll frá umdeildum reglugerðarbreytingum  Norðurlöndin verða áfram viðmiðunarlönd Íslands  Meðalverð á Norðurlöndum en ekki lægsta verð á EES haft til hliðsjónar Morgunblaðið/Friðrik Lyf Ráðuneytið vildi að lyf á Íslandi yrðu á lægsta verði í EES, en hætt er við að þá hefðu fá lyf verið í boði. „Þetta er rosalega mikill léttir,“ segir Jakob Falur Garðarsson framkvæmdastjóri Frumtaka, samtaka framleiðenda frum- lyfja. „Eins og segir í niður- stöðunni hefur ráðuneytinu ekki unnist tími til annars en að bregðast við þessum stærstu ásteytingarsteinum, en síðan verður reglugerðin endur- skoðuð í samráði við hags- munaaðila á fyrsta ársfjórðungi 2021. Það er það besta sem gat gerst, þetta er besta niðurstaða sem búast mátti við, og gott að ráðuneytið sá að sér, svo það er ekki bara valtað yfir lyfjageir- ann í þessu mikilvæga máli.“ Jakob telur að þarna hafi átt sér stað mistök, sem nú er verið að vinda ofan af, en gott að ráðu- neytið hafi brugðist skjótt við ábendingum um augljósa galla. Það kæmi í veg fyrir að lyfja- öryggi í landinu kæmist í uppnám, sem varðaði alla. „Það er góð jóla- gjöf.“ „Besta niðurstaðan“ LYFJAGEIRINN Jakob Falur Garðarsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.