Morgunblaðið - 24.12.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2020
malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær
Óskum landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og farsældar
á komandi ári
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Morgunblaðið og sunnudagsblað
þess koma ekki út um komandi
helgi en krossgátuunnendur í hópi
lesenda þurfa ekki að örvænta.
Verðlaunakrossgátan birtist hér
aftar í blaðinu, bls. 59, og í sömu
opnu er hefðbundna krossgátan
einnig.
Þá er verðlaunamyndagátan á
sínum stað í aðfangadagsblaðinu,
bls. 47. Þrenn bókaverðlaun eru í
boði og lesendur hafa frest til 8.
janúar að skila inn lausnum.
Góða skemmtun og gleðileg jól,
kæru Morgunblaðslesendur!
Krossgátur og myndagáta Morgunblaðsins
Veðurspár gera ráð fyrir því að á
sunnan-, vestan- og austanverðu
landinu verði jólin rauð, eða í það
minnsta aðfangadagur. Gular veð-
urviðvaranir eru í gildi frá morgni
á Faxaflóa, Breiðafirði og Vest-
fjörðum vegna talsverðrar eða mik-
illar rigningar. Þær gilda fram á
jólanóttina. Upp úr hádegi tekur
gul viðvörun gildi á Ströndum og
öllu Norðurlandi vegna storms.
Rigning verður um landið sunn-
an- og vestanvert í dag, en hægari
vindur og þurrt á Austurlandi fram
á kvöld. Veðurspá Veðurstofu Ís-
lands gerir ráð fyrir hlýnandi
veðri, 4-13 stigum síðdegis.
Á morgun, jóladag, er útlit fyrir
suðvestan 13-18 m/s og él. Í fyrstu
rignir austanlands en þar styttir
upp með morgninum. Veðurfræð-
ingur hjá Veðurstofunni segir að él-
in byrji snemma á jóladagsmorgun.
Veðurstofan úrskurðar formlega
um það hvort jólin hafi verið hvít
eða rauð á jóladagsmorgun.
Gular viðvaranir á aðfangadag
Morgunblaðið/Hari
Regn Líklega rignir duglega víða um land í
dag, aðfangadag, og verður vindasamt.
Yfir jólin munu alls 25 manns dveljast
í farsóttarhúsinu við Rauðarárstíg í
Reykjavík. „Talan gæti eitthvað
breyst, enda er veiran enn sem fyrr í
gerjun og fólk áfram að veikjast,“
sagði Gylfi Þór Þorsteinsson for-
stöðumaður við blaðið í gær.
Alls er hægt að taka á móti um 90
manns á Rauðarárstígnum. Af þeim
sem í skjóli eru í húsinu nú eru 14 í
sóttkví og 11 í einangrun; Íslendingar
og fólk af öðru þjóðerni. „Hér er
nokkuð af hælisleitendum sem eiga
ekki í önnur hús að venda. Í einangr-
un er svo til dæmis fólk sem er veikt
og getur ekki dvalist á heimili sínu
vegna þrengsla, fjölskylduaðstæðna
eða annars. Aðstæður fólks eru ólíkar
og því verður að mæta,“ segir Gylfi.
Gestum farsóttarhússins verður í
kvöld færður hátíðarmatur á her-
bergin, þar sem einn er í hverju
þeirra.
„Svo er bara vonandi að sjónvarps-
dagskáin verði áhugaverð, en slíkt
gerir fólki auðveldara að þrauka.
Veikindi um jólin eru öllum erfið,“
segir Gylfi, sem verður einn á vakt í
farsóttarhúsinu frá miðjum degi í dag
fram á jóladagsmorgun. Verður hann
þá leystur af hólmi, en starfsmenn
hússins eru alls 15.
Húsið var opnað í mars síðastliðn-
um og hefur alls 921 komið þangað til
dvalar. Af þeim hópi hafa 432 verið í
einangrun. Gylfi Þór gerir ráð fyrir að
starfsemi verði haldið úti eitthvað
fram á nýtt ár. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Farsóttarhús Starfsemin verður áfram fram á nýtt ár, segir Gylfi Þór.
25 í farsóttar-
húsinu um jólin
11 í einangrun nú 921 dvalið í ár
Kórónu-
veirusmit
Nýgengi innanlands:
29,7 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
426.072 sýni hafa verið tekin
149 eru með virkt smit og í einangrun
572 einstaklingar eru í sóttkví
24 eru á sjúkrahúsi, þar af 1 á gjörgæslu
Nýgengi, landamæri: 15,5
12 ný inn an lands smit greindust sl. sólarhring
H
ei
m
ild
: c
ov
id
.is
Skötuveislur virðast hafa farið að
mestu leyti fram í heimahúsum
þetta árið ef marka má orð Geirs
Más Vilhjálmssonar, eiganda fisk-
búðarinnar Hafbergs í Gnoðarvogi.
Geir hélt skötuveislu í gær fyrir
hverja þá sem mæta vildu. „Hvern-
ig dettur þér í hug að hringja
núna?“ spurði Geir þegar blaða-
maður Morgunblaðsins hringdi í
hann í gærkvöldi. Hann var nú bara
að gantast en viðurkenndi þó að
„bilað“ hefði verið að gera. „Jú, sal-
an var vonum framar. Við vorum
með skötuveislu fyrir 15 manns í
einu og allir fengu 45 mínútur. Ég
held að þetta hafi endað í 150
manns. Allir sprittaðir auðvitað.“
Jólaverslun gengið ótrúlega
Sigurður Reynaldsson fram-
kvæmdastjóri Hagkaups segir að
viðskiptavinir hafi aðlagast breytt-
um aðstæðum við jólaverslun í ár.
„Salan gekk mjög vel í dag. Fólk
var byrjað fyrr og klárar seinna.
Einhverjir voru í Skeifunni klukk-
an sjö í morgun og í gærkvöldi rétt
fyrir miðnætti þurftum við að
hleypa inn í hollum í Garðabæ.“
Hann segir að viðskiptavinir hafi
sýnt samstarfsvilja við erfiðar að-
stæður. „Kúnninn hefur brugðist
vel við og síðustu tveir dagar hafa
gengið ótrúlega.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorláksmessa Skatan hjá Geir í Hafbergi var vel kæst að venju. Tindabikkjan er beint að vestan en hefðbundna
þykka og stóra gráskatan mestöll að sunnan. Viðskiptavinir voru með allar sóttvarnir á hreinu eins og sjá má.
„Allir sprittaðir“ í skötu
Skötuveislur færast í heimahús Jólaverslun gengið vel
Viðskiptavinir verslana hafa aðlagast nýjum aðstæðum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjör Jólastemning var í miðbænum í gær eins og vant er á Þorláksmessu.