Morgunblaðið - 24.12.2020, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2020
Norðurá I
Norðurá II
Munaðarnes
Allar upplýsingar gefur
Einar í síma 893 9111
eða einar@nordura.is
Spennandi og góð laxveiði í stórkostlegu
umhverfi. Glæsilegt veiðihús og frábært
atlæti. Jafnvel skemmtilegra en bestu
utanlandsferðir.
Í Norðurá II bjóðum við upp á fallegt og gott
veiðisvæði og er veitt á 3 stangir sem við
seljum saman. Fullbúið veiðihús fylgir með
í kaupunum,með 6 uppábúnum rúmum.
Þrif innifalin. Gott verð.
Veitt á 3 stangir. Borgar 2 stangir en veiðir
á 3 stangir. Selt saman. Frábært verð.
Veitt frámorgni til kvöldsmeð hádegishléi
kl. 13:00 til kl 16:00. Góð laxavon og fjöldi
fallegra veiðistaða.
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
Pétur Einarsson er á spennandi stað
í lífinu. Hann er menntaður hag-
fræðingur en hefur að undanförnu
verið að viða að sér aukinni þekkingu
og er að stíga inn í að nota allt sem
lífið hefur kennt honum og vísindin í
að aðstoða annað fólk við að ná
markmiðum sínum.
Þó Pétur sé ekki mikið jólabarn í
sér, þá er hann fullur tilhlökkunar
fyrir jólunum og búinn að ákveða að
taka þátt í þeim af heilum hug og
gera sitt besta í að upplifa jólastemn-
inguna með sínum nánustu.
Hann segir ákvarðanir sem hann
hefur tekið í lífi sínu að undanförnu
ýta undir löngun sína til að upplifa
jólin eins og hann langar að hafa þau.
„Ég ákvað fyrir um ári að ég ætl-
aði að endurmennta mig á árinu 2020
þannig að ég yrði tilbúinn fyrir þenn-
an nýja og spennandi áratug sem
framundan er.“
Hugurinn er ekki geymsla
heldur staður þar sem
hugmyndir vakna
Pétur hefur tæplega þriggja ára-
tuga reynlsu í sölu- og markaðs-
málum og leiddi uppbyggingu á nýj-
um rekstri og mörkuðum hjá
stórfyrirtækjum og bönkum svo
dæmi séu tekin.
„Nú langar mig að nota þessa
reynslu og miðla henni þangað sem
þörf er á.
Ég hef verið í þremur skólum á
þessu ári. Hjá Predictive Index (PI)
og einnig hjá Getting Things Done
(GTD) og svo er í Rágjafarskólanum
hjá Kára Eyþórssyni. PI er greining
á starfsfólki og aðstoðar við að setja
saman þá sem vinna best saman.
GTD er leið til að bæta skipulag og
minnka streitu og gera meira af því
sem skiptir máli. Ráðgjafarskólinn
snýr svo að áhuga mínum á andlegri
heilsu og fíknivanda, sem hefur verið
mjög skemmtilegt nám.“
Hvernig getur GTD nýst fólki í at-
vinnulífinu?
„GTD nýtist öllum í atvinnulífinu,
sér í lagi þeim sem eru með mikið á
sinni könnu og þeim sem eru með
ólík verkefni. Nú þegar við vinnum
heima er mikilvægt að geta haldið
einbeitingu og sinnt þeim verkefnum
sem mestu máli skipta. Það er auð-
velt að láta trufla sig og fara úr einu í
annað en það er ekki endilega gott
fyrir okkur. Við þurfum að vita hvað
skiptir máli og geta svo klárað þau
verk og þá farið og gert eitthvað
skemmtilegt. Þá líður okkur best.
Það er líka að sýna sig að við eigum
mjög erfitt með að gera margt í einu.
Svokallað „multi-tasking“ virkar
ekki. Við erum gerð til þess að sinna
vel einum hlut í einu og klára það
sem við byrjum á. Vissulega er það
ekki alltaf hægt, það koma upp önn-
ur verkefni sem við þurfum að sinna.
En þá er svo gott að hafa kerfi sem
við treystum þannig að þegar við
komum til baka þá vitum við alveg
hver staðan er. Það hefur líka sýnt
sig að þegar einhverjir í fyrirtæki
byrja að vinna eftir meira skipulagi
þá sjá aðrir árangurinn og þá langar
í það líka. Það er jákvætt og myndar
góða stemningu sem skiptir miklu
máli.
