Morgunblaðið - 24.12.2020, Síða 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
FRÁBÆR NÝ JÓLA TEIKNIMYND
JÓLAMYNDIN 2020
Hallelúja! Það er kominbíómynd í bíó sem gerðvar fyrir hvíta tjaldið enekki flatskjái. Að vísu fór
hún beint í streymisveituna HBO
Max um leið og bíó í Bandaríkjunum
og get ég vel ímyndað mér að leik-
stjórinn Jenkins hafi verið ósátt við
þá ákvörðun Warner Bros. En hvað
um það, Undrakonan er snúin aftur
og er það vissulega vel.
Fyrri myndin um undrakonuna
Díönu Prince, Amasónuna sem
ákvað að setjast að í mannheimum,
var skemmtileg og naut aðsóknar
langt umfram vonir. Það sem heillaði
við hana var hin kvenlæga saga, saga
um sterkar konur, og töfrandi nær-
vera Gal Gadot, ísraelsku leikkon-
unnar sem er líkt og sköpuð fyrir
hlutverkið. Hafa margir líkt því leik-
aravali við valið á Christopher Reeve
í hlutverk Súpermanns fyrir rúmum
40 árum. Þegar Reeve birtist í bláa
gallanum árið 1978 var engu líkara
en hann hefði sprottið fullskapaður
úr höfði skapara ofurmennisins.
Árið er 1984 með öllum sínum
herðapúðum, sítt-að-aftan-
hárgreiðslum, skrykkdansi, eróbikki
og spilasölum. Díana starfar sem
sérfræðingur í fornminjum við
Smithsonian-safnið í Washington og
syrgir enn unnusta sinn Steve þó
tæp 70 ár séu liðin frá því hann fórn-
aði lífi sínu fyrir mannkynið. Díana
vingast við nýjan starfsmann safns-
ins, Barböru Mínervu, sem er létt í
lund og vingjarnleg en þó einmana
og vinalaus. Á borð hennar hefur
borist furðulegur steinn og kemur í
ljós að þar fer óskasteinn úr heimi
guðanna. Sá sem heldur á honum
fær ósk sína uppfyllta en missir á
móti annað dýrmætt í eigin fari.
Díana og Barbara átta sig ekki á
mætti steinsins sem uppfyllir óskir
þeirra. Díana á þá ósk heitasta að
Steve snúi aftur en Barbara óskar
sér þess að verða eins og Díana, þ.e.
fögur, dáð og vinsæl. Það kemur
Barböru því nokkuð á óvart þegar
hún öðlast til viðbótar ofurmannlega
krafta en verður sífellt fjandsam-
legri í hegðun. Svikahrappur nokkur
að nafni Max Lord stelur nokkru síð-
ar steininum og óskar sér þess að
verða sjálfur steinninn. Nú rætast
óskir allra þeirra sem snerta Lord og
hann verður máttugasti maður
heims. Leiðir það til mikils glund-
roða og stefnir í þriðju heimsstyrj-
öldina þegar Undrakonan tekur mál-
in í sínar hendur.
Skrúfað upp í 11
Ekki er hægt að gera miklar kröfur
um gáfulegan söguþráð eða fléttu í
myndum á borð við þessa enda sögu-
hetjan Amasóna úr heimi goðsagna.
Nei, krafa er fyrst og fremst gerð til
þess að myndin sé skemmtileg, góð
afþreying með gríni, hasar og flott-
um brellum. Og það er Wonder
Woman 1984 vissulega þó hún sé í
lengra lagi, tvær og hálf klukku-
stund. Myndin hefst á löngu atriði
þar sem Díana er sem ung stúlka að
keppa við fullorðnar Amasónur á
eyjunni Þemiskíru en lærir þá lexíu
að það borgar sig aldrei að svindla.
