Morgunblaðið - 24.12.2020, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2020
Góð þjónusta í tæpa öld
10%afslátturfyrir 67 ára
og eldri
Hér á K100 stefnum við ávallt að því
að „hækka í gleðinni“ og er því við-
eigandi að í hverri viku sé ein-
hverjum gefið uppbyggilegt hrós.
Það er sérstaklega mikilvægt að
hrósa því sem vel er gert. Bæði höf-
um við öll gott af því að fá hrós, sem
og að gefa það áfram. Hvað þá núna
þegar Vetur konungur er mættur í
öllu sínu veldi og takmarkanir vegna
Covid hafa verið gífurlegar.
Afgreiðslufólk verslana
stendur vaktina þrátt fyrir
erfiðar aðstæður
Það er hún Gerður Huld Arin-
bjarnardóttir, samfélagsmiðla-
stjarna og eigandi verslunarinnar
Blush.is, sem gefur hrós vikunnar í
dag, á aðfangadegi jóla.
„Hrós vikunnar fær afgreiðslufólk
í verslunum fyrir að standa vaktina
þrátt fyrir erfiðar aðstæður og aukið
álag. Árið 2020 hefur verið mjög
krefjandi fyrir alla og verslanir hafa
þurft að laga sig að hertum aðgerð-
um og strangari sóttvörnum.
Sérstaklega vil ég hrósa starfs-
fólkinu mínu sem hefur allt árið lagt
sig 100% fram við að láta þetta
ganga upp og verið frábær heild sem
hefur hjálpast að við að vinna í
lausnum og halda gleðinni gangandi
þrátt fyrir mikið álag og óvissu.
Ég veit að margar verslanir hafa
þurft að aðlagast nýjum sóttvarna-
reglum með því að færa viðskiptin
sín í netverslun eða skipta upp vökt-
um. Svo má ekki gleyma grímu-
skyldu og fjöldatakmörkunum. En
það er krefjandi að vinna heila vakt
með grímu allan tímann og passa á
sama tíma upp á fjölda viðskiptavina
í verslun.
Til viðskiptavina langar mig að
segja takk fyrir þolinmæðina, skiln-
inginn og stuðninginn. Höldum
áfram að hjálpast að! Að lokum lang-
ar mig að minna á að það eru allir að
gera sitt besta og kurteisi kostar
ekki neitt.“
Fylgist með á K100.is þar sem við
höldum áfram með hrós vikunnar og
ef þú lumar á hrósi endilega deildu
því með okkur.
Hrós vikunnar fær afgreiðslufólk verslana
Hrós vikunnar fær afgreiðslufólk verslana
Gerður Huld Arinbjarnardóttir vill hrósa afgreiðslufólki verslana fyrir að standa vaktina þrátt fyrir erfiðar aðstæður og aukið álag. Hún segir
árið 2020 hafa verið mjög krefjandi fyrir alla og að þrátt fyrir mikið álag og óvissu hafi afgreiðslufólk verslana staðið sig ótrúlega vel.
Ljósmynd/Unsplash/Imants Kazi
Til viðskiptavina Takk fyrir þolinmæðina, skilninginn og stuðninginn.
Morgunblaðið/Eggert
Hrós vikunnar Gerður hrósar afgreiðslufólki verslana.
Ljósmynd/Unsplash/Dan Burton
Covid 19 Mikið hefur breyst í afgreiðslustörfum árið 2020.