Við erum alltaf að vinna saman og
það er grundvallaratriði í öllum
rekstri eða stjórnsýslu.“
Pétur segir að hugurinn okkar sé
ekki gerður til að geyma upplýsingar
heldur til þess að fá hugmyndir og
vera skapandi.
„Til þess þarf að minnka álag og
streitu. Annað sem skiptir líka máli
er að taka tíma í skipuleggja það sem
við ætlum að gera, gefa okkur tíma
til að hugsa hvað skiptir máli og hvað
við ætlum að gera. Þannig náum við
meiri einbeitingu og þá líður okkur
betur. Þegar við klárum að vinna og
förum heim getum við verið afslapp-
aðri og meira til staðar. Við förum þá
frekar í erfiðari verkefni eins og að
taka til í bílskúrnum. Lesum bækur
til að læra nýtt tungumál og fleira í
þeim dúr. Daglega lífið okkar verður
þá meira eftir okkar vali og minna
tilviljunarkennt. Auðvitað gerist lífið
og allavega kemur upp á en við get-
um þróast í þessa átt, sem er aðal-
atriðið.“
Ekki mikið verið að halda
upp á jólin í Frakklandi
Pétur er alinn upp á erlendri
grundu þar sem fjölskyldan var oftar
en ekki á skíðum á jólunum.
„Ég bjó lengi í Frakklandi þar
sem ekki var haldið upp á jólin. Ég
var einu sinni að vinna um jólin og
heimsótti vinafólk sem var með hús í
sveitinni í Massif Central. Þau voru
ekki með neitt skraut eða jólagjafir
og auðvitað ekkert jólatré. Aðfanga-
dagur var alveg eins og hver annar
dagur en á jóladag fórum við að
fljúga í svifflugvél en um kvöldið var
þó betri matur og venjulega, „foie
gras“ í forrétt en mér er líka sér-
staklega minnisstætt að það var tek-
in upp flaska af Chateau d’Yquem
frá 1967 sem mér skilst að hafi verið
meira virði en allar jólagjafir sem ég
hef fengið frá upphafi!
Ég var líka að vinna einu sinni í
Óman og var þar tvenn jól í röð en
þar er ekki haldið upp á jólin, sem
átti ágætlega við mig. Það var reynd-
ar ekki einu sinni frí á aðfangadag,
en ég fór að kafa eftir hádegi og svo í
bíó og á Burger King um kvöldið.“
Pétur segir mikið hafa breyst í
sínu lífi frá þessum tíma.
„Ég reyni að taka þátt og finna
jólabarnið í mér! Nú eru jólin að
koma og auðvitað hlakka ég til að
eiga góða stund með fjölskyldu og
ættingjum og vonandi verður hægt
að hittast og borða góðan mat saman
og skiptast á nokkrum pökkum. Við
búum ekki öll á Íslandi þannig að
þetta er venjulega sá tími sem við
hittumst og eyðum tíma saman sem
er afar mikilvægt. Ég hef aldrei ver-
ið mikið fyrir að skreyta en nú ætla
ég að setja upp ljós í glugganum og
gera jólalegt. Ekki veitir af í skamm-
deginu. Annað sem ég hugsa til er að
það eru margir sem eiga erfitt um
jólin og eru einmana eða sem dæmi í
fangelsi. Ég mun reyna að gera eitt-
hvað gott og gefa af mér um jólin.“
Hvað gerir þú alltaf á jólunum?
„Það er eitt sem ég hef gert und-
anfarin tíu ár á jólunum, eða frá því
við fluttum aftur heim til Íslands.
Við feðgarnir, ég og yngri sonur
minn, förum í messu í Kópavogi
klukkan sex hjá séra Sigurði Arn-
arsyni sem er prestur okkar Íslend-
inga í London. Þetta er góð hefð og
það er svo hátíðlegt að syngja Heims
um ból saman. Þá mega jólin byrja
hjá mér. Það er eitt sem ég gerði fyr-
ir jólin sem var að mála kort og
senda, en nú er það kannski ekki við-
eigandi, þannig að nú þarf ég að
finna nýja leið til þess að gera eitt-
hvað skapandi sem er hægt að senda
rafrænt. Svo reyni ég alltaf að
hreyfa mig á jólunum. Nota tækifær-
ið og fara út í náttúruna og hreyfa
mig. Ef ég fer ekki á skíði þá fer ég í
það minnsta að hlaupa, hjóla eða út
að ganga.“
Hvað gerir þú aldrei?
„Ég drekk aldrei áfengi á jól-
unum. Ég reyndi það fyrir mörgum
árum og það fer ekki vel saman. Ég
reyndar drekk aldrei áfengi þannig
að það sé nú sagt. En jólin eru fyrir
börnin og einnig eldra fólkið sem
kemst minna út og það er aðalatriðið
að öllum líði vel og það sé öruggt og
skemmtilegt andrúmsloft á þessum
tíma.“
Upplifun að sturta
niður jólagjöfinni
Pétur segir skemmtilega hefð að
hitta fjölskylduna og borða hangi-
kjöt á jólunum.
„Eitt sem við höfum gert á jól-
unum er að hitta öll frændsystkinin
og borða hangikjöt. Það er klárlega
uppskrift að skemmtilegu kvöldi. Við
erum mörg og búum hér og þar í
heiminum þannig að það er alltaf
gaman að hittast. Nú er aldrei að
vita hvernig þetta verður. Kannski á
Zoom? Það er mjög mikilvægt að
fólk haldi áfram að hittast jafnvel á
netinu. Það er mikilvægt að sjá hvert
framan í annað í gegnum facetime
eða eitthvað slíkt. Það er einnig
hægt að heimsækja eldra fólk með
símamyndavélum, sem ekki er hægt
að hitta, eða sjúklinga á spítala.“
Pétur segir að bestu jólin sem
hann hefur upplifað hafi verið í
bernsku barna sinna.
„Ég held að bestu jólin hafi verið
þegar synir mínir voru þriggja til
fimm ára. Þá voru þeir nógu stórir til
þess að taka þátt í jólunum og finn-
ast allt skemmtilegt og nógu ungir til
þess að vera ennþá saklausir og vera
spenntir fyrir öllu en líka þakklátir.
Mér fannst þetta ein besta tilfinning
sem ég upplifað; að geta verið til
staðar og eiga svona góða stund
saman. Ég fékk einu sinni brún
Armani-jakkaföt í jólagöf. Ég held
að það hafi ekki ennþá verið toppað!
Annars voru margar góðar gjafir
gefnar þegar ég var barn. Ég man
sérstaklega eftir kúrekabúningi og
byssu og líka járnbrautaleik sem ég
fékk og margt fleira.“
Pétur man ekki eftir að hafa feng-
ið slæma gjöf en hann á slæma
reynslu af gjöf á jólunum.
„Einu sinni fékk ég pening frá vini
foreldra minna sem var hjá okkur
um jólin sem ég missti ofan í klósett-
ið þegar ég var að sturta. Þetta er
ekki versta gjöfin en klárlega ein
versta minningin! Erfiðast hefur
mér fundist að hitta ekki syni mína
um jól og nú einmitt um þessi jól
gæti svo farið að eldri sonur minn
sem er í námi í London komi ekki
heim um jólin til þess að þurfa ekki
að vera í sóttkví helminginn af fríinu.
Kórónuveirufaraldurinn mun klár-
lega setja mark sitt á þessi jól og við
munum væntanlega ekki hittast eins
og venjulega. Hins vegar er margt
gott sem mun koma út úr þessu.
Fólk hugsar sig um áður en það fer í
ferðalag. Það er hægt að fækka um
eina til tvær ferðir á ári án þess að ég
sé að missa af einhverju. Við getum
hist sjaldnar en þegar við hittumst
erum við virkilega til staðar og gef-
um okkur góðan tíma. Við stöldrum
meira við, hlustum betur, ræðum um
það sem máli skiptir og sýnum vænt-
umþykkju. Lífið okkar er að með-
altali 82 jól sem þýðir að ég á um 25
jól eftir. Ég ætla því að gera hið
besta úr því og kannski er aldrei of
seint að byrja nýjar hefðir. Ég gæti
alveg náð að venjast einhverju nýju
og skemmtilegu. Ég fer kannski að
hugsa það á næstunni; hvað gæti
verið ný og góð jólahefð!“
„Ég mun reyna að gera eitthvað
gott og gefa af mér um jólin“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í hátíðarskapi Pétur Einarsson hefur upplifað alls konar jól út um allan heim.
Pétur Einarsson fram-
leiðandi er kannski ekki
mesti jólamaðurinn í
bænum. En það sem
hann gerir á hverju ári
er einstaklega jólalegt.