Morgunblaðið - 24.12.2020, Qupperneq 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2020
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Við gleymum því oft í sókn okkar
eftir auði og öryggi hvernig við getum lifað
í gleði frá degi til dags. Gerðu þitt besta í
stöðunni og láttu það fréttast að þú sért
tilbúinn í hvað sem er.
20. apríl - 20. maí
Naut Geta þín til þess að einbeita þér og
nema er með mesta móti. Hvatvísar gjörð-
ir eru þér ekki í hag.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt samvinna með öðrum sé
ekki alltaf auðveld ertu tilneyddur til að
halda það út. Fyrr eða síðar kemur þinn
tími, það er bara að bíða þolinmóður.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ættir að ráða sérfræðing til að
hjálpa þér á þeim sviðum sem þú veist lít-
ið um. Umhverfi þitt hefur mikil áhrif á þig
og þér mun því líða betur þegar allt er í
röð og reglu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér finnst erfitt að skipta tímanum á
milli heimilis og vinnu en þarft engu að
kvíða því þú hefur nóg þrek.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það væri góð hugmynd að slípa til
vinnuaðferðir þínar. Endurskoðaðu mál-
flutning þinn og æfðu þig svo á góðum
vini.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú munt koma öðrum á óvart í dag og
sýna ákveðni og festu eins og þér er ein-
um lagið. Ekki tefla á tæpasta vað.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu neikvæðnina ekki ná
tökum á þér. Vertu þolinmóður og gefðu
hverjum og einum þann tíma sem hann
þarf.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ef þú ætlar á annað borð að
eiga við vandamál að stríða, hafðu það þá
áhugavert.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Svo virðist sem ákveðinn per-
sóna eigi erfitt með að þiggja aðstoð þína
og þakka fyrir sig. Auðveldasta leiðin til að
fá fólk til að gera það sem þú vilt, er að
skilja fyrst hvað það vill.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Að gera það sem maður þarf
svo maður geti gert það sem maður vill er
algengt viðkvæði. Erfiðisvinna er til einsk-
is ef hún stuðlar ekki að betri lífsgæðum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Leggðu þig fram um að nota fjár-
muni þína og vina þinna og skipulagshæfi-
leika þína í þágu fólksins í kringum þig.
30 ára Þuríður Sóley
ólst upp fyrstu níu ár-
in á Húsavík en síðan í
Grafarvogi í Reykjavík.
Hún er markaðs-
fulltrúi og verk-
efnastjóri hjá Klifur-
húsinu og er að ljúka
meistaranámi í ritlist núna í vor. Helstu
áhugamálin eru klifur, útivist, elda-
mennska og bókmenntir.
Maki: Hilmir Þór Sifjarson, f. 1988, raf-
eindavirki.
Bónusdóttir: Þórunn Hilmisdóttir, f.
2008.
Foreldrar: Sigurður Gunnar Sigurðsson,
frá Húsavík, f. 1963, bifvélavirki og Halla
B. Þorkelsson, f. 1962, frá Akureyri,
heimavinnandi. Þau búa í Reykjavík.
Þuríður Sóley
Sigurðardóttir
30 ára Anton, sem er
alltaf kallaður Toni, er
rafvirki og ólst upp í
Njarðvík og býr í hjáleig-
unni. Helstu áhuga-
málin eru íþróttir, fjöl-
skylda og vinir. Ætli
afmælið hafi týnst í jóla-
stússinu? „Stundum fékk ég eina stóra
gjöf eða margar litlar á aðfangadag, en oft
fékk ég afmælisgjöfina um morguninn.“
Maki: Selma Rut Orberg, f. 1993, vinnur
hjá DHL.
Börn: Emma Líf, f. 2014 og Sonja Sól, f.
2020.
Foreldrar: Védís Hlín Guðmundsdóttir, f.
1972, aðstoðarverslunarstjóri á Subway,
og Páll Antonsson, f. 1969, rekur Mount-
ain Explorer.
Anton Hafþór
Pálsson
Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is
Alhliða
Ræsting
Öflugt gæðaeftirlit
og góð þjónusta
ar
2006, og hún varð alveg gífurlega
vinsæl og er núna árlegur viðburður.
Frá 2008 hefur Grillhúsið selt ham-
borgarann Kraftaklerk, sem er bara
seldur þennan eina dag á ári og kost-
ar um 2.000 krónur. Bifhjólasam-
tökin Sniglarnir leggja 2.000 kr. með
hverjum borgara svo 4.000 kr. fara
beint til Grensásdeildinnar fyrir
hvern seldan borgara.“
Mótorhjólamessan hefur hlotið at-
hygli í Bandaríkjunum. „Ég var með
prestsefni frá Bandaríkjunum og þau
gegnir því embætti enn. Sóknin var
sameinuð Hjallaprestakalli núna í
nóvember og sinna nú fjórir prestar
þessu sameinaða prestakalli.
Gunnar er þekktur fyrir að vera
sérstakur og skemmtilegur karakter
og litríkari en margir kollegar hans í
stéttinni. Hann stundar lyftingar af
kappi, keyrir um á mótorhjóli og kú-
rekahatturinn er sjaldnast langt
undan.
„Ég bauð upp á fyrstu mótor-
hjólamessuna í Digraneskirkju árið
G
unnar Sigurjónsson
fæddist í Reykjavík á
aðfangadag jóla árið
1960. „Ég var skírður í
höfuðið á móðurafa
mínum, sem var verkstjóri hjá Hita-
veitunni, og hef alltaf verið mjög
stoltur af því enda alnafnar. For-
eldrar mínir voru mjög ungir og ég
var mikið hjá afa og ömmu. Þegar afi
var að kynna mig sagði hann: „Þetta
er Gunnar Sigurjónsson, sonur
minn,“ og sleppti bara úr heilli kyn-
slóð.“
Gunnar fór í MR í eðlisfræðideild
og útskrifaðist 1981. Þá ætlaði hann
að fara í rafeindavirkjun og var ekk-
ert á leiðinni í guðfræði. „Ég ólst upp
við trú, en pabbi er einlægur trúmað-
ur og hann kenndi mér bænirnar og
talaði um trúna við mig sem barn.“
Þegar áfall varð í fjölskyldunni gerði
Gunnar samning við guð og lofaði að
fara í guðfræðideildina. „Guð stóð við
sinn hluta svo mér var ekki til set-
unnar boðið að fara í deildina. En svo
bara heillaðist ég af guðfræðinni og
útskrifaðist sem cand.theol. 1988.“
Gunnar kynntist eiginkonu sinni,
Þóru, á háskólaárunum og þau giftu
sig 1986. „Konan var í landfræði og
lauk BS-prófi með jarðfræði sem
aukagrein. Leiðin lá svo í við-
skiptafræði, síðar í MBA í HÍ og
University of Dubuque. Hún er eins
og Bjarnfreðarson, með fimm há-
skólagráður.“
Gunnar var vígður til prests strax
sumarið eftir útskrift og ungu hjónin
fóru um haustið til Skeggjastaða á
Bakkafirði, en þá voru um 130 manns
í sókninni. Hann var prestur á
Skeggjastöðum frá 1988 til 1995.
Gunnar leysti af á Vopnafirði í tvö ár
og var stundum á Þórshöfn líka.
„Þessi söfnuður tók alveg afskaplega
vel á móti okkur og þarna á ég vini til
lífstíðar. Okkur leið alveg afskaplega
vel þarna og börnin verða til á
Bakkafirði. Útiveran og útivistin
gjörsamlega heilluðu mig og fyrir
borgarbarn að fara á vélsleða inn á
heiðar að veiða var alveg magnað.
Alltaf ef ég hugsa um veiðar er ég
kominn austur í huganum.“
Í ágúst 1995 var Gunnar skipaður
sóknarprestur í Digranessókn og
fóru að segja frá þessu heima og svo
var mér boðið að koma til að setja upp
mótorhjólamessu í Pennsylvaníu, sem
sló alveg í gegn og þeir reyndu að fá
mig til að vera í ár til að setja upp
messur víðar, en ég er að þjóna hér í
Digranesinu svo það varð ekki úr. En
sem dæmi um vinsældirnar er mótor-
hjólaklúbburinn The Least of Saints
búinn að stofna kirkju í kringum
þetta. Þetta er í raun arfleifð sem
enginn á Íslandi veit af.“ Auk tengsla
við áhugasamar kirkjur um
mótorhjólamessurnar flytur Gunnar
reglulega fyrirlestra í Bandaríkj-
unum og hefur farið allmargar aka-
demíuferðir með guðfræðinga og leik-
menn á ráðstefnu í Wartburg
Seminary í Dubuque í Iowa, þar sem
hann var í framhaldsnámi 2006. „Ég
kem þangað að segja má einu sinni á
ári.“
Gunnar er mjög handlaginn og ger-
ir við sína bíla og hjól sjálfur. „Ég er
mikill áhugamaður um veiðar, mót-
orhjól, fornbíla og kraftlyftingar.
„Ég tók titilinn sterkasti prestur
heims árið 2004 og varði þann titil
2008. Þetta byrjaði þannig að ég
heyrði af presti í Bosníu sem hafði
tekið þennan titil og félagar mínir
hvöttu mig til að skora á hann, sem ég
gerði og keppnin var haldin í íþrótta-
húsinu í Digranesi af Nautilus og lög-
Gunnar Sigurjónsson prestur í Digranesi – 60 ára
Kenýa Hér er Gunnar með séra Edwin, presti í Kenýa, en Gunnar stóð fyrir
söfnun fyrir mótorhjóli svo presturinn gæti farið og þjónað sóknarbörnunum.
Kraftaklerkur á mótorhjóli
Fjölskyldan Uppáklædd fyrir afmæli. Tengdasonurinn, Jón, er úr Brave-
heart í skotapilsi, Anna Margrét er Lara Croft, Þóra er klædd upp eins og
Miranda í The Devil Wears Prada og Gunnar eins og Rooster í True Grit.
Stolt augnablik Hér er Gunnar við
vígslu séra Helgu Kolbeinsdóttur í
Skálholti 2019, en hún byrjaði sem
æskulýðsfulltrúi í Digranesi.
Til hamingju með daginn
Mosfellsbær Leó Snær Olsen fæddist
13. febrúar 2020 kl. 0.20. Hann vó 13
merkur og var 51 cm langur. Foreldrar
hans eru Friðrik Snær Karvelsson og
Bryndís María Olsen.
Nýr borgari