Morgunblaðið - 24.12.2020, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2020
www.gilbert.is
Gleðileg jól og
farsælt komandi ár
S
vo bar til um þessar
mundir, segir í Jóla-
guðspjallinu. Mikið stóð
til og fólkið flykktist til
Betlehem vegna mann-
talsþings. Boð kom frá „Ágústusi
keisara, að skrásetja skyldi alla
heimsbyggðina,“ eins og orðrétt
stendur í ritningunni. Einmitt við
þær aðstæður gerðist undrið mikla.
Ung kona ól barn í fjárhúsi, þangað
sem hirðana bar að og sáu sveininn
unga liggjandi í jötu. Tímamóta-
viðburður!
Eins og hjá Ágústusti
Jólahald í heiminum er nú með
öðrum brag og lágstemmdari en
hefð er fyrir. Því veldur kórónu-
veiran. Reyndar er þess vænst að
hún verði kveðin í kútinn innan tíðar
með þeim lyfjum sem nú eru að
koma á markaðinn. Slíkt verður gert
eftir skráningum, líkt og hjá Ágúst-
usi forðum, en þær þurfa að liggja
fyrir þegar bólusetja á heimsbyggð-
ina.
Hátíðarbragur heimsins er öðru-
vísi en áður þessi jólin. Messur og
tónleikar eru á netinu. Þangað hefur
verslun líka mikið færst, og varn-
ingur er sendur til þeirra sem panta.
Fólk heldur sig heima og finnur
gleði og fyllingu í hinu einfalda.
Skreytingar og skemmtilegt
Allir búast við að úr rætist innan
tíðar með hækkandi sól, með líku
lagi og fæðing frelsarans fyrir 2020
árum var upphaf á miklu ævintýri
sem enn stendur. Um það vitnar
ljósadýrð jólanna, skreytingar og
annað skemmtilegt sem ljósmynd-
arar AFP hafa séð og fangað og
finna má á fréttaveitum. sbs@mbl.is
Jólahald í veröldinni
Myndir berast víða frá af
jólahaldi sem verður
öðruvísi nú en að jafnaði
gerist. Heimurinn heldur
niðri í sér andanum, en
svo birtir til með bólu-
setningum sem hefjast af
krafti á næstu dögum.
AFP
Mónakó Afar jólalegt er um að litast í örríkinu. Torgið fyrir framan spila-
vítið fræga og glæsihótelið de Paris er ljósum prýtt svo eftir er tekið.
Kólumbía Heilbrigðisstarfólk í álfabúningum dansar á götum úti í herferð
til að vekja athygli á forvörnum gegn kórónuveirunni sem ætlar að verða
æði aðsópsmikil þar í landi nú um jólahátíðina og er nú í sókn.
Rússland Ljósum prýdd tré og torg við hallarbyggingu í St. Pétursborg.
Víetnam Gleði barna er alltaf einlæg og söm, þótt menningarhefðir austur í
Hanoi séu jafn ólíkar því sem gerist á Vesturlöndum og mest má verða.
Ísrael Verslunarmaður í minjagripabúð í biblíuborginni Betlehem. Fátt er
þar um ferðamenn um jól, ólíkt því sem jafnan gerist, af augljósri ástæðu.
UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóð-
anna, mun gegna lykilhlutverki í CO-
VAX-samstarfinu, samstarfi 192
landa sem tryggja á jafna dreifingu
bóluefnis gegn kórónuveirunni meðal
fátækari ríkja heims. Þar mun UNI-
CEF leiða innkaup og afhendingu á
bóluefnunum til yfir 90 lág- og milli-
tekjuríkja. Mikið er í húfi; árangur af
þróunarhjálp margra áratuga.
„Þetta er stærsta verkefni UNICEF
á sviði bólusetninga fyrr og síðar og
umfangið er sögulegt, enda aldrei
jafn mikið verið í húfi,“ segir í til-
kynningu, haft eftir Birnu Þórarins-
dóttur, sem er framkvæmdastjóri
UNICEF á Íslandi.
Mikilvæg vinna
Markmið COVAX-samstarfsins er
að tryggja 2 milljarða skammta af
bóluefnum fyrir lok næsta árs. UNI-
CEF hefur í áratugi verið leiðandi í
bólusetningum og er stærsti einstaki
kaupandi bóluefna í heiminum. Á
hverju ári bólusetja UNICEF og sam-
starfsaðilar hátt í helming allra
barna í heiminum gegn lífshættu-
legum sjúkdómum á borð við misl-
inga, mænusótt, rauða hunda og stíf-
krampa. Nú þegar hefur UNICEF
komið upp gríðarstórum lager af
sprautum og viðræður eru í fullum
gangi, meðal annars við stærstu
flugfélög heims, um dreifingu á bólu-
efnum gegn Covid-19, segir í tilkynn-
ingu.
Þegar bóluefni er komið á staðinn
er margt eftir. Veita þarf tæknilegan
og fjárhagslegan stuðning, þjálfa
heilbrigðisstarfsfólk og byggja upp
traust til bólusetninga í frumstæðum
samfélögunum, þar sem fólk þekkir
lítt til þróaðrar heilbrigðisþjónustu
eins og vel þekkt er á Vesturlöndum.
„Öll þessi vinna er gífurlega mikil-
væg til þess að fátækari ríki heims-
ins verði ekki skilin eftir. Slíkt myndi
hafa skelfilegar og óafturkræfar af-
leiðingar fyrir börn um allan heim.
Þetta er ekki búið fyrr en við höfum
náð að bólusetja allan heiminn,“ seg-
ir Birna Þórarinsdóttir.
UNICEF stendur í stórræðum vegna veirunnar
Ætla að bólusetja allan heiminn
Ljósmynd/UNICEF
Bólusetning Í þróunarlöndum er
risavaxið verkefni nú fram undan.