Morgunblaðið - 24.12.2020, Blaðsíða 33
33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2020
Jólunum fylgir gleði, eins og boð-
skapur þeirra gefur tilefni til. Krakk-
arnir kætast, enda eru jólin oft sögð
hátíð þeirra. Skrýtnir karlar koma of-
an af fjöllum til þess að gleðja börn
með blik í auga. Vegna sóttvarna hafa
jólasveinar þó stundum, til dæmis í
heimsóknum á leikskóla, þurft að
halda sig utandyra, syngja þar og
sprella, sem hefur reyndar ekki komið
að sök. Börnin kunna vel að meta
þetta allt.
Á aðventunni mættu jólasveinar af
hinni rammíslensku gerð á Þjóðminja-
safnið, en löng hefð er fyrir því að fyr-
ir jólin sé fræðslu og fjöri þar blandað
saman í dagskrá fyrir börnin og raun-
ar alla aldurshópa, ef því er að skipta.
Skreytingar af ýmsu tagi tilheyra
jólunum og að þessu sinni var fólk
raunar hvatt til þess alveg sérstak-
lega að hafa þær ljóssterkar og litrík-
ar. Af slíku veitti ekki nú á drungaleg-
um tímum veirunnar vondu, sem
vænst er að gefi eftir innan tíðar.
Norður á Húsavík hafa veglegar
skreytingar vakið sérstaka eftirtekt,
svo sem á jólatrénu sem komið var
fyrir í miðbænum. Bláleit birtan á
skreytingum þess lýsir upp torg og
vekur eftirtekt. Raunar þykir Húsa-
víkin hafa sérstaklega jólalegan svip
að þessu sinni og þegar tunglskins-
birtu nýtur breytist bærinn í land þar
sem ætla má að gerist hlutir sem eru
tæplega af þessum heimi. Slíkir töfrar
verða raunar oft til í veruleikanum, þá
ef fólk er af lífi og sál tilbúið til að
njóta og gefa. Að gera jólin gleðileg
snýst um hugarfar – og sé það jákvætt
verður hátíðin sem nú er að ganga í
garð býsna góð.
Morgunblaðið/Eggert
rnir að skemmta utandyra.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Húsavík Jólatré í miðbænum varpar fallegum bláum bjarma á umhverfið og tunglbirtan bætir um betur. Jólakveðjur til Húsvíkinga og allra landsmanna.
Jól með töfrum
að ganga í garð
Morgunblaðið/Eggert
Jólaskógur Leppalúði mætti í Ráðhúsið á dögunum þegar jólaskógur var opnaður og gengið var kringum jólatré.
Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson
Hjartatorgið Jólasveinar gleyma ferfætlingum ekki á aðventunni og hér fær einn glaðning.
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Hafnarfjörður Jólasveinninn sem mætti í Jólaþorpið í Hafnarfirði bar að sjálfsögðu grímu.