Þessi langi inngangur kemur sögu-
þræðinum lítið við að öðru leyti en
því að minna á guðdómlega tilvist
söguhetjunnar og að hún er óaðfinn-
anleg bæði á sál og líkama. Er svo
stokkið til ársins 1984, í litríka versl-
anamiðstöð þar sem ræningjar fá að
kenna á sannleikssvipu og ógnar-
kröftum Undrakonunnar. Minnir
þetta atriði ekki lítið á eldri ofur-
hetjumyndir, m.a. um fyrrnefndan
Súpermann frá árinu 1978. Glæpa-
mennirnir eru tuktaðir til og færðir
laganna vörðum. Á sjónvarpsskjám
birtist svo svikahrappurinn Max
Lord, leikinn með tilþrifum af Pedro
Pascal, og lofar fólki gulli og græn-
um skógum fjárfesti það í olíufyrir-
tæki hans. Fljótlega kemur í ljós að
um svikamyllu er að ræða og að Max
er í vondum málum, á ekki bót fyrir
rassinn á sér. Hann dregur Barböru
á tálar, stelur óskasteininum og þá
færist fjör í leikinn. Barbara kemur
Max til verndar þegar Díana/
Undrakonan fer að sækja að honum
og babb er þá komið í bátinn því ósk
Díönu veldur því að kraftar hennar
fara þverrandi. Þó ástin blómstri
sem aldrei fyrr hjá Díönu og Steve
gerir hún sér grein fyrir því að þeim
er ekki ætlað að unnast og að hún
þarf að fórna ástinni til að bjarga
mannkyninu, nema hvað. Grætur
Gadot þá söltum tárum á meðan tón-
list Hans Zimmer er skrúfuð upp í
11. Já, þetta er hálfgerð sápuópera í
grunninn.
Allt er sumsé keyrt í botn eins og
verða vill í ofurhetjumyndum og
sjaldséð rómantík fær sæmilegt
pláss í sögunni milli slagsmálaatriða.
Stóri gallinn er hins vegar lokahluti
myndarinnar þar sem væmni og
tölvuteiknað kattarkvendi, Cheetah,
taka völd. Sá ég því kvikindi einhvers
staðar líkt við kettina í Cats og er
það ekki fjarri lagi.
Díana reynist á endanum barna-
lega einföld í sýn sinni á mannkynið
á tímum Ronalds Reagans, gráðugra
verðbréfabraskara og kjarnorku-
vopnakapphlaups. En þá er gott að
muna að þetta er allt saman byggt á
teiknimyndasögum um fullkomna
gyðju sem má ekkert aumt sjá frekar
en starfsbróðir hennar Súpermann.
Hvað sem göllum myndarinnar
líður þá skemmti rýnir sér einkar vel
í nær tómum bíósal á miðjum laugar-
degi. Það var gott að komast aftur í
bíó eftir langt hlé og sjá ofurhetju
svífa um á breiðtjaldi við dúndrandi
tónlist Zimmers. Jú, vissulega er
Wonder Woman 1984 væmin, ýkt, oft
fáránleg og barnslega einföld en hún
er líka skemmtileg, hrífur mann með
sér í hasaratriðum, rómantík og líka
örvæntingu andstæðinga hetjunnar
sem eru í senn illgjarnir og brjóst-
umkennanlegir en ekki tvívíðar per-
sónur eins og svo oft vill verða í ofur-
hetjumyndum.
Wonder Woman 1984 er sannar-
lega jólamynd, mikið sjónarspil og
góð skemmtun. Nú mega jólin koma
fyrir mér.
Undrakonan bjargar jólunum
Ósigrandi Gadot í hlutverki Undrakonunnar. Wonder Woman 1984 er skemmtileg blanda af ævintýri og sápuóperu.
Sambíóin, Smárabíó, Laugarás-
bíó, Borgarbíó og Háskólabíó
Wonder Woman 1984 bbbmn
Leikstjóri: Patty Jenkins. Handrit: Patty
Jenkins, Geoff Johns og Dave Callaham.
Aðalleikarar: Gal Gadot, Chris Pine,
Kristen Wiig og Pedro Pascal. Bandarík-
in, 2020. 151 mínúta.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR