Morgunblaðið - 24.12.2020, Blaðsíða 61
MENNING 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2020
Órjúfanlegur hluti af
jólunum
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég stóðst eðlilega ekki mátiðað vera með smá orðagrín íinngangi eins og enskir
gera gjarnan. Því þó að Ólafur slái
slöku við hér, tónrænt séð, væri
aldrei hægt að lýsa hans ferli eða
vinnusiðferði með þeim hætti. Ólaf-
ur er einfaldlega alltaf að og verk-
efnin jafn mörg
og þau eru mis-
jöfn. „Ég hef
markmið … og
mikinn metnað,
svo einfalt er
það,“ sagði hann
mér árið 2008 er
ég tók við hann viðtal. Þá var hann í
hljóðprufu í Tempodrom-höllinni í
Berlín. Hafði þá vakið athygli fyrir
listagóðan trommuleik fyrir ýmsar
öfgarokkssveitir en var um þær
mundir að hefja tónskáldsferilinn
og hafði þá þegar gefið út breið- og
stuttskífu sem innihéldu naum-
hyggjulega, angurværa og hæg-
streyma tónlist.
Vegur hans hefur vaxið jafnt
og þétt síðan. Sólóplötur og sam-
starfsverkefni af ýmsum toga, tón-
list fyrir balletta, kvikmyndir og
sjónvarpsþætti (m.a. verðlaunatón-
list fyrir Broadchurch) og glæst og
glúrin verk eins og t.a.m. Island
Songs. Er ég að gleyma einhverju?
Já, pottþétt! Ég nefni Kiasmos,
rafdúettinn sem hann skipar ásamt
Væri hægt að fá smá frið?
hinum færeyska Janus Rasmussen,
íburðarmikil tónleikaferðalög um
heim allan, samninga við erlendar
stórútgáfur og stofnsetningu
íslensku útgáfunnar Öldu.
En nú hætti ég þessum upp-
talningum, þið getið flett restinni
upp. Mig langar til að einblína á
nýju plötuna, fá smá frið til þess.
Hugmyndafræðin að baki henni er
skýr, er undirstrikuð með titli og
umslagi. Ró, friður, stilla … eitt-
hvað sem allir vilja, allir sækjast
eftir en ná aldrei. Eða finnst þeir
aldrei ná. Og titillinn er dálítið
lúmskur hvað þetta varðar.
„Einhvers konar“ frið. Kannski
ekki endilega þann sem fæst með
því að sitja í tvo tíma á toppi
Esjunnar, kannski bara þennan
mínútufrið sem þú krækir í á flug-
vellinum þegar vélin er ögn sein
(munið þið?). Í öllu falli opnar Ólaf-
ur með „Loom“, hvar breski
raftónlistarmaðurinn Bonobo er
gestur. Hæg en örlítið knýjandi raf-
stemma með þægilegu skruði eða
„glitch“-i. Pæling um að friðurinn
sé aldrei fullkominn? Alltaf „smá“
truflun? Í öllu falli ákveður Ólafur
að fara dýpra með friðinn í næsta
lagi, „Woven Song“, þar sem hann
kastar skruðinu til hliðar. Engu að
síður er þarna söngrödd, ég sé
japanska konu fyrir mér. Áfram er
haldið, „Spiral“ einkennist af
strengjum og píanói og er friðsam-
asta lagið til þessa. Hér er stilla. Og
enn meiri í næsta lagi/verki, „Still /
Sound“. Eitt leiðir af öðru greini-
lega en allt eru þetta þó ólík til-
brigði við stef. Alls konar friður.
„Back to the Sky“, hvar JFDR
syngur, er nánast slagari saman-
borið við það sem á undan fór. En
„Zero“ grundar okkur, bókstaf-
lega. Fallegur, „ambient“-leginn
óður en þó með surgandi uppbroti.
Ég held áfram að túlka þetta sem
komment á hvað við álítum vera
frið þó að tónlistarmaðurinn sé
ábyggilega ósammála! „New
Grass“ leyfir sér að vera smá
epískt, smá „stórt“, en bara smá
(broskall). „The Bottom Line“ er
sungið af hinni þýsku Josin sem
tónar yfir strengjum sem rísa bæði
og falla. „We contain multitudes“ er
undarlega róandi, hvar heyra má á
tal tveggja í upphafi áður en ljúf-
sárt – og giska snoturt – píanó tek-
ur við. „Undone“ lokar verkinu og í
upphafi má og heyra rödd. Ég fæ
smá Gavin Bryars-tilfinningu við
þetta. Það er bara þannig.
Það er friður hér, bæði í tón-
listinni og í eins lags tónrænni hug-
leiðingu um hvað það nákvæmlega
er. Næst er svo að frumsýna stutt-
mynd sem tengist inn í þetta verk.
Ólafur er nefnilega alltaf að. Hann
fékk þó smá frið hér …
»Ég held áfram aðtúlka þetta sem
komment á hvað við álít-
um vera frið þó að tón-
listarmaðurinn sé
ábyggilega ósammála!
Ólafur Arnalds hefur
aldrei slegið slöku við
á ansi litríkum ferli en
gerir það nú samt í
þetta skipti eins og
titill nýrrar breiðskífu,
some kind of peace,
ber með sér.
Friðsæll Ný plata
Ólafs Arnalds er höfgi
bundin, en samt er
það ekki svo einfalt.
Ísraelska leikkonan Gal Gadot,
þekktust fyrir túlkun sína á Undra-
konunni, hefur svarað gagnrýni þess
efnis að hvít kona, þ.e. hún sjálf, hafi
verið fengin til að leika Kleópötru í
væntanlegri kvikmynd um drottn-
inguna. Hafa framleiðendur mynd-
arinnar verið sakaðir um að
„hvítþvo“ persónuna með þessu vali
á leikkonu og bent á að réttara hefði
verið að fá arabíska eða afríska leik-
konu í hlutverk hinnar fornu drottn-
ingar Egypta. Gadot bendir á móti á
að Kleópatra hafi verið makedónsk
að uppruna og að slík leikkona hafi
einfaldlega ekki fundist í hlutverkið.
Sjálf sé hún afar áhugasöm um
drottninguna og vilji heiðra hana
með því að leika hana.
Tímaritið Newsweek fjallar um
málið og vitnar þar í prófessora sem
eru ekki á einu máli um hvort Kleóp-
atra hafi í raun verið hvít, þeldökk
eða hvernig hún hafi yfirleitt litið út.
Á Vísinda-
vefnum segir að
sú Kleópatra sem
flestir þekki hafi í
raun verið sú sjö-
unda í röð
egypskra drottn-
inga sem báru
það nafn.
„Hún var
drottning í
Egyptalandi frá árinu 51 f.Kr. og
þar til hún lést árið 30 f.Kr. Hún er
fræg fyrir tilraunir sínar til að verja
konungsríki sitt fyrir Rómverjum og
fyrir kynni sín af Júlíusi Sesari og
Markúsi Antoníusi. Líf og örlög Kle-
ópötru hafa löngum heillað fólk.
Ástarævintýri hennar og Markúsar
Antoníusar hefur veitt bæði leikrita-
höfundum og kvikmyndagerðar-
mönnum innblástur, svo að ekki sé
minnst á höfunda Ástríksbókanna,“
segir þar.
Gadot segist vilja heiðra Kleópötru
Gal Gadot
Streymisveitan Netflix hyggst framleiða fjögurra þátta
sjónvarpsþáttaröð byggða á verðlaunabókinni Sharing
the Wisdom of Time eftir Frans páfa. Í frétt Variety um
málið kemur fram fólk yfir sjötugu muni með hjálp kvik-
myndagerðarfólks undir þrítugu miðla lífsreynslu sinni.
Þátttakendur munu koma frá ýmsum löndum heims, búa
við ólíkar efnahagslegar aðstæður og hafa ólíkan trúar-
legan bakgrunn. Til umfjöllunar verða sammannleg
þemu á borð við ást, átök og það að elta drauma sína.
Þættirnir munu einnig innihalda einkaviðtöl við páfa þar
sem hann miðlar af reynslu sinni. Bók páfa kom fyrst út í
Bandaríkjunum árið 2018 og hefur síðan unnið til fjölda verðlauna.
Netflix vinnur þáttaröð með páfa
Frans páfi