Morgunblaðið - 24.12.2020, Blaðsíða 44
Deildarstjóri
upplýsingatæknideildar
Lyfjastofnun er ríkisstofnun sem heyrir
undir heilbrigðisráðuneytið. Helstu hlutverk
stofnunarinnar eru að gefa út markaðsleyfi
fyrir lyf í samvinnu við lyfjayfirvöld á
Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit
með lyfjabúðum, lyfjafyrirtækjum,
heilbrigðisstofnunum og söluaðilum
lækningatækja á Íslandi, meta gæði
og öryggi lyfja og tryggja faglega
upplýsingagjöf um lyf og lækningatæki
til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá
Lyfjastofnun starfa rúmlega 70 starfsmenn
af 6 þjóðernum. Lyfjastofnun leggur
áherslu á gott vinnuumhverfi, starfsþróun
og framfylgir stefnu um samræmingu
fjölskyldulífs og vinnu. Gildi Lyfjastofnunar
eru: gæði – traust – þjónusta
Nánari upplýsingar um Lyfjastofnun má
finna á: www.lyfjastofnun.is
Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi
fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi
stéttarfélags. Öllum umsóknum verður
svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta
gilt í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Umsóknarfrestur er til og með 4. janúar 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá
og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Við
hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.
• Háskólapróf á sviði tölvunar- eða verkfræði skilyrði,
framhaldsmenntun er mikill kostur
• Reynsla af rekstri, stjórnun og samningagerð í
upplýsingatækni
• Þekking á öryggismálum skilyrði
• Reynsla af verkefnastjórnun í hugbúnaðargerð
er kostur
• Þekking á Microsoft Dynamics 365 er mikill kostur
• Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að
tjá sig í ræðu og riti
• Leiðtogahæfni, frumkvæði og faglegur metnaður
• Teymisvitund og lipurð í mannlegum samskiptum
• Nákvæmni, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
• Dagleg stjórnun upplýsingatæknideildar
• Stefnumótun og áætlanagerð upplýsingatæknimála
• Verk- og kostnaðareftirlit, samningagerð og samskipti
vegna aðkeyptrar þjónustu
• Verkefnastjórnun hugbúnaðarverkefna, þarfagreining
og hönnun sérhæfðra upplýsingakerfa
• Ábyrgð og umsjón með innleiðingu sameiginlegra
upplýsingakerfa stofnunarinnar
• Ábyrgð og umsjón með innkaupum á tölvubúnaði
• Ábyrgð og umsjón með fræðslu og þjálfun notenda
upplýsingakerfa
• Erlend samskipti við systurstofnanir
Lyfjastofnun óskar eftir að ráða öflugan einstakling til að veita forstöðu deild sem sér um rekstur og
uppbyggingu tölvukerfa stofnunarinnar. Leitað er að sveigjanlegum og jákvæðum leiðtoga sem er
reiðubúinn að vinna fjölbreytt og krefjandi starf. Starfshlutfall er 100%.
Helstu verkefni: Menntunar- og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar um starfið veita: Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir
(hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu, getu og reynslu
starfsmanna. Hver einstök ráðning er mikilvæg fjárfesting
og er hagur bæði fyrirtækis og viðkomandi einstaklings
að vel takist til.
Geislavarnir ríkisins óska eftir að ráða sérfræðing
á sviði geislafræði eða eðlisfræði til starfa við
stofnunina.
Um er að ræða fjölbreytt starf sem felur einkum í sér
verkefni vegna læknisfræðilegrar notkunar geislun-
ar. Starfið getur einnig að hluta falið í sér vinnu við
aðra verkefnaflokka stofnunarinnar, eftir áhuga og
þekkingu starfsmanns.
Sjá nánar á vef Geislavarna, www.gr.is.
Sérfræðingur á sviði
geislafræði/eðlisfræði