Morgunblaðið - 24.12.2020, Síða 45

Morgunblaðið - 24.12.2020, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2020 45 Umsóknarfrestur er til og með 19. janúar 2021. Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið postur@anr.is. Upplýsingar um starfið veitir Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytis- stjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu (postur@anr.is). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun hefur verið tekin. — MEGIN STARFSSVIÐ: • Stjórnun, leiðsögn og forysta • Ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi • Ábyrgð á stefnumótun og áætlanagerð • Samskipti við stjórnvöld, stofnanir og atvinnulíf • Forysta um erlent samstarf og samskipti • Forstjóri er talsmaður stofnunarinnar — MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR: • Háskólapróf á verkefnasviði stofnunarinnar • Árangursrík reynsla af stjórnun og rekstri, þar með talið gerð rekstraráætlana • Góð hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku • Vald á einu Norðurlandamáli er kostur • Þekking og reynsla af alþjóðasamstarfi er kostur Stofnunin er sjálfstæð rannsókna- og ráðgjafarstofnun sem heyrir undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Stofnunin á í víðtæku samstarfi við innlendar og erlendar rannsóknastofnanir, atvinnulíf og samfélag. Stofnunin rekur, auk aðalstöðva í Hafnarfirði, starfs- stöðvar víða um landið, tilraunaeldisstöð, tvö rannsóknaskip og hefur að jafnaði um 190 starfsmenn í þjónustu sinni. Heildarútgjöld Hafrannsóknastofnunar nema um 4 ma. kr. á ári. Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur fyrir starfið. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um embættið. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun skipa þriggja manna hæfisnefnd sem metur hæfni umsækjenda og skilar greinargerð til ráðherra. Embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna, laust til umsóknar. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipar í embættið til fimm ára frá 1. apríl 2021. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur leiðtogahæfileika, er framsýnn í hugsun, hefur sýnt hæfni í samskiptum og samvinnu og býr yfir metnaði til að ná árangri í þágu almennings og atvinnulífs. Forstjóri Hafrannsóknastofnunar